Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2002, Blaðsíða 30
38
FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002
Helgarblað
x>v
Frá upphafi bílaaldar á íslandi hef-
ur veriö barist gegn því með oddi og
.+ egg að menn aki bifreiðum undb-
áhrifum áfengis. Sú barátta hefur
ekki alltaf borið árangur og afleiðing-
arnar oft orðið hörmuleg slys og þarf
ekki að fara langt aftur í tímann tii
þess að fmna dæmi um slíkt. Ökuferð-
ir þar sem Bakkus konungur er til
halds og trausts við stjórn ökutækis
hafa oft endað með skelfingu og eftir-
farandi saga sýnir vel hvemig slík
slys getur borið að höndum.
Saga okkar gerist norður í Skaga-
flrði haustið 1950, nánar tiltekið seint
í október eftir að nótt er orðin dimm
og vegakerfi ekki eins fullkomið og
nú tiðkast. Þá var laugardagskvöld
eitt efnt til dansskemmtunar í Varma-
hllð í Skagafirði og þyrptist þangað
ungt fólk hvaðanæva úr héraðinu.
Allir á pallinn
Skemmtunin stóð tO klukkan tvö
um nóttina og þegar henni lauk fór
Chevrolet-vöruflutningabifreið árgerð
1947 af stað frá Varmahlíð og hélt út 1
myrkrið. Þegar bifreiðin fór frá
Varmahlíð voru á henni 19 menn. Þar
af stóðu 15 á vörupaliinum en þrír
höfðu troðið sér fram í stýrishús hjá
bílstjóranum. Vörupallurinn var án
sæta og skýlis með 25 sentímetra
háum skjólborðum en aftan við stýris-
Skín við sólu Skagafjörður
/ Skagafirði hafa menn alltaf kunnað að skemmta sér og ekki hikaö við að kveðja Bakkus konung til föruneytis við sig
á góðri stund. Skemmtiferðir þar sem hann er með í förgeta endað voveiflega eins og eftirfarandi frásögn ber með
sér.
Okuferð sem endaði illa
- Skagfirðingar ferðast án aðgæslu.
hús bifreiðarinnar var handrið gert af
jámpípu jafnhátt stýrishúsinu og gert
til þess að halda sér i það. Má nærri
geta að hópurinn á pallinum hefur
ekki allur getað haft hönd á handrið-
inu og erfitt hefur mátt vera að halda
góðu jafhvægi í myrkri á krókóttum
vegum Skagafjarðar, sérstaklega þeg-
ar þess er gætt að ekki er víst að aliir
farþegarnir hafi verið allsgáðir.
Það kom fram við rannsókn máls-
ins að margir gátu ekki haldið sér í
neitt nema næsta mann meðan á
ferðalaginu stóð. Margir þeirra sem
stóðu á paliinum bám fyrir dómi að
þeir hefðu verið undir áhrifum áfeng-
is.
Engu að síður gekk ferðaiagið
slysalaust og við bæinn Grófargil í
Seyluhreppi fóru sex systkin af pallin-
um og sjöundi farþeginn röskum kOó-
metra lengra, við Stóru-Seylu. Þegar
bifreiðinni hafði verið ekið 6.6 kfló-
metra frá Varmahlíð og var komin á
móts við Háfldórsstaði varð slys það
sem nú verður nánar greint frá.
Myrkur og slydduhríð
Veður var með þeim hætti að rign-
ingarslydda var úr norðri en ekki tO-
takanlega hvasst en niðamyrkur. Bif-
reiðin rann út af veginum við HaO-
dórsstaði og lenti úti í skurði vestan
vegarins án þess þó að velta. Við
slinkinn sem kom á bifreiðina hentust
flestir þeirra átta farþega sem enn
voru eftir á paflinum út af honum og
köstuðust út í vegarskurðinn.
Flestir virðast hafa staðið upp og
burstað af sér rykið og leirinn en einn
varð seinni tfl og lá flatur þegar bfl-
stjórinn kom út tO að forvitnast um
afdrif farþeganna. Bflstjórinn spurði
farþegann hvort hann væri meiddur
en hann sagðist ekki vita það. Voru
nú gerðar ráðstafanir tfl að koma hon-
um um borð í jeppabifreið sem var á
ferð rétt á eftir vörubflnum og hann
fluttur í snatri á Sauðárkrók. Hann
missti meðvitund um líkt leyti og
hann var settur um borð í jeppann og
þegar komið var með hann tO Sauðár-
króks úrskurðaði héraðslæknirinn
hann látinn þegar í stað.
Óvanur bflstjóri sá illa út
BOstjórinn gat þess fyrh' dómi að
hann hefði ekki séð vel út úr bflnum
þar sem krepjuklessingur settist á
framrúðuna og þurrkan gekk ekki vel
á rúðunni. Hann taldi sig vita um
ræsi í veginum á þessum slóðum en
kvaðst ekki hafa séð það. BOstjórinn
har einnig að hraðamælir bifreiðar-
innar hefði ekki verið í lagi, vegurmn
blautur, þungur og nýheflaður með
lausri möl í köntum. Sjálfur kvaðst
hann ekki vanur akstri slíkra bifreiða
en verið fenginn tfl þess í þetta sinn af
umráðamanni bifreiðarinnar sem
sjálfur var ölvaður.
