Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2003, Page 9
FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2003
DV
Fréttir
9
DV-MYND HKR
Línaverksmiöja rís í Þorlákshöfn
Feyging ehf. er nú að byggja
verksmiðju til línvinnslu í
Þorlákshöfn. Gert er ráð fyrir að
verksmiðjan hefji starfsemi í apríl.
send utan til skoðunar og þykja gæð-
in á líninu sem úr íslenska hömum
fæst jafnvel meiri en tíðkast erlendis.
Áformað er að rækta á þessu ári á um
450 hekturum og vonast er til að heild-
amppskeran verði um 3000 tonn af
hráefni. Verður íslenska línið selt til
vefnaðarframleiðslu. Haldinn var
fundur um framtíð og stöðu linræktar
á íslandi hjá RALA 9. janúar sl., að
viðstöddum . landbúnaðarráðherra,
formanni landbúnaðamefndar Alþing-
is og fjölda áhugamanna um línrækt á
íslandi. Kynntu Áslaug Helgadóttir og
Jón Guðmundsson grunnrannsóknir
sem tengjast línrækt. Þórður Hihnars-
son, framkvæmdastjóri Feygingar
ehf., og Kristján Eysteinsson verkefn-
isstjóri greindu þar frá uppbyggingu
feygingarstöðvar í Þorlákshöfn sem
nú er verið að reisa.
DVMYND GVA
Á byggakrlnum
Ólafur Eggertsson, kornbóndi á
Þorvatdseyri undir Eyjafjöllum,
hyggurgott til glóðarinnar ef
ensímframleiðsla til lyfjagerðar
veröur að veruleika með ræktun á
erföabreyttu korni.
úr þessu fást væri sem hægast hægt
að flytja með litlum sendiferðabílum
áfram til Reykjavíkur.
Ástæðan fyrir því að menn velja
bygg til slíkrar prótínframleiðslu er
sú að byggið vex ekki villt hér í nátt-
úrunni. Því þarf ekki að óttast að
menn missi tök á prótínframleiðsl-
unni og erfðabreytt korn þenji sig yfir
móa og mela. Af þessum ástæðum
hentar ísland sérlega vel til þessarar
framleiðslu þar sem erlendis þekkist
víða að bygg geti vaxið villt.
Ólafúr telur íslenska kombændur
vel í stakk búna til að fara út í slíka
framleiðslu í stórum stíl. Þekkingin er
til staðar og vélar þó eflaust þurfi að
bæta við tækjakosti. Annar þáttur
sem gerir þetta hagstætt hér á landi er
að hér er nægt ónotað landrými fyrir
hendi, ekki síst á Suðurlandi. Þegar
hektarinn af slíku landi í Danmörku
kostar kannski eina milljón króna þá
er verðið hér á sliku landið lítið sem
ekkert.
Linrækt í stórum stíl
Einn angi nýsköpunar hjá kom-
ræktarbændum er ræktim á hör. Inni
í hörstönglinum er linþráðurinn sem
sóst er eftir. Vinnslan felur það í sér
að losa hýðishulstrið og bindiefnið af
líntrefjunum sem síðan em notaðar á
ýmsan hátt, aðallega til vefhaðar í
fataiðnaði. Á sl. ári var lín ræktað á 90
hekturum á Suðurlandi og Snæfells-
nesi og var meðaluppskera um 7-8
tonn á hektara, heyþurrt. Vom sýni
Feygingarverksmiöja
í Þorlákshöfn
Rannsóknastofnun landbúnaðarins
og Iðntæknistofnun hafa um 8 ára
skeið unnið að rannsóknum vegna
mögulegrar framleiðslu á líni hérlend-
is. Hefúr þess nú verið farið á leit við
bændur að þeir rækti hör í sumar á
um 300-400 hekturum. Verið er að
reisa verksmiðju í Þorlákshöfn til að
vinna línþráðinn úr hörplöntunni.
Mun það jafnframt vera fyrsta „feyg-
ingar“-verksmiðjan sem reist hefur
verið á íslandi og er í eigu Feygingar
ehf. Stærsti hluthafinn er Orkuveita
Reykjavíkur en meðal annarra eig-
enda era sveitarfélagið Ölfus og Eign-
arhaldsfélag Suðurlands. Að sögn
Kristjáns Eysteinssonar er ráðgert að
verksmiðjan komist í gagnið í byijun
apríl. Er þar byggt á nýtingu jarð-
varma og notkun á heitu vatni við líf-
rænt niðurbrot á bindiefnum sem um-
lykja línþræðina í hömum. Þetta ferli
er kallað feyging. Gefúr þessi aðferö
hreinni línþræði en þekkist við hefð-
bundna verkun með rotnun á ökrum
erlendis. Notkun heits vatns í þessum
tilgangi hefur þó verið vel þekkt að-
ferð um aldir. Reyndar er verksmiðj-
an sjálf reist úr mjög sérstöku bygg-
ingarefni sem er einingar úr íslenskri
treQasteypu sem framleiddar era á
Akranesi.
Fundið fé
Að sögn Ólafs Eggertssonar er búið
að gera tilraunir með hörræktun m.a.
á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum, þar
sem vindálag er að jafnaði mikið.
Ræktunin þar hefúr tekist vel og er
jafnvel talið að línþráðurinn í hömum
verði sterkari í jurtum sem verða að
berjast í miklu vindálagi. Ólafúr segir
vandalaust að rækta þetta hérlendis
og hörrækt falli veí að öðrum land-
búnaði.
„Þetta er fundið fé ef bændur geta
nýtt jarðir sínar með þessum hætti og
aukið þar með tekjur sínar. Töluvert
fjármagn hefur verið sett í þróunar-
vinnu varðandi línframleiðsluna og
vænta menn mikils af ræktun á hör í
stórum stíl samhhða kornrækt.
Farðu úr bænum á góðum bíl frá Avis - Helgarbíllinn þinn
5914000
Hringdu í Avis sími
Knarrarvogur 2 - 104 Reykjavík - www.avis.is
V/SA
AV/S
Við gerum betur
fundir um pólitísk aðalatriði
Næstkomandi fimmtudag, 27. febrúar, hefja Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir og Össur Skarphéðinsson sameiginlega
fundaferð sína um landið undir yfirskriftinni „Vorið
framundan - fundir um pólitísk aðalatriði“.
Ferðin hefst á Vestfjörðum
Fimmtudagur 27. febrúar
ísafjörður: Stjórnsýsluhúsið kl. 20:00.
Ávörp: Össur Skarphéðinsson og Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir.
Föstudagur 28. febrúar
Súðavík, Hnífsdalur og Þingeyri: Vinnustaðafúndir.
Bolungarvík: Salur verkalýðsfélagsins kl. 20:00.
Ávörp: Össur Skarphéðinsson og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir.
Vestfirðingar eru hvattir til að fjötmenna og taka
þátt í athyglisverðum umræðum um vorið
framundan í íslenskum stjórnmálum.
I Samfylkingin