Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2003, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2003, Blaðsíða 26
26 HelQarblctð DV LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2003 / listum eru engar skýrar mælistikur — rýnt í Menningarverðlaun DV í myndlist eftir Ounnar J. Árnason Verðlaunalandslagið hefur held- ur betur breyst frá því byrjað var að afhenda Menningarverðlaun Dagblaðsins árið 1979. Fyrir aldar- fjórðungi voru verðlaunaafhend- ingar alvarlegur viðburður þar sem spakir menn komu saman í reykfylltum herbergjum. Afhend- ingar liktust helst hátíðarkvöld- verði hjá Lions eða Rotary, hlýtt var á háfleygar ræður jafnvel svo mínútum skipti, loks var sá verð- ugi vígður inn í félagskap frómra manna með skjali eða barmnælu. Um verðlaunatilnefningar sáu gjarnan opinberar nefndir eða há- timbraðar akademíur sem úthlut- uðu verðlaunum eins og heiðurs- doktorsnafnbótum. Nú eru verðlaunaafhendingar orðnar eftirsótt fjölmiðlaefni með beinum útsendingum á besta sjón- varpstima. í augum þeirra sem standa fyrir þeim eru þær ekki að- eins viðburður heldur ekki síður hagsmunamál og markaðstæki- færi. Edduverðlaun, bókmennta- verðlaun, tónlistarverðlaun eru sviðsett af samtökum útgefenda, framleiðenda og listamanna. Það virðist meira að segja vera til markaður fyrir verðlaunahátíðir sem slíkar, annars væru varla til fyrirtæki sem sérhæfðu sig í því að halda þær. Að vera með puttann á Gallerí Suðurgata 7 lilaut fyrstu Menningarverðlaun DV fvrir myndlist árið 1979. Friðrik Þor plílsinum Friðriksson, sem síðar hefur látið til sín talta á öðrum vígstöðvum, stóð meðal annarra að gafleríiuu. Menningarverðlaun eru þess eðlis að þýðing þeirra er Hver er draumurinn? Það var því af nokkurri framsýni að DV dustaði vindlaöskuna af aldinni og virðulegri hugmynd á sínum tíma og reyndi að gera menningarverðlaun að fjölmiðla- viðburði sem átti erindi við almenning með því að standa að tilnefningum, vali og afhendingu fyrir opnum tjöldum. Lesendur blaðsins gátu sent inn tilnefningar, tekið þátt í atkvæðagreiðslu. Blaðið reyndi að skapa eft- irvæntingu og telja niður dagana þar til tilkynnt var um verðlaunahafa. Fjallað var ítarlega með myndefni um af- hendinguna, þar sem útlistað var nákvæmlega hvað bor- ið var á borð fyrir hátíðargesti í glæsilegasta veitingasal bæjarins og stundum var þessu fylgt eftir næstu daga með viðtölum við verðlaunahafa. Nú þykir það nánast viðtekinn og sjálfsagður siður að standa svona að mál- um. Ég þykist nokkuð viss um að ekki hafi einskær ást á menningunni ráðið ferðinni þegar lagt var upp með þessi verðlaun hjá ráðamönnum blaðsins á sínum tíma, hvað þá að það hafi þraukað fram til dagsins í dag, án þess að þeir hafi metið hvað blaðið sjálft beri úr býtum. Dreymir ritstjóra DV ekki um að landsmenn bíði með öndina í hálsinum eftir því að tilkynnt verði um verð- launahafa og taki síðan andköf yfir tilnefningunni og að Kastljós og ísland í bítið keppist um að fá til sín máls- metandi menn sem deila um niðurstöðuna? Og að kepp- endur í Gettu betur verði ekki í nokkrum vandræðum með að svara hraðaspurningum um hver hafi hlotið verðlaunin áratug seinna? Engin ævikvölds angurværð Ef við erum að velta fyrir okkur hversu vel hefur tek- ist til með DV-verðlaunin og hversu vel þau hafa staðist timans tönn þá er það ekki bara spurning