Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2002, Qupperneq 26
26
H I c) (} rh lct <5 DV
LAUGARDAGUR s>. NÓVEMBER 2002
Nú er komin ný sending af hinum geysivinsælu Sirius Ijósaseríum
sem sannarlega hafa slegið i gegn. Þær fást nú í ótal mörgum
litum og gerðum.
Komdu í heimsókn og líttu á úrvaliðl
Smáralind
554 7760
568 9400
meira
úrval!
Fyrsta jólakortið varð til fyrir slysni fyrir 160 árum:
Tölvutæknin gerir mörgum
kleift að gera sín eigin kort
Fyrsta jólakortið
varð til fyrir slysni.
í desember 1843 átt-
aði Henry Cole,
mikilsmetinn Lund-
únabúi, sig á að
hann hafði gleymt
að skrifa jólakveðj-
ur til vina og ætt-
ingja. Honum hraus
hugur við að þurfa
að skrifa þær allar
á svona stuttum
tíma og bað vin
sinn, listamanninn
John Callot
Horsley, að hanna
fyrir sig kort með
staðlaðri kveðju.
Innan fárra daga
var fyrsta jólakort sögunnar til-
búið. Kortið var látlaust með
mynd af fólki við gleðskap og án
trúarlegs ívcifs. Kveðjan var ein-
fold: „Gleðileg jól og gæfuríkt
nýtt ár“. Horsley var einn af upp-
áhaldslistamönnum Viktoríu
drottningar og varð hún yfir sig
hrifin af kortinu. Að áeggjan
drottningarinnar lagði hann fyr-
ir sig jólakortagerð og keypti
drottningin hundruð þeirra til að
senda fjölskyldu sinni og vinum.
Um 1850 voru margir lista-
menn farnir að teikna jólakort en
það var ekki fyrr en 1860 að farið
var að fjöldaframleiða þau og
jólakortaiðnaðurinn tók að
blómstra. Vinsælasti jólakorta-
framleiðandinn í Bretlandi var
án efa Raphael Tuck í London og
borgaði hann vel fyrir fallega
hönnuð jólakort.
Fyrstu bandarísku kortin voru
gefin út af R.H. Pease í New
York, en þrátt fyrir það er það út-
gefandinn Louis Prang frá
Boston sem fær þann heiður að
vera kallaður „faðir bandaríska
jólakortsins".
Árið 1850 stóð hann fyrir jóla-
kortasamkeppni þar sem mjög
vegleg verðlaun voru í boði og
sýnir það hve arðsöm þessi iðn-
grein hefur verið. Úrvalið var
einhæft í byrjun og á meðan sið-
urinn var að þróast var myndval-
ið algerlega háð tískusveiflum. 1
dagblöðum í New York var sér-
stakur dálkur með gagnrýni um
nýjustu jólakortin. Þau kort sem
þar fengu lofsamlega dóma voru
jafnan söluhæst það árið.
Myndefnið var vetrarmyndir,
mistilteinn og kristsþyrnir.
Eftir 1850 fer Heilagur Nikulás
að verða áberandi myndefni en
jólatrén ruddu sér ekki rúms inn
á jólakortin fyrr en á síðustu
árum 19. aldarinnar og blómið
sem allir kannast við sem jóla-
stjörnu kemur ekki til sögunnar
á kortunum fyrr en á fyrstu
árum 20. aldarinnar.
í dag hefur færst mjög í vöxt að
fólk lætur gera fyrir sig kort, t.d.
með myndum af fjölskyldunni,
eða býr þau til sjálft með hjálp
tölvutækninnar. Stafrænar
myndavélar, öflugar tölvur og
myndvinnsluhugbúnaður gerir
mörgum kleift að gera sín eigin
jólakort, með myndum frá liðnu
ári, fjöklskyldumyndum eða öðr-
um myndum sem kunna að
gleðja hjarta móttakandans. Nú
er rétti tíminn til að huga að gerð
jólakorta því það tekur tíma að
róta í myndasafninu og hanna
kortin. Tíminn flýgur áfram og
jólabjöllur klingja áður en langt
um líður.
Starfsmannahópar, sendið okkur tölvupóst á
jolagledi@egils.is og lýsið fyrir okkur jóla-
andanum í fyrirtækinu og hvað þið gerið til að
. komast í jólaskap. A hverjum fimmtudegi veljum
■ við fimm fyrirtæki og sendum til ykkar hinn
\ eina sanna jóladrykk, malt og appelsín, ásamt
jólastjörnum og jólakökum. Láttu andann
koma yfir þig og við færum þér jólin með ‘j
. malti og appelsíni. i