Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2003, Síða 25
LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2003
HeIgorblaö JOV
25
i
Hér leggur Guniiur Karl kart-
öflustöngiua ofaii á sellerí-
niaukið. Áður hafa kartöflurnar
verið stappaðar með olíu og
steinselju, jveini rúllað inn í
sniurt filodeig og stöngin steikt
á tcflonpönnu.
Sósan úr kjúklingasoöinu er
með nettu tímían- og hvítlauks-
hragði. Smjörið gerir hana sér-
lega ljúffenga.
Gunnar Karl nostrar við
skreytingarnar.
DV-myndir Sig. Jökull
Frönsk gæðahvítvín frá
Loire-dalnum og Alsace
- er val Ágústs Guðmundssonar, víndeild Globuss
Nú er þorrinn hálfnaður og ófáir gæða sér á súr-
meti um helgina. Það er nú margt verra en súrmeti
en það er alltaf jafn gott að fá sér sjávarfang á disk.
Lúða er herramannsmatur og ekki laust við að frá-
sögn af matreiðslu Gunnars Karls hafi kitlað
bragðlauka Ágústs Guðmundssonar hjá víndeild
Globuss.
Þótt það hafi freistað Ágústs að finna til rauðvín
með aðalréttinum varð Sancerre Blanc frá Pascal
Jolivet frá Loiredalnum í Frakklandi fyrir valinu.
Pascal Jolivet telst tO yngri kynslóðar manna sem
náð hafa mjög langt í list sinni, víngerðinni. Fyrir-
tækið er stofnað árið 1987 og er eitt af yngstu vín-
gerðarhúsunum í Loiredalnum.
Sancerre Blanc 2001 er alfarið unniö úr
Sauvignon Blanc-þrúgunni. Vínið hefur blómlegan
og fágaðan ilm. í munni einkennir skarpur, þurr
ávöxtur og gott jafnvægi þetta vín. Sancerre Blanc
fellur vel að grilluðu sjávarfangi og þá sérstaklega
feitari tegundum á borð við stórlúðu, lax og skötu-
sel. Það hæfir einnig léttari fuglakjötsréttum, t.d.
kalkúna og kjúklingi. Þá er ekki úr vegi að bragða
Sancerre Blanc með léttari ostum eins og mjúkum
en ekki of þroskuðum brieostum.
Sancerre Blanc 2001 fæst í sérverslun ÁTVR í
Heiðrúnu og kostar þar um 1.800 krónur.
Til stóð að matreiða lúðuþynnur í forrétt hér á
síðunni, kryddaðar með basilolíu, hvítlauk og
tómat. Af því varð þó ekki en kryddiö sem hér er
upp talið og góður fiskur stendur sannarlega fyrir
sinu. En fyrirhugaður forréttur leiddi huga
Ágústs til Alsace-héraðsins í Frakklandi. Þar varð
fyrir valinu gæöahvítvín, Riesling Reserve, frá
Trimbach-fjölskyldunni, árgangur 1998. Það var
um miðja 17. öld sem Jean Trimbach hóf vingerð
í Alsace. Það var svo árið 1898 sem Frederic
Emile Trimbach hélt með afraksturinn á alþjóð-
lega vínsýningu í Brussel. Er skemmst frá því
að segja að hann hirti þar öll helstu verð-
laun sem í boði voru. Allar götur síðan
hefur Trimbach-fjölskyldan verið á meðal
allra bestu vínframleiðenda í Alsace-hér-
aðinu. Á fjölskyldan m.a. hina óviðjafn-
anlegu ekru Clos St. Hune sem er af
mörgum talin skila besta Riesling-víni Al-
sace-svæðisins.
Riesling Reserve 1998 frá Trimbach er
unnið úr vínþrúgum sem koma frá bestu
svæðunum í kringum bæinn Ribeauville.
Þetta er þurrt vín sem hefur fínlegan stein-
efnaríkan ávöxt. Greina má gott jafnvægi
sýru og ávaxtar. Riesling Reserve fellur vel
að fersku, finlegu sjávarfangi og skelfiski,
sem og ýmsum ljósum kjötréttum. Fyrir þá
sem vilja sósur með matnum er mælt með
hvítvínsbættum sósum.
Riesling Reserve frá Trimbach fæst í sér-
verslun ÁTVR í Heiðrúnu og kostar um 1.400
krónur.
Umsjón
Haukur Lárus
Hauksson
[