Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2002, Síða 29
FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 2002
29
# Úrslitin:
Islandsmót
unglinga í
golfi 2002:
- Jaðarsvöllur, Akureyri
Strákaflokkur (13 ára og
yngri):
1. Snorri Páll Ólafsson, GR .... 232
Hringirnir: 75-81-76
2. Bjöm Guðmundsson, GA .... 246
Hringirnir: 86-80-80
3. Sigurður Jónsson, GSG .....252
Hringirnir: 79-86-87
4. Axel Bóasson, GK...........254
5. Gunnar Friörik Gurmarsson, GR 257
Drengjaflokkur (14-15 ára):
1. Þórður Rafh Gissurarson, GR . 235
Hringirnir: 81-77-77
2. Sigurbergur Sveinsson, GK . . 237
Hringirnir: 78-77-82
3. Guðjón Henning Hilmarsson, GKG 240
Hringirnir: 75-82-83
4. Amar V. Ingólfsson, GH......242
5. Guðni Birkir Ólafsson, GKj .. 244
6. Sigurður Pétur Oddsson, GR . 245
7. Kristján V. Þórarinsson, GK . . 249
8. Ólafur B. Loftsson, NK......250
9. Sigurður Björn Bjömsson, GK 251
10. Vignir Jónsson, GK ........254
Piltaflokkur (16-18 ára):
1. Magnús Lárusson, GKJ ........229
Hringirnir: 78-75-76
2. Karl Haraldsson, GV .........231
Hringirnir: 81-76-74
3. Hjörtur Brynjarsson, GSE....231
Hringirnir: 77-77-77
4. Siguröur Rúnar Ólafsson, GKG 234
5. Atli Elíasson, GS ...........237
6. Rúnar Óli Einarsson, GS .... 240
7. Elmar Geir Jónsson, GS......246
8. Aifreð Brynjar Kristinsson, GR 246
9. Torfi S. Gíslason, GS .......247
10. Haraldur Sigurðsson, GR . . . 247
missti af á síðasta ári,“ sagði Snorri
um íslandsmeistaratitil sinn.
Þakkar starfsmönnunum
„Stutta spilið gekk mjög vel hjá
mér í mótinu. Ég hafði spilað þarna
nokkrum sinnum áður og var búinn
að æfa vel. Það var frábært veður og
allar aðstæður mjög góðar," sagði
hann enn fremur og vildi þakka sér-
staklega starfsmönnum mótsins fyrir
frábæra umgjörð og góða vinnu.
„Ég stefni á að verða atvinnumað-
ur erlendis í framtíðinni. Ég veit að
til þess að ná því þá þarf ég mikinn
aga og markvissar og stífar æfingar,"
sagði Snorri Páll einbeittur á svip en
hann hefur æft golf í átta ár eða síð-
an að hann var fimm ára en foreldr-
ar hans eru báðir á kafi í golfmu hjá
GR. -ÓÓJ
Þóröur Rafn Gissurarson úr GR sést
hér slá upp úr sandgryfju en hann iék
af miklu öryggi tvo síöustu daga
mótsins og lenti sjaldan í svona
slæmri aöstööu.
GR-ingarnir Þórður Rafn Gissurarson og Snorri Páll Ólafsson:
Vinirnir unnu
Magnús Lárusson úr Kili íslandsmeistari pilta:
Gerði færri mistök
íslandsmót unglinga í golfi:
Hér til vinstri sést Snorri Páll Ólafsson pútta en aö neðan eru þeir félagar úr
GR og bestu vinir, Snorri Páll og Þóröur Rafn Gissurarson. Það stóöst þeim
enginn snúninginn á íslandsmótinu á Jaöarsveili á Akureyri um síðustu
helgi og unnu þeir báöir sína flokka. DV-myndir Óskar
Tveir vinir og félagar úr GR urðu
á dögunum Islandsmeistarar í yngri
flokkunum hjá strákum. Snorri Páíi
Ólafsson vann strákaflokkinn með yf-
irburðum og Þórður Rafn Gissurar-
son kórónaði tvö glæsileg ár í
drengjaflokknum þar sem hann vann
bæði íslandsmótið og holukeppnina
annað áriö í röð.