um hvort vel Menningarverðlaun DV árið 1997. hafi verið staðið að vali á verðlaunahöfum heldur ekki síst hvort verðlaunin séu sá fjölmiðlaviðburður sem bú- ast mætti við. Er DV að fá út úr þessum verðlaunum það sem þeir sækjast eftir? Ég ætla ekki að falla í þá gryfju að leggja dóm á hvort verðlaunahafar DV í gegnum tíðina hafi átt verðlaun sín skilið, því siður að tína einhverja til sem áttu þau betur skilið. Það er hæglega hægt að lenda úti á hálum ís í þeim efnum. í listum er engin samkeppni um fyrsta, annað og þriðja sæti. Engar skýrar mælistikur til að dæma eftir. Menn skora ekki punkta eða koma fyrstir í mark. Það er því ekki alltaf ljóst hvað átt er við þegar talað er um að listamaður eigi einhver verðlaun skilið, sama hversu merkilegur aðili það er sem úthlutar þeim og sama hversu „fræðilega" eða „hlutlægt" staðið er að málum. Það eru ótal listamenn á hverjum tíma sem eiga einhverja viðurkenningu skilda af einni eða annarri ástæðu. Að þessu leyti er enginn munur á Menningar- verðlaunum DV og nóbelsverðlaununum. Verðlaunin fóru vel af stað fyrstu árin. Lesendur máttu senda inn tilnefningar og þar mátti sjá kunnugleg nöfn eins og Einar Hákonarson, Braga Ásgeirsson, Hring Jóhannesson og Svein Björnsson. En dómnefndin valdi ólíklegasta kandídatinn, Gallerí Suðurgötu 7, sem hafði þá verið framsæknasti sýningarsalur í bænum og gaf út tímaritið Svart á hvítu. Annar þeirra sem tók á móti verðlaunum átti eftir að láta til sín taka svo um munaði í annarri listgrein, en sá var Friðrik Þór Frið- riksson. Þetta lofaði góðu og það virtist vera góð stemn- ing í kringum verðlaunaveitinguna, „engin ævikvölds angurværð", eins og Thor Vilhjálmsson orðaði það á sin- um tíma. Hvemig var hægt að sniðganga konur? En svo er eins og verðlaunin tapi áttum, því næstur hlýtur Sigurjón Ólafsson þau, og þremur árum seinna Jóhann Briem. í staðinn fyrir að endurspegla það athygl- isverðasta sem er í brennidepli þá er eins og verðlaunin renni oft til listamanna vegna þess sem þeir voru að gera tíu eða tuttugu árum áður. Áttundi áratugurinn var tími málverksins hjá DV- verðlaununum. Verðlaunahafar frá 1983, þegar Helgi Þorgils hlýtur þau, fram til 1990, þegar Kristján Guð- mundsson fær þau, eru allir málarar, utan einn, Jón Gunnar Árnason myndhöggvari. Það sem stingur kannski mest í augu er að frá 1979 og fram til 1995 hlýtur aðeins ein einasta kona menningar- verðlaun DV. Svo ég verði ekki sakaöur um að vera ósamkvæmur sjálfuni mér þá ætla ég ekki að fara að halda þvi fram að einhverjar listakonur hafi átt betur skilið en karlarnir að fá verðlaun á þessu tímabili en í ljósi þess að hæfileikaríkum konum fer mjög fjölgandi á þessum árum og allrar umræðunnar í kringum kvenna- hreyfinguna og feminisma má undarlegt heita að það hafi verið hægt að komast hjá því að veita listamanni af ekki sjálfgefin (eins og t.d. í íþróttum). Þau eru ákveðin fullyrðing, „statement", eins og sagt er, þau verða að standa fyrir eitthvað. Fyrir hvað standa DV-verðlaunin í myndlist? Ég hef aldrei almennilega áttað mig á því. Til þess hefur ekki verið nægilega mikil samkvæmni í úthlutunum og þau vasast í of miklu. Eitt árið eru þau einhvers konar heiðursverðlaun, næsta árið er það bjartasta vonin, annað árið samfélagsþjónustuverðlaun. Það gengur eiginlega ekki að ætla sér að verðlauna allt sem vel er