Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2003, Síða 26
26
•V'
- KR-ingar töpuöu meö 27 stigum
á heimavelli gegn Keflavík í gær
Keflvíkingar sýndu allar sínar bestu
hliðar í DHL-höllinni í gærkvöld þegar
þeir hreinlega niðurlægðu hörmulega
slaka KR-inga, 105-78, í Intersportdeild
karla í körfuknattleik.
Fyrri hálfleikur er ein sú rosaleg-
asta rassskelling sem sést hefur hér á
landi þegar það er haft í huga að hér
voru á ferð tvö af þremur bestu liðum
landsins. Heimamenn virtust vera til-
búnir, skoruðu fimm fyrstu stigin en
svo var sagan öll. Gestimir skoruðu þá
þrjátíu og tvö stig gegn sex og þegar
fyrsta leikhluta lauk var eins og hvirf-
ilvindur hefði feykt KR-liðinu um koll.
Hörmungin hjá þeim hélt svo áfram í
öðrum leikhluta og það munaði þrjá-
tíu og tveimur stigum í hálfleik. Eitt-
hvað sem enginn bjóst við. KR-ingar
réðu ekkert við pressuvöm Keflvík-
inga, höfðu engar lausnir í handraðan-
um og liðið tapaði boltanum nitján
sinnum í hálfleiknum. Slikt er dauða-
dómur á móti liði eins og Keflavík.
Siðari hálfleikur var bara formsat-
riði enda búið að ganga frá málunum
í þeim fyrri. Hjá gestunum var Sverr-
Lr Þór Sverrisson frábær í fyrri hálf-
leik og lagöi, ásamt Damon Johnson og
Edmund Saunders, mest á vogarskál-
amar. Sverrir fékk svo verðskuldaða
hviid meginpart seinni hálfleiks en all-
ir leikmenn liðsins börðust eins og
hundar, lögðu líkama og sál að veði og
uppskáru samkvæmt því.
Um KR-liðið þarf ekkert að fjölyrða.
í laginu segir:.við eigum styrk á við
hvaða foss“. Að þessu sinni hefði
styrkur KR-inga ekki einu sinni getað
virkjað litla lækjarsprænu.
Sigurður Ingimundarson, þjálfari
Keflvíkinga, var að vonum ánægður
með frammistöðu sinna manna og
þetta sagði hann þegar DV-Sport kom
að máli við hann í leikslok:
„Menn mættu gríðarlega einbeittir
til leiks, spiluðu frábæra vörn og gerðu
fullkomlega það sem fyrir þá var lagt.
Strákamir voru bara í botni og liðs-
heildin var frábær enda menn ákveðn-
ir í að bæta sig eftir leikinn á móti Val
í vikunni, þar sem leikmenn voru
áhugalausir og vitlausir og héldu að
þetta kæmi af sjálfu sér. Að sjálfsögðu
bjóst enginn við þessum mikla mun
eftir fyrri hálfleikinn, maður býst
aldrei við neinu svona, menn mæta
bara til leiks og reyna að gera sitt
besta og í þessum leik gengu hlutimir
einfaldlega upp hjá okkur. Deildar-
meistaratitillinn er ekki í okkar hönd-
um; Grindvíkingar þurfa að misstíga
sig og markmiðið er nú fyrst og fremst
að tryggja okkur annað sætið. Við ætl-
um að halda okkar striki og sjá hvað
gerist," sagði sigurreifur Sigurður.
