Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2002, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002
Helgarblað
27
I>V
Farandsýning
- um Halldór Laxness í Svíþjóð
FRÁ GUNNARI HÓLMSTEINI i UPPSÓLUM
I Kulturhuset í Stokkhólmi var í síð-
ustu viku hleypt af stokkunum farand-
sýningu um Halldór Laxness í tilefrii af
aldarafmæli hans. Sýningin saman-
stendur af tólf plakötum með þrykktum
myndum og textum um skáldið, þar sem
í fáum orðum er farið yfir feril hans.
í sjálfu sér er ekki margt nýtt á sýn-
ingunni fyrir þann sem þekkir til
skáldsins. En þar er margt skemmtilegt
að sjá, gamlar ljósmyndir, skemmtilegar
tilvitnanir í bækur hans og góðar ljós-
myndir af honum sjáifum.
Við opnunina flutti Pétur Már Ólafs-
son, útgáfustjóri Vöku-Helgafells, grein-
argóðan fyrirlestur um Laxness og verk
hans. Þá flutti Lars Lönnroth prófessor
fyrirlestur sem einnig birtist síðastlið-
inn sunnudag í Sænska dagblaðinu,
undir fyrirsögninni „Laxness gerði bylt-
ingu gegn íslensku sagnahefðinni". Þá
voru veitt menningarverðlaun Sænsk-
islenska samvinnusjóðsins, sem að
þessu sinni féilu í skaut Báru Lyngdal
Magnúsdóttur leikkonu og sambýlis-
DV-MYNDIR GUNNAR HÓLMSTEINN
Guðný Halldórsdóttir leikstjóri
segir bíógestum (á „broken english“
eins og hún sagöi sjáif) frá tilurö
myndarinnar Úngfrúin góða og Húsiö.
Sýningaropnun fagnað
Svavar Gestsson sendiherra, Guöný Halldórsdóttir leikstjóri, Guörún Ágústsdóttir
sendiherrafrú og Pétur Már Ólafsson, útgáfustjóri Vöku-Helgafells.
manni hennar, Peter Engkvist leik-
stjóra, en þau reka Pero-leikhúsið í
Stokkhólmi. Hafa þau m.a. sett upp mik-
ið af leikritum fyrir böm og í fyrra settu
þau einnig á svið leikritið Ormstungu,
um ástir og örlög Gunnlaugs ormstungu
og Helgu fógru. Fékk stykkið afar góðar
viðtökur meðal gesta og gagnrýnenda.
Þykja þau hafa staðið sig vel f að efla
menningartengsl íslands og Svfþjóðar
og því em þeim veitt verðlaunin í ár.
Vefsíða leikhússins þeirra er
www.pero.se.
Bára og Peter stóðu einnig fyrir
skemmtilegum samlestri úr íslands-
klukkunni, sem nú hefur verið gefm aft-
ur út í Svíþjóð bæði á íslensku og
sænsku í sömu bókinni. Lásu Peter og
Bára samtimis sitt á hvom tungumál-
inu, sem vakti mikla kátínu meðal gesta.
Guðný Halldórsdóttir kvikmynda-
leikstjóri var viðstödd opnun sýningar-
innar og að henni lokinni lá leiðin í bíó,
þar sem kvikmynd hennar, Úngfrúin
góða og Húsið, var sýnd. Þetta var Sví-
þjóðarfmmsýning á kvikmyndinni og á
undan sýningunni flutti Guðný
skemmtilega ræðu um tilurð myndar-
innar.
Laxness-sýningin er samvinnuverk-
efni sendiráðs fslands í Stokkhólmi,
menntamálaráðuneytisins, Landsbóka-
safns og fleiri aðila. Kaupþing í Stokk-
hólmi fjármagnaði sýninguna sem mun
á næstu mánuðum flakka um Svíþjóð.
Hvar hún er og hvenær er hægt að sjá á
vefsíðu íslenska safnaöarins í Svíþjóð:
www.kirkjan.org/laxness og www.is-
land.se.
Að sögn Péturs Más Ólafssonar út-
gáfustjóra er áhuginn á verkum
Laxness aftur að aukast meðal Svía og
nýjar útgáfur á döfmni þar í landi.
Pau fengu verölaun
Peter Engkvist ieikstjóri og Bára
Lyngdal Magnúsdóttir leikkona.
Heilagleiki í loftinu
- heimsókn í norska sendiherrabústaðinn
fslendingar hafa alltaf verið soldið
svag fyrir Norðmönnum. Gömlu höf-
undamir sem sáu um að setja íslend-
ingasögumar á hlað gerðu mikið úr
norskum uppmna okkar og íslensk
skáld máttu ekki sjá norskan kóng án
þess að yrkja fyrir hann eins og eina
drápu. fslenskir bændur (sem kölluðu
sig hetjur í góðra vina hópi) vom í
þann tíð hálfgerðar grúppíur þegar
kom að hirð konunga.
Það vom engir grúppíutaktar í gest-
um norska sendiherrans á mánudags-
kvöldið þegar hann bauð heim til sín
nokkrum Noregsvinum (shr. orðið ís-
landsvinur) til að hlýða á rithöfundinn
Lars Saabye Christensen sem fyrir
skemmstu hlaut Bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs fyrir bók sína Hal-
vbroren.
