Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2003, Page 20
20
H&lcjarblac) 13V LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2003
Þegar virkjað er þarf
að gá að sér
Víðtæk sátt er um úrskurð Jóns Kristjánssonar,
heilbrigðisráðherra og setts umhverfisráð-
herra, um Norðlingaölduveitu. I viðtali ræðir
hann um úrskurð sinn, stjórnarsamstarfið og
Ég var reyndar nokkuð undrandi á því hvemig Steingrímur
Sigfússon tók úrskurðinum. Hann sagði að þetta væri fram-
sóknarlegur úrskurður þar sem hvorki væri sagt já eða nei.
Það er eðli miðflokka að miðla málum og ef úrskurður minn
er framsóknarlegur þá er ég stoltur af því fyrir hönd míns
flokks. Hins vegar dró Steingrímur nokkuð í land i utandag-
skrárumræðu á þingi.“
stöðu Framsóknarflokksins.
Menn hafa haft á orði að úrskuróur þinn um Norólinga-
ölduveitu hafi verið salómonsdómur. Skipti þig miklu máli að
það yrói sátt um dóminn?
„Já, það skipti mig miklu máli. Samvisku minnar vegna
fannst mér að ég yrði að skoða þetta mál mjög vel. Ég gerði
mér grein fyrir þvi að málið væri afar viðkvæmt. Þama var
friðland og ef ég hefði staðfest úrskurðinn óbreyttan þá hefði
um leið verið gengið á alþjóðlega sáttmála. Á þeim forsend-
um lét ég athuga þetta mjög vel og við þær athuganir kom í
Ijós að það var hægt að halda framkvæmdum utan friðlands.
Viðbrögð við úrskurði mínum eru þau sterkustu sem ég hef
fundið á mínum ferli og hef ég þó verið í stjómmálum í þijá
áratugi. Mikill meirihluti þjóðarinnar virðist tilbúinn að
sættast á þessa lausn. Mér þykir auðvitaö mjög vænt um það.
Ert þú virkjunarsinni?
„Ég er virkjunarsinni að því leyti til að ég tel að við verð-
um að nýta orku til atvinnuuppbyggingar og stóriðja sé eins
og verið hefur álitleg til þess. Það er áríðandi að halda uppi
atvinnu vegna þess að atvinnulífið stendur undir velferðinni.
Það þarf mikla peninga meðal annars í heilbrigðiskerfið og
félagslega þjónustu og atvinnulíflð er uppspretta þeirra. Þess
vegna er nauðsyn að virkja. Hins vegar skiptir máli hvemig
við stöndum að því. Þegar virkjað er þarf að gá að sér. Ég er
eindreginn stuðningsmaður Kárahnjúkavirkjunar eins og
hún er þótt hún hafi vissulega áhrif á náttúruna. En það em
mun viðkvæmari svæði fyrir austan, eins og við Jökulsá á
Fjöllum, sem ég hef ætið viljað hlífa.“
Ekld á hnjánum í stjómarsamstarf
Ertu ártœgöur með ríkisstjórnarsamstarfió og gœtirðu
hugsaó þérfjögur ár í viðbót?
„Það fer allt eftir því hvort við framsóknarmenn komum
uppréttir úr kosningum hversu álitlegt er að fara í ríkis-
stjóm. Þangað er ekki gott að koma á hnjánum. Ég hef verið
i tvö ár í innsta hring í stjómarsamstarfi við Sjálfstæðisflokk-
inn og hef ekkert undan því að kvarta. Það hafa verið heil-
indi í þessu samstarfi og við höfum getað talað um hlutina og
komist að niðurstöðu eftir hreinskilin skoðanaskipti. Þannig
á að starfa í stjómarsamstarfi. í vor ganga menn til kosninga
og halda fram stefnu síns flokks en stjómarsamstarf við
hvaða flokk sem er þýðir að menn verða að slá af kröfum og
ná málamiðlun. Mér fmnst mönnum hafa tekist það í þessu
rikisstjómarsamstarfi þrátt fyrir að flokkamir séu ósammála
um ýmsa hluti. Ég útiloka þó ekki samstarf við neinn flokk
að kosningum loknum."
Ekki einu sinni við Vinstri grœna?
„Ég útiloka það ekki þótt við séum reyndar ipjög ósam-
mála um flesta hluti. Það yrðu að vera miklar málamiðlanir
ef samstarf ætti að takast."
Sígandi lukka er best
Finnst þér staða Framsóknarflokksins í skoðanakömunum
ekki vera kvíðvœnleg?
„Skoðanakannanir hafa verið slæmar. Gallinn við að fá
slæmar skoðanakannanir er að þær ergja flokksmenn á
stundum en kosturinn er að þær þjappa flokksmönnum oft-
ast saman. Margar góðar skoðanakannanir í röð geta hins
vegar leitt til andvaraleysis. Ég get nefnt skólabókardæmi
um vonda skoðanakönnun sem hafði mikil áhrif. Tíu dögum
fyrir síðustu kosningar fengum við framsóknarmenn skoð-
anakönnun fyrir austan um að ég væri fallinn út af þingi.
Fylgið var 28 prósent i kjördæminu. Flokksmenn hrukku
mjög við. Einn vinur minn og stuðningsmaður sagði við mig:
„Við bætum við okkur einu prósenti á dag það sem eftir er
til kosninga." Og það varð, við fengum 38 prósent. Fólk sneri
JAFNRÉTTI - JÖFN TÆKIFÆRI
Með því að leysa úr læðingi hæfileika starfsfólks og skapa því umhverfi
sem mótast af sanngirni, heiðarleika og virðingu myndum við sterka
liðsheild. Þannig nóum við samkeppnisforskoti og órangri sem tekið er eftir.
Skeljungur hefur markað sér þó stefnu að jafnrétti, þar sem hæfni ræður
vali, sé óvallt órofa hluti af menningu fyrirtækisins. Þessi jókvæða afstaða
til jafnréttis skilar sér tvímælalaust til viðskiptavina okkar í úrvalsþjónustu.