Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2002, Side 54

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2002, Side 54
; 58 / /e / Q a rly / a ö JOV LAUGARDACUR •=>. NÓVEMBER 2002 Bílar Sportlegt útlit í vel búnum pakka Kostir: Innrétting, búnaður, hljóðlátur. Gallar: Framsœti, plássfrek afturljós. íslenskir bUablaðamenn voru fyrir nokkrum vikum í Benelux-löndunum við prófun á nýrri kynslóð Mégane ásamt kollegum sinum frá Skandinavíu. Voru eknir alls 500 kUómetrar á misgóðum vegum, meðal annars í ná- grenni hinnar frægu Spa-kappakstursbrautar. AðaUega voru prófaðir bUar með 1,9 lítra dísUvél og tveggja lítra bensínvél og munum við miða þessa grein við bensmbU- inn. En B&L munu vera að íhuga að koma með dísUbUinn einnig enda er um skemmtUega aflmikinn bU að ræða þar. Sérstakt útlit Óhætt er að segja að önnur kynslóð Mégane sé mikið breytt frá fyrri bUnum. Breytingar á ytra útliti eru augljós- ar og sýnist sitt hverjum. Er þar mest talað um afturenda bUsins sem er dálitið sérstakur enda fær hann það útlit frá Vel Satis sem upphaflega var kynntur sem tUraunabUl. Afturrúðan kemur nánast beint niður frá þakinu og er í boga tU hliðanna þannig að hún sést vel þegar horft er á hann frá hlið. Minnir því hliðarsvipur hans dálítið á bU með stórri vindskeið á þakinu. Kosturinn við þetta lag er að höfuðrými verður gott í aftursætum svo og útsýni fyrir bUstjóra. GaUinn er hins vegar falinn i erflöleikum með að koma fyrir nógu stórri afturrúðuþurrku sem vegna bogans virðist meira vera þama tU málamynda. Hins vegar má segja að lóðrétt rúðan ætti að vera laus við að hlaða á sig snjó og því líklega ekki þörf á stórri þurrku. Afturljós eru frekar stór og köntuð og taka aðeins pláss tU hliðanna frá afturhlera. Vel búinn og þægileg- ur Að innan er bUIinn mjög stílhreint innréttaður, frá- gangur góður og takkar aUir mjög snertivænir. Auðvelt er að lesa á mælaborðið og minnir það á mælaborð á mótorhjóli. BUlinn er vel bú- inn staðalbúnaði. Má þar nefna hitastýrða miðstöð, regnskynjara, aksturstölvu, átta öryggispúða og margt fleira. GreinUegt er því að hönnuðir Mégane II stefna á sömu góðu útkomu hans í NCAP árekstrarprófinu og stóra bróðir hans Laguna. Þótt hann taki ekki forystuna í sínum Ookki hvað rými varðar er hann vel rúmgóður og þægUegur í umgengni. Hægt er að stUla aðdrátt á stýri og hækka og lækka framsæti auk þess sem boðið er upp á mjóbaksstuðning. Þrátt fyrir þægi- leg sæti hefðu þau að ósekju mátt vera stærri svo þau veittu betri stuðning við axlir og undir fætur. Bíllinn er vel búinn hirslum í „hólf og gólf ‘ og er tU dæmis þriggja lítra hólf undir fótum farþega í framsætum og tveggja lítra hólf í miðjustokk aftur í. Annað atriði sem vekur athygli í innréttingu er handbremsa sem líkist helst eldsneytisgjöf í flugvél. Betri gírkassar Bensínvélin er ný og gefur ágætiskraft og viðbragð. Mest er þó framfórin í gírkössunum sem eru orðnir mun þéttari en áður. Með stóru vélunum kemur hann með sex gfra kassa frá Nissan sem hentar snúningssviði vélanna vel. Aðeins þarf að vanda sig við færsluna í fimmta og sjötta en það venst þó fljótt. Mégane II er byggður á sömu grind og næsta kynslóð Almera og ræður undirvagninn og fjöðrun- in vel við óslétta vegi en einnig virkar hann öruggur i erf- iðari beygjum. Stýrið er létt, næstum því of létt við erfið- ari aðstæður en virkar vel í hefðbundnum akstri. Hægt er að fá ESP og undirstýringarvöm sem aukabúnað en það veitir aukið öryggi i akstri. Síðast en ekki síst er bíllinn hljóðlátur í öllum akstri. Samkvæmt upplýsingum frá framleiðanda á meðal hávaði aðeins að vera 71 desibel sem er það besta í flokknum. Spuming um verð Þegar þetta er skrifað er ekki ljóst hvaða verðmiði fer á bílinn þegar hann kemur í sölu hérlendis en það ræður miklu um hvernig hann stendur sig í samkeppninni á þess- um harða markaði minni fjölskyldubíla. Má þar nefna að hann þarf að keppa við vinsæla bOa eins og VW Golf, Toyota Corolla, Honda Civic, Ford Focus og Opel Astra. Von er á bílnum í janúar þótt það gæti orðið eitthvað fyrr og kemur hann þá hingað með 1,6 og tveggja lítra bensín- vélunum. Eins og áður sagði kemur dísObillinn hugsanlega og seint á næsta ári verður Mégane II einnig fáanlegur fljótlega með valskiptingu. -NG o Stór afturljósin taka nokkurt pláss frá annars ágætri opnun afturhlerans. © Afturrúðan er nánast lóðrétt sein hefur þann kost að ekki þarf að skafa mikið á veturna. © Handhremsan er nýmóðius og minnir helst á eldsneytisgjöf í þotu. ® Mælaborð og takkar eru þægilegir í notkun og innréttingin hnökralaus. MEGANE II 2,0 2ja litra, 4ra strokka bensínvél. 1998 rúmsentímetrar. Ventlar:________________________________________16. Þjöppun:_____________________________________9,8:1. Gírkassi:________________________6 gíra beinskiptur. UNDIRVAGN: Fjöðrun framan: MacPherson með neðri spyrnu. Fjöðrun aftan: Vindufjöðrun með breytilegum hjól- halla. Bremsur:__________Loftkældir diskar/diskar, ABS, EBD. Dekkjastærð: ‘ 205/65 R16. ] YTRI TÖLUR: Lengd/breidd/hæð: 4209/1777/1457 mm. Hjólahaf/veghæð: 1518/120 mm. Beygjuradíus: 10,5 metrar. INNRI TÖLUR: Farþegar m. ökumanni: 5. Fjöldi höfuðpúða/öryggispúða: 5/8. Farangursrými: 330 lítrar. . HAGKVÆMNI: Eyðsla á 100 km: 8 lítrar. Eldsneytisgeymir: 60 lítrar. Ábyrgð/ryðvörn: 3/6 ár. Verð: Ekki komið. Umboð: B&L. Staðalbúnaður: Stafrænt lyklakort, fjarstýrðar lyklalausar samlæsingar, rafdrifnar rúður og spegl- ar, aðdráttur á speglum, 8 öryggispúðar, fjarstýrður geislapilari og útvarp, álfelgur, armpúði með hólfi, hæðarstilling á framsætum, aðdráttur á stýri, hita- stýrð miðstöð, skriðstillir, spólvörn. SAMANBURÐARTÖLUR: Hestöfl/sn.: 136/5500. Snúningsvægi/sn.: 191 Nm/3750. Hröðun 0-100 km: 9,2 sek. Hámarkshraði: ■; 200 km/klst. Eigin þyngd: 1432 kg. RENAUL Vél: Rúmtak:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.