Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2002, Síða 21
FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002
21
DV
Helgarblað
Valgeröur Sverrisdóttir.
„Ég vil að Evrópumálin séu skoðuö
af fullri alvöru. Ég er svo praktísk í
skoðunum. Ég reyni aö horfa á mál-
in út frá öllum hliðum, dálítiö kalt,
með hagsmuni þjóöarinnar í huga.
Ein stærsta spurningin núna er
staöa íslendinga ef Danir, Svíar og
Bretar taka upp evruna. Þaö þarf
ekki aö taka svo iangan tíma hjá
þeim aö taka þá ákvöröun. Þá verö-
um viö í erfiðri stöðu ef viö veröum
ekki búin aö vinna okkar heima-
vinnu. “
Norðmanni og standa í deilum við
Norðmenn?
„Nei, það er það ekki. Þetta veld-
ur ekki óeirðum á heimilinu. Minn
maður er búinn að vera hérna síðan
1972 og hann er harðari en ég í við-
horfi til Norðmanna þegar honum
frnnst þeir ekki standa sig sem
skyldi."
- Hefurðu orðið vör við það að
fólki finnist einkennilegt að kona
gegni starfi iðnaðarráðherra og telji
þig ekki hafa nægilegt vit á þessum
málum?
„Ég held að það eigi við þarna
eins og oft er þegar konur fara inn
á nýjar brautir að þeim er í byrjun
tekið með fyrirvara. Þetta þarf ekki
að stafa af fordómum gagnvart kon-
um heldur því að fólki þykir þetta
óvenjulegt. En ef allt gengur eðli-
lega fyrir sig þá breytist þetta. Ég
hef aldrei orðið vör við þetta á þann
hátt að ég geti nefnt dæmi. En ég
hafði þetta á tilfmningunni til að
byrja með. Kannski var það vegna
þess að ég var dálítið óörugg og ég
vissi að ég var fyrsta konan til að
gegna starfi iðnaðarráöherra."
- Þú hefur meira sjálfstraust i
Finnst ég vera á réttum stað
í viðtali við Kolbrúnu
Bergþórsdóttur rœðir Val-
gerður Sverrisdóttir iðn-
aðarráðherra um stór-
iðju, Evrópumál, stjóm-
arsamstarf og ráðherra-
starfið
- Þáð mæðir mikið á þér þessa
dagana, nú þegar umræðan um ál-
ver er svo hávær. Guðjón Guð-
mundsson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, sagði í DV á dögunum að
þú hefðir ekki áhuga á stækkun ál-
versins á Grundartanga. Er ekki
erfitt að fá svona gagnrýni frá þing-
manni samstarfsflokksins í ríkis-
stjóm?
„Hluti af stjómmálum er gagn-
rýni. Ég hef ánægju af að fara í rök-
ræður þvi það gefur mér tækifæri
til að svara lið fyrir lið hvemig mál-
ið er í raun. Við höfum verið í við-
ræðum við orkufyrirtæki. Við höf-
um líka beitt okkur fyrir því að fá
lagalega úttekt á réttarstöðu Þjórs-
árveranefndar til að málið geti farið
í lögformlegt umhverfismat sem all-
ir hljóta að vera sammála um að er
aðalatriði. Það er á misskilningi
byggt ef einhver heldur að málið sé
ekki komið lengra vegna tregðu í
ráðuneytinu. Þvert á móti má halda
því fram að vegna þess að við höf-
um lagt okkur fram í þeim tilgangi
að gera fyrirtækinu mögulegt að
fara út i frekari framkvæmdir sé
málið þó komið þetta langt.“
Ábyrgð fjölmiðla
Prýðileg samvinna stjómarflokk-
anna
- Nú spyr maður sig: Ef ekki stór-
iðja fyrir Austfirðinga, hvað þá?
Þetta virðist ganga æði brösuglega.
„Já, en við færumst þó alltaf nær
af því að við erum að vinna að und-
irbúningi að stórframkvæmdum.
Þess vegna hefur tíminn ekki far-
ið til einskis. Við vitum af áhuga er-
lendra fyrirtækja og vonandi þarf
ekki langur tími að líða þar til fram-
kvæmdir hefjast."
- Verður virkjað við Kárahnjúka?
„Nú er frumvarpið á lokastigi í
þinginu og verður samþykkt fyrir
vorið. Ég veit að þessi virkjun er
hagkvæmur kostur og Austflrðing-
ar eiga kröfu á því að nýta þá miklu
auðlind sem er í túnfætinum til at-
vinnuuppbyggingar. Svo er gott að
vita að verkefnið hefur miklu meiri
stuðning meðal þjóðarinnar en áður
var.“
- Lítur þú svo á að þú njótir
óskoraðs trausts Davíðs Oddssonar
í störfum þínum sem iðnaðarráð-
herra?
„Já, ég er viss um það og hann
hefur staðið afar vel með mér sem
ráðherra."
- Nú segjast pólitískir sérfræðing-
ar sjá merki þess að stjómarsam-
starfið sé ekki alveg jafn traust og
áður:
„Stjómarsamstarf flokkanna hef-
ur skilað miklum árangri fyrir þjóð-
ina en þetta eru tveir flokkar með
ólíkan bakgrunn. Þeir eiga þó margt
sameiginlegt og þess vegna hefur
samvinnan gengið prýðilega. Við
höfum náð gífurlegum árangri en
upp á síðkastið hefur borið meira á
mismunandi sjónarmiðum. Ég tel
að það sé ekki óeðlilegt að eftir
langt samstarf komi upp slík staða.
