Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2002, Qupperneq 42
FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002
í DV-Sport Snocrossinu
fer fram við Skautahöllina
laugardaginn 30. mars kl. 14:00
Æfirigar byrja kl: 11:30
og keppnin kl: 14:00
Kynning á keppendum ^
verður í Skautahöllinni
föstudaginn 29. mars kl. 22:00
Margt skemmtilegt í
boði ásamt léttum veitingum
frá Carlsberg
Aðgangseyrir á keppnina
er 1000 kr. fyrir 12 ára
og eldri
mk
—'
SPOKTFSMMR
www.sporttours.is
iH
VERKTAKAR
FLUCfílAC ÍSLANDS }
A
iS, §0$
ATHYGU jmn
PJ r
TediGmyndir jHMSport r.siomu.dmok Jft .ÍSÍ.ÍÍfc? GREiriNN
jmmm xJ&jMjij yamaha hcixnx
Helgarblað
DV
Amber-skákmótið í Mónakó:
Slök frammistaða Kramniks
í Mónakó, í stærsta spilavítinu og
því virðulegasta, er teflt svokallað Am-
ber-skákmót sem haldið er árlega, en
það heldur auðkýfmgur einn til minn-
ingar um látna tónelska dóttur sína,
Amber. Þar eru tefldar atskákir og
blindskákir og hefur mót þetta vakið
mikla athygli á undaníornum árum þó
mesti ljóminn og áhuginn á því hafl
dvínað.
Spænski stórmeistarinn Alexei
Shirov, sem varð neðstur í Linares, er
efstur og það eru fyrst og fremst yflr-
burðir hans í blindskákinni sem valda
þvi. Keppendur tefla eina atskák og
eina blindskák hver við annan og þeg-
ar 9 umferðum af 11 er lokið er Shirov
sem sagt efstur með 12 vinninga. Mikil
spenna er i mótinu en sex keppendur
hafa raunhæfa möguleika á sigri. í 2.-5.
sæti eru Bareev, Ivanchuk, sem sigraði
Kramnik 1,5 v. í 9 umferð, Leko og
Morozevich með 11,5 vinninga. Gelfand
er sjötti með 11 vinninga. Bareev og
Gelfand eru efstir í atskákinni en
Morozevich er efstur í blindskákinni.
Athygli vekur slæm frammistaða
Vladimirs Kramniks, heimsmeistara í
skák, en hann verður að teljast vera
það, hann lagði sjálfan Kasparov að
velli og Kaspi sjálfur viðurkennir hann
sem heimsmeistara og kallar sig sjálfur
„Numero uno“. En staðan að loknum 9
umferðum er þessi: 1. Shirov 12 v., 2.-5.
Bareev, Ivanchuk, Leko og Morozevich,
11,5 v., 6. Gelfand, 11 v., 7. Topalov, 9,5
v., 8. Kramnik, 9 v., 9. Piket, 7 v., 10.
Almasi, 6 v., 11. Ljubojevic, 4 v., 12. Van
Wely, 3,5 v. Hver ástæðan er fyrir
slæmu gengi Kramniks er á huldu en
hann þótti hér í eina tið geflnn fyrir
hið ijúfa líf. Hann hefur e.t.v. hellt sér
út í það af of miklum krafti aftur, eftir
sigurinn á Kasparov, og hefur gleymt í
bili að það er kalt á toppnum og það
kostar, eins og stærsti strákurinn í
Taflfélaginu segir, að vera á toppnum.
En Kramnik kann að tefla og ætla ég
að birta 2 af bestu skákum hans sem
hann tefldi rúmlega tvítugur, en hann
er fæddur 1975. Þetta eru einhverjar
glæsilegustu skákir síðasta áratugar -
aðeins bestu skákir Kasparovs standa
þeim jafnfætis. Er nema von að
Kasparov sé smeykur við piltinn sem
fór svona með hann fyrir 8 árum?
