Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2002, Side 14
14
FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002
Innlendar fréttir vil
Helgarblað
DV
Olíufélögin segjast þegar hafa slegið af bensínverði upp á hálfan milljarð á árinu:
Takmörk fyrir því
sem við getum gert
- segir forstjóri Olíufélagsins - ríkisstjórnin væntanlega með kærkomið útspil
Lækka vörugjald
Ríkisstjórnin mun væntanlega
leggja fram frumvarp um aö vöru-
gjald af bensíni verði lækkað tíma-
bundið til að vemda rauða strikið
svokallaða. Að óbreyttu stefnir i að
bensínhækkun geti orðið 4 til 6 kr.
um mánaðamótin. Á móti gæti ríkið
lækkað vörugjaldið af hverjum litra
um 3 til 4 kr.
Vextir lækka
Tilkynnt var um 0,5% lækkun
stýrivaxta á ársfundi Seðlabankans
á þriðjudag. Forsætisráðherra segir
þetta tryggja mjúka lendingu í efna-
hagsmálum - og framkvæmdastjóri
ASÍ fagnar. Bankastjóri Landsbank-
ans segir þessa ákvörðun Seðla-
bankans hafa verið skynsamlega og
býst við frekari lækkun vaxta.
Amfetamín í lagi?
Sú fáheyrða staða er komin upp í
réttargæslukerfinu að uppgötvast
hefur að frá því í júni á síðasta ári
hefur láðst að sérmerkja amfetamín
með svokallaðri b-merkingu. Hún
gefur amfetamíni sérstöðu meðal
annarra lyfja á þann hátt að refsi-
vert sé að flytja efnið inn án leyfis
og í öðm skyni en til lækninga. Mál
þetta hefur vakið efasemdir hjá
meðal annars lögreglu um hvort
innflutningur og notkun am-
fetamíns hafi því verið refsiverður
á þessum tíma.
Hnakkadramb og lambakjöt
Taka verður í
hnakkadrambið
á þeim útflytj-
endum lamba-
kjöts sem bera
ábyrgð á því að
henda þurfti
nokkrum tonn-
um kjöts sem átti
að fara á markað
í ESB-löndunum. Þetta er mat
Guðna Ágústssonar landbúnaðar-
ráðhema sem sagði þetta þegar mál-
ið kom til umræðu á Alþingi. For-
maður Bændasamtakanna óttast
um innanlandsmarkað lambakjöts.
Framkvæmdastjóri Norðlenska seg-
ir íslenska sláturleyfishafa til-
neydda til útflutnings á kjöti - og
vill losna við söluskylduna.
Sprengjukona í steininn
íslensk kona, sem kom með þotu
Flugleiða til Minneapolis á sunnu-
dagskvöldið, brá fyrir sig gaman-
málum við tollverði í flugstöðinni
þar. Hún sagði að sprengja væri í
skónum sem hún var í. Sú yfirlýs-
ing var tekin trúanleg og konunni
stungiö í steininn. „Þetta er enn eitt
dæmið um að fólk á að tala varlega
í flugstöðvum," sagði Guðjón Arn-
grímsson, blaðafulltrúi Flugleiða.
Dætur í vinnuna
Dætur starfs-
manna víða um
land fóru með for-
eldrum sínum í
vinnuna á þriðju-
dag í nafni Auðar
í krafti kvenna.
Lögreglustöðin í
Reykjavík var þar engin undantekn-
ing. „Við erum að reyna að fá stelp-
ur til að hugsa um atvinnusköpun og
tilgang fyrirtækja," segir Þorbjörg
Vigfúsdóttir, sem stýrði þessu átaki,
um tilgang þess.
Illdeilur í Hveragerði
Illdeilur eru meðal sjálfstæðis-
manna í Hveragerði vegna ágrein-
ings um hvað gera skuli við lóðina
Fagrahvammstún. Formaður bæjar-
ráðs vill kaupa lóðina undir eigin
garðyrkjustarfsemi en hluti íbúa,
með Knút Bruun bæjarfulltrúa
fremstan í flokki, vill að íbúðabyggð
rísi á lóðinni. Ásakanir um spill-
ingu og hagsmunapot hafa gengið í
málinu.
Eins og DV greindi frá í gær
eru miklar líkur á að ríkisstjóm-
in muni leggja fram frumvarp
um að vörugjald af bensini verði
lækkað timabundið til að vemda
rauða strikið svokallaða. Að
óbreyttu stefndi í að bensín-
hækkun gæti orðið 4-6 krónur
um mánaðamótin en ríkið á
drjúgan þátt í verði hvers bens-
ínlítra. Hugmyndir eru innan
íjármálaráðuneytisins um að
lækka almenna vörugjaldið úr 10
krónum og 50 aurum á hvem
lítra um 3-4 krónur samkvæmt
upplýsingum DV úr fjármála-
ráðuneytinu. Með því mýndi rík-
ið missa verulegan spón úr aski
sínum því hver króna í bensín-
verði jaftigildir um 200 milljón-
um króna árlega.
