Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2003, Side 7
FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2003
DV
7
Fréttir
Auknar líkur
á stækkun
Norðuráls
Likur á því að hafist verði handa
við framkvæmdir vegna stækkunar
Norðuráls á þessu ári hafa aukist en
Landsvirkjun tilkynnti á þriðjudag
að frumathuganir fyrirtækisins
bentu til jákvæðrar arðsemi Norð-
lingaölduveitu. Á grundvelli þessa
mun Landsvirkjun nú fara í fram-
haldsviðræður við Norðurál um
orkuöflun vegna stækkunar álvers-
ins á Grundartanga og halda áfram
viðræðum við Orkuveitu Reykjavík-
ur og Hitaveitu Suðumesja, en ætl-
unin er að orkuöflun vegna stækk-
unar álvers Norðuráls verði sam-
starfsverkefni orkufyrirtækjanna
þriggja. Þetta kom fram í Morgun-
komi íslandsbanka í gær.
Þar segir að nokkur óvissa sé enn
um framkvæmdina en að sögn for-
svarsmanna Noröuráls verður hægt
að taka endanlega ákvörðun um
stækkunina eftir flóra til sex mán-
uði. í ljósi þeirra miklu stóriðju-
framkvæmda sem fyrirhugaðar era
á árunum 2005 og 2006 í tengslum
við álver Alcoa í Reyðarfirði er lögð
áhersla á að flýta framkvæmdum
við stækkun Norðuráls. Ef allt geng-
ur eftir gæti stækkunin verið komin
í gagnið á haustmánuðum 2005 eða í
upphafi árs 2006. Reikna má með að
kostnaðurinn við stækkunina og
tengdar virkjanir verði um 50 miUj-
arðar króna og er innlendur hluti
þess um 40%, eða 20 milljarðar. Án
mótvægisaðgerða í peningamálum og
opinberum fjármálum munu fram-
kvæmdimar merkja aukna innlenda
eftirspum á framkvæmdatíma og
kalla m.a. á hærri vexti enn ella. -VB
Veturinn veldur vonbrigðum hjá skíðakaupmönnum:
Man ekki eftir öðru eins
- segir Viðar Garðarsson hjá Skíðaþjónustunni á Akureyri
„Þetta var dauft framan af í
fyrra en lagaðist í janúarlok og
hélst síðan gott. Veturinn þar á
undan var snjór alveg frá nóvem-
ber og rífandi að gera. En nú hef-
ur maður varla orðið var við fólk
fyrir utan tvær helgar. Ég man
ekki eftir öðru eins,“ sagði Viðar
Garðarsson hjá Skíðaþjónustunni
á Akureyri í samtali við DV.
Mildur og snjólaus vetur veldur
því að lítið hefur verið að gera í
verslimum sem selja skíði og ann-
an búnað til snjóíþrótta. DV spjall-
aði við starfsmenn nokkurra
verslana og tóku þeir allir í svip-
aðan streng. Veturinn hefur verið
heldur dauflegur en nú er snjólít-
ið þriðja veturinn í röð hér sunn-
anlands. Útsölur undanfarið hafa
þó lífgað aðeins upp á viðskiptin.
Eina helgina um daginn fór
saman skíðafæri og upphaf útsölu
í Intersport. Þá helgi var vitlaust
að gera og seldist um helmingur-
inn af allri skíðavöru sem selst
hefur í vetur.
En þrátt fyrir lítinn snjó og
heldur dræm viðskipti er lager-
staðan ekki eins slæm og ætla
mætti. Menn hafa haft vaðið fyrir
neðan sig og keypt minna inn,
reynslunni ríkari. Við bætist að
skíðaframleiðendur gera breyting-
ar á skíðabúnaði á tveggja ára
fresti og veturinn í ár er í engu
frábrugðinn síðasta vetri. Þess
vegna hefur ekki þurft að kaupa
inn breytinganna vegna. En byrji
að snjóa að ráði gera menn ráð
fyrir mikilli eftirspum og að sú
staða komi jafnvel upp að ekki
verði hægt anna eftirspurninni.
Veðurkortin gefa þó ekkert slíkt
til kynna - ekki enn þá.
En þótt snjóleysið hafi verið að
stríða skíðakaupmönnum hafa
þeir þó aðeins séð til sólar. Hjá
Útilífi var DV tjáð að nóg hefði
verið að gera í skíðaviðgerðum.
Bæði hefur fólk haft næði til að
lappa upp á græjumar og þá hafa
þeir sem farið hafa á skíði lent í
að skemma þau vegna snjóleysis.
Viðar í Skíðaþjónustunni hefur
huggað sig við frostið. „Ég hef
aldrei selt eins mikið af skautmn
og í vetur. Það eru allar tjamir ísi
lagðar og margir á skautum. Á
Ólafsfirði hefur fólk t.d. getað séð
silungana í gegnum ísinn. Það
hlýtur að vera stórkostlegt." -hlh
Rólegur vetur
Viöar Garðarsson man ekki eftir öörum eins vetri en snjóleysi hefur ekki ver-
iö til aö lífga upp á viöskiptin. Hann er hér meö dóttur sinni. Viöar getur þó
huggað sig viö góöa skautasölu.
The Bachelor
■
Spennan magnast í The Bachelor
eftir því sem stúlkunum fækkar.
Verður það Gwen, Helene eða
Brooke sem tekur pokann sinn í kvöld?
Fylgstu með kraumandi kynþokka
og geislandi gáfum í kvöld kl. 22.00.
SKJÁR EINN
alltaf ókeypis