Höfimdurinn sat miðsvæðis, nánar
tiltekiö á mótum tveggja stofa í húsi
sendiherrans. Meðfram veggjum vom
stólar og sófar sem fólk raðaði sér í til
að hlýða á lesturinn. Þetta var svolít-
ið eins og ég ímynda mér fundi hjá
sálarrannsóknarfélögunum, ekki síst
vegna þess að það var einhver
spenna, einhver heilagleiki í loftinu.
Einhverjir þræðir virðast liggja
milli Lars Saabye Christensen og ís-
lands. f einni af vinsælustu bókum
Kollegar skiptast á skoöunum
Eitt af höfuöskáldum íslensks sam-
tíma, Matthías Johannessen, kom til
aö hlýöa á lestur kollega síns.
DV-MYNDIR HARI
Bókln og barniö
Þaö var eins og Lars Saabye væri
með ungbarn í höndunum þegar
hann handlék nýjustu bók sína,
Halvbroren.
hans er víst fjallað um mann sem fer
til fslands og í verðlaunabókinni er
frægur íslendingur til umfjöllunar,
enginn annar en Jóhann risi sem í
Noregi var kallaður Paturson og
þannig er það líka í bókinni.
Höfundurinn virtist sjálfur fremur
feiminn en komst allur á flug þegar
hann hóf lestur úr bók sinni. Halv-
broren er vel á sjöunda hundrað blað-
síður og lestur hennar því bæði
styrkjandi fyrir andann og helstu
vöðva handleggjanna. Af þeim texta-
dæmum sem höfundurinn las mátti
líka ráða að hláturtaugamar fengju
nokkra æfingu og jafnvel tárakirtl-
amir líka. -sm
Höfundurinn hógværi
Lars Saabye Christensen hlaut
Bókmenntaverölaun Noröurlanda-
ráös fyrir skömmu. Þrátt fyrir þá
upphefö og fjöldann allan af verö-
launum er hann hógvær í allri
framgöngu en mikill húmoristi.
„ÞESSARA TONLEIKA
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS
UNDIR STJÓRN ASHKENAZY
Æ VERÐUR MINNST
Æ SEM EINS AF HÁPUNKTUM
í TÓNLEIKAHALDI HENNAR."
DV. SIGFRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR. 19. JANÚAR 2001.
STÓRVIÐBURÐUR FIMMTUDAGINN 11. APRÍL KL. 19:30 í HÁSKÓLABÍÓI
EDWARD ELGAR Fyrir rúmu ári urðu löngu tímabærir endurfundir Vladimirs Ashkenazys og Sinfóníuhljómsveitar íslands. Á þeim tón- leikum var samspil hljómsveitar, stjórnanda og einsöngvara með slíkum hætti að gestir og gagnrýnendur voru á einu máli: Tónleikarnir voru frábærir og einstakur listviðburður. Nú snýr Ashkenazy aftur í Háskólabíó til að stýra hljómsveit- inni við frumflutning á íslandi á stórvirki Edwards Elgars „The Dream of Gerontius". Á sviðið munu einnig stíga stórsöngvararnir Charlotte Hellekant, Robert Gambil og Garry Magee ásamt Kór íslensku óperunnar. Er rétt að hvetja unnendur lista að tryggja sér miða á meðan þeir bjóðast. Miðasalan er hafin en þú getur náð forskoti með því að senda strax miðapöntun á sinfonia@sinfonia.is.
SPENNANDI DAGSKRÁ FRAMUNDAN:
18.4 ÁSKELL OG STRAUSS 1 Á efnisskránni eru tvö verk eftir Richard Strauss og eitt eftir Áskel Másson sem eiga það sameiginlegt að hafa ekki heyrst í Háskólabíói áður.
26/27.4 VORMENN ÍSLANDS1 Jóhann Friðgeir Valdimarsson, Jón Rúnar Arason og Úlafur Kjartan Sigurðsson eru í farar- broddi á glæsilegum óperutónleikum.
3.5 GÓÐUR GESTUR 1 Einleikur Erlings Blöndals Bengtssonar með Sinfóníuhljómsveitinni er alltaf sérstakt tilhlökkunarefni. í þetta skiptið er það sellókonsert Williams Waltons.
11.-26.5 HOLLENDINGURINN FLJÚGANDI1 Framlag Sinfóníu- hljómsveitarinnar til Listahátíðar er þátttaka í hinni mögnuðu óperu Wagners. Miðasala hefst í Þjóðleikhúsinu 2. apríl.
30.5 SIBELIUS OG SJOSTAKOVITSJ 1 Guðný Guðmundsdóttir konsertmeistari Sinfónfuhljómsveitarinnar leikur einleik á tónleikum sem hafa á sér afar dramatískan blæ.
(Z) LEXUS Sinfóníuhljómsveit íslands [ ■ Háskólabíó við Hagatorg V M Sfmi 545 2500 sinfonia@sinfonia.is www.sinfonia.is
AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUNNAR