Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2003, Page 27
LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2003
Heltgarhloö H>V
2"7
Þeir selja fólki sérhæfðar ferðir sem tengjast lífsstíl og áhugamálum. Jón Karl Einarsson situr en við hlið hans
standa Þórir Jónsson og Magnús Jónsson.
DV-mynd GVA
Ferðast eftir lífsstíl
Ferðalög Islendinga
hafa tekið miklum
bregtingum frá þvíað
hópast á sólarstrend-
ur til nokkurra uikna
bílífis. Nú ngtur mik-
illa vinsælda að fara í
sérhæfðar ferðir til
útlanda sem tengjast
lífsstíl eða áhugamáli
ferðalangsins. DV
hitti menn sem eru
sérfræðingar íþess
háttar ferðalögum.
Það er alveg sérlega skemmtilegt að
ferðast þótt auðvitað sé yfirleitt best að
koma heim. Þetta vita íslendingar og
eiga um það ýmis máltæki eins og vits
er þörf þeim er viða ratar og heimskt er
heimaalið bam. Skemmtilegast er samt
að ferðast í hóp með vinum og félögum
eða fólki sem er ókunnugt í upphafí
ferðar en er eins og aldavinir manns
þegar heim er komið.
í Hlíðasmára i Kópavogi er ferða-
skrifstofa sem heitir Úrval-Útsýn og Jón
Karl Einarsson og Þórir Jónsson sjá um
rekstur á.
Á þessari ferðaskrifstofu leggja menn
mikla áherslu á hópferðir sem tengjast
lífsstíl eða áhugamálum fólks. Þarna
eru skipulagðar afskaplega margar kór-
ferðir til hinna undarlegustu heims-
homa. Þar njóta menn sérþekkingar
Jóns Karls sem er tónlistarkennari og
reyndar stjómandi Selkórsins og hefur
verið fararstjóri í fleiri kórferðum en
tölu verður komið á með góðu móti.
íþróttaferðir em annar hluti, bæði
keppnisferðir og þjálfunarferðir, og vax-
andi vinsælda njóta ferðir unglinga á
stærri og smærri mót erlendis. Það er
Þórir Jónsson sem er frumkvöðull og
sérfræðingur á því sviði.
Gönguferðum vex fiskur um
hrv'gg
Einn vaxtarbroddurinn enn er síðan
gönguferðir erlendis sem njóta mjög
vaxandi vinsælda og er varla hægt að
ræða án þess að nafn Steinunnar Harð-
ardóttur komi fljótlega upp i hugann en
í samvinnu við hana hafa þessar ferðir
i rauninni orðið vinsælar. Steinunn
byrjaði að ganga með íslendingum um
fjafflendi Mallorka fyrir allmörgum
ámm. Síðan hafa kvíamar verið færðar
út og í dag er gengiö auk þess um
Pýreneafjöllin á Spáni, um fjalllendi
Krítar undir stjóm Tryggva Sigurbergs-
sonar og nú í sumar verður boðið upp á
ferðir um fjalllendi Toscana á ftalíu. Það
er Magnús Jónsson sem er sérfræðingur
stofunnar í þessum ferðum, margreynd-
ur göngugarpur og skipuleggjandi, með-
al annars hinna sérstæðu menningar-
gönguferða sem nemendur Jóns Böðv-
arssonar hafa farið um víkingaslóðir
víða um heim.
í anda bændaferðamia
DV settist niður með Jóni Karli Ein-
arssyni og spurði hann hvað væri nýj-
ast á döfinni hjá bjartsýnismönnunum
sem eru nýbúnir að taka að sér rekstur
ferðaskrifstofu.
„Okkar mesta nýjung er ferðir sem
við köllum Evrópurútur. Við höfum ver-
ið með borgarferðir til Evrópu og vildu
færa út kvíamar og gerðum svolitla til-
raun í fyma og kölluðum þetta þá
bændaferðir. Nú ætlum við að fara um
Íberíuskagann, Portúgal, Eystrasalts-
löndin og suður til Ítalíu og austur til
Tékklands og Ungverjalands.
