Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2002, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2002, Qupperneq 13
13 FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 2002 PV__________________________________________________ - Útlönd Bændur í Simbabve fengu frest eftir dómsúrskurð Um 4500 hvítir bændur í Simbabve, sem samkvæmt fyrir- skipun stjómvalda hafði verið gert skylt að yfirgefa býli sin fyrir mið- nætti í gær til að rýma til fyrir þeldökkum, fengu í gær óvæntan frest þegar hæstiréttur landsins úr- skurðaði að stjórnvöld hefðu ekki lagalega heimild til að gera eignar- nám í jörðum þeirra nema gera lán- ardrottnum, sem eiga veð í jörðun- um þeirra, fyrst viðvart. Þetta er þó aðeins gálgafrestur því stjómvöld hafa hótað að tilskip- un þeirra komi til framkvæmda eft- ir sem áður og hafa hótað bændum handtökum og allt að tveggja ára fangelsi yfirgefi þeir ekki jarðir sín- ar strax. Engar fréttir höfðu í morgun borist af aðgerðum stjórnvalda, en þrátt fyrir dómsúrskurðinn höfðu um helmingur bændanna yfirgefið jarðir sínar i gær vegna ótta við hugsanlegar aðgerðir stjórnvalda. Alan Parson, einn talsmaður bænd- anna, sagði að viðtæk samstaða væri þó meðal þeirra sem neitað hefðu að gefast upp um að bíða og sjá til hveming mál þróuðust. „Það er auðvitað mikil spenna en menn eru staðráðnir í að gæta réttar síns. Úrskurður hæstaréttar nær til flestra býlanna og við verðum því bara að bíða og sjá til hvað gerist næstu sólarhringana," sagði Par- son. Jenni Williams, talsmaður bar- áttusamtaka hvítra bænda, sagði í gær að hún ætti frekar von á þvi að aðgerðir hæfust í dag. „Þeir hafa þegar sett sig í samband við suma bændurna og hótað þeim öllu illu,“ Hjónin Jenny og Ben Norton voru meöal þeirra sem yfirgáfu býli sitt í gær af sagði Williams. Talsmenn lögreglu ótta viö hugsanlegar aögerðir stjórnvalda. Þau hafa búiö á jörö sinni í yfir segjast þó ekki hafa fengið nein fyr- fjörutíu ár og telja eins og fiestir aögeröir stjórnvalda óréttlátar og ólöglegar. irmæli um aðgerðir. Býli yfirgefiö eftir fjörutíu ára búsetu REUTERSMYND Segiskútusýning í Richmond Áhugasöm börn fylgjast hér með bandarísku herskútunni Lady Washington á siglingu nálægt Richmond í Bresku- Kólumbíu í Kanada, en um helgina fer þar fram sýning á tuttugu gömlum segiskútum. Eftir helgina munu skúturnar síöan sigla niöur til Seattle, San Francisco, Los Angeles og San Diego, þar sem þær veröa til sýnis næstu mánuöina. Ariel Sharon kallar heima- stjórn Arafats morðingjagengi Holly og Jessica Stelpurnar voru á Netinu aöeins stundu áöur en þær hurfu. Stúlknahvarfið: Líklegt að þær hafi verið tældar burt á Netinu Talsmaður lögregluyfirvalda í Cambridgeshire í Englandi, sem fer með rannsóknina á hvarfi skóla- stúlknanna tveggja, þeirra Holly Wells og Jessica Chapman, sagði í morgun að lögreglurannsókn hefði leitt í ljós að stúlkumar, sem eru tiu ára gamlar, hefðu verið á Netinu heima hjá Holly, aðeins stundu áður en þær hurfu og það vekti upp grun um að þær hafi verið tældar burt af einhverjum sem þær hafi komist í samband við. Að sögn talsmannsins eru heimilis- tölvur frá heimilum beggja stúlkn- anna nú til rannsóknar og vonast er til að hægt verði að rekja samböndin. Þá kom einnig fram í gær að skóla- stjórinn í skólanum þebra hafi varað foreldra bréflega við því að ókunnugt grunsamlegt par hefði sést á ferli i ná- grenni skólans aðeins vikum áður en stúlkumar hurfu á sunnudaginn, en parið haföi flúið af vettvangi eftir að hafa orðið uppvist af því að ónáða börn á nærliggjandi leikvelli. Ariel Sharon, forsætisráðherra ísraels, kallaði heimastjórn Palest- ínumanna „morðingjagengi“ sem yrði að uppræta á sama tíma og palestínsk sendinefnd ræddi við háttsetta ráðamenn