Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2002, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2002, Blaðsíða 25
r. LAUGARDAGUR NÓVEMBER 2002 25 Helgarhlciö X>V DV-myndir Hari Tii að laukurinn fari ekki alveg í mauk við suðuna þarf hann að vera skorinn frekar gróft, að sögn Guðjóns. Þá verður lians aðeins vart undir tönn og með því að nota vel beittan hníf má sleppa við að tárast við laukskurðinn. Guðjón segir laukinn bæði hollt og gott hráefni í súpu og ekki spilli að verðið sé afar gott, einkum um þessar niund- ir. Hann hrærir létt í súpunni af og til meðan á suðunni stendur en það tekur um tíu mínútur. Teningar úr ristuðu brauði eru settir lit í súpubollanu og osti stráð yfir áður en bollanum er stungið inn í ofn í tiu mínútur og þá er komin fallcg gulbrún húð. DV-myndir E. Ól. Aðgengileg matarvín undir þúsundkalli — urðu fyrir valinu hjá Birki Elmarssyni hjá RJG Lauksúpa hefur löngum þótt ljúffeng, ekki síst þegar kólna tekur. Sama á viö um gúliassúpur og fleiri kröftugar súpur. En lauksúpa er ekki eins þung og þær síðarnefndu og ekkert sérlega vín- væn, þ.e. vín fara betur með mörgum öðrum rétt- um. En finni einhver taktinn í gúllassúpu og víni er það að sjálfsögðu hið besta mál. Birkir Elmars- son hjá Rolf Johansen & Co. ákvað að verða við áskoruninni og valdi vín, bæði með súpunni og salatinu. Þetta eru hvort tveggja afar aðgengUeg vín og henta vel með aUs konar mat. Með lauk- súpunni vUdi Birkir bjóða Les Bateaux Syrah, vín frá suðurhluta Frakklands, nánar tiltekið frá Languedoc. Þetta vínræktarhérað er á mikUli uppleið þótt það sé okkur íslendingum nánast óþekkt. Hvítvín er kannski hefðbundnara val með þessum rétti en það er alltaf gaman að fara aðrar leiðir. Les Bateaux Syrah er mjúkt en um leið nokkuð kraftmikið, blanda af svörtum og rauðum berjum einkenna vínið og við drykkju má auð- veldlega finna sól og sælu frá Suður-Frakklandi. Les Bateaux Syrah er vel gert vín í alla staði sem allir ættu að geta notið. Verðið skemmir ekki en Les Bateaux Syrah kostar ekki nema 990 krónur í verslunum ÁTVR. Birki finnst ítalska grænmetissalatið hins veg- ar kaUa á hvítvin, Pasqua Chardonnay frá Veneto á Ítalíu. Vínin frá Pasqua eru vel þekkt hér á landi enda hafa þau verið tU í verslunum ÁTVR í mörg herrans ár. Þetta vín er létt og ávaxta- ríkt, suðrænir ávextir eru einkennandi, an- anas, perur og vottur af mangó. í lokin bregð- ur fyrir grænum eplum og lime. Hér er á ferðinni einfalt og aðgengilegt vín sem einnig fæst í verslunum ÁTVR og kostar 900 krónur. Verið getur að fólk spari aðeins við sig í nóvember, áður en aðventan skeU- ur á með tilheyrandi útgjöldum og eins vegna þess að enn er rúm vika í nýtt korta- timabU. Þess vegna er fagnaðarefni að hér skuli mælt með frambærUegum vínum sem kosta hvort um sig undir 1000 krónum. Umsjón Ilaukur Lárus Ilauksson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.