Lögregla frétti á skotspónum
BOstjórinn þvertók fyrir að hafa
neytt áfengis áður en hann hóf akstur-
inn. Fyrir þessu varð dómurinn hins
vegar að hafa orð hans og félaga hans
og ekkert annað. Þegar komið var
með hhm slasaða á sjúkrahús var
nefnflega ekki haft samband við lög-
regluna, hvorki af bOstjóra né um-
ráðamanni bflsins. Lögreglumenn á
Sauðárkróki fréttu á skotspónum þeg-
ar líða tók á dagum eftir að bflslys
hefði orðið og maður þar beðið bana.
Fyrir vikið var ekkert blóð tekið úr
bOstjóranum né öðrum sem málið
varðaði og rannsókn þess hófst ekki
fyrr en löngu eftir hádegi á sunnudag.
Umráðamaður bifreiðarhinar bar
fyrir rétti að bOstjórinn hefði verið
fenginn tO akstursOis vegna þess að
hann hefði verið talinn frír af áfengis-
neyslu. Hann taldi að bifreiðin hefði
verið á 45 kOómetra hraða en það
varð ekki staðfest þar sem hraðamæl-
ir var ekki virkur. Hann taldi að far-
þeginn sem lést hefði staðið aftast
þeirra farþega sem enn voru á pallin-
um þegar slysið gerðist og hann taldi
að bOstjórinn hefði lent með annað
framhjólið út af plötu sem legið hefði
yfir ræsi í veginum og þess vegna
misst hann á hliðina. Hann bar við
vanþekkingu sOmi og athugunarleysi
þegar hann var spurður hvers vegna
ekki hefði verið kaflað á lögreglu þeg-
ar um nóttina.
Innvortisblæðingar
Vitni sem leidd voru fyrir sýslu-
menn studdu flest framburð bOstjór-
ans og eiganda bifreiðarinnar. Þeir
töldu að farþeginn hefði aldrei staðið
upp eftir að hann kastaðist af paflin-
um og þeir sem höfðu tal af honum
áður en hann missti meðvitund töldu
hann hafa kvartað um eymsli í maga.
Læknir á sjúkrahúsinu á Sauðár-
króki, sem úrskuröaði farþegann lát-
inn þegar komið var með hann um
nóttina, var falið kvöldið eftir að
framkvæma líkskoðun eða krufningu.
f skýrslu hans segir:
„Ytri áverkar voru engir sjáanlegir,
utan smásár á höfði hægra megin.
Engin blæðing úr munni, nefi eða eyr-
um. Upplýst var að hann hefði verið
við meövitund fyrst eftir slysið. Þar
sem af almennri líkskoðun er ekki
ljóst hvert banamein hefur verið er
sama dag í samráði við bæjarfógeta
opnað kviðarholið. Kemur þá í ljós að
það er fuflt af dökku fljótandi blóði.
Við nánari skoðun finnst að lifrin er
rifin sundur þvert 1 gegn framan und-
ir hægra síðubarði. Skemmdir fúnd-
ust ekki á öðrum líffærum i kviðar-
hoíi..
Ályktim: Dánarorsök er blæðing
Oin í kviðarholið frá sprungOmi 10-
í dómsskjölum segir að af skýrslum
vitnanna megi ráða að aflir sem á
paflOium voru utan farþeginn sem
slasaðist hafi henst af paflinum niður
í skurðinn þar sem vatn og leðja hlífði
þeim við meiðslum. FarþegOm sem
lést fór hins vegar „austur af bflreið-
inni“ og má ætla að hann hafi lent á
harðri brún vegarins.
Reyndu að skrökva að
réttvísinni
Við rannsókn kom í ljós að hvorki
bflstjórinn né eigandi bifreiðarinnar
vissu nákvæmiega hve margir farþeg-
ar stóðu á pafli bflreiðarinnar. Þótti í
ljósi þess akstur bflstjórans á 45 kOó-
metra hraða við vondar aðstæður með
hvorki þurrkur né hraðamæli í lagi
væri í hæsta máta ámælisvert. Þegar
það bætist við að stýrishús bflreiðar-
innar var ofsetið af tveimur mönnum
fram yfir þar sem leyfdegt var og
þrengslni sem af því stöfuðu hljóta að
hafa truflað bflstjórann við aksturinn
verður að telja framferði ákærða mjög
gálaust og fjarri þeirri varfærni sem
honum var skylt að sýna sem bifreið-
arstjóri.
Töluverður málarekstur varð í
tengslum við að nokkrir farþeganna
tóku þátt í því ásamt bflstjóra og eig-
anda bflsins að gefa réttinum rangar
upplýsingar um fjölda farþega í stýris-
húsi og fjölda farþega í förOmi í hefld.
Þess vegna fór svo að bflstjórinn
var ákærður fyrir manndráp af gá-
leysi og dæmdur í þriggja mánaða
fangelsi og sviptur ökuréttindum ævi-
langt. Þrír aðrir, þar með talOm eig-
andinn, voru dæmdir í þriggja mán-
aða fangelsi skflorðsbundið og sviptir
kosningarétti og kjörgengi vegna þátt-
ar þenra í yfirhylmingu. Þrir tfl við-
bótar fengu þriggja mánaða dóm á
skflorði en héldu kjörgengi og einn tfl
viðbótar var dæmdur í 45 daga varð-
hald.
Aflir þeir ákærðu voru á unga aldri
eða á aldrinum 19 tfl 24 ára.
Það má ímynda sér að það hafi ver-
ið glaðhlakkalegur karlmennskublær
yfir leiðangri Skagfirðinganna þegar
þen- óku út í myrkrið frá Varmahlíð
þetta svala laugardagskvöld. Á
skömmum tfma missti einn félaga
þeirra líf sitt en lfl annarra var mark-
að fyrir lifstíð. PÁÁ