Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2002, Síða 16
16
FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002
Helgarblað
DV
J.R.R. Tolklen
Oxford-prófessorinn sem skrifaöi Hringadróttinssögu. „Satt aö segja er ég hobbiti
sagöi hann eitt sinn.
Höfundur Hringa-
dróttinssögu
Fyrsti hluti frábærrar kvikmyndar um Hrlngadróttlnssögu
hefur endurvakiö áhuga á þessu mikla verki Tolkiens.
Tolkien fæddist 1892 og var skírður John Ronald
Reuel Tolkien. Hann missti foður sinn þriggja ára
gamall. Hann var mjög bráðþroska og var orðinn
læs fjögurra ára gamall. Móðir hans hóf þá að kenna
honum latnesk orö og hann hafði ekki síður ánægju
af hljómi þeirra en merkingu. Hann þótti sem bam
afar góður teiknari og hafði sérstaka ánægju af að
teikna landslag og þá sérstaklega tré. Hann hafði
mikiö dálæti á trjám, klifraði upp i þau, hallaði sér
upp að þeim og talaði jafnvel viö þau. Hann var afar
sólgin í að lesa og heyra sögur. Ein eftirlætissaga
hans var sagan af Sigurði fáfnisbana og sjö ára gam-
all samdi hann sína eigin drekasögu.
Þegar Tolkien var þrettán ára lést móðir hans.
Dauði hennar hafði mikil áhrif á Tolkien og trúin
skipaði nú æ meiri sess í hjarta hans. Hann var í
eðli sínu glaðlyndur persónuleiki. En eftir dauða
móður hans varð hann alvörugefnari og átti vanda
til þunglyndiskasta sem stóðu þó aldrei lengi.
íslandsvinurinn Tolkien
Tolkien var góður námsmaður og afburða mála-
maður. Hann lærði til dæmis íslensku, las sér til um
gotnesku og lærði hrafl í frnnsku. Hann skemmti
vinum sínum með því að fara upphátt með hluta úr
Bjólfskviðu sem hann kunni nær því utan að eða
sagði þeim kafla úr Völsungasögu. Hann las íslend-
ingasögur og Völuspá á íslensku.
íslensk tunga
- eftir Matthías Jochumsson
Hvað er nú tungan? - Ætit enginn
orðin tóm séu lífsins forði. -
Hún er list. sem logar af hreysti.
lifandi sái í greyptu státi,
andans form í mjúkum myndum,
minnissaga farinna daga,
fiaumar lífs. í farveg komnir
fteygrar aldar, er striki halda.
Tungan geymir í tímans straumi
trú og vonir landsins sona,
dauðastunur og dýpstu raunir,
darraðarijóð frá elztu þjóðum.
Heiftareim og ástarbríma.
örlagahljóm og refsidóma,
land og stund í lifandi myndum
IJóði vígðum - geymir í sjóði.
Matthías Jochumsson fæddist áriö 1835 og lést áriö
1920. Hann telst eitt helsta skáld rómantísku stefnunn-
ar hér á landi. Ljóö hans eru rík af tilfinningu og mikilli
orögnótt. Matthías var eldheitt trúarskáld og er Lofsöng-
urinn, þjóösöngur íslands, ágætt dæmi þar um. Hann
var ágætur þýöandi og þýddi meöal annars fjögur leikrit
eftir William Shakespeare.
Tolkien gegndi prófessorsstöðu í fornum málvís-
indum við Oxford í tuttugu ár. Hann var alræmdur
fyrir það hversu hratt og óskýrt hann talaði og það
olli nemendum hans talsverðum erfiðleikum. Þeir
þurftu aö einbeita sér af öllu afli til að geta skrifað
upp eftir honum glósur. En honum tókst ætíð að
gera námsefnið lifandi og áhugavert.
Tolkien og Edith kona hans eignuðust fjögur
börn, þrjá syni og eina dóttur og i einni ævisögu
Tolkiens er sagt að íslenskar bamfóstrur hafi um
tíma gætt bamanna og sagt þeim sögur af íslensk-
um tröllum. Líf Tolkiens var á ytra borðinu tíðinda-
lítið og vanafast. Hann leit yfir blöðin á morgnana
en las þau ekki af áhuga, fréttir komu honum lítið
við en hann hafði ánægju af að glíma við blaða-
krossgátur. Hann hitti reglulega kennara í Oxford í
svonefndum Kolbítahópi og þeir lásu saman íslend-
ingasögur en enginn kennaranna tók Tolkien fram
í íslensku. Tolkien átti mestan þátt í stofnun
klúbbsins og vildi sýna samkennurum sinum að ís-
lendingasögumar væra þess virði að lesa þær á
frummálinu. Eftir lesturinn var efni sagnanna rætt.
