Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2003, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2003
I>V
Fréttir
DV-MYND SIGURÐUR JOKULL
Björgunarskipstjórarnir
Sigurdur Kristmundsson og Heiöar Örn
Sverrisson um borö i björgunarbátnum
Oddi V. Gíslasyni í Grindavíkurhöfn i gær-
IL V
Björgunarsveitarmenn í Grindavík hafa komiö mörgum til bjargar síöustu daga:
Ella getur leikurinn tapast
„Þegar rautt útkall berst er eina
hugsunin að koma sér strax af staö,“
segir Sigurður Kristmundsson í
Grindavík. Hann var heima í hádeg-
ismat í gær þegar í gegnum Neyðar-
línuna barst útkall um bát sem væri
í nauðum. Liðsmenn björgunarsveit-
arinnar Þorbjamar voru kvaddir út.
Fimm mínútum eftir útkall lagði
björgunarbáturinn Oddur V. Gísla-
son úr höfn, en Sigurður var skip-
stjóri í þessari ferð.
Draupnir datt af skjánum
Það var um hádegisbil sem línu-
báturinn Draupnir GK fékk á sig
ólag, en hann var þá staddur um ell-
efu mílur SA af Grindvík. í framhald-
inu fór báturinn að hallast og sökkva.
Feðgarnir ísleifur Haraldsson og
Gylfi Amar ísleifsson lentu í sjónum
þegar bátur þeirra fór á hliðina. Áttu
þeir í erfiðleikum með að opna björg-
unarbát, en tókst að lokum.
Draupnir datt út af skjánum hjá
Tilkynningaskyldunni og jafnframt
heyrðist neyðarkall. Fullur viðbúnað-
ur var þá settur í gang; samband haft
við nærliggjandi báta og þyrla Gæsl-
unnar ræst út. Hún fann björgunar-
bátinn eftir skamma leit. Þá var
Mummi GK skammt undan og fóru
skipbrotsmenn með þeim bát til hafn-
ar.
Reiknuðum með hinu versta
„Þegar við lögðum úr höfn vissum
við ekki hver staðan væri,“ sagði Sig-
urður Kristmundsson þegar hann
ræddi við DV í gærkvöld. Hann segir
að í björgunarbátnum hafi upplýs-
inga verið aflað. Hafi menn fljótt
komist að því að mannslíf gætu verið
í húfi. Allt því verið sett í botn og
keyrt á fullum hraða, sem eru fjórtán
sjómílur.
„Eina hugsunin er að hraða sér
sem mest. Ella getur leikurinn tapast.
Þannig reiknuðum við með í þessu
tilviki að mennimir væru í sjónum
eða björgunarbát. Upplýsingar gáfu
okkur tilefni til að reika með hinu
versta," segir Siguröur. Bætir við að
sjóveður hafi verið leiðinlegt, austan-
átt og 3ja metra ölduhæð.
Hann segir miklu skipta að á leið-
inni á vettvang séu menn í góðu sam-
bandi við Tilkynningaskyldu og
Reykjavíkurradíó, sem gefi upplýs-
ingar um stöðuna á hverjum tíma.
„Okkur létti mikið þegar við fréttum
að skipverjar á Draupni væru komn-
ir um borð í annan bát og allt hefði
farið vel.“
Það var laust fyrir klukkan tvö
sem Oddur V. Gíslason kom á vett-
vang, þar sem Draupnir GK maraði í
hálfu kafi. Þá var líka kominn á vett-
vang smærri björgunarbátur Grind-
víkinga, Ámi í Tungu. „Það tekur
stund að koma honum á sjó. En svo
gátum við sett á fuila ferð, þrjátíu
mílur,“ segir skipstjórinn, Heiðar
Örn Sverrisson. Þegar komið var að
Draupni sem maraði í hálfu kafi og á
hvolfi fór einn maður á kjöl og festi í
tóg. Var hún sett í stærri björgunar-
bátinn og byrjað að draga í land.
Hælsvíkin kallar
Sigurður Kristmundsson segir að
siglt hafi verið á um þriggja mílna
hraða.
