Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2002, Blaðsíða 53
LAUCARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002
HelQarbloö X>'Vr
57
Bíllinn vinsæll sem kvikmyndastjarna .
Bíllinn hefur oft verið í hlutverki
kvikmyndastjömu á árum áður en
sjaldan meira heldur en nú og þá
ekki síst nýir bílar. Gert var mikið
úr því hlutverki á nýyfirstaðinni
bílasýningu í Birmingham.
Skemmst er að minnast nokkurra
slíkra hér síðastliðinn vetur þegar
James Bond-kvikmyndin var tekin
að hluta hérlendis. Þá komu hingað
mikið breyttir sportbilar af Aston
Martin og Jagúar XKR gerðum fyr-
ir upptökur á æsilegasta bílaatriði
myndarinnar. Segja má að Ford hafi
haft mikil ítök i gerð myndarinnar
því að allir búarnir sem notaðir
voru eru af gerðum sem eru í eigu
Ford. James Bond keyrir Aston
Martin Vanquish, skúrkamir keyra
Jagúar XKR sem reyndar var breytt
á þann hátt að þeir nota fjórhjóla-
drif úr Explorer. Meira að segja
Bond-gellan sjálf, Halle Berry, ekur
um á Ford Thunderbird.
Bíllinn vinsælt þema
Stutt er siðan framtíðartryllirinn
Minority Report var sýndur en í
honum ók Tom Cruise á rafdrifnum
Lexus. Sá bíll er hugmyndabíll og
að nokkru leyti smíðaður með
myndina í huga. Engar áætlanir eru
samt uppi hjá Lexus um að setja
þennan bíl í framleiðslu. BMW var
billinn sem Bond notaði á árum
áður en þeir sjást sjaldan í kvik-
myndum núorðið. Þess í stað hefur
BMW farið þá leið að biðja þekkta
leikstjóra að búa til 10 minútna
langar stuttmyndir um bUa frá
þeim. Þetta eru þekkt nöfn eins og
Ang Lee, John Woo og Tony Scott.
Margir kannast við myndia sem
Guy Ritchie gerði fyrir skömmu en
í henni lék meðal annars kona hans
Madonna. 14 milljónir sáu fyrstu
myndina sem dreift var um Netið.
Um þessar mundir er verið að frum-
sýna næstu tvær, Ticker og the
DevU. Mercedes-Benz SL 500 átti að
leika eitt aðalhlutverkið í nýrri
hasarmynd eftir Michael Mann og
átti Benicio Del Toro að leika aðal-
hlutverkið. Gert var kynningarein-
tak með bílnum sem sýnt var í kvik-
myndahúsum en á síðustu stundu
var hætt við myndina. Mercedes-
Benz er hins vegar í góðu hlutverki
í nýjustu Men In Black myndinni.
Að bUarnir sjálflr fara að leika aðal-
Á sýningunni var einnig Lexus-
bíllinn úr Minority Report sýndur
sérstaklega.
hlutverkið aftur eins og í hinum
frægu Herbie-myndum þar sem VW
bjaUa fór á kostum verður þó lík-
lega að bíða betri tíma. Þó er aldrei
að vita. Miðað við gírinn sem þeir
eru í mun næsti Bond kannski
kynna sig svona, nafnið er Martin,
Aston Martin. -NG
Fiesta á sterum
Á bílasýningunni í Birming-
ham bar það til tíðinda að Ford
frumsýndi nýja tilraunaútgáfu af
rallbíl sem er byggður á nýjum
Ford Fiesta. Þessi smábíll á ster-
um mun líklega taka þátt í
keppnum árið 2004 þótt hann taki
líklega ekki við hlutverki Ford
Focus í heimsmeistarakeppninni
í ralli. í honum er 1,6 lítra vél
með forþjöppu sem skilar rúmum
200 hestöflum. Ford er að koma á
markaðinn með ST-útgáfu af
Fiesta sem er 150 hestöfl en þyrfti
fleiri hestöfl til að keppa við bíla
eins og Renault Clio 172 og Peu-
geot 206 GTi sem er 180 hestöfl.