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari KR-
inga, var daufur i dálkinn sem vonlegt
var, og hann hafði þetta að segja í sam-
tali við DV-Sport að leik loknum: „Ég
og leikmenn mínir eigum að skamm-
ast okkar fyrir fyrri hálfleikinn, það er
varla hægt að segja mikið meira um
hann. Ef menn eru ekki með í fyrri
hálfleik á móti toppliði eins og Kefla-
vík fer illa, eins og gerðist hér í kvöld
hjá okkur. Það var sama hvað var
reynt, ekkert gekk og við vorum ein-
faldlega skíthræddir og það er ekki
hægt að segja annað en að frammi-
staða liðsins hér í kvöld hafi verið
gjörsamlega ófyrirgefanleg. Það ér
hrikalegt að liðið fari svona inn í skel-
ina eftir frábæran leik á móti Grind-
víkingum. Nú er það okkar að tína
brotin saman og sýna að það sé sterk-
ur karakter í þessu liði og klára þessa
þrjá leiki sem eftir eru með sóma,“
sagði Ingi Þór Steinþórsson eftir leik-
inn. -SMS
Staðan
18 15 3 1657-1493
19 14 5 1898-1594
19 14 5 1694-1561
19 13 6 1707-1612
19 10 9 1706-1689
18 10 8 1467-1492
18 9 9 1548-1587
19 8 11 1519-1517
Grindavík
Keflavík
KR
Haukar
Tindastóll
Njarðvík
Snæfell
Breiöablik 18 7 11 1644-1677 14
Hamar 19 5 14 1723-1896 10
Skallagr. 18 3 15 1459-1651 6
Valur 18 3 15 1415-1668 6
Næstu leikir
í kvöld
Skallagrlmur-Njarðvík ......
Grindavík-Breiðablik .......
iR-Vaiur....................
Fimmtudagur 27. febrúar
Haukar-Skallagrímur ........
Keflavík-ÍR.................
Valur-Snæfell...............
Föstudagur 28. febrúar
Hamar-Tindastóll ...........
Njarðvík-Grindavík..........
Breiðablik-KR...............
ingi Pór Steinþórsson og
lærisveinar hans i KR
réöu engan veginn við
grimma Keflvikinga i
DHL-höllinni i gær.
DV-mynd Siguröur Jökull
FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2003
Damoná
leiðhini Irá
Kefiavík?
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur
stendur frammi fyrir erfiðri
ákvörðun þessa dagana þar sem
Damon Jolmson hefur fengið gott
tilboð frá Grikklandi. Eins og menn
vita fékk Damon íslenskt ríkisfang
um síðustu áramót sem gerir hann
fysilegan fyrir félög í Evrópu.
Gríska félagið, sem leikur í annarri
deild þar í landi, fór strax á stúfana
þegar Damon var kominn með ís-
lenska vegabréfið í hendur og bauð
honum góðan samning.
Gríska liðið bauð Keflavík einnig
væna summu fyrir að leysa Damon
undan samningi en því tilboði hafh-
aði stjóm Keflavíkur enda mikill
metnaður þar á bæ að landa ís-
landsmeistaratitlinum þetta árið.
Gríska félagið ætlar sér greinilega
að landa Damon fyrir lokabarátt-
una um að komast í efstu deild í
Grikklandi og hafa forráðamenn
liðsins sent Keflvíkingum enn betra
tilboð sem erfitt er að segja nei við.
Hrannar Hólm, formaður
körfuknattleiksdeildar Keflavíkur,
vildi lítið tjá sig um málið nema
það að málið væri í skoðun og þetta
myndi skýrast fljótlega. Damon
sagði að það væri spennandi kostur
að fara til Grikklands og að boltinn
væri hjá stjóm körfuknattleiks-
deildar Keflavikur.
Sáttur við tilboðið
„Það er komið tilboð sem ég er
sáttur við persónulega og stjómin
er búin að fá tilboð sem erfitt er að
segja nei við. Málið er bara í skoð-
un eins og er og engin ákvörðun
verið tekin enn þá. Griska liðið á
góðan möguleika á að komast í
efstu deild og því spennandi kostur.
Ef þetta gengur ekki upp núna spila
ég áfram með Keflavík og fer eftir
tímabilið. Það er ekkert lífsspurs-
mál fyrir mig að fara endilega út
núna heldur bara ef þetta kemur
sér vel fyrir alla aðila - þá fer ég.
Þetta er þriðja tilboðið sem kemur
frá gríska félaginu þannig að þeir
leggja mikla áherslu á að fá mig út
núna," sagði Damon við DV-Sport.