Meistari Tal hefði varla gert öllu betur
sjálfur og hristi hann þó ýmislegt fram
úr handraðanum.
Hvítt: Garri Kasparov
Svart: Vladimir Kramnik
Slavnesk vöm.
Dos Hermanas, Spáni (6) 1996
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rc3 Rf6 4.
Rf3 e6 5. e3 Rbd7 6. Bd3 dxc4 7.
Bxc4 b5 8. Bd3 Bb7 9. 0-0 a6 10. e4
c5 11. d5 c4 Allt þetta er vel þekkt
í fræðunum, leikur eins og 11.e5,
er slæmur vegna 12. b3 og hvítur
hefur mjög varanlegt frumkvæði.
12. Bc2 Dc7 13. Rd4 Rc5 Næsti
leikur Kaspa þótti ágætur um 1990
en þegar þama var komið sögu
(1996) tefldu menn á þessum áram
14. Bg5 0-0-0 með færum á báða
bóga. 14. b4 cxb3 15. axb3 b4 16.
Ra4 Rcxe4 Ekki stenst Krammi
freistinguna en þetta var allt þekkt
auðvitað. Hér var venjulega leikið
17. dxe6 strax svo eftir 18. leik hvíts,
sem var nýjung frá hendi heims-
meistarans, féll Krammi í þunga
þanka en leikjunum hafði annars
verið leikið tiltölulega hratt, eins og
þessir kappar gera þegar andstæð-
ingurinn teflir eins og búist hafði
verið við áður en lagt var í hann!
17. Bxe4 Rxe4 18. dxe6 Bd6 19.
exf7+ Dxf7 Hugmynd Kasparovs
var að svartur væri neyddur til að
drepa með kóng á f7 eða kóngur
svarts yrði fastur á miðborðinu. En
það eru margir möguleikar í skák
og ekki einu sinni Kasparov getur
reiknað út helminginn af þeim. 20.
f3 Dh5 Hótar máti! 21. g3
Nú dynja fórnimar yfir Kaspa
sem fljótlega veit ekki sitt rjúkandi
ráð! 21. - 0-0! Fórnar manni. 22.
fxe4 Dh3. Hér bregst Kaspa boga-
listin, fórnin stenst ekki alveg, telja
menn og tölvur! Best er að leika 23.
De2 og eitt afbrigðið er 23. Hfe8 24.
Rc5! Annars er staða þessi svo flók-
in að það er erfltt að gera henni
tæmandi skil í skákskemmtigrein í
DV. En áhugasamir liggja náttúr-
lega yfir þessum skákum um pásk-
ana og kynnast dýpstu leyndardóm-
um skáklistarinnar! 23. Rf3? Bxg3
og enn fórnar hann. Besti leikur
hvlts er 24. Ha2 og staðan mjög óljós
eftir 24. - Bxe4 25. fxg3 Had8, verk-
efni nr. 2 fyrir ykkur! En það er
sjaldgæft að Kaspi leiki 2 afleiki 1
röð. 24. Rc5?
Enn dynur skothríðin á heims-
meistaranum þáverandi og nú verð-
ur hann heilum hrók yflr. En hann
er líka með tapað eftir næsta
sleggjuleik. 24. - Hxf3! 25. Hxf3
Dxh2+ 26. Kfl Bc6! Þessi er erfið-
ur, hótar Bb5+. Næsti leikur hvíts
miöar að því að valda d8-reitinn en
þá verður e8-reiturinn laus í stað-
inn!? 27. Bg5 Bb5+ 28. Rd3 He8!
29. Ha2
Kaspi reynir að blíðka eftirmann
sinn með því að henda í hann hrók.
Eftir mjög glæsilega skák missir
Kramnik hér af máti í fjórum leikj-
um. Þó finnst mörgum það ekki
spilla skákinni neitt því Kasparov
lendir I þvílíkri úlfakreppu að það
hálfa væri nóg. Ég' er að hugsa um
að hafa þessa stöðu sem páskaþraut:
svartur mátar í 4. leikjum! 29.