„Við vorum famir að nálgast land
þegar okkur barst svo annað útkall,
það er frá Hælsvík GK sem var um
tólf sjómílur úti og var farin að síga
út i aðra hliðina. Við skiptum með
okkur verkum; smærri báturinn tók
við að koma Draupni í land en við á
stærri bátnum fórum til móts við
Hælsvík. Það var ljóst að þar væri
engin hætta á ferð og þegar við kom-
um á staðinn hafði skipstjóranum
tekist að rétta bátinn við. Engu að
síður fylgdum við þeim í land og
komum inn undir kvöld," segir Sig-
urður.
Spennufall
Björgimarsveitarmenn í Grinda-
vík hafa haft í nógu að snúast undan-
farið. í síðustu viku komst flutninga-
skipið Trinket í krappan dans í inn-
siglingunni. Þá tókst skipverjum á
Oddi V. Gíslasyni með snarræði að
bjarga skipinu og draga til hafnar.
„Maður gleymir við svona kring-
umstæður að hugsa um
hættu. Það eina sem kemst
að er að reyna að koma til
bjargar," segir Heiðar Örn
sem var skipstjóri þá. „Þeg-
ar maður fer yfir atburða-
rás eftir á kemur spennu-
fallið sem er talsvert."
Björgunarsveitarmenn í
Grindavík að taka saman
búnað sinn eftir atburði
dagsins. Þeir eru ekki óvan-
ir slíku; tíðum kemur til
kasta þeirra að aðstoða sjó-
farendur á þessum tíma
árs. Þannig kom til dæmis í
hittifyrra vikulangt tímabil
þar sem áhöfnin á Oddi V.
Gíslasyni fékk útkall á hverjum degi.
„Þegar við fáum útköll eins og frá
Draupni verður návígið erfitt. Við
þekkjum yfirleitt menn, sem eiga í
hlut. Kannski skynjar maður við slík-
ar aðstæður enn betur mikilvægi
björgunarsveitarstarfs," segir Sigurð-
ur.
Heiðar félagi hans tekur í sama
streng, en flestir í áhöfn björgunar-
skipanna hafa verið sjómenn. „Við
þekkjum á eigin skinni vel öryggistil-
finninguna yfir því að í landi séu öfl-
ugar björgunarsveitir. Þær geta
miklu komið til leiðar, en mikilvæg-
ast er að menn sýni sjálfir varúð.
Sjálfur hefur maður séð stór skip
sem, maður hefur talið að ekkert geti
grandað liðast í sundur á stuttum
tíma þegar þau eru komin upp í
fjöru. Allt hefur þetta kennt manni að
bera virðingu fýrir hafinu og mætti
þess.“ -sbs
MYND VÍKURFRÉTTIR
í Grindavíkurhöfn
Björgunarmenn hífa Draupni GK í iand. Báturinn
var dreginn í land eftir aö hafa fengiö á sig ólag.
Stuttar fréttir
Bannað að banna síma
Póst- og fjarskiptastof'nun hefur
lagt bann við búnaði sem forráða-
menn Smárabíós hugöust nota og
koma átti í veg fyrir að bíógestir
gætu talað í farsíma í sölum bíós-
ins.
Löng bið eftir heyrnartæki
Um 1300 manns bíða þess nú að
fá heyrnartæki afhent. Algengur
biðtími er um eitt ár en 70%
þeirra sem þurfa slíkan búnað eru
eldri en 67 ára.
Jökulsá á Dal stífluð
Jökulsá á Dal er nú stífluð við
Kárahnjúka. Síðdegis í gær var
sprengt í fyrsta sinn í gljúfrinu
fyrir opi hjá rennslisgöngum. Mik-
ið af grjóti féll í farveg Jöklu við
sprenginguna og stíflaði hana. Það
er mat manna að nokkur tími
muni líða þar til áin fer að flæða
yfir stífluna. RÚV greindi frá.
Rúmlega 200 slösuðust
Rúmlega 200 manns slösuðust í
á sjötta hundrað umferðaróhöpp-
um á ellefu gatnamótum í Reykja-
vík á nýliðnu ári - eða á svoköll-
uðum svartblettum að sögn trygg-
ingafélaga.
