Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2002, Blaðsíða 26
26
FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002
Helgarblað
DV
DV-MYND HARI
Hln öfluga hljómkviöa
„Þetta er engin hundraö prósent hallelújamynd enda heföi þaö veriö fáránlegt aö gera slíka mynd um Guöberg Bergsson. Það
má segja aö tilgangurinn meö þessari mynd sé aö hluta til að reyna aö skilja hvernig hann varö þessi helsti uppreisnarmaöur
íslenskra bókmennta sem sló nýjan tón meö hinni öflugu hljómkviöu sem Tómas Jónsson: metsölubók var, “ segir Tómas R.
Einarsson um nýja heimildarmynd um Guöberg Bergsson sem sýnd veröur í Sjónvarpinu í kvöld og annaö kvöld.
Engin 100%
hallelú j amynd
- Tómas R. Einarsson ræðir um nýja heimildarmynd um Guðberg Bergsson
Brad faldi sig á
bak við skeggið
Hjartaknúsarinn Brad Pitt vakti
óneitanlega mikla athygli á dögun-
um þegar hann kom til frumsýning-
ar kvikmyndarinnar Panic Room
vestur í Los Angeles. Pilturinn var
fúlskeggjaður og með dökk gleraugu
á nefinu. Samt tókst honum ekki að
blekkja nærstadda, því bæði al-
menningm- og ljósmyndarar hópuð-
ust í kring um stórstjömuna.
Brad Pitt var kjörinn kynþokka-
fyllsta Hollywoodstjaman fyrir
nokkrum árum. Þá var hann með
skegghýjung, eins og sexí karla er
siður, en aldrei fyrr höfðu aðdáend-
umir séð hann jafn loðinn um kinn-
amar og um daginn.
Harrison Ford
með Calistu
Gamla brýnið og húsasmiðurinn
Harrison Ford er nú ekki lengi að
því sem lítið er. Hann viröist sem sé
hafa jafnað sig eftir hjónaskilnað-
inn og er kominn með hina hold-
rýru Calistu Flockhart úr Ally
McBeal sjónvarpsþáttunum undir
arminn, Að minnsta kosti sát til
gamla Hollywoodgæjans leiðandi
leikkonuna ungu í sólskininu vest-
ur í Kaliforníu.
„Harrison og Calista virtust
virkilega njóta þess að vera saman.
Þau flissuðu og flissuðu og hún
horfði í augu hans,“ sagði sjónvar-
vottur að öllu saman.
Skötuhjúin brugðu sér meðal
annars inn í skartgripaverslun.
*
Ikvöld og annað kvöld verður sýnd í
Sjónvarpinu ný íslensk heimildar-
mynd um Guðberg Bergsson. Um-
sjónarmaður myndarinnar er Tómas R.
Einarsson sem hingað til hefur fremur
verið þekktur fyrir kontrabassann, tón-
list og þýðingar. „Ég hef verið í smá-
vægilegum statistahlutverkum," segir
Tómas um reynslu sína af kvikmynda-
gerð, „en ég hef hins vegar komið nokk-
uð nálægt blaðamennsku í gegnum tíð-
ina og tekið viötöl, reyndar aöallega við
rithöfunda. Að því leyti er ég ekki
reynslulaus. Hinn sjónræni hluti er síð-
an í umsjá Þorgeirs Gunnarssonar."
Aðaluppreisnarmaðurinn
„Ég hitti Guðberg Bergsson fyrst fyr-
ir 17 árum,“ segir Tómas, „þegar ég tók
við hann viðtal fyrir Þjóðviljann.
Nokkrum árum síðar samdi ég lag við
ljóð eftir hann. Við kjöftuðum líka
stundum í síma og þá aðallega um suð-
ur-amerískar bókmenntir og spænsk-
ar.“
Verkefhið sem lítur dagsins ljós í
kvöld kom þannig til að Tómas hafði
legið yfir ævisögum og ljóðabókum
spænskra höfunda sem voru félagar
Guðbergs i Barcelona um 1960. „Það
rann upp fyrir mér að þetta væri ekki
ótengt íslenskri bókmenntasögu. Hann
var í Barcelona í átta ár og það um-
hverfi skipti rithöfundinn Guðberg
Bergsson, aðaluppreisnarmanninn í ís-
lenskum bókmenntum á síðari hluta
tuttugustu aldarinnar, miklu máli. Þá
kviknaði þessi hugmynd um að gera
heimildarmynd um Guðberg. Ég færði
þetta í tal við Haildór Guðmundsson en
hann og Þorgeir Gunnarsson höfðu gert
fjóra þætti um Halldór Laxness. Þá kom
í ljós að þessi hugmynd hafði einnig
borist í tal þeirra á miili. Við slógum
saman þrír en síðan þegar Halldór tók
við forstjórastöðu hjá Eddu hafðþ hann
ekki tíma þannig að við Þorgeir tókum
verkefnið að okkur."