í hópnum var C. S. Lewis, höfundur Namíu-
bókanna. Þeir Tolkien urðu nánir vinir og Tolkien
las upphátt fyrir Lewis úr Silmerilnuin, bók sem
hann var að skrifa og segir frá sköpun heimsins,
um tilkomu álfa, manna og dverga og baráttu myrk-
urs og Ijóss. Lewis hvatti hann til að ljúka við bók-
ina. Tolkien sagði seinna: „Hann var lengi eini
áheyrandi minn. Aðeins frá honum fékk ég þá hug-
Gerður Krlstný, skáld og ritstjóri, segir frá Astrid Llnd-
grens klogebog.
„Astrid Lindgrens klogebog fann ég i bókabúð
á Kastrup-flugvelli fyrir tveimur árum. Ég var að
koma af Hróarskelduhátiðinni sem reyndist
dramatiskari en reiknað hafði verið með. Átta
ungir menn héldu heldur óvænt til Nangijala.
Þegar ég sá bókina fyrst fannst mér standa á
henni „kogebog" og hélt að hér mætti fmna upp-
skriftina að pönnukökunum hennar Línu
langsokk, blóðbollum mömmu Emils sem enduðu
siðan framan i pabba hans og síðast en ekki síst
kjötsúpunni sem var svo ljúffeng að drengurinn
varð að stinga höfðinu ofan í til að fá síðustu
dropana. Bókin reyndist geyma annað og betra en
uppskriftir, hún er stútfull af snjallyrðum Astrid-
ar. Þau eru meðal annars fengin úr bókunum
hennar, viðtölum við hana og meira að segja má
þar finna lesendabréf Astridar í Dagens Nyheter
frá árinu 1939 þar sem hún bendir á hvað full-
orðnir séu dónalegir við böm. „Það er ekki auð-
velt að vera bam, nei! Þaö er erfitt, mjög erfitt,“
skrifar Astrid. „Hvað hefur það í fór með sér að
vera bam? Það hefur það í fór með sér að maður
þarf að fara að sofa, klæða sig, borða, bursta tenn-
ur og snýta sér þegar þaö hentar fullorðnum, ekki
þegar það hentar manni sjálfum ... Það þýðir líka
að maður þarf að taka því orðalaust að fullorðnir
tjái sig um útlit manns, heilbrigði, útgang og
framtíðarhorfur. Ég hef oft velt því fyrir mér
hvaö myndi gerast ef fullorðnum yrði boðið upp á
það sama.“
mynd að skrif mín gætu orðið eitthvað meira en
áhugamál ætlað mér einurn."
Hobbiti fæðist
Kvöld nokkurt var Tolkien að fara yfir prófúr-
lausnir nemenda. Einn nemandinn hafði skilið eftir
auða blaðsíðu á prófúrlausn sinni og Tolkien skrif-
aði á hana: í jarðholu nokkurri bjó hobbiti. „Eftir
það hugsaði ég með sjálfum mér að ég yrði aö kom-
ast að því hvemig hobbitar væra,“ sagði Tolkien.
„Satt að segja er ég hobbiti," sagði Tolkien eitt
sinn, „að öllu leyti nema í stærð. Ég er hrifinn af
görðum, trjám og opnu landslagi. Ég reyki pípu og
mér líkar við góðan einfaldan mat. Ég er hrifinn af
sveppum, hef mjög einfaldan húmor, ég fer seint að
hátta og seint á fætur. Ég ferðast ekki mikið.“
Tolkien skrifaði Hobbitann fyrir böm sín. Útgáfu-
stjórinn hans hafði þá skoðun að bestu dómarar
bamabóka væru börn og bað því tíu ára son sinn að
lesa handritiö og gefa því umsögn. Hann sagði bók-
ina góða og fékk einn shilling fyrir verkið. C.S. Lew-
is skrifaði ritdóm um Hobbitann og hóf bókina til
skýjanna en hann var ekki einn um það því gagn-
rýnendur í Bretlandi og Bandaríkjunum vora nær
einróma i lofi sínu. Tolkien vildi nú gefa út Silmer-
illinn en útgáfustjóri hans var ekki á því að sú bók
ætti að fylgja í kjölfar Hobbitans og bað Tolkien að
skrifa aðra bók um Hobbitann. Tolkien fór að ráð-
um hans en lenti fljótlega í vandræðum. Hann
hafði ekki hugmynd um hvað hann ætti að láta
gerast í bókinni. Smám saman þreifaði hann sig
áfram og skrifaði Hringadróttinssögu á nætumar
á bakhliðar gamalla prófúrlausna frá nemendum
sínum.
Verk skrifað með lífsblóði
Hann skrifaði útgefanda sínum og sagðist vera
farinn að gleyma bömum við skriftimar og að
bókin gæti hugsanlega hrætt börn. „Vel má vera
að hún henti ekki,“ skrifaði hann. Þegar hann hafði
lokið við verkið sagði hann útgáfustjóra sínum að
verkið væri ekki gallalaust „en það er skrifað með
lífsblóði mínu, eins og það er, þykkt eða þunnt og ég
gat ekki gert það öðruvísi". Það hafði tekið hann tólf
ár að skrifa bókina og þegar hann hafði lokið henni
var hann að nálgast sextugt.
