Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2003, Side 6
6
FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2003
Fréttir XXST
Akstur í heimahjúkrun:
Starfsfólk lítur á
breytingu sem uppsögn
Stafsfólk sem vinnur við heima-
hjúkrun í Reykjavík og Kópavogi
hefur sent forstjóra Heilsugæsl-
unnar bréf þar sem segir að það
líti á uppsögn á samningi á akst-
urskjörum sínum sem uppsögn á
ráðningarsamningi hjúkrunar-
fræðinga og sjúkraliða í heima-
hjúkrrm og þar með uppsögn úr
starfi frá mánaðamótunum apr-
íl/maí næstkomandi.
Tildrög þessara bréfaskrifta eru
ákvörðun Heilsugæslunnar um
breytingar á akstursfyrirkomulagi
við heimahjúkrun. Starfsfólkið
hefur til þessa verið á eigin bílum
og fengið greitt fast kílómetra-
gjald. Nýja fyrirkomulagið felur í
sér að notaðir verði rekstrarleigu-
bílar í ríkari mæli, en þó verður
samið við einstaka starfsmenn um
áframhaldandi notkun á eigin bíl-
um.
Undir þetta bréf rita 55 starfs-
menn heimahjúkrunarinnar í
Reykjavík. Þá sendu 14 starfs-
menn heimahjúkrunarinnar í
Kópavogi samhljóða bréf til for-
stjóra Heilsugæslunnar. -JSS
Rækjusjómenn í Djúpi:
Úttast stöðvun veiða
Tveggja vikna rannsóknarleið-
angri Hafrannsóknarstofnunar í
Ísaíjarðardjúpi er að ljúka. Marg-
ir rækjuveiðimenn óttast að sama
ástand sé að skapast i ísafjarðar-
djúpi og á Húnaflóa og Öxarflrði
en þar er ekki leyft að veiða
rækju vegna smæðar hennar og
þess að svo mikið er af smáfiski í
meðafla. Bráðabirgðakvótinn er
1.000 tonn samkvæmt ákvörðun
sjávarútvegsráðuneytis og ráðgjöf
Hafrannsóknarstofnunar en var
1.200 tonn á síðustu rækjuvertíð í
ísafjarðardjúpi. -GG
Stjórn Löggildingarstofu:
Vildi endurskoðun á
starfseminni í apríl
Stjórn Löggildingarstofu sendi
iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti
bréf 18. apríl á síðasta ári þar
sém fram kemur að miðað við
óbreyttan rekstur stofnunarinnar
muni rekstrarkostnaður fara 60
milljónir króna fram úr fjárveit-
ingum og sú fjárhæð muni vísast
hækka á árinu 2003 verði ekkert
að gert. Stjórn Löggildingarstofu
taldi þá þegar nauðsynlegt að
ráðast í endurskoðun á starfsemi
stofnunarinnar.
Á fundi með ráðuneytinu í júní
lagði stjórnin svo fram sex
áhersluatriði þar sem fram kem-
ur að stofnunin hafi sinnt verk-
efnum sem hún hafi ekki haft
fjárveitingar til en fjármagnað úr
sjóðum sem hún hafi átt frá fyrri
tíð. Þótti stjórninni ástæða til að
kanna hvort lækka mætti kostn-
að verkefna sem Löggildingar-
stofa sinnti með því að deila
verkefnum hennar á aðrar stofn-
anir ráðuneytisins. Stjórnin lagði
því í reynd til að skoðaö yrði
hvort ekki væri hagkvæmt að
leggja stofnunina niður.
Stjórnin hefur ekki komið sam-
an siðan 23. maí sl., en þá bað
stjórnin um fund með ráðherra.
Stjómin hefur hins vegar fengið
laun allan þann tíma. -GG
Enn eitt ríkisfyrirtækið til sölu en ráðherra vill ekki tilgreina áhugasama kaupendur
Frumvarp í dag um sölu
Sementsverksmiðjunnar
Ríkisstjórnin
hefur ákveðið að
selja Sements-
verksmiðjuna hf.
