Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2002, Blaðsíða 32
32
H&lcjorhlaö 31>"V LAUGARDAGUR <3. NÓVEMBER 2002
George W. Busli Bandaríkjaforseti gerir lítið úr sínum þætti í kosningabaráttunni.
Sigur fjármagnsins?
Þrátt fyrir að siqur repúblikana íbanda-
rísku þinqkosningunum hafi i/erið söquleqa
qlæsilequr var hann naumur ef miðað er i/ið
tölulegar forsendur. I flestum tilfellum
merja þeir siqur oq vilja sumir, sérstakleqa
úr röðum demókrata, þakka eða kenna það
qífurlequ fjáraustri til kosninqabarátt-
unnar en repúblikanar slóqu öll eqðslumet.
George W. Bush Bandaríkjaforseti sagði á fimmtu-
daginn, í sínu fyrsta sjónvarpsávarpi til þjóðarinnar
eftir glæsilegan kosningasigur repúblikana í kosning-
um til bandaríska þingsins fyrr í vikunni, að sitt
fyrsta verk eftir sigurinn yrði að þrýsta í gegn frum-
varpi um stofnun sérstaks öryggismálaráðuneytis
heima fyrir sem dagað hefði uppi í þinginu í sumar.
Frumvarpið, sem hann lagði fyrir þingið í vor,
strandaði þar vegna andstöðu demókrata við starfs-
mannahluta þess sem gerir ráð fyrir því að yfirvöld
geti ráðið og rekið starfsmenn að eigin vild í trássi
við almenn lög og reglur sem tryggja eiga réttindi
launafólks. Hann sagði málið hafa dregist allt of lengi
og kvaðst stefna að því að frumvarpiö yrði að lögum
fyrir lok ársins.
Sltattalæklíunarloforðm
Bush sagði einnig að nauðsynlegt væri að koma í
gegnum þingið tíu ára áætlun sinni um 1,35 billjóna
skattalækkun en það var eitt helsta kosningaloforð hans
og reyndar hjartans mál í forsetakosningunum árið 2000
en strandaði eins og margt annað í öldungadeild þings-
ins vegna andstöðu demókrata sem höfðu þar meirihluta
í þar til úrslit kosninganna lágu fyrir á þriðjudaginn.
Andstaða demókrata byggðist á því að skattalækkun
myndi aðeins leiða til niðurskurðar í velferðarkerfinu
og því lenda harðast á þeim sem síst skyldi.
Þá stendur Bush einnig frammi fyrir því að efna
skattalækkunarloforð Pauls O’Neills, fjármálaráðherra
og fyrrum forstjóra álrisans Alcoa, sem hann gaf at-
vinnurekendum.
Frambjóðendur eiga heiðurinn
í þessu 47 mínútna langa ávarpi fullvissaði Bush
landa sína um að nú myndi hann nýta sigurinn til þess
að þrýsta flestum stefnumálum sínum í gegn en lofaði þó
að hafa demókrata með í ráðum ef þeir vildi spila með.
Hann notaði einnig tækifærið til þess að hæla Dick
Cheney varaforseta og þakka honum frábær störf.
„Ef ég býð mig aftur fram til forseta árið 2004 vil ég
hafa hann mér við hlið af þvi að hann er frábær varafor-
seti og því engin ástæða til að skipta,“ sagði Bush og
bætti við að hann væri ennþá að ná sér eftir erfiða kosn-
ingabaráttu síðustu daga en þá ferðaðist hann ekki
minna en sextán þúsund kílómetra og kom við í fimmt-
án ríkjum á fimm daga kosningaferðalagi.
Bush reyndi að gera lítið úr sínum þætti í kosninga-
sigrinum og bað menn að ofmetnast ekki eins og eftir
glæstan sigur í þingkosningunum árið 1994.
„Við skulum halda okkar á jörðinni og láta gott af
okkur leiða,“ sagði Bush og bætti við að frambjóðend-
urnir ættu sjálfir heiðurinn af góðum árangri en ekki
hann. „Góðir frambjóðendur vinna góða sigra af þvi þeir
eru góðir frambjóðendur en ekki af þvi þeir eru vinir
forsetans eða fjandmenn þegar það á við. Ég veit að þeir
í Washington eru gjarnir á að persónugera hlutina. Þeir
segja Bush vann, Bush tapaði. Það er þeirra afstaða sem
ég tel ekki rétta,“ sagði Bush.