„Því er ekki að leyna að þetta
er til skoðunar," sagði Bolli Þór
Bollason, skrifstofustjóri í fjár-
málaráðuneytinu, í samtali við
DV í gær.
Hraðar hendur
Ljóst er að menn þurfa að hafa
hraðar hendur í fjármálaráðu-
neytinu og á þingi í kjölfarið þar
sem semja þarf nýtt frumvarp
um málið. Taliö er að einungis
verði um tímabundna ákvörðun
að ræða. Hækkun á heimsmark-
aðsverði sé árstíðabundin og í
ljósi mikilvægis þess að halda
friði á atvinnumarkaði nú og
tryggja stöðugleika sé rétt að
bregðast við með þessum hætti.
Lagabreytingin sjálf getur að
líkindum ekki orðið fyrr en eftir
mánaðamót.
Olíufélögin gert sitt
Talsmenn efnahagslífsins hafa
lýst áhyggjum vegna málsins að
óbreyttu og hafa forvarsmenn ASl átt
viðræður við bæði ríki og olíufélögin
um hvort þau geti ekki gripið til að-
gerða. Áður en þessar hugmyndir um
útspil ríkisstjórnarinnar komu fram
ræddi DV við ýmsa aðila um þá vá
sem steðjaði að rauða strikinu vegna
fyrirhugaðrar stórhækkunar á elds-
neyti og spurði m.a. Hjörleif Jakobs-
son, forstjóra Olíufélagsins Esso,
hvort röðin væri ekki komin að olíu-
félögunum, ekki síst vegna ágætrar af-
komu þeirra í fyrra. Hjörleifur benti á
að Oliufélagið hefði lagt sitt af mörk-
um það sem af væri ársins. Sem dæmi
hefði bensínverð átt 1. janúar sl. að
Droplnn dýri
Efstjórnvöld samþykkja frumvarp um lækkun vörugjalds á bensíni þurfa íslendingar ekki
að óttast 6 króna bensínhækkun um mánaðamótin. Nógu dýr er dropinn fyrir, eða þrefalt
dýrari en í Bandaríkjunum.
Björn
Þorláksson
blaöamaður
lækka um 1 krónu og 65 aura hérlend-
is miðað við gengi og heimsmarkaðs-
verð en verölækkunin hefði oröið 2
krónur. 1. febrúar sl. hefði verðið átt
að hækka um rúma krónu en þá hefði
verðið staðið í stað. í mars hefði verð-
ið átt að lækka um 25 aura en hafi al-
mennt lækkað um eina krónu. Miðað
Ættarmót í vændum?
Stendur til að koma saman í sumar?
Á Úifijótsvatni er mjöggóð aðstaða fýrir allar stcerðir
hópa til styttri eða lengri dvala. Frábcert tjaldstceði fyrir
allargerðir tjaida og tjaidvagna, fjöibreytt leiktceki fýrir
börnin, stór útigrill og 220 fermetra risatjald.
------------------------------------ ,
Leitið upplýsinga ísíma 894 2074 ÚTILÍFSMIÐSTÖÐ SKÁTA''
eða www.scout.is/ulfljotsvatn úlfljótsvatni
>xV
við heildarsölu á ársgrundvelli hafi
því íslenski olíumarkaðurinn tekið á
sig afloll miðað við heimsmarkaðs-
verð og gengi sem nemi rúmum 400
miUjónum króna á bensínmarkaði og
nálægt 80 milljónum króna í dísilolíu.
Framlög olíufélaganna séu því nálægt
hálfum milljarði á fyrstu þremur
mánuðum ársins sem sé há fjárhæð
miðað við framlegð markaðarins á
ársgrundvelli.
„Það er Olíufélaginu mikið hags-
munamál að rauðu strikin haldi en
það eru takmörk fyrir því sem við get-
um gert. Við munum skoða málið vel
yfir páskana,“ segir Hjörleifur.
Engin sérstök gjafmildi
Runólfur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri FÍB, er ekki alveg sammála
Hjörleifi um þessa „gjafmildi" olíufé-
laganna undanfarið. Hann bendir á að
álagningarhlutfall olíufélaganna hafi
hækkað verulega um mitt síðasta ár
umfram meðalálagningu síðusta miss-
era og olíufélögin hafi virst vera að
mæta óhagstæðri gengisþróun með
þeim breytingum. Nú sé komið jafn-
vægi á markaðinn og því sé eðlilegt að
þeir hafi snúið blaðinu við. „Verðið
hélst óbreytt í febrúar og þá hefði ver-
ið lag til verðbreytinga upp á við. Ef
viðmiðunarpunkturinn er þessi
hækkun á álagningu síðasta árs kann
svo að vera en ef við tökum meðal-
talsálagningu síðustu ára sjáum við
ekki þessum orðum þeirra staö,“ seg-
ir Runólfur.
