Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2002, Síða 20
20
íslendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
Stórafmæli
85 ára_____________________________
Anna 0. Jónsdóttir,
Hraunbúöum, Vestmannaeyjum.
80 ára_____________________________
Anna Guðrún Halldórsdóttir,
Hrafnistu, Reykjavík.
Anna Höskuldsdóttir,
Hrafnistu, Reykjavík.
75 ára_____________________________
Ágústa Randrup,
Heiöarvegi 12, Keflavík.
Jóhannes Jósefsson,
Suöurgötu llb, Sauöárkróki.
Þórdís Magnúsdóttir,
,#» Hraunbæ 20, Reykjavík.
70 ára_____________________________
Bragi Pétursson,
Hjaröarhaga 46, Reykjavík.
Þórólfur Vigfússon,
Austurvegi 59c, Reyöarfiröi.
60_ára_____________________________
Álfhildur Gestsdóttir,
Hlíöarvegi 22, Kópavogi.
Bára Böðvarsdóttir,
Bakkasmára 3, Kópavogi.
Guðmundur Lýðsson,
Grashaga 21, Selfossi.
Magnús Ingjaldsson,
Heiövangi 6, Hafnarfirði.
Sif Þórarinsdóttir,
^ Mávabraut 9a, Keflavík.
Unnur Steingrímsdóttir,
Skerjavöllum 6, Kirkjubæjarklaustri.
50 ára________________________
Gísli Jóhann Sigurðsson,
Löngumýri 47, Garöabæ.
Gunnar Ragnarsson,
Böövarsgötu 6, Borgarnesi.
Haraldur Þór Benediktsson,
Arnarási 2, Garöabæ.
loulian Ognianov Atanasov,
Asparfelli 10, Reykjavík.
Karl Gunnarsson,
Furugrund 60, Kópavogi.
Krlstín S.R. Guömundsdóttir,
Flúðaseli 46, Reykjavík.
Sigrún Birna Helgadóttir,
Leirubakka 8, Reykjavík.
Steinþór Guðbjartsson,
Fálkagötu 34, Reykjavík.
Önundur G. Haraldsson,
Hvassahrauni 9, Grindavík.
40 ára________________________
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir,
Lyngmóa 13, Njarðvík.
Bjarni Friðjón Karlsson,
Básenda 11, Reykjavík.
Fjóla Einarsdóttir,
Vættaborgum 108, Reykjavík.
Guðmundur Jónsson,
Hjallavegi 23, Reykjavík.
Guðrún Kristmundsdóttir,
Ingólfsstræti 16, Reykjavík.
Haraldur Harðarson,
Fannafoid 187, Reykjavík.
Helgi Gunnarsson,
Frostafold 51, Reykjavík.
Ingimar Kristinn Cizzowitz,
Esjugrund 10, Reykjavík.
Málfríður Arna Arnórsdóttir,
Ásbúö 2, Garöabæ.
Natalia Voinikova,
Skeljatanga 35, Mosfellsbæ.
Ófeigur Grétarsson,
Silungakvísl 7, Reykjavík.
Svelnn Símonarson,
Goöatúni 28, Garöabæ.
Vignlr Daðason,
Bragagötu 33a, Reykjavík.
Andlát_______________J
Kjartan Þórir Elíasson, Suöurbraut 8,
Hafnarfiröi, lést á St. Jósefsspítala í
Hafnarfirði föstud. 4.10. Útförin hefur
fariö fram í kyrrþey aö ósk hins látna.
Vaka Sigurjónsdóttir hjúkrunarfræöing-
ur, Álfheimum 70, lést föstud. 4.10.
Þóra Eiríksdóttlr, Sléttuvegi 11, Reykja-
vík, lést á Landspítalanum viö Hring-
]| braut laugard. 5.10.
Slgríður Ingibjörnsdóttir, fyrrv. aöstoöar-
skólastjóri Njarövíkurskóla, andaöist á
Heilsustofnun Suöurnesja föstud. 4.10.
Svelnbjörn Bjarnason, fyrrv. aöalvarö-
stjóri lögreglunnar í Reykjavík, lést á
Hrafnistu í Reykjavík mánud. 7.10.
Eirikur J.B. Elríksson, fyrrv. prentari,
Blöndubakka 1, Reykjavík, lést á heimili
sínu þriöjud. 8.10.
FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2002
x>v
Niræöur
Sigurður V. Demetz Franzson
tenórsöngvari og söngkennari
Sigurður Vincenzo Demetz Franz-
son, tenórsöngvari og söngkennari,
Fossagötu 8, Reykjavík, er níræður
í dag.
Starfsferill
Sigurður fæddist í fjallaþorpinu
Ortisei í Gardenadal i Suður-Týról
þar sem hann ólst upp. Hann var
skírður Vincenz og kenndur við bæ-
inn Four en tók upp íslenskt nafn
þegar hann tók sér staðfestu hér á
landi.
Sigurður stundaði söngnám vetr-
arlangt í Padova á Ítalíu, fór síðan í
læri til Vincenzo Pintorno, nafntog-
aðs flautuleikara og hljómsveitar-
stjóra í Mílanó.
Söngferili Sigurðar hófst mjög
snemma en berklaveiki og hörm-
ungar striðsins töfðu mjög fyrir
honum. Þó þáði hann vegtyllur af
heimsþekktum hljómsveitarstjórum
eins og Karajan og Böhm og söng
við ýmis virtustu óperuhús Evrópu,
svo sem í Zúrich, Bern og
Barcelona. Hann söng einnig við
Scala-óperuna, fyrst 1949.
Sigurður kom til íslands 1955 í
þeim erindagjörðum að kenna söng
og ílengdist hér síðan. Hann hefur
m.a. starfað við söngkennslu og kór-
stjóm í Reykjavik, Keflavík, á Akur-
eyri og víðar.
Hann söng í óperunum Tosca eft-
ir Puccini í Þjóðleikhúsinu;í Rigo-
lettó eftir Verdi í Austurbæjarbíói
og í Ævintýrum Hoffmanns eftir
Offenbach í Þjóðleikhúsinu. Þá hef-
ur sungið á fjölda tónieika hér á
landi og í Ríkisútvarpið.
Meðal þekktra íslenskra óperu-
söngvara sem stundað hafa nám hjá
Sigurði má nefna Kristján Jóhanns-
son, Gunnar Guðbjömsson, Guðjón
Óskarsson, Erling Vigfússon, Jón
Sigurbjömsson, Kolbein Ketilsson
og Guðbjöm Guðbjömsson.
Þá hefur Sigurður stjómað fjölda
kóra hér á landi og stjórnað lúðra-
sveit.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 1960 Þóreyju
Sigríði Þórðardóttur, f. 26.11. 1912,
d. 15.10. 1992, húsmóður.
Systkini Sig-
urðar: Ulrice, f.
1923, húsmóðir;
Ivo, f. 1927, kaup-
maður; Franz, f.
1929, listamaður;
Giancarlo, f. 1931,
d. 1981, húsvörð-
ur, öll búsett i
fæðingarbæ sín-
um, Ortisei.
Foreldrar Sig-
urðar voru Franz
Demetz, f. 1888, d.
1958, kaupmaður
og bæjarstjóri í
Ortisei, og k.h.,
Maria Demetz, f.
Mauroner, 1890, d.
af slysförum 1938,
verslunarmaður.
Sigurður held-
ur móttöku fyrir
vini sína og sam-
starfsmenn um
árin í Tónlistar-
húsinu Ými kl.
17.00.
Níræð
Sjötugur
Halldóra Hermannsdóttir
húsfreyja á Siglufirði
Halidóra Hermannsdóttir, hús-
freyja á Siglufirði, er níræð í dag.
Starfsferill
HaUdóra fæddist á Hofsósi en
flutti með foreldrum sínum út í
Málmey á Skagafirði þriggja ára,
þar sem þau bjuggu til 1918. Þá
fluttu þau að Ysta-Mói í Fljótum.
Halldóra gekk í barnaskóla í
Haganesvík í Fljótum til fermingar-
aldurs, en 1932 fór hún í Húsmæðra-
skólann að Staðarfelli og lauk þaðan
prófi.
Næstu árin dvaldi Halldóra í
Reykjavík við vinnu á saumastofu
en flutti síðan til Siglufjarðar þar
sem hún vann við síldarsöltun á
sumrin, en i frystihúsum og við
aðra fiskverkun þess á milli.
Fjölskylda
Halldóra giftist 1936 Friðriki
Márussyni frá Fyrirbarði í Fljótum,
f. 8.8. 1910, d. 2.1. 1997. Þau bjuggu
allan sinn búskap á Siglufirði, þar
sem hún heldur enn heimili í eigin
húsi.