vestur í Was- hington. Jafnháttsettir fulltrúar hvorra tveggju hafa ekki hist í marga mánuði. Þrír ráðherrar heimastjómarinn- ar ræddu í gær við Colin Powell, ut- anríkisráðherra Bandaríkjanna, og Condoleezzu Rice þjóðaröryggisráð- gjafa þar sem því var heitið að reyna enn að binda enda á átökin sem hafa staðið í 22 mánuði. Fundarmenn vom þó ekki á einu máli um þá áskorun Georges W. Bush Bandaríkjaforseta frá því í júní þegar hann hvatti Palestínu- menn til að losa sig við Yasser Ara- fat og velja sér nýjan leiðtoga. Saeb Erekat, helsti samningamað- ur Palestínumanna, sagði að hann hefði fengið fullvissu um það í við- ræðunum að miðað væri við stofn- un sjálfstæðs palestínsks ríkis. Colin Powell sagði eftir fundinn að hann hefði flutt Palestínumönn- um þau boð að Bush forseti væri staðráðinn í að gera allt sem í hans valdi stæði til að þoka friðarviöræð- unum áfram. REUTERSMYND Sólskinsbros í Frans Margrét Þórhildur Danadrottning og Henrik drottningarmaöur voru glöö í sinni í frönskum kastala sínum. Danadrottning segir brúðkaups- tal ekki tímabært Margrét Þórhildur Danadrottning sagði í gær að enn væri of snemmt að tala um brúðkaup Friðriks krón- prins og unnustu hans, Mary Don- aldson. „Þetta fellur undir einkalífið. Það er ekki tímabært að tala um brúð- kaup og ég hef ekki hitt vinkonu krónprinsins," sagði Margrét Þór- hildur í gær þegar hún og Henrik drottningarmaður tóku á móti fréttamönnum í kastala Henriks, Ca'ix, skammt frá borginni Cahors í suðvesturhluta Frakklands. Fundir drottningar og manns hennar með fréttamönnum í Ca'ix eru árlegur viðburður. Henrik brá heldur ekki út af þeirri venju í gær að bjóða fréttamönnum að smakka vín sem hann framleiðir. í kastala drottningarmanns eru framleiddar um 120 þúsund flöskur af víni árlega. Helmingur þeirra er seldur í Frakklandi, íjórðungur i Danmörku og fjórðungur annars staðar í heiminum. Bókhaldssukkið hjá WorldCom vindur upp á sig Stjórnendur gjaldþrota fjarskipta- fyrirtækisins WorldCom upplýstu í gær að komið hefði í ljós að 3,3 milljarða dollara tekjur til viðbótar hefðu verið ranglega færðar í bók- hald fyrirtækisins. Bókhaldssukk fyrirtækisins nemur því rúmum sjö milljörðum dollara. Innanhússeftirlit leiddi í ljós að milljarðamir 3,3 hefðu veriö rang- lega færðir frá árinu 1999 til fyrsta ársfjórðungs 2002. Áður hafði fyrir- tækið upplýst að 3,85 milljarða doll- ara kostnaður hefði ranglega verið færður sem langtímafjárfesting. Það var gert til að fela tap á rekstrinum frá árinu 2001. Þessar nýju upplýsingar kunna að auka enn á vanda fjármálamark- aða sem hafa átt undir högg að sækja undanfarna mánuði. George W. Bush Bandaríkjafor- seti hefur látið bókhaldssvik og annað misferli fjölmargra banda- rískra stjórfyrirtækja aö undan- fómu mjög til sín taka. Hann hefur hvatt til aukinnar siðvæðingar með- al fyrirtækjanna og vUl að þeir sem gerist sekir um svik verði sóttir til saka og þeim refsað. Atvimia Vilt þú fá upplýsingar um ATVINNU I BOÐI beint í farsímann þinn? Sendu þá SMS-skeytið SMART ATVINNA á þitt þjónustunúmer. Við sendum þér SMS með upplýsingar um Atvinna í boði frá DV. iNýTTI 99 kr./stk. Hmamœ&í kr./stk. Vilt þú fá upplýsingar um HÚSNÆÐI beint í farsímann þinn? Sendu þá SMS-skeytið SMART IBUD á þitt þjónustunúmer. Við sendum þértil baka upplýsingar um Húsnæði í boði frá DV. Stefnuitiot Ert þú að leita að spennandi stefnumóti? Viltu kynnast manni eða konu? Vilt þú fá upplýsingar um karla og konur sem vilja hitta þig, beint í farsímann þinn? Sendu þá SMS-skeytið SMART KVK til að kynnast konum eða SMART KK til að kynnast manni á þitt þjónustunúmer. Viðsendum þértil baka upplýsingar frá Einkamáladálki DV. iS.maQgj sms

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.