Með hæstu álögum
Ónafngreindur háttsettur starfs-
maður eins olíufélagsins taldi það
ekki sanngjarna nálgun að gera olíu-
félögin ábyrg fyrir rauðu strikunum
um mánaðamótin. Vitaskuld ætti rík-
ið að slá af sköttum á bensíni á þess-
um viðkvæmu tímum.
Runólfur Ólafsson segir álagningu
ríkisins hafa verið með því
hæsta sem menn þekki í heimin-
um í verðmyndun hvers bensín-
lítra. Bretar og Norðmenn hafi
verið í flokki með okkur en alla
jafna sé mun minni skattheimta
af eldsneyti en hérlendis. Run-
ólfur er sáttur við þann skerf
sem fari til vegagerðar i landinu
en þar með sé ánægja hans með
skattana upptalin.
Kostar 13 krónur
Ef verðmyndun bensínlítra er
skoðuð og miðað við 91,20 kr.
verð á útseldan lltra af 95 okt-
ana bensini með afgreiðslu kem-
ur í ljós að strípað heimsmark-
aðsverð er um þessar mundir
um 13 krónur; allt hitt er álögur.
Föst krónutala er innheimt í
formi vörugjalds sem er 10 krón-
ur á hvern lítra. Síðan leggst 65
aura flutningsjöfnunargjald á
dropann, bensingjaldið eða
vegaskattm'inn er fóst upphæð,
28 krónur og 60 aurar. Virðis-
auki er tæpar 18 krónur miðað
við útsöluverðið nú. Eftir stend-
ur að 57 krónur og 70 aurar eru
skattar af verði 91 krónu bensín-
lítra. Vörugjaldið er almenn
skattheimta og telur Runólfur
hægt að klípa af því.
Væri skelfilegt
Gylfi Arnbjömsson, fram-
kvæmdastjóri ASÍ, sagði við DV
skömmu áður en upplýsingar
bárust um að lækkun vörugjalds
væri til skoðunar hjá ríkinu að
það væri skelfilegt ef verðhækk-
anir á eldsneyti myndu stefna
rauða strikinu í hættu. Þess
vegna teldi ASÍ eðlilegt að ríkis-
stjómin skoðaði það mjög gaum-
gæfilega hvort hún gæti hlaupið tíma-
bundið undir bagga. Hluti hækkunar-
innar á heimsmarkaði væri vegna
timabundinnar óvissu. Bandaríkja-
menn hefðu verið dálítið „aggressífir"
gagnvart íran og fleiri þjóðum og sú
staða hefði áhrif á bensinverð. „Það
væri langeinfaldast að gera þetta í
gegnum vörugjaldið og við höfum
komið því á framfæri við stjómvöld
hvort ekki sé tímabært að aðhafast
núna,“ segir Gylfi.
Hann sagði ASÍ hins vegar aldrei
hafa skrifað undir aðferðafræði olíufé-
laganna varðandi verðlagningu á
bensíni en miðað við hana sé rétt að
olíufélögin hafi undanfarið ekki farið
fram með breytingar í samræmi við
fyrri vinnubrögð þeirra. Gylfi tekur
undir orð Runólfs um að einsýnt, sé
sbr. afkomu olíufélaganna í fyrra, að
þá hafi félögin hækkað álagningu um-
talsvert. „Það er því ekki þannig að ol-
íufélögin eigi einhverjar stórar fjár-
hæðir inni,“ segir Gylfi.
Þrefalt lægra hjá Könum
íslendingar hafa löngum rennt öf-
undaraugum til Bandaríkjamanna en
þar er lítrinn á bensíni nú undir 30
krónum. Ef handahófskenndar
stikkprufur eru teknar um saman-
burðarlönd kemur í ljós að íslending-
ar greiða þó ekki hæst verð allra
þjóða fyrir bensín. Þannig sýnir sam-
anburður frá janúar sl. að Bretar
borguðu 116 krónur fyrir 95 oktan,
Finnar 100 krónur, Norðmenn 97, Hol-
lendingar 95, Danir 95 og við 92. Ef
haldið er alla leið til Spánar var verð-
ið þar 66 krónur og 50 hver lítri.
DV spurði Valgerði Sverrisdóttur,
viðskipta- og iðnaðarráðherra, út í
málið en hún sagðist ekki vera skatta-
málaráðherra og vildi ekki tjá sig
nánar.