Tolkien kveið viötökum, „mér er ómögulegt að
láta mér standa á sama hvað sagt verður," sagði
hann. Bókin fékk mjög góða dóma. í Bretlandi skrif-
aði einn gagnrýnandi: „Eitt merkilegasta bók-
menntaverk á okkar tímum eða hvaða tímum sem
er. Það er huggunarrikt á þessum erfiðu tímum að
vera enn einu sinni fullvissaður um að hinir hóg-
væra muni erfa jörðina."
Hringadróttinssaga færði Tolkien heimsfrægð.
Blaðamenn þyrptust að heimili hans til að biðja um
viðtöl. Hann kærði sig ekki um athygli en var svo
kurteis að hann átti í erfiðleikum með að neita.
Hann tók það ráð að velja úr þá blaðamenn sem
hann kunni við og tala eingöngu við þá. Almennir
lesendur lögðu sömuleiðis leið sina að heimili hans
og hann bauð þeim inn en hafði þann sið að láta
vekjaraklukkuna hringja eftir nokkrar mínútur og
gaf gestunum þannig í skyn að mikilvæg verk biðu
hans. Hann varði elliárum sínum í að dytta að Sil-
merilnum sem var gefin út að honum látnum.
Tolkien lést árið 1973, 81 árs.
Æskan er svo sannarlega varhugavert ástand.
Ég læt aðra tilvitnun fylgja með úr Astrid Lind-
grens klogebog en hún er úr viðtali sem Svenska
Dagbladet tók við Astrid árið 1970: „Ég hef engan
boðskap fram að færa. Samt vildi ég gjaman út-
breiða almennt umburðarlyndi fyrir mannlegum
brestum." Ekki ónýtt markmið!"
Snjallyrði Astridar
Meinfyndinn
Kundera
Hlálegar ástir er smásagna-
safn eftir Milan Kundera. Safnið
geymir sjö sögur sem fjalla um
ástina, kyniífið, sjálfsvirðinguna
og blekkinguna. Já, það er marg-
ur vandinn sem fylgir því hlut-
skipti að vera manneskja eins og
Kundera sýnir lesendum. Þetta
eru meinfyndnar sögur, sú
fyrsta, Enginn mun hlæja, gefur
tóninn og er eiginlega sálfræði-
lega grimm í fyndni sinni. Eng-
inn ætti að vera svikinn af lestr-
inum. Bókin er nýkomin út hjá
Máli og menningu í þýðingu
Friðriks Rafhssonar.
Kvótiö
Ég kýs félagsskap hinna
ómenntuðu þvíþeim hefur
ekki verið kennt til fulls
hvemig á að rökrœða
vitlaust.
Montaigne
Bókalístinn
ALLAR BÆKUR_________________
1. ISLENSK ORÐABÓK. Árni Böðv-
arsson ritstyrði
2. SÁLMABÓK. Ýmsir höfundar
3. ENSK-ISL. / ÍSL.-ENSK ORÐABÓK -
2000 útq. Orðabókaútqáfan
4. BRENNU-NJÁLSSAGA. Jón Böðv-
arsson ritstýrði
5. BÓKIN MEÐ SVÖRIN eftir Carol
Bolt
6. SPÁMAÐURINN eftir Kahlil Gibr-
an
7. AFMÆLISDAGAR MEÐ STJÖRNU-
SPÁM eftir Amy Enqilberts
8. UÓÐASAFN TÓMASAR GUÐ-
MUNDSSONAR. Tómas Guðmunds-
son
9. DAGAR ISLANDS eftir Jónas
Raqnarsson
10. MOLDVARPAN SEM VILDI VITA
HVER SKEIT Á ... Þórarinn Eldjárn ís-
lenskaði
SKÁLDSÖGUR_______________
1. SÁLMABÓK. Ýmsir höfundar
2. NJÁLA, Jón Böðvarsson ritstyrði
3. UÓÐASAFN TÓMASAR GUÐ-
MUNDSSONAR. Tómas Guðmunds-
son
4. DAUÐARÓSIR eftir Arnald Ind-
riðason
5. HRINGADRÓTTINSSAGA 1-3 í
öskju eftir J.R.R. Tolkien
6. HOBBITINN eftir J.R.R. Tolkien
7. MÝRIN eftir Arnald Indriðason
8. ANNA, HANNA OG JÓHANNA
eftir Marianne Fredriksson
9. ISLANDSKLUKKAN eftir Halldór
Laxness
10. STEINN STEINARR - UÓÐA-
SAFN. Steinn Steinarr
Metsölulisti Eymundsson 21.3-26.3
ERLENDAR KIUUR
1. 2ND CHANCE eftir James Patter-
son oq Andrew Gross
2. THE SUMMONS eftir John Gris-
ham
3. THE COTTAGE eftir Danielle
Steel
4. ATONEMENT eftir lan McEwan
5. THE STONE MONKEY eftir
Jeffery Deaver
Listinn er frá New York Tlmes