Dhl+?! 30. Ke2 Hxe4+ 31. Kd2
Dg2+ 32. Kcl. Og ef hér 32. Rf2 þá
kemur Hd4+ og vinnur þá gömlu.
32. - Dxa2 33. Hxg3 Dal+ 34. Kc2
Dc3+ 35. Kbl Hd4 Svo sannarlega
merkileg skák, eftir 36. Bf6
Bxd3+ 37. Ka2 Bbl+ 38. Dxbl
Hd2+ og mátar. 0-1. Þetta var fyrsta
tap Kasparovs með svörtu gegn
Kramnik og hefur sjálfsagt slegið
honum skelk í bringu!
Ekki er seinni skákin síðri
skemmtun. Svona tefldu menn í lok
nítjándu aldar en sjaldnar í lok
þeirrar tuttugustu.
Hvítt: Veselin Topalov
Svart: Vladimir Kramnik
Sildleyjarvörn.
Belgrad (6) 1995
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 d6 6. Bc4 Db6 Hér
er venjulega leikið 7. Rb3 en næsti
leikur er skemmtilegur. 7. Rdb5 a6
8. Be3 Da5 9. Rd4 Re5 Ekki er talið
ráðlegt að þiggja peðsfómina því
eftir 9. - Rxe4 10. Df3 f5 (ekki 10. -
Rxc3 11. Rxc6! og hvítur vinnur.) 11.
Rxc6 bxc6 12. 0-0-0 og hvítur hefur
góð færi. 10. Bd3 Reg4!? Óvenjuleg-
ur leikm-; venjulega er leikið hér 10.
e6 með hefðbundnu tafli. 11. Bcl g6
12. Rb3 Db6 13. De2 Bg7 14. f4
Rh5 Þessi leikur miðar að því að
koma i veg fyrir að hvítur geti leik-
ið h3 og að hann nái að komast úr
vandræðunum á kóngsvæng. En nú
gerast undarlegir hlutir á drottning-
arvængnum í staðinn. 15. Rd5 Dd8.
16. Bd2 e6 17. Ba5.
Jæja, nú byrjar ballið! 17. - Dh4+
18. g3 Rxg3 19. Rc7+ Ke7 20. hxg3
í svona stöðum drepur maður bara
ekki á hl! Enda er hrókurinn á al
valdaður. 20. - Dxg3+ 21. Kdl Rf2+
22. Kd2 Rxhl 23. Rxa8 Eftir 23.
Hxhl, sem er betri leikur 23. - Hb8
24. Dfl með óljósu og skrýtnu tafli.
En þeir sem hafa tíma og áhuga geta
skoðað hvað gerist eftir 23. Hxhl
Dxf4+ 25. Kdl Hb8 26. Bd2 um
páskana. 23. - Dxf4+ 24. De3 Dh2+
25. De2 Df4+ 26. De3 Dh2+ 27. De2
Bh6+ 28. Kc3 De5+ 29. Kb4 Rg3 30.
Del Bg7 31. Rb6 d5.
32. Ka4?? Bd7+! 33. Rxd7 b5+ 34.
Kb4 Kxd7 35. Bb6 Dxb2 36. exd5
Hc8 37. dxe6+ Ke8! Ekki 37. - fxe6
38. Bb5+ axb5 39. Hdl Ke7 40. dxg3 og
hvítur hefur mun betri stöðu! 38.
Bc5?
Annar möguieiki var 38. c4 Re4
39. exf7+ Kxf7 40. Bxe4 Hc4 með
máti. En getur hvitur varist eitt-
hvað í stað þess að leika 38. Bc5?
Kramnik lýkur nú skákinni með 38.
- Bc3+! 39. Dxc3 a5+ 40. Kxa5
Dxc3+ 0-1