Griska deildin er ein af sterkustu
deildum í heimi og því gott tæki-
færi fyrir Damon að komast þangað
ef gríska liðið nær að komast upp í
efstu deild. Teitur Örlygsson lék
eitt tímabil í Grikklandi og því yrði
Damon annar íslendingurinn sem
þar léki ef af verður. -Ben
KR-Keflavík 78-105
5-0, 5-10, 7-10 (4 mín), 7-23 (8 mín), 0-30,
(11-32), 11-36, 15-36, 15-42, 20-47, (20-52),
26-52, 26-54, 33-54, 33-59, 39-61, 39-66, 41-69,
(45-71), 47-71, 53-80, 53-86, 57-86, 68-96,
75-99, 78-105.
Stig KR: Darrell Flake 22, Baldur Ólafsson
12, Herbert Arnarson 10, Magni
Hafsteinsson 9, Skarphéöinn Ingason 9,
Jóhannes Árnason 6, Jóel Sæmundsson 5,
Amar Kárason 3, Magnús Helgason 2.
Stig Keflavíkur: Damon Johnson 24,
Edmond Saunders 21, Guöjón Skúlason 20
(hitti úr 6 af 8 3ja stiga skotum), Sverrir Þór
Sverrisson 12 (og 4 stoösendingar á aöeins
16 mínútum), Gunnar Einarsson 11, Falur
Haröarson 8, Amar Jónsson 4, Magnús Þ.
Gunnarsson 3, Jón N. Hafsteinsson 2.
Dómarar (1-10):
Leifur Garöarsson
og Einar Einarsson
(8)
Gϗi leiks
(1-10): 7.
Áhorfendur: 500.
Maöur leiksins:
Sverrir Þór Sverrisson, Keflavík.
Fráköst: KR 35 (10 1 sókn, 25 í vörn,
Flake 14), Keflavík 33 (12 í sókn, 21 í
vörn, Saunders 15).
Stoðsendingar: KR 21 (Herbert 5),
Keflavík 33 (D. Johnson 9).
Stolnir boltar: KR 11 (Magni 3),
Keflavík 23 (Saunders 5).
Tapaöir boltar: KR 28, Keflavík 17.
Varin skot: KR 3 (Baldur 2), Keflavík
5 (Saunders 3).
3ja stiga: KR 23/7 , Keflavík 23/8.
Víti: KR 14/13 , Keflavík 20/13.
Það stefnir í harða baráttu um laus sæti í úrslitakeppninni:
Snæíell á sigurbraut á ný
- loks sigurleikur gegn Hamri í gær eftir 4 töp í röð
Það var frekar fátt fólk sem lagði
leið slna í íþróttamiðstöðina í Stykk-
ishólmi í gærkvöld, þar sem Snæfell
tók á móti Hamri í Intersport-úrvals-
deildinni í körfubolta. Snæfellingar
höfðu að lokum 82-80 sigur og
komust á sigurbraut á ný eftir
fiögur töp í röð í þremur deild-
arleikjum og bikarúrslitum.
Leikurinn byrjaði á varkárum
þreifingum beggja liða, sem áttu sín-
ar skorpur til skiptis, og ekki voru
nú leikmenn að auka sér erfiðið
óþarflega í vöminni en gestimir
leiddu með tveimur stigum eftir
fyrsta hlutann.
Létu "höggin dynja"
í öðrum hluta jókst kappið heldur
og vömin þéttist, einkum hjá Snæ-
felli, sem hafði góða stöðu með 9
stiga forystu þegar um 2 mínútur
vom til miöhlés. Þá brast sálarstyrk-
ur heimamanna en Hamramir sættu
lagi og létu "höggin dynja" á þeim og
fyrri hálfleikinn kórónaði Bárður
Eyþórsson með athugasemdum við
dómarann sem kostuðu tæknivíti og
gestimir fóm til leikhlés með for-
ystu, 43-46.
