Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2002, Page 47
LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002
Helgorblctö 3Z>'V
51
Árás í Kringlumýri
Marqdæmdur oq óreqlusamur
óqæfumaður réðst að unqri
stúlku íKrinqlumqri fqrir
rúmum 40 árum oq reqndi að
nauðqa henni. Hann kom ekki
fram vilja sínum en var
dæmdur ítveqqja oq hálfs árs
fanqelsi.
Á áratugunum eftir stríðið var mikil húsnæðisekla í
Reykjavík og fólk bjó í margvíslegum skúmaskotum og
hreysum sem ella hefðu varla þótt mannabústaðir.
Braggahverfin voru alþekkt en margir hírðust í hreys-
um og gömlum kofum í útjaðri borgarinnar meðan
þeir biðu færis á einhverju betra. Slíkt „skuggahverfi"
var í Kringlumýri langt fram á sjöunda áratuginn þar
sem undirmálsfólk og fátæklingar söfnuðust saman og
bjuggu margir við þröngan kost. Eins og títt er með
slíka þjóðfélagshópa þurfti lögreglan oft að hafa af-
skipti af íbúunum og samskiptum þeirra.
Ástandið var þannig í kofaþorpinu í Kringlumýri að
það hafði aldrei verið ráðist í að gefa götunum nöfn
heldur voru þær kallaðar A-gata, B-gata og svo fram-
vegis. í aprU 1959 gerðust þeir atburðir á heimUi
nokkru við E-götu að þangað kom maður í heimsókn.
Þetta var óreglusamur trésmiður á fimmtugsaldri með
langa sakaskrá. Hann var kunnugur húsmóðurinni á
bænum sem eitt sinn hafði verið ráðskona hjá honum.
Trésmiöurinn var þéttdrukkinn og hafði meðferðis
áfengi og settust þau skötuhjúin nú að sumbli og skál-
uðu fram eftir degi.
Rétt fyrir níu um kvöldið kom 16 ára gömul stúlka
sem búsett var viö G-götu í Kringlumýri einnig í heim-
sókn. Stúlkan sat drjúga stund með fullorðna fólkinu
en drakk aðeins kaffi meðan borðfélagar hennar héldu
áfram áfengisdrykkju. Trésmiðurinn stóð loks upp og
sagðist ætla að heimsækja mann sem hann þekkti og
bjó við G-götu. Skömmu síðar yfirgaf stúlkan einnig
húsið og skammt utan við dyrnar rakst hún á trésmið-
inn sem baö hana að fylgja sér til mannsins við G-götu
sem hann hugðist heimsækja en þeir höfðu kynnst í
Hegningarhúsinu þar sem þeir voru að sitja af sér ölv-
unarsektir.
Henti stúlkunni í poll
Þegar þau trésmiðurinn og stúlkan gengu fram hjá
jarðhúsum sem þarna voru greip trésmiðurinn allt í
einu í stúlkuna og skellti henni flatri ofan í ísilagðan
poll. Hann lagðist siöan ofan á hana og reyndi að
þröngva henni til samfara við sig og tók jafnframt fast
um háls hennar svo henni lá við köfnun og gat ekki
hrópað á hjálp. Trésmiðurinn reif bæði buxur
stúlkunnar og nærfót en stúlkan veitti svo mikla mót-
spyrnu að honum tókst ekki ætlunarverk sitt. Skyndi-
lega kom bifreið akandi og dró þá trésmiðurinn stúlk-
una með á hnjánum austur fyrir jarðhúsið úr augsýn
og hélt þar áfram að reyna að þvinga hana til fylgilags
við sig. í þessum svifum kom hundur aðvífandi sem
stúlkan þekkti sem hund stjúpfoður síns og reyndi að
siga honum á árásarmanninn sem hótaði að drepa
hundinn.
Þegar trésmiðurinn áttaði sig á því að hann hafði
ekki í fullu tré við stúlkuna virtist hann þreytast og
gefast upp á nauðgunartilraunum sínum og lét loks til-
leiðast að sleppa stúlkunni gegn loforði um að hún
þegði um atburði og hefði samræði við trésmiðinn síð-
ar. Viðureign þeirra hafði staðið í um 40 minútur og
voru föt stúlkunnar rifin og tætt og hún forug og
skrámuð.
Stúlkan gekk að skilmálum árásarmannsins en flúði
síðan eins og fætur toguðu heim til sín. Móðir hennar
tók þar á móti henni, hlúði að henni, þvoði skrámur
hennar og hringdu þær síðan þegar í stað á lögregluna.
Lögreglan ók stúlkunni og móöur hennar á slysavarð-
stofu. Á leiðinni þangað komu þeir við I húsinu þar
sem trésmiðurinn og stúlkan höfðu hist og handtóku
trésmiðinn þar sem hann var sestur að sumbli að nýju.
„Þær láta svona þessar stelpur“
Þegar sú lýsing á samskiptum trésmiðsins og
stúlkunnar sem rakin er hér að ofan og byggð er á
framburði stúlkunnar var borin undir smiðinn kann-
aðist hann ekki við neitt af því sem stúlkan sagði.
Hann sagði að komið hefði til átaka milli þeirra í
stríðni og hann hefði reynt að kyssa hana í gamni og
þá hefðu fot hennar eitthvað rifnað. Hann taldi að þau
Á þessum slóðum stóð lengi óhrjálegt hverfi kartöflukufa og ýmissa hreysa sem fólk bjó í meðan liúsnæðisekla
var mikil. Þarna safnaðist saman óreglufólk og undirmálsmenn og þarna gerðust ýmsir skuggalegir atburðir.
v-
hefðu verið samvistum í fimm mínútur eða svo og
taldi allt tal stúlkunnar um átök eða nauðgun hugar-
burð einn og algerlega úr lausu lofti gripinn og hún
hefði getað hrópaö á hjálp ef hún hefði viljað að hans
mati.