Náttúruorkan
Þórður Rafn byrjaði ekki vel á
fyrsta deginum en kom sterkur til
baka og vann að lokum með tveimur
höggum eftir harða baráttu. „Ég
stefndi bara að því að bæta mig eftir
fyrsta daginn en púttin mín voru þá
léleg,“ sagði Þórður sem var þá sex
höggum á eftir efsta manni. „Móðir
mín kom þá til mín og sagðist ætla að
fylla mig af náttúruorku. Hún fór
með mig út fyrir bæinn svo ég gæti
sloppið við streituna, fyllti mig af
náttúruorku og eftir það kom ég mjög
sterkur inn,“ sagði Þórður sem segist
hafa barist mest við Guðjón Hilmars-
son úr GKG um sigurinn á mótunum
en Guðjón lent í þriðja sæti á þessu
móti. í öðru sæti var Keilisstrákur-
inn Sigurbergur Sveinsson sem hafði
tveggja högga forskot fyrir síðasta
dag.
Þórður segist vera sterkastur í
stutta spilinu. „Núna ætla ég að æfa
mig vel og ætla að koma sterkur inn
á næsta ári þar sem ég fer upp i 16 til
18 ára flokkinn. Ég ætla mér að
reyna að stríða þar eldri strákun-
um,“segir Þórður sem segist ráðfæra
sig oft við vin sinn og félaga í GR,
Snorrra Pál Ólafsson sem lék frábær-
lega á Akureyri og vann strákaflokk-
inn með 14 höggum. „Við erum góðir
vinir en það er engin keppni á milli
okkar. Við spilum bara saman og höf-
um gaman af því,“ segir Þórður um
vinskap sinn við Snorra.
Snorri Páll vildi ekki gera mikið
úr yfirburðum sínum eða góðu skori.
„Ég er mjög ánægður með mótið.
Það gekk kannski ekki alveg
nógu vel á öðrum deginum en ég
lét það ekki hafa áhrif á mig og
hélt ótrauður áfram. Ég spila
bara mitt golf og það var tak-
markið að ná í gullið sem ég
Magnús Lárusson sýndi að Kjölur framleiðir ekki að-
eins efnilega kvenkylfmga þegar hann tryggði sér ís-
landsmeistaratitilinn í piltaílokki en þetta var í fyrsta
sinn sem hann verður íslandsmeistari.
„Ég er eini strákurinn sem er að berjast um efstu sæt-
in hjá félaginu en stelpurnar hafa verið að standa sig vel
undanfarin ár. Það eru síðan fullt af ungum kylfingum
að koma upp,“ sagði Magnús sem hafði tveggja högga
forskot á íslandsmótinu þegar keppninni lauk.
Byrjaöi ekki vel
„Þetta var erfið keppni. Ég byrjaði ekki vel og var í
fjórða sæti eftir fyrsta daginn, tveimur höggum á eftir
forustumanninum. En ég lék betur annan daginn, náði
þá forustunni og átti þá eitt högg á manninn í ööru sæti.
Ég lék síðan bara öruggt sfðasta daginn, stefndi að því að
hitta brautirnar og flatirnar og þvi aö ná pörunum,“ seg-
ir Magnús en honum hafði gengiö ágætlega á íslandsmót-
um fyrri ára þrátt fyrir að fyrsti titillinn hafi ekki kom-
ið fyrr en um síðustu helgi. „Ég hafði einu sinni
verið í þriðja sæti og einu sinni í öðru sætinu og
það var meira gaman og öllu skemmtilegra að ná
í sjálfan íslandsmeistaratitilinn."
Sló vel
Magnús var ánægður með spilamennsku sína
á Jaðarsvellinum. „Ég sló mjög vel og gerði færri
mistök heldur en hinir. Ég var búinn að fara
eina ferð á völlinn og spilaði síðan þarna á
Toyota-mótaröðinni og hafði þvi spilað þarna
fimm til sex hringi þegar ég kom á mótiö. Jað-
arsvöllurinn er nokkuð öðruvísi en Hlíðavöllur-
inn hjá okkur. Hann er með harðar flatir og er
fljótur að refsa," segir Magnús sem er aö keppa
á íslandsmóti fullorðinna nú um helgina. „Ég
ætla að reyna að stríða þeim aðeins," segir
Magnús sem varð í öðru sæti á meistaramóti
Kjalar í ár. -ÓÓJ