En ég er líka sannfærð um að þjóð-
in á ekki betri kost en þessa ríkis-
stjóm.“
Þarf að skoða Evrópumálin
Eitt sem skilur á milli flokkanna
er afstaða formanna þeirra til Evr-
ópumála. Þú ert í hópi Evrópu-
sinna, allavega opnarðu vel inn á
þau mál.
„Ég vil að Evrópumálin séu skoð-
uð af fullri alvöru. Ég er svo
praktísk í skoðunum. Ég reyni að
horfa á málin út frá öllum hliðum,
dálitið kalt, með hagsmuni þjóðar-
innar í huga. Ein stærsta spuming-
in núna er staða íslendinga ef Dan-
ir, Svíar og Bretar taka upp evruna.
Það þarf ekki að taka svo langan
tíma hjá þeim að taka þá ákvörðun.
Þá verðum við í erfiðri stöðu ef við
verðum ekki búin að vinna okkar
heimavinnu. Sem iðnaðarráðherra
hef ég hagsmuni atvinnulífs og iðn-
aðar í huga. Rekstur samfélags
byggist á ákveðnum þáttum sem
verða að vera í lagi. Þetta á til dæm-
is við um rekstrarumhverfi fyrir-
tækjanna. Þau verða að vera sam-
keppnishæf við fyrirtæki annarra
Evrópuþjóða. Ef þau eru það ekki
þá bera þau sig ekki og þá missum
við fólkið úr landi vegna þess að
lífskjör hér eru ekki á við það sem
þau eru annars staðar."
- Hefurðu þá ekki áhyggjur af af-
stöðu Sjálfstæðisflokksins til þess-
ara mála?
„Ég veit ekki til að þeir hafi úti-
lokað aðUd að Evrópusambandinu
um alla framtið og svo er það auð-
vitað þeirra mál að móta sína
stefnu.“
- Davíð Oddsson virðist gera það.
„Mér sýnist að sjálfstæðismenn
teiji ekki tímabært að fara í miklar
Evrópuspekúlasjónir núna og þyki
óðagot á okkur framsóknarmönn-
um.“
Hef styrkst í starfi
- Víkjum aðeins að einkalífinu.
Er ekki erfitt fyrir þig að vera gift
þessu starfi en áður, er það ekki?
„Maður sjóast í svona starfi eins
og öðrum. Ég kom mjög skyndUega
inn í þetta ráðuneyti. Fékk engan
umhugsunartíma. Ef stjórnmála-
manni er boðinn ráðherrastóU þá
tekur maður honum. Ég hef styrkst
i þessu starfi.“
- Ráðherrastarfið er annasamt
starf og svo ertu á sífeUdu flakki
mUli landshluta, býrð stundum í
Reykjavík og stundum á Lómatjöm.
Er þetta ekki slítandi?
„Það er slítandi en líka mjög gef-
andi. Gefandi af þvi ég er mann-
eskja sem líður best þegar mikið er
að gera og mikið er fram undan.
Þannig finnst mér ég vera á réttum
stað - kannski i draumastarfi."
- Draumastarfið. Nú eru kosning-
ar á næsta ári og ekki sjálfgefið að
þú verðir ráðherra, Er ekki erfið tU-
hugsun að eiga hugsanlega eftir að
verða óbreyttur þingmaður aftur?
„Ég held að það sé mjög mikU-
vægt að ráðherra geri sér grein fyr-
ir því að ráðherraembætti eru tíma-
bundin, þótt stöðugleikinn í því
starfi hér sé reyndar meiri en al-
mennt gerist í nágrannalöndunum.
Ég veit reyndar að ég mun sakna
mjög mikið starfsfólksins í ráðu-
neytunum en maður verður sífeUt
að hafa i huga að maður á ekki ráð-
herrastólinn.“
m
...þar sem meistararnir mœta!
Miðvlkudagskvöld til Id 3:
Lúdó og Stefán
Fimmtudagur Skírdagun
Opið til miðnættis
Föstudagurinn langl:
LOKAÐ ___________________
Laugardagskvöld tll Id. 3:
DJ Siggi Hlð (Fritt inn).
Páskadagur frá mlðnætti tll Id. 03:
Geirmundur
Valtýsson og
hljómsveit.
í BEINNI Á 3 BREIÐTJÖLDUM:
Miðvikudagur 27. mars
Kl. 19.30 írland - Danmörk
Kl. 19.30 Holland - Spánn
Kl. 20.00 England - Italía
Laugardagur 30. mars
Kl. 12.00 Leeds - Man.Utd
Kl. 15.00 Liverpool - Charlton
Kl. 15.00 Arsenal - Sunderland
Kl. 19.30 Juventus - Lazio
Kl. 20.00 Barcelona - Las Palmas
Annar í páskum 1. apríl
Kl. 19.00 Blackburn - Southampton
Kl. 14.00 Tottenham - Leeds
''Þetta er óvenjulegt skoskt liO,
þvíþeir eru meö góöa ieikmenn."
- Javier Clemente, þjálfari Spánar,
aO hrósa U21 HOi Skota.
Stórhöfði 17 • www.champlons.is
Textavarp 668 • Hádeglshlaðborð virka daga
G STEFAN • GEIRMUNDUR VALTÝSSON • SIGGI H L