Lögreglumennirnir sem handtóku trésmiðinn fannst
hann fremur tuskulegur og óhreinn til fara en töldu
sig ekki sjá nein merki þess að hann hefði lent í rysk-
ingum. Á leiðinni skrafaði hann viö lögregluna um
akstur og umferð. Það vakti hins vegar athygli lögregl-
unnar að þegar trésmiðurinn sá mæðgurnar í bifreið-
inni þá sagði hann við lögreglumennina:
„Þær láta svona þessar stelpur þegar maður er að
reyna við þær.“
Lögreglumönnunum fannst þetta orðalag benda til
að trésmiðurinn vissi mætavel hvers vegna hann væri
handtekinn og itrekuöu spurningar um það hvort
hann hefði verið að leita á telpuna eða kjá eitthvað við
hana. Hann svaraði aftur:
„Þær láta svona þessar stelpur þegar þær eru að
reyna að koma manni inn í hagnaðarskyni."
Talan talar
Daginn eftir fór rannsóknarlögreglumaður á vett-
vang meintra átaka og fann þar ummerki um átök,
buxnatölu, tölu sem talin var úr úlpu og fataló. Tölurn-
ar voru bornar saman við rifin og óhrein fot stúlkunn-
ar á heimili hennar og reyndust vera af fótunum.
Læknirinn sem tók á móti stúlkunni á slysadeild
lýsti stúlkunni svo að hún virtist vera skelfd og miður
sín en að öðru leyti eðlileg í framgöngu. Hún kvartaði
um eymsli í hálsliðum og hnjám þar sem hún var með
grunnar afrifur. Annar læknir skoðaði stúlkuna á
stofu sinni daginn eftir atburðina og fann bólgubletti á
hálsi hennar, húðrispur og bólgu. Á lærum stúlkunn-
ar fundust og marblettir og rispur eins og eftir neglur.
Við rannsókn málsins var trésmiðurinn sendur í
geðrannsókn eins og venja er. Hann reyndist vera með
langan afbrotaferil og hafði í æsku aðallega stundað
reiðhjólaþjófnað og hnupl á kaninum en margvíslegt
brot tengd áfengisneyslu og smáþjófnaði eftir að hann
óx úr grasi. í mati geðlæknis sagði orðrétt:
„Hér er ekki um að ræða geðveikan mann, geðveil-
an né heldur fávita, heldur treggefinn mann sem hef-
ur verið vandræðamaður frá bernsku og óreglumaður
frá unga aldri og hefur nú ofan á langan lista afbrota
komið sjálfum sér í þau vandræði að vera grunaður
um nauðgunartilraun framda undir áfengisáhrifum.
Ekki er ástæða til að efast neitt um sakhæfi manns-
ins ef út i það er farið.“
Trésmiðurinn dæmdur
Þegar héraðsdómur fjallaði um mál þetta komst
hann að þeirri niðurstöðu að þrátt fyrir eindregna
neitun mannsins væri engin ástæða til þess að taka
framburð hans trúanlegan. Þvert á móti taldi dómur-
inn framburð stúlkunnar studdan þeim rökum að
ákveðið var að hann yrði lagður til grundvallar í mál-
inu. Var því talin fengin fyrir því lögfull sönnun að
ákærði hefði reynt að þröngva telpunni til samfara
með ofbeldi.
Móðir stúlkunnar fór fram á það fyrir hennar hönd
að brotamaðurinn greiddi henni samtals 12 þúsund
krónur í miskabætur og vegna fataskemmda. Héraðs-
dómur samþykkti bótakröfu hennar óbreytta og
dæmdi trésmiðinn auk þess í tveggja ára fangelsi.
Hæstiréttur sem fjallaði um málið einu og hálfu ári
seinna staðfesti upphæð bótanna en þyngdi fangelsis-
dóm yfir trésmiðnum í 2 ár og sex mánuði. Hæstirétt-
ur taldi sérstaklega ámælisvert við rannsókn málsins
að ekki skyldi framkvæmd læknisskoðun á stúlkunni
sama dags og harðlega gagnrýnt að rannsókn á vett-
vangi skyldi dragast um meira en dag frá því að at-
burðir gerðust.
-PÁÁ
Helgarferð til
Búdapest
22. nóvember
frá kr.
29.950
Sfðustu 28 sætln
r
Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri til að kom-
ast til Búdapest á hreint ótrúlegum kjörum. Morgunflug á fðstudegi til
þessarrar heillandi borgar og til baka á sunnudagskvöldi, þ.a. þú nýtir
helgina eins vel og hægt er. Búdapest er í dag ein eftirsóttasta borg í Evr-
ópu og hér er auðvelta að lifa í veislu í mat og drykk, á milli þess sem
maður kynnist ólíkum andlitum borgarinnar, en Ungveijaland var í þjóð-
braut milli austur og vestur Evrópu og menningararfurinn ber því vitni.
Einstakt tilboð á góðu 3ja stjömu hóteli
29.950 Mercure Duna, í hinum þekkta franska
Verð kr.
Ftug og gisting á Mercure Relais
Duna. 22. nóvember, 2 nætur.
Verö á mann m.v. 2 í herbergi með
morgunmat. Skattar innifatdir.
Almennt verö.
Munlð MasterCard lerðaávlsun
www.eurspay.ls
hótelhring, í hjarta Búdapest.
Heimsferðir
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is