Til viðskiptavina en ekki
bara forstjóra
Davíð Oddsson
forsætisráðherra
sagði í gær að mik-
ill hagnaður fjár-
málastofnana ætti
að skila sér til við-
skiptavina en ekki
aðeins forstjóra og
hluthafa. Forsætis-
ráðherra segir gott að afkoma fjár-
málafyrirtækja sé góð og hún skili
sér til hluthafa - launagreiðslur
forstjóra Kaupþings séu hins veg-
ar algjörlega út úr kortinu. RÚV
greindi frá. -aþ
Bann við einkadansi:
Mikilvægt
að loka málinu
„Ég styð þessa
tiilögu," segir
Gunnar I. Birgis-
son, oddviti sjálf-
stæðismanna í
bæjarstjóm Kópa-
vogs, um tillögu
sem samþykkt
var einróma í
Gunnar I. bæjarstjóm í
Birgisson fyrradag að
Gunnari fjar-
stöddum. í tillögunni, sem lögð var
fram af meirihlutanum, er kveðið á
um að heildarendurskoðun skuli
fara ffam á lögreglusamþykkt bæj-
arins og meðal annars verði bætt
inn ákvæði sem banni einkadans
samkvæmt því sem nýlegur dómur
Hæstaréttar heimilar að sé gert.
Haft var eftir Gunnari í fjölmiðl-
um fyrir bæjarstjómarfundinn að
bann við einkadansi yrði aldrei
samþykkt. Sem fyrr segir segist
hann hins vegar hlynntur tillögu
meirihlutans og bendir á að aðeins
sé um það að ræða að banna einka-
dans i lokuðu rými.
„í prinsippinu er ég á móti mikl-
um boðum og bönnum. Ég hef líka
sagt að það væri ekki löglegt að
banna dansinn og jafnframt að
betra væri að hafa þetta fyrir opn-
um tjöldum en sem neðanjarðar-
starfsemi. En mín hugsun er að
menn loki málinu," segir Gunnar.
__________________________;ÚTG
Þungui* bensínfótur
Fimmtíu ökumenn hafa verið
teknir fyrir of hraðan akstur í
Kópavogi það sem af er vikunni.
Þetta þykir óvenjulegt á þessum
árstíma. Þá vora 39 teknir fyrir að
spenna ekki beltin í Hafharfirði í
gær. -vig
Alcan og Noröuráli
verði boðln svipuð Hjör
Meirihluti iðnaðamefndar vill að
teknar verði upp viðræður við Alc-
an og Norðurál um endurskoðun á
samningum þeirra við hið opinhera,
ekki síst í skattamálum og varðandi
orkuverð, í ljósi þeirra kjara sem
stendur til að bjóða Alcoa vegna ál-
vers þess á Austurlandi.
Fyrsti minnihluti nefndarinnar
gagnrýnir sömuleiðis að sambæri-
legum fyrirtækjum skuli boðin ólík
kjör og segir það „fullkomlega óeðli-
legt“. Samkvæmt ffumvarpi um ál-
ver í Reyðarfirði mim Alcoa aldrei
greiða hærri tekjuskatt en 18%. Til
samanburðar greiða Alcan og Norð-
urál 33% tekjuskatt.
Samkvæmt upplýsingum DV telur
Alcan að það myndi spara á fjórða
hundrað milljóna króna fengi það
sambærileg kjör og Alcoa. Sfjóm-
völd hafa ekki viljað endurskoða
samning Alcan fyrr en í tengslum
við fyrirhugaða stækkun álversins í
Straumsvík. Hins vegar er verið að
ganga frá nýjum viðauka við samn-
ing við Norðurál þar sem tekju-
skattsprósentan er færð niður í
18%. -ÓTG
Sjá bls. 16 og 17
f ókus
Á MORGUN
Karlmenn og krem
í Fókus á morgun er
9 fjallað um það hvernig
9 það hefur færst í auk-
9 ana að karlmenn beri
■99 krem á sig til að halda
9 húðinni á sér við og
9 rætt við nokkra popp-
ara. Fjallað er um nýja
og endurfædda Muzik 88,5 og rætt
við Skjöld Eyfjörð sem var að stofna
ný módelsamtök. Þá er rætt við
Tómas Lemarquis sem leikur í Nóa
albinóa og við gefum góð ráð til að
fólk geti bjargað sér frá óvenjulegum
aöstæðum á stefnumótum.