Næstum auðmjúkur
Það var mjög áberandi í ávarpinu hve forsetinn var
hófsamur eða næstum auðmjúkur í garð demókrata,
öfugt við embættismenn hans í Hvíta húsinu Hann
sagðist þegar hafa haft samband við leiðtoga þeirra í
báðum deildum þingsins, þá Tom Daschle í öldunga-
deildinni og Richard A. Gephardt í fulltrúadeildinni,
og óskað eftir samstarfi. Gephardt hefur reyndar til-
kynnt að hann gefi ekki kost á sér áfram sem leiðtogi
demókrata í fulltrúadeildinni í kjölfar kosnigasigurs
repúblikana.
„Kosningaslagnum er lokið en hryðjuverkaógnin
eltir okkur enn og mun gera það áfram. Þess vegna
verðum við að standa saman við að tryggja öryggi
þjóðarinnar og til þess þurfum við nauðsynlega að
koma öryggismálafrumvarpinu í gegn sem fyrst,“
sagði Bush sem situr uppi með Daschle í forsæti öld-
ungadeildarinnar fram yfir þingfri.
Þaö er því mikilvægt fyrir Bush, ætli hann sér að
koma öryggismálafrumvarpinu hratt í gegn, að halda
friðinn og tryggja sér stuðning demókrata í öldunga-
deildinni á meðan þeir geta enn þvælst fyrir þar til
nýr meirihluti tekur við. Kannski það sé ástæðan fyr-
ir auðmýktinni frekar en samstarfsviljinn eða með-
aumkvunin.
Flestir þakka Busli áranguriun
Þó að Bush vilji gera lítið úr sínum þætti í kosn-
ingasigrinum eru flestir á því að honum beri að
þakka. Meðal þeirra er Rudy Giuliani, fyrrum borgar-
stjóri í New York, en hann þakkar forsetanum fyrst
og fremst árangurinn. „Hann fór og hitti fólkið og það
gekk upp. Hann er forseti sem fólkið hefur trú á og
hann á stærstan þátt í sigrinum," sagði Giuliani.
Öldungadeildarþingmaðurinn John McCain, sem í
hittifyrra keppti við Bush um að verða forsetafram-
bjóðandi repúblikana, tók í sama streng og sagði að
Bush ætti heiður skilinn. „Hann vann frábært starf
fyrir kosningarnar og gerði gæfumuninn," sagði
McCain.
Á hinum kantinum sleikja demókratar sár sín.
Þeirra áherslumál, sem voru óvissan í efnahagsmál-
um og deildar meiningar um væntanlegt stríð gegn
írökum, fengu lítinn sem engan hljómgrunn, auk þess
sem þeir mættu mjög ósamstíga og leiðtogalausir til
kosninganna. Enginn í brúnni og því enginn til þess
að halla sér að eins og hinn föðurlegi Bush sem hef-
ur lagt alla áherslu á að verja þjóð sína eftir hörm-
ungarnar 11. september. Enda fór svo að repúblikan-
ar unnu sigra í ríkjum þar sem demókratar hafa
hingað til verið nokkuð öruggir með sigur.
ÖII eyðlumet slegiu
Þrátt fyrir að sigur repúblikana hafi verið sögulega
glæsilegur var hann naumur ef miðað er við töluleg-
ar forsendur. í flestum tiifellum merja þeir sigur og
vilja sumir, sérstaklega úr röðum demókrata, þakka
eða kenna það gífurlegum fjáraustri til kosningabar-
áttunnar þar sem repúblikanar munu hafa slegið öll
eyðslumet og greitt til hennar um 150 milljónir doll-
ara á móti 80 milljónum dollara sem demókratar
eyddu.
Einn þeirra sem kennir fjármagninu um er öld-
ungadeildarþingmaðurinn Patty Murray frá Was-
hington-ríki, en hann kennir fjáraustri repúblikana
fyrst og fremst um fylgistap sinna manna. „Við erum
þarna að horfast í augu við fordæmalausar upphæð-
ir. Við eigum í raun enga möguleika á að keppa við
þessa menn,“ sagði Murray og bætti við að demókrat-
ar væru eins og karlinn á kassanum miðað við
repúblikana með allt sitt fjármagn, sem enginn gæti
keppt við. -EK