Seinni hálfleikur var heldur jafn
en þó bættu Hamramir heldur við
forystuna, mest fyrir atbeina Mar-
vins Valdimarssonar sem setti 11
stig í þessum hluta.
Mislagöar flautur
Dómunmum, sem höfðu byrjað
vel, urðu mislagðar flautur í þennan
mund og var það til ógagns fyrir
leikinn. í lokahlutanum hélst jafn-
vægi þar til u.þ.b. 4 mínútur lifðu
leiks, en þá var staðan 72-79. Eftir
það skoraöi besti maður Hamars,
Keith Vassell, eina stig þeirra úr því,
með öðra vítaskoti af tveimur. Þá
jafnaði Clifton Bush leikinn á sama
hátt, 80-80. í næstu sókn Hamars
gerði Clifton svo út um leikinn með
því að stela boltanum og skora síðan
sigurkörfuna þegar um 20 sekúndur
vom eftir. Þann tíma gátu Hamram-
ir ekki nýtt því Snæfell spilaði glimr-
andi vöm og leikurinn var úti. Það
sem stóð upp úr i leiknum var frá-
bær vítanýting Snæfells, sem einnig
vann frákastastríðið ömgglega. Lár-
us Jónsson stýrði leik Hamars ágæta
vel og Hallgrímur Brynjólfsson átti
fínan leik, spilaði góða vöm gegn
Clifton Bush og þeir bræður Svavar
og Hjalti Pálssynir áttu góða spretti.
Clifton og Hlynur Bæringsson, sem
tók heil 20 fráköst, voru bestu menn
Snæfells og Helgi Reynir Guðmunds-
son stóð sig vel, átti skínandi seinni
hálfleik.
Fjórir leika meiddir
Andrés Heiðarsson lék vel og
hefði að ósekju mátt fá að spreyta sig
meira.
„Þetta var erfiður leikur; fiórir
leikmenn era að spila meiddir og
Lýður Vignisson er frá. Mína menn
vantar einbeitingu og grimmd en
þetta var mikilvægur sigur,“ sagði
Bárður Eyþórsson, þjálfari Snæfells,
feginn að taphrina liðsins var
loksins á enda runnin. -HÞ
Snæíell-Haman 82-80
8-4, 8-13, 13-17, 18-17 (22-24) 33-27,
38-29, (43-46) 47^9, 53-55, 56-64 (64-69)
69-75, 72-79, 79-79, 79-80, 80-80, 82-80.
Stig Snœfells: Clifton Bush 26, Hlynur
Bæringsson 21, Helgi Guömundsson 12,
Jón Olafur Jónsson 9, Sigurbjörn
Þórðarson 7, Atli Sigurþórsson 5,
Andrés Heiðarsson 2.
Stig Hamars: Keith Vassell 23, Marvin
Valdimarsson 15, Lárus Jónsson 13,
Hjalti Pálsson 9, Svavar Pálsson 8,
Pétur Ingvarsson 6, Hallgrímur
Brynjólfsson 6.
Dómarar (1-10):
Björgvin
Rúnarsson og
Georg Andersen (5)
Gæúi leiks
(1-10): 6.
Áhorfendur: 100.
Maöur
Clifton Bush, Snæfelli.
Fráköst: Snæfell 40 (15 í sókn, 25 í
vörn, Hlynur 20), Hamar 24 (12 í sókn, 12
í vörn, Vassell 9).
Stoósendingar: Snæfell 12 (Helgi 4),
Hamar 15 (Lárus 7).
Stolnir boltar: SnæfeU 8 (Helgi 3),
Hamar 7 (VasseU 2, Pétur 2, Lárus 2).
Tapaóir boltar: Snæfell 14, Hamar 8.
Varin skot: Snæfell 0, Hamar 4
(Vassell 3).
3ja stiga: SnæfeU 20/4 (20%), Hamar
22/4 (18%).
Víti: Snæfell 33/30 (91%), Hamar 32/22
(69%).