Mikill prakkari
Viðar Eggertsson leikstjóri sagði í
viðtali í DV um það leyti er hann leik-
stýrði Öndvegiskonum eftir Wemer
Schwab að Guðbergur og Schwab ættu
það sameiginlegt að skrifa af fullkomnu
miskunnarleysi um fólkið sem þeir
þekkja svo vel. „Ef manni þykir nógu
vænt um fólk þá getur maður sagt því
sannleikann," sagði Viðar og Tómas
tekur undir orð hans. „Þessi hreinskilni
Guðbergs er einkennandi," segir Tómas.
„Hún felst í rauninni í því að hann
smjaðrar aldrei heldur segir hug sinn
allan án nokkurrar hugsunar um hags-
muni. Kannski dvölin á Spáni hafi auð-
veldað honum þetta því það er erfitt að
vera hreinskilinn í mjög smáu samfé-
lagi. En þó held ég að það hafi ekki skipt
sköpum, þetta er karakter Guðbergs.
Hann getur verið mjög óvæginn og það
birtist helst í blaöagreinum hans. Fáir
em þó eins mikil prúðmenni í viðkynn-
ingu og Guðbergur en hins vegar býr í
honum mikill prakkari og í þvi felst
einn af hans stóm kostum sem rithöf-
undar.“
Nýr tónn
Tómas vill að aðrir dæmi um það
hvort takist að lýsa Guðbergi. „Ég
er ekki ósáttur við niðurstöðuna,“
segir hann. „í rauninni er sá sem
klippir saman svona mynd að búa
til sinn eigin Guðberg; að einhverju
leyti er maður ábyrgur fyrir þeirri
mynd sem er dregin upp. Það var
þó ekki lagt upp með fyrirfram-
gefna sýn sem við vildum ná fram.
Það má segja að hún hafi sprottið
eðlilega.
Þetta er engin hundrað prósent hall-
elújamynd enda hefði það verið fárán-
legt að gera slika mynd um Guðberg
Bergsson. Það má segja að tilgangurinn
með þessari mynd sé að hluta til að
reyna að skilja hvemig hann varö þessi
helsti uppreisnarmaður íslenskra bók-
mennta sem sló nýjan tón með hinni öfl-
ugu hijómkviðu sem Tómas Jónsson:
metsölubók var. Ég held að þar komi til
ýmsir þættir, bæði er það upprunaleg
skapgerð Guðbergs, uppvöxturinn í
Grindavík og það að lenda í suðupotti
framandi menningar i Barcelona."
Hann horfir í kvöld
Verkefnið óx Tómasi aldrei i augum.
„Þetta var fyrst og fremst skemmtileg
vinna. Það er til dæmis gaman að tala
við Guðberg, meðal annars vegna þess
að sjónarhom hans er oft óvænt og
fjarri því að vera það sem maður býst
við. Hann er oft Ulyrmislega fyndinn,
líka býsna spakur og allt þar á milli."
Hann veit ekki hvemig Guðbergi muni
líka verkið. „Hann verður bara að horfa í
kvöld," segir Tómas því Guöbergur hefur
ekki enn séð myndina. „Hann hefur ver-
ið tilbúin í öll viðtöl og flakkað með okk-
ur um Spán. Hann hefur hins vegar
aldrei spurt út í myndina að öðra leyti.
Þetta er á okkar ábyrgð og hann skilar
sínu. Það væri heldur ekki í hans anda aö
reyna að hafa áhrif á útkomuna."
Jaime Salinas, útgáfufstjóri og vinur
Guðbergs, hefur verið Tómasi og Þor-
geiri haukur í homi við gerð myndar-
innar. „Hann hefur reynst okkur ótrú-
leg hjálparhella," segir Tómas. „Hann
þekkir bókmenntalífið á Spáni út og inn
og það virtist nóg að nefna þau nöfn sem
við höfðum áhuga á að tala við og þá sá
hann um afganginn. Þar var engin fyr-
irhöfn spörað. Ef ég vil þakka einhverj-
um þá er það Jaime Salinas og svo auð-
vitað Guðbergi Bergssyni sjálfum." -sm
Miðvikudaginn 17. apríl
næstkomandi fylgir DV
glæsilegur blaðauki um
brúðkaup. Fjallað verbur
um allt það sem vibkemur
undirbúningi og framkvæmd
brúbkaupsins ásamt
lubsynlegum hollrábum til
dagurinn megi veráa
sem eftirminnilegastur fyrir
brúðhjónin og gesti þeirra.
Síöasti skiladagur auglýsinga er
föstudagurinn 12. apríl.
Auglýsendur,
athugið
Sími 550 5000 I Fax 550 5727 I Netfang auglysingar@dv.is