á Akranesi á ár-
inu. Búið er að fá
samþykki stjórn-
arflokkanna og
kynnti Valgerður
Sverrisdóttir, iðn-
aðar- og viðskipta-
ráðherra, starfs-
mönnum Sementsverksmiðjunnar
þessi áform á fundi í gærkvöldi. Um
60 af 70 starfsmönnum Sementsverk-
smiðjunnar mættu á fundinn. Gerir
Valgerður ráð fyrir að leggja fram
Sementsverksmiöjan hf.
frumvarp um söluna á Alþingi í dag.
Heimild hefur verið á fjárlögum til
að selja 25% hlut í verksmiðjunni,
sem er að öllu leyti í eigu ríkisins.
Ákvörðun ríkisstjórnarinnar nú mið-
ast hins vegar við að selja allan eign-
arhlutirm. Bókfært virði hlutabréfa
Sementsverksmiðjunnar í ríkisreikn-
ingi á siðasta ári var 545 milljónir
króna.
„Menn hafa óttast um framtíð verk-
smiðjunnar sem átt hefur í rekstrar-
erfiðleikum. Við lítum svo á að fram-
tíð verksmiðjunnar sé betur tryggð
með því að selja hana. Ég hef orðið
vör við að það er áhugi fyrir kaupum
á markaðnum. Þess vegna er mikil-
vægt að hafa þessa heimild," segir
Valgerður.
- Er það rétt að þessir áhugasömu
aðilar séu BM-Vallá og Steypustöðin?
„Ég vil ekki svara neinu um það en
verksmiðjan verður auglýst. Ég von-
ast tU að salan gangi hratt fyrir sig
því við megum engan tíma missa.“
- Hvaða verð eru menn að tala um,
545 milljónir eða eitthvað annað?
„Það er ekkert hægt að tala um
verð á þessu stigi. Við auglýsum eftir
áhugasömum aðUum og tökum upp
viðræður við þá sem okkur lýst best
á.“ sagði Valgerður Sverrisdóttir.
Hún telur marga sóknarmöguleika
fyrir hendi. Reynt hefur verið að
bjarga rekstrinum með ýmsum hætti
á undanfömum misserum með að-
gerðum sem valdið hafa harðvítugum
deUum sem komið hafa m.a. tíl kasta
Samkeppnisstofnunar og ESA. -HKr.
Valgerður
Sverrisdóttir
Viðaukasamningur Vegagerðarinnar og Samskipa um siglingar Herjólfs:
DV-MYND E.ÓL
I vor kom ég sunnan meö sólskin í...
Já, þaö er kominn einhver vorhugur í landann. Veöriö síöustu dagana hefur
blásiö birtu og bjartsýni í sálina eftir hret og umhleyþinga. Konurnar á kaffi-
húsinu hafa marga árstíöina uþþlifað um ævina. Ekki ber á ööru en aö i aug-
um þeirrar sem út um gluggann lítur sé vottur af vorglamþa.
Veðjaði á Ingibjörgu Sólrúnu:
Tapaði veðmáli og býður
fimm til Benidorm í sumar
Sigurður Hermannsson húsa-
smíðameistari er maður sem stendur
við orð sín. Og hann hefur trú á að
aðrú geri slíkt hið sama. En kannski
varð honum hált á að trúa því á síð-
asta vori að Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir stæði við sín heit að vera borg-
arstjóri Reykvíkinga út kíörtimabU-
ið. Þessi trú hans á loforð stjóm-
málamanna kostar hann háifa mUlj-
ón króna.
„Ég býð ykkur öUum tU Spánar ef
Ingibjörg stendur ekki við þetta,“
sagði hann þegar þetta var rætt við
son og tengdadóttur, þau Sigurð Öm
og Karen Elisabetu. Hálfu ári síðar
var ljóst að Sigurður hafði tapað veð-
málinu. En hann stendur vic sitt
með bros á vör. Hann er búinn að
panta 6 farseðla tU Benidorm í viku í
sumar og sagði sínu fólki að mæta
bara með tannburstann sinn og gerir
grín að öUu saman.