Böm Halldóru og Friðriks eru
Margrét Lára, f. 7.6. 1940, gift Am-
grími Jónssyni, f. 24.6. 1939, og eiga
þau tvo syni; Hermann, f. 25.4.1942,
d. 28.12. 1999, var kvæntur Agnesi
Einarsdóttur, f. 16.7.1943, og eignuð-
ust þau þrjá syni og eina dóttur en
Hermann eignaðist eiim son fyrir
hjónaband, Ævar, f. 4.2.1948, kvænt-
ur Hjördísi Júlíusdóttur, f. 23.11.
1952, og eiga þau einn son og tvær
dætur.
Bamaböm og bamabarnaböm
Halldóru og Friðriks eru orðin þrjá-
tiu og sjö talsins.
Syskini Halldóru eru Lárus, f.
1914; Níels, f. 1915, d. 1997; Rannveig,
f. 1916, d. 1981; Hrefna, f. 1918; Sæ-
mundur, f. 1921; Haraldur, f. 1923;
Georg, f. 1925; Bjöm, f. 1928.
Uppeldissystur Halldóru voru
Helga Baldvinsdóttir og Bára Svein-
bjamardóttir en þær eru nú báðar
látnar.
Foreldrar Halldóru voru Her-
mann Jónsson og Elín Lárusdóttir,
lengst búandi að Ysta-Mói.
Halldóra og böm hennar taka á
móti vinum og vandamönnum í Hlé-
garði í Mosfellsbæ í dag kl.
16.00-19.00.
Sveinbjörn H. Magnússon Blöndal
listmálari og teiknari í Hafnarfirði
Sveinbjörn Helgi Magnússon
Blöndal, listmálari og teiknari,
Sléttahrauni 19, Hafnarfirði, er sjö-
tugur í dag.
Starfsferill
Sveinbjöm fæddist á Akureyri en
var á Siglufirði til fjórtán ára ald-
urs. Hann var í námi í Mynd- og
handíðaskóla íslands 1952-53.
Sveinbjöm hefur haldið myndlist-
arsýningar víða svo sem á Skaga-
strönd, Blönduósi, Hveragerði,
Siglufirði og í Svíþjóð og fengið
feikilega góðar viðtökur. Hann hef-
ur stundað ýmis störf um ævina svo
sem í virkjunum, á Keflavíkurflug-
velli, skipasmíðastöðinni á Skaga-
strönd, við húsamálun, bygginga-
störf og margt fleira.
Sveinbjöm hefur búið á Skaga-
strönd síðustu fjörutíu og sjö árin
en flutti til Hafnarfjarðar á síðasta
ári.
Fjölskylda
Sveinbjöm kvæntist 18.6. 1955
Bimu Ingibjörgu Jónsdóttur Blön-
dal, f. 6.8. 1932, húsmóður með
meiru. Foreldrar hennar voru Jón
Þorbergur Bjamason, d. 29.11. 1973,
verkamaður í Reykjavík, og Guð-
munda Margrét Sigurjónsdóttir, d.
1933, húsmóðir.
Böm Sveinbjöms og Bimu Ingi-
bjargar eru Elsa Lára Blöndal, f.
24.9. 1955, sjúkraliði á Háskóla-
sjúkrahúsi, búsett í Hafnarfirði;
Magnús Bjami Blöndal, f. 12.1.1959,
d. 7.9. 2001, tamningamaður alla
sína ævi, með öðru, var síðast bú-
settur á Snæringsstöðum í Vatns-
dal; Kristján Jón Blöndal, f. 6.10.
1963, húsasmiður og vefsmiður, bú-
settur í Hafnarfirði; Númi Orri
Blöndal, f. 4.7. 1966, húsasmíða-
meistari í Hafnarfirði.
Systkini Sveinbjöms: Margrét
Sigriður Magnúsdóttir Blöndal, f. á
Akureyri 4.8. 1930, búsett í Banda-
ríkjunum, en eiginmaður hennar
var James P. McAllier, d. 7.9. 2001,
og eru böm þeirra Bridget McAlli-
er, f. 25.5. 1958, og James Paul
McAilier, f. 4.4.1960.
