Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2002, Page 13
ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002
DV
13
Útlönd
Sjálfsmorðsárás á fólksflutningabifreið í ísrael:
Að minnsta kosti fimm-
tán ísraelar létu Ivfið
- í mannskæðustu árás Palestínumanna í langan tíma
Að minnsta kosti fimmtán manns
létust og meira en fjörutíu slösuðust
þegar palestínskur sjálfsmorðsliði
sprengdi jeppabiíreið hlaðna sprengi-
efni upp við hlið þéttsetinnar fólks-
flutningabifreiðar við bæinn Pardes
Hanna í nágrenni borgarinnar Hadera
i norðurhluta ísraels í gær.
Að sögn talsmanns ísraelsku lög-
reglunnar keyrði maðurinn upp að
bifreiðinni þar sem hún nam staðar
til þess að taka upp farþega á leiðinni
frá bænum Kiryat Shmona til Tel
Aviv á mesta annatíma dagsins og var
sprengjan svo öflug að afturhluti
fólksflutningabifreiðarinnar sprakk í
tætlur.
Að sögn sjónarvotta lokuðust marg-
ir farþeganna, þar af nokkrir her-
menn, inni í logandi flakinu og urðu
eldinum að’bráð á meðan öðrum tókst
að forða sér út. „Það sem eftir var af
bifreiðinni varð strax alelda og engin
leið að koma fólkinu til hjálpar. Skot-
færi hermannanna sem voru í bifreið-
Brunnið -bílflakið.
inni fóru síðan að springa þannig að
flakið varð eitt eldhaf og vonlaust að
komast að því,“ sagði einn sjónarvott-
ur.
Múslímsku öfgasamtökin Jihad
hafa lýst ábyrgð á árásinni en að
venju kenna ísraelsk stjórnvöld
Yasser Arafat um árásina og á móti
fordæmir Arafat hana harðlega.
Það sama gerir Kofi Annan, aðal-
framkvæmdastjóri Sameinuði þjóð-
anna, en hann hefur að undanfomu
harðlega gangrýnt báða deiluaðila
fyrir dráp á óbreyttum borgurum.
Þetta er mannskæðasta árás á
ísraelska borgara í langan tíma.
íhuga ísraelsk stjórnvöld nú við-
brögð en Sharon hitti hemaðar-
ráðgjafa sína á fundi í gærkvöldi.
Talsmaður ísraelska hersins
sagði í gær að árásin hefði verið
gerð um leið og umsátrinu hefði
verið létt af nokkrum bæjum á Vest-
urbakkanum og væri það orðinn
fastur liður.
Þrátt fyrir árásina hittust fulltrú-
ar ísraela og Palestínumanna á
fundi í gærkvöld til að ræða brott-
flutning herliðs frá bænum Hebron.
REUTERSWYND
Munkamir og Mao formaður
Búddamunkar frá Tíbet standa fyrir framan risastóra mynd af Mao Zedong, stofnanda kinverska kommúnistafiokksins
og leiötoga Kína til margra ára, viö hliö hins himneska friöar í Peking. Trúfrelsi er af skornum skammti í Kína og verö-
ur þaö rætt á fundi Bush Bandaríkjaforseta ogZemins Kínaforseta í Texas í næstu viku.
Bush ekki jafn herskár og áður:
Gerlegt að afvopna Saddam
Hussein á friðsamlegan hátt
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti sagðist í gær telja að gerlegt
væri að afvopna Saddam Hussein
íraksforseta á friðsamlegan hátt og
aö hann ætlaði að reyna samninga-
leiðina einu sinni enn. Bush sagði
einnig að ef Saddam færi að öllum
kröfum Sameinuðu þjóðanna væri
það til merkis um að stjómarhættir
hans hefðu breyst.
Orð Bandaríkjaforseta þykja vera
ákveðnasta vísbendingin til þessa
um að bandarísk stjómvöld gætu
hugsanlega fallist á að Saddam yrði
áfram við völd ef hann færi að kröf-
um SÞ um afvopnun. Annars er það
opinber stefna ráðamanna í Was-
hington að skipta beri um stjórnar-
herra í Bagdad. Talsmaður Hvíta
hússins sagði að Bush hefði ekki
breytt afstöðu sinni.
Forsetinn mildarl í tónl
George W. Bush Bandaríkjaforseti er
til í aö reyna samningaleiöina viö
Saddam Hussein eina feröina enn.
Bandaríkjamenn dreifðu uppkasti
að nýrri ályktun um írak til hinna
fjögurra rikjanna sem eiga fastafull-
trúa í Öryggisráði SÞ. Stjómarer-
indrekar sögðu hins vegar að ekkert
samkomulag lægi fyrir. Frakkar,
sem hafa leitt andófið gegn her-
skárri stefnu Bandaríkjastjórnar,
lögðu ekki fram eigið uppkast, eins
og þeir höíðu áður hótað. Þeir
munu ætla að semja á grundvelli til-
lagna Bandaríkjamanna.
Ari Fleischer, talsmaður Bush,
sagði að ályktunardrögin gerðu ráð
fyrir ákveðnara og árangursríkara
eftirlitskerfi og þar væri skýrt kveð-
ið á um að afleiðingamar fyrir
Saddam yrðu alvarlegar ef hann
stæði ekki við sitt.
Yfirmaður vopnaeftirlits SÞ ræð-
ir við ráðamenn í Moskvu i dag.
SKJÁREINN
Þéttir
þriðjudagar
■ Tj
íl ? .