Þetta eru ferðir sem taka 10-12 daga
og það er mjög mikið innifalið. Við
erum með mjög vandaða fararstjóm,
gistum á þriggja stjömu hótelum allan
tímann og það er boðið upp á hálft fæði.
Það er morgunverður á hótelunum en
borðað á völdum veitingastöðum á
kvöldin. Við reynum að nálgast eins
menningu hvers lands,“ segir Jón sem
segir að þessar ferðir henti sérlega vel
fólki sem vill gjaman ferðast í hóp og
vill losna við fyrirhöfn af skipulagi og á
erfitt með að bjarga sér á erlendum
málum.“
Gengið um seljadali
- Þetta sama á sérstaklega við um
gönguferðimar. Þar gengur 20 manna
hópur saman í marga daga á greiðum
fjallastígum og borðar saman á kránum
og hittist á kvöldin undir steikjandi sól
en þægindi í gönguferðunum erlendis
eru nokkuð meiri en tíðkast i göngu-
ferðum í íslenskri náttúra.
„Það sem helst er þægilegra í útlönd-
um er veðrið," segir Magnús Jónsson
göngugarpur.
„Við byijuðum smátt á Mallorka með
Steinunni Harðardóttur en höfum fært
út kvíamar. Oftast er gist í tveggja
manna herbergjum en í Toscanaferðun-
um í sumar verður gist í fjaUaskálum
enda er þá ferðast um sefjadali hátt uppi
i fjöllunum þar sem engir vegir eru og
lítið um nútímaþægindi en geysifalleg
og stórbrotin náttúra.
Sem dæmi um stemninguna í þessum
ferðum þá héldum við i fyrra svolítinn
haustfagnað héma heima fyrir þátttak-
endur og ég held að þáttakan hafi verið
um 80%. Þetta hefur verið geysilega vin-
sælt hjá fólki sem er 40-50 ára en yngra
fólk sækir í þetta í vaxandi mæli. Þetta
em ferðir við allra hæfi og við reynum
að hafa það dálítið gott en taka samt
hraustlega á því og þá höfum við góða
matarlyst á kvöldin."
Þótt Steinunn sé enn í fararbroddi í
sumum gönguferðanna em bæði á Krít
og í Toscana hafðir innlendir fararsfjór-
ar og samstarfsmenn.
Kórferðir stöðugt öflugri
- Jón Karl hóf sinn feril í fararstjóm
kórferða fyrir nærri 18 árum með
Ingólfi Guðbrandssyni og ílentist í því.
Síðan hefur boltinn rúllað stanslaust.
„Það em milli 15 og 20 kórar og
hljómsveitir sem við erum að vinna fyr-
ir núna við að skipuleggja skemmri og
lengri ferðir. Það fer stöðugt í vöxt að
kórar fari til útlanda á 2-3 ára fresti og
þótt nýir áfangastaðir komist i tísku er
metnaður íslendinga sá að gera alltaf
betur og þess vegna klæðskerasaumum
við hveija ferð fyrir sig og það er mjög
mikil vinna,“ segir Jón Karl sem sjálfur
er menntaður tónlistarmaður og stjóm-
ar Selkómum á Seltjamamesi sem er
blandaður kór.
Lengsta ferðin sem er i pípunum í
augnablikinu er kórferð til Ameríku og
Kanada á íslendingaslóðir en Rússland
hefur verið að opnast mikið á þessu
sviði og síðastliðið haust fór Söngsveit-
in Fílharmonía mikla ferð til Péturs-
borgar og flutti Sálumessu Mozarts með
þarlendum listamönnum.
„Það þarf að skipuleggja með góðum
fyrirvara og við emm nú að vinna að
stórri ferð fyrir karlakórinn Fóstbræð-
ur sem fer til Pétursborgar sumarið 2004
til að halda kóramót en sú ferð hefur
verið í fréttum vegna fyrirhugaðs sam-
starfs þeirra við Vladimír Ashkenazy.“
Ræktum grasrótina
- Þeir Jón Karl og Magnús segja að
þótt sólarlandaferðir til hvíldar og end-
umæringar njóti alltaf stöðugra vin-
sælda megi segja að í vaxandi mæli vilji
fólk ferðast í sérstökum tilgangi sem oft-
ast tengist lifsstíl þess eða áhugamálum.