Foreldrar Sveinbjörns voru
Magnús Bjömsson Blöndal, f. á
Sævarlandi í Þistilfirði 6.11. 1897, d.
19.8.1945, framkvæmdastjóri Síldar-
verksmiðja ríkisins á Siglufirði, og
Elsa María Schiöth, f. 23.12. 1906, d.
14.7. 1966, húsmóðir.
Sextug
Guðlaug Erla Sigmarsdóttir
frá Vestmannaeyjum
Guðlaug Erla Sigmarsdóttir frá
Vestmannaeyjum er sextug í dag.
Starfsferill
Erla fæddist á Byggðarenda við
Brekastíg i Vestmannaeyjum og ólst
þar upp. Hún gekk í Bama- og
Gagnfræðiskóla Vestmannaeyja. Á
yngri árum stundaði hún ýmis
verslunarstörf ásamt því að hafa
unnið lengi í Vinnslustöð Vest-
mannaeyja.
Þess má geta að Erla fæddist
stærst allra meybama í Vestmanna-
eyjum á sínum tíma eða 25 merkur.
Fjölskylda
Erla giftist 23.12. 1969 Jörgen Ná-
bye, f. 10.4. 1940, útgerðarmanni.
Foreldrar hans vom Olfert Nábye, f.
13.6. 1903, d. 28.6. 1942, píanóleikari
frá Reykjavík, og Laufey Jörgens-
dóttir, f. 12.12. 1915, d. 24.9. 1974,
húsmóðir frá Reykjavík.
Böm Erlu eru Sigmar Þröstur
Óskarsson, f. 24.12.1961, stýrimaður
í Vestmannaeyjum og landsþekktm-
handboltamarkmaður, en sambýlis-
kona hans er Vilborg Friðriksdóttir,
f. 23.11. 1965, húsmóðir og eiga þau
þrjú böm, Friðrik Þór, f. 30.9. 1989,
Erlu Rós, f. 2.11. 1998, og Daníel Má,
f. 26.4.2000, en faðir Sigmars er Ósk-
ar Þórarinsson, f. 24.5.1940, útgerð-
armaður frá Vestmannaeyjum; Þór-
unn Júlía Jörgensdóttir, f. 16.12.
1965, húsmóðir í Vestmannaeyjum,
en sambýlismaður hennar er Ólafur
Þór Snorrason iðnrekstrarfræðing-
ur og eiga þau tvö böm, Ömu Þyrí,
f. 28.3. 1997, og Jörgen Frey, f. 5.1.
1999; Auðunn Jörgensson, f. 3.7.
1969, sjómaður i Vestmannaeyjum,
og hann á einn son, Aron Jörgen, f.
11.8. 1991; Laufey Jörgensdóttir, f.
8.8. 1975, viðskiptafræðingur i
Reykjavík, en sambýlismaður henn-
ar er Jónas Þór Friðriksson, f. 12.8.
1970, sölumaður.
Albróðir Erlu er Gísli Matthías
Sigmarsson, f. 9.10.1937, skipstjóri í
Vestmannaeyjum.
Hálfsystkini Erlu, sammæðra,
eru Ingólfur Símon Matthíasson, f.
17.12. 1916, d. 18.10. 1999, útgerðar-
maður frá Vestmannaeyjum; Sveinn
Matthíasson, f. 14.8. 1918, d. 15.11.
1998, útgerðarmaður frá Vest-
mannaeyjum; Óskar Matthíasson, f.
22.3. 1921, d. 21.12. 1992, útgerðar-
maður í Vestmannaeyjum; Gísli
Matthías Matthiasson, f. 7.4.1925, d.
27.5. 1933; Matthildur Þórunn
Matthíasdóttir, f. 13.6. 1926, d. 6.11.
1986, húsmóðir frá Vestmannaeyj-
um.
Uppeldisbróðir Erlu er Sigmar
Þór Sveinbjömsson, f. 23.3. 1946,
stýrimaður.
Foreldrar Erlu voru Sigmar Guð-
mundsson, f. 28.8. 1908, d. 4.7. 1989,
sjómaður frá Neskaupsstað, og Þór-
unn Júlía Sveinsdóttir, f. á Eyrar-
bakka 8.7. 1894, d. 20.5. 1962, hús-
móðir.
Erla verður í óvissuferð í Vest-
mannaeyjum með fjölskyldu sinni á
afmælisdaginn sinn.