gert. Það væri oflátungsháttur af mér að þykjast geta gefið þrautreyndum fjölmiðlaberserkjum ráð um hvaða stefnu DV-verðlaunin ættu að taka. En ef ég ætti að upplýsa um mitt auðmjúka álit þá fyndist mér ekki óeðlilegt að verð- launin leituðust við að endurspegla þá ímynd og stöðu sem blaðið vill skapa sér í hugum landsmanna, að það sé með puttann á púlsinum, að það hlusti eftir hjartslætti menningarlifsins, sé fyrst með fréttirnar, helst áður en þær gerast. Til þess þurfa þau ákveðna áræðni og dirfsku, taka áhættu og vera mátulega ósann- gjörn. Þau verða að koma á óvart og ganga jafnvel fram hjá augljósustu kandidötunum. Jafnvel nóbelsverðlaun- in í bókmenntum koma stundum á óvart, annars væru þau löngu dauð. DV ætti að vita það betur en flestir að það er fátt verra en að vera of seinir með fréttirnar. Því er betra að sleppa því að flytja þær en að vera uppvís að þvi að vera síðastur aö segja frá því sem er á allra vitorði. Það er ekki hægt að bæta fyrir seinaganginn með því að veita verðlaun eftir á, eða réttlæta verðlaun með því að ein- hver haft beðið nógu lengi eftir verðlaunum og nú sé röðin komin að honum. DV ætti að sleppa því alveg að skrýða aldna höfðingja með medalíum fyrir löngu liðin, vel unnin störf í þágu lands og þjóðar. Aö veita viður- kenningu fyrir vel unnin störf í þágu samfélagsins er einhver aumasta afsökun fyrir verðlaunum sem til er, sérstaklega þegar um er að ræða verðlaun í flokki lista. Th þess höfum við fálkaorðuna og heiðurslaun Alþingis. DV ætti að notfæra sér það að blaðið er í aðstöðu til að geta hunsað listelítuna, akademíska forpokun og fræði- lega hlutlægni og ætti að láta það eftir sér öðru hverju. Ef einhver vill halda því fram að verðlaunin séu geng- in sér til húðar þá má benda á að á tímum þegar verð- launaafhendingar eru jafnvinsælar og skoðanakannanir meðal fjölmiðla þá hafa DV-verðlaunin nokkra sérstöðu Þau eru óháð hagsmunasamtökum og listamannafélög um, laus undan kvótahugsun opinberra úthlutunar nefnda og eru í aðstööu til að geta staðið utan við menn ingarklíkur. Það má vera að akademíur og eddur eigi sviðið nú um stundir en það er þess virði að reyna að viðhalda rödd í menningarlífinu sem er ekki ætlað að tala í öðru orðinu fyrir hagsmuni greinarinnar. Ef DV tekst að viðhalda sinni sérstöðu og afmarka hana og ef fólk finnur inn á fyrir hvað verðláunin standa þá gætu þau orðið sá öflugi menningarviðburður sem búist er við af þeim. kvenkyni verðlaun í allan þennan tíma. Þegar kona hlýtur loks verð- laun 1995 þá er það ekki full- trúi ungra kvenna með ný við- horf heldur Ragnheiður Jóns- dóttir, sem hefði frekar átt að fá þau fimmtán árum áður, þá sem fulltrúi nýrra viðhorfa innan kvennahreyfingar og fyrir grafíkmyndir sem rötuðu inn á ófá heimili. Það er eigin- lega ekki fyrr en Ragna Ró- bertsdóttir fær verðlaunin 2000 að kona fær verðlaun fyr- ir myndlist sem endurspeglar hræringar í samtímalistinni. Á móti hafa verðlaunin stundum komið á réttum tíma og runnið til þeirra sem voru á leiðinni upp. Þar má t.d. nefna Helga Þorgils 1983 (frekar en 2003), Georg Guðna 1988, Krist- in E. Hrafnsson 1991 (Hver er það? hafa menn eflaust spurt), Finnboga Pétursson 1994, Pál Guðmundsson 1996 (hver ann- ar ætti að veita Páli, akademískum utangarðs- manni, verðlaun?).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.