Fólk fer vel lesið og undirbúið á slóðir
víkinga eða söguslóðir í stórborgum
Evrópu, á völlinn með uppáhaldsknatt-
spymuliði sínu, kóraferðimar em alveg
sérstakar og hópferðir í anda bænda-
ferðanna einnig. Gönguferðimar em
ótvirætt lífsstíll sem er aðferð ferða-
langa til að kynnast landi og þjóð gegn-
um sitt áhugamál.
„Okkar styrkur hlýtur að felast í því
að rækta grasrótina. Þegar sérhæfmg
okkar og sérþekking fer saman við vilja
ferðalanganna þá gengur okkur vel,“
segir Jón Karl að lokum. -PÁÁ
Opifl hús á Hagstofunni
Hagstofa íslands er flutt í nýtt húsnæði að Borgartúni 21a í
Reykjavík og hefur þar sameinað hagskýrslustarfsemi sína
sem áður var á þremur stöðum í bænum.
Af þessu tilefni hefur Hagstofan opið hús laugardaginn 8.
febrúar, kl. 13-15, og býður almenningi að koma og skoða
húsnæðið, nýjan vef Hagstofunnar og kynna sér starfsemi
hennar.
BJi -
Haýstofíi ískuuis
Bókaðu strax oy tryggðu pér fyrstu
300 sætin á ótrúlegu tilboðsverði
Italía
sumarið 2003
frá kr. 24*962
Við opnum þér leiðina til italíu á ótrúlegu verði í sumar ^
Heimsferðir stórlækka verðið á ferðum til Ítalíu í sumar með beinu flugi
sinu til Verona og Bologna og opna þér dyr að þessu mest heillandi landi
Evrópu þar sem þú kynnist mörgu hinu fegursta i menningu, listum,
matargerð, byggingarlist og náttúrufegurð sem heimurinn hefur að bjóða.
Verona er í hjarta Ítalíu. Héðan em stutt að ferðast í allar áttir og
Veronaborg ein fegursta miðaldaborg heimsins.
Rimini er ein fegursta ströndin við Adria-hafið og vinsælasti sumar-
leyfisstaður Ítalíu. Glæsileg ströndin teygir sig kílómetrum saman eftir
fallegri strandlengjunni og hér bjóða Heimsferðir glæsilegt úrval
gististaða.
Verona
Ein fegursta borg Ítalíu og
rómantískasta borg heimsins
Verðkr. 24.962
Flugsæti m.v. hjón með 2 böm, 2-11
ára, sjá verðskrá.
Rimini
Heimsferðir stórlækka verðið.
Vinsælasti strandstaður italiu.
Hér bjóða Heimsferðir frábæra
gistivalkosti og spennandi
kynnisferðir með fararstjórum
Heimsterða
Aldrei meiri afsláttur
8.000 h
afsláttur af ferðum í eftirtaldar brottfarir:
21. maí - 18. og 25. júní
2., 9. og 23. júlí
27. ágúst - 3. sept.
Gildir af fyrstu 300 sætunum
ef bókað er fyrir 15. mars.
Garda
Náttúrufegurð sem á ekki sinn lika.
Hér bjóða Heimslerðir afbragðshótel
í einum fegursta bænum við vatnið.
Verð kr.
49.950
Verð kr.
39.962
M.v. hjón með 2 böm, 21. maí,
Residence Nautic, vikuferð, með
8.000 kr. afslætti.
Flug og gisting m.v. 2 í herbergi,
Hotel Rosetta, 5 nætur.
Mundu Mastercard
-ávísunina
Verð kr.
49.950
M.v. 2 í stúdíóíbúð, Nautic, vika,
18. júní, með 8.000 kr. afslætti.
Heimsferðir
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
^H^Smáauglýsingar
byssur, ferðaiög, ferðaþjónusta,
fyrir ferðamenn, fyrfr veíðimenn,
gisting, golfvörur, heilsa, hesta-
mennska, Ijósmyndun, líkamsrækt,
safnarinn, sport, vetrarvörur,
útiiegubúnaður... tómstundir
550 5000