Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2003, Síða 47
LAUGARDAGUR S. FEBRÚAR 2003
I fvU)ctrb/acf I>V
51
Porsche Carrera GT
frumsýndur í Genf
- eitt stykki þegar selt hérlendis
Porsche hefur sent frá sér
fyrstu opinberu myndirnar af út-
liti hins nýja ofursportbíls, Car-
rera GT, en margir muna eflaust
eftir þeim bil frá DV-Sportbílasýn-
ingunni árið 2001. Bíllinn verður
frumsýndur á bilasýningunni í
Genf i næsta mánuöi. Óhætt er að
segja að bílinn hafi útlitið með
sér. Stór loftinntök aö framan gefa
tóninn fyrir enn stærri á hliðum
bílsins. Loftinntökin gegna marg-
vísu hlutverki - ekki aðeins að
hleypa lofti inn á vélina heldur
einnig til kælingar á bremsum og
vélbúnaði. Aftan á bílnum er svo
tvöfalt pústkerfi úr 5,7 lítra VIO-
vélinni sem, nota bene, er án for-
þjöppu en er samt 612 hestöfl. Tog-
ið er á sama kaliberi, 590 Newton-
metrar, og þvi verða afköstin í
1.380 kílóa bilnum eftirtektarverð.
9,9 sekúndur í 200
Að sögn Porsche fer bíllinn í
hundraðið á 3,9 sekúndum, nær
330 km hraða og það sem mest er
um vert er að hann er aðeins 9,9
sekúndur að ná 200 km hraða.
Með svona tölur í huga var hann-
að sérstakt loftflæðikerfi fyrir bíl-
inn til að halda honum við göt-
una. Vindskeið að aftan hækkar
með meiri hraða og undirvagninn
er hannaður eins og Le Mans-
kappakstursbíll. Margir hlutar
bílsins eru úr koltrefjum og plast-
blöndum, líkt og er í helstu keppn-
isbílum nútímans. Til að stöðva
hann verða öflugustu keramik-
bremsur staðalbúnaður en nú, í
fyrsta skipti í fjöldaframleiddum
bíl, verður boðið upp á kúplings-
disk úr keramik við sex gíra kass-
ann. BíUinn verður settur til höf-
uðs nýliðum eins og Ferrari Enzo
og Mercedes SLR og verðmiðinn
ekki undir 30.000.000 kr. Aðeins
verða framleiddir 1000 bilar á
þremur árum svo að hann á ekki
eftir að slá nein sölumet, en í þess-
um bfl eigum við eftir að sjá þær
tækninýjungar sem prýða munu
Porsche 911 bfla framtíðarinnar
og jafnvel Boxster.
Að sögn Jóns Eyjólfssonar hjá
BOabúð Benna er þegar eitt stykki
selt hérlendis og er von á þeim bíl
hingað í lok ársins. -NG
Afturendinn er nokkuð breyttur
frá bílnurn sem kom hingaö til
lands.
Nýr sjö manna VW fram-
leiddur í nýrri verksmiöju
Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs
bætist Touran í hóp nýrra bifreiða
frá VoDcswagen. Þessi fjölnotabOl
var sýndur almenningi í fyrsta sinn
í Wolfsburg í síðustu viku. BOlinn
er vel búinn, þar á meðal sex ör-
yggispúðum, ESP-stöðugleikabún-
aði, hemlahjálp og útvarpi með
geislaspOara. Framleiðslan í nýjum
verksmiðjum VW í Wolfsburg er há-
þróuð en 3500 nýir starfsmenn hafa
hlotið sérstaka þjálfun og eru þátt-
takendur i framleiðslu, sölu, mark-
aðsmálum, flutningum og gæða-
stjórnun.
Sex þrepa sjálfskipting
Touran kemur á markað með vali
á einni 115 hestafla FSI-vél og tveim-
ur TDI-dísOvélum, 100 og 136 hestöfl.
Tveggja lítra túrbódísOvélin er al-
gerlega ný hönnun, með fjórum
ventlum á hverjum strokki. Það
þykir sérstakt að FSI og TDI-gerð-
irnar eru með sex gíra gírkössum en
síðar munu TDI-gerðirnar einnig
verða fáanlegar með nýjum gírkassa
með svonefndri DSG-beinskiptingu
(Direct Shift Gearbox), sem einnig
er með sex gira áfram. Þessi nýi gír-
kassi sameinar kosti hefðbundinnar
sjálfskiptingar og snöggrar girskipt-
ingar og spameytni venjulegs hand-
skipts gírkassa. FSI-vélina er einnig
hægt að fá með nýrri sex þrepa sjálf-
skiptingu. Fyrir utan blæjugerð
nýju BjöOunnar er Touran eina bif-
reiðin í heiminum sem búin er þver-
stæðri sex þrepa sjálfskiptingu.
Hægt er að bæta við þriðju sætaröð-
inni sem aukabúnaði í Touran. Sæt- -
in tvö í þriðju sætaröðinni eru þægi-
leg fyrir fuOorðna farþega og á auð-
veldan hátt er hægt að feUa sætin
niður í gólflð þegar þau eru ekki í
notkun. Hægt er að haga farmrým-
inu eftir því hve mörg sæti eru í
notkun: í hefðbundinni fimm sæta
uppröðun er pláss fyrir 695 lítra af
farangri, en þessi tala hækkar í 1989
lítra þegar aftursætin eru tekin í
burtu. Hekla kynnir nýjan Touran
hér á landi í vor en verð liggur ekki
fyrir enn sem komið er.
- -fc' 1
Einnig er hægt að panta
SMÁAUGLÝSINGAR Á NETINU
Þær smáauglýsingar sem birtast í DV eru inni á www.smaauglysingar.is í heiia viku
troranCíkVoQs
/“>{ / Sími 550 5000
Smaau
Jeppar
Til sölu Wllly’s, árg. ’46, vél V6 Buick, 44 hásingar,
driflæsingar, 5.38 hlutföll, gormafjöörun. stór tankur,
hækkaöur fyrir 38“ er á 35“, lengdur á mllli hjóla,
þyngd er aöeins 1300 kg. Veröhugmynd 250 þús. Uppl.
I síma 896 6588.