Samkvæmt innherjaupplýsingum
gæti því verið von á 200 hestafla
RS-útgáfu fyrir almennan mark-
að ef nægur áhugi er fyrir hendi.
Flest hefur verið gert í þessum
bíl til að hann standi sig vel í
keppni og má þar meðal annars
nefna endurhannaða fjöðrun úr
áli, magnesíumfelgur og jafnvel
sjálfvirkt slökkvikerfi. Gírkass-
inn er sex gíra og er honum
stjómað með blöðkum frá stýri.
-NG
Ný vél og fjórhjóladríf í Volvo XC70
Brimborg kynnir um þessar mund-
ir nýjan Volvo XC70 með nýrri dísil-
vél, aflmeiri bensínvél og með full-
komnara fjórhjóladrifskerii. Dísilvél-
in er sú sama og komin er í S80 og er
búin einbunutækni af nýjustu gerð.
Með þessari tækni fæst aukið afl,
minni eldsneytisnotkun, minni meng-
un og síðast en ekki síst hljóðlátari
vél. Vélin gefur 163 hestöfl og togar
340 Nm við aðeins 1750 snúninga. Vél-
in er óvenju létt enda framleidd úr
léttmálmsefnum og vegur minna en
185 kg. Minni þyngd vélar hefur ekki
eingöngu áhrif á eyðslu bílsins heldur
ekki síður á aksturseiginleika þar
sem undirstýring á sér síður stað.
Volvo XC70 er einnig kynntur núna
með enn kraftmeiri bensínvél. Rúm-
tak vélarinnar hefur verið aukið í
2500 rúmsentímetra sem skilar auknu
togi og hestöflum sem núna eru 210
talsins. Fjórhjóladrifsbúnaður Volvo
XC70 hefur einnig breyst. Nýtt raf-
eindastýrt fjórhjóladrif frá Haldex
skynjar stöðugt breytingu á hraða
bílsins, snúningi á stýri og hjólum og
sendir skilaboð í sérstakt stýrikerfi
sem uppfærir fjöðrun og drif 500 sinn-
um á sekúndu. Þannig næst fram há-
marksgrip og öryggi við erflð akstur-
skilyrði. Fyrstu bílamir eru nú komn-
ir i sýningarsal Brimborgar að Bílds-
höfða 6 og eru þar til sýnis og reynslu-
aksturs.
BttiDGEsmne
Á sýningarbás Ford á nýafstaðinni bílasýningu í Birmingham var meðal
annars sérstakur bás tileinkaður 007.
NOTAÐIR BÍLAR
BUICK CENTURY
V6 3100 cc, 04/97, ek. 61 þ. km,
ssk., skipti möguleg á ódýrari.
Verð 1.490.000
MAZDA626
2000cc, 02/99, ek. 106 þ. km,
topplúga, ssk., spólvöm, hiti í sætum,
geislaspilari, cruise control, álfelgur.
Skipti möguleg á ódýrari.
Verð 1.250.000
MUSSO E-32 GRAND LUXE
Bensín, 3200 cc, 06/00,ek. 35 þ. km,
ssk., ABS, spólvöm, álfelgur, dráttarkúla,
geislaspilari. Fæst á 100% láni.
Verð 2.900.000
NISSAN PRIMERA SLX
2000 cc, ek. 106 þ. km, 10/98,
beinskiptur, ABS, fjarst. samlæsingar,
geislaspilari. Skipti möguleg á ódýrari.
Verð 890.000
MUSSO 2900 CC TDI
Dísil, 03/98, ek. 94 þ. km, 33" breyting,
sjálfskiptur, dráttarkúla, þakbogar,
geislaspilari. Skipti möguleg á ódýrari.
Verð 1.990.000
DAEWOO NUBIRA LLST.
1600 cc, 12/99, ek. 44 þ. km,
beinskiptur, ABS, álfelgur, geislaspilari.
Skipti möguleg á ódýrari.
Verð 1.050,000
SKEIFAN • BILDSHÖFÐA 10 • S: 587 1000 / 590 2030
OPIÐ VIRKA DAGA 10.00 TIL 18.30 • LAUGARDAGA FRÁ 12.00 TIL 16.00