„Þetta kostar mig hálfa miUjón,“
segir Sigurður og hlær dátt. „Ég
hafði svo mikla trú á þessari bless-
aðri manneskju en mitt fólk er svo
blátt að það trúði henni alls ekkert
og sagði aö hún yrði stutt borgar-
stjóri og færi rakleiðis í landspólitík-
Ingibjörg Sólrún
íhugar framboð
DV 18. desember
ina. Ég var nýbúinn að heyra í henni
í sjónvarpinu að ef hún fengi traust
kjósenda yrði hún borgarstjóri. Svo
ég sagði sem svo að ég byði þeim öU-
um tU Benidorm ef Ingibjörg stæði
ekki við sitt,“ segir Sigurður Her-
mannsson. Hann segir að farið verði
utan í ágúst og hlakkar mikið tU að
ferðast og vera með sínu fólki á sól-
arströndum Spánar. -JBP
Greiddar 800 þúsund krónur
fyrir 30% aukningu ferða
Vegagerðin og Landflutningar-
Samskip hafa undirritað samning
um áframhaldandi rekstur Vest-
mannaeyjaferjunnar Herjólfs tU árs-
loka 2005. Samningurinn felur í sér
fjölgun ferða um 75 á ári frá því sem
nú er. Samtals hefur þá ferðum
Herjólfs fjölgað um aUt að 130 á ári
frá því að Samskip tóku við rekstri
feijunnar í ársbyrjun 2001 eftir að
tveir aðUar höfðu boðiö í rekstur-
inn, Samskip og Herjólfur hf. í upp-
hafi samningstímabils voru famar
436 ferðir á ári, en þær eru nú 570,
eða 30% aukning. Herjólfur er 10
ára gamalt skip, 3354 brúttótonn að
stærð. Skipið gengur 17 sjómUur og
er því 2 klst. og 45 mín. á miUi Vest-
mannaeyja og Þorlákshafnar. Skipið
tekur að hámarki 500 farþega.
Upphaflegi samningurinn hljóð-
aði upp á 192 miUjónir króna, en tU-
Herjólfur
boð Heijólfs upp á 325 miUjónir
króna, eða 70% hærra. Samgöngu-
ráðherra sagði á þeim tíma að Vest-
mannaeyingar mundu njóta þess
hagræðis með einhverjum hætti að
Vegagerðin hefði náð svo hagstæð-
um samningum, m.a. í fjölgun ferða.
Það gerist fyrst í ársbyrjun 2002 er
ferðum er fjölgað um 55 á ári, sem
er veruleg aukning miðað við upp-
haflegan verksamning. Boðið var í
ákveðin einingarverð fyrir auka-
ferðir. Síðan er haustið 2002 bætt
við 75 ferðum tU viðbótar, eða aUs
um 130 á ári. Sá viðaukasamningur
hljóðar upp á 800 þúsund krónur.
Helgi HaUgrímsson vegamálastjóri
segir að slíkur samningur hefði orð-
ið þótt Heijólfur hf. hefði átt í hlut.
Margir tugir miUjóna króna hafi
sparast miðað við ef tUboði Heijólfs
hf. hefði verið tekið. Sá spamaður
muni aukast á næstu árum.
„Þrátt fyrir auknar ferðir fjölgar
farþegum ekkert, en dreifast á fleiri
ferðir svo tekjur okkar af flutning-
unum aukast óverulega. Það er
hluti af samfélagsþjónustunni að
halda úti Vestmannaeyjafeijunni og
ríkið leggi framlag í reksturinn.
Hlutfallslegt framlag Vegagerðar-
innar tU þessara aukaferða verður
því miklu hærra en ella, því engar
tekjur mæta þessum aukna kostn-
aði. Það er því verið að bera saman
epli og appelsínur þegar borin eru
saman verðin sem Herjólfur hf.
bauð og hins vegar verðin sem
samið var um fyrir þessar aukaferð-
ir. í um 200 daga á ári er skipið að
sigla stanslaust mUU iands og Eyja,
frá því klukkan 8 á morgnana tU 11
á kvöldin, eða 55% ársins. Svo bæt-
ast við laugardagamir svo með
þeim er hlutfaUið komið upp í 69%.
Viðhald og þrif fara því fram í næt-
urvinnu sem eykur kostnaðinn,“
segir Pálmar Óli Magnússon, fram-
kvæmdastjóri rekstrarsviðs Sam-
skipa.
Pálmar bendir á að ef samið hefði
verið á gnmdveUi upphaflegra tU-
boða Herjólfs hf. í reksturinn hefði
upphæðin verið 20 tU 25 miUjónum
króna hærri. -GG