Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2003, Side 11
11
FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2003_________________________________________________________________________________________
DV Útlönd
Frelsun Iraks myndi stuðla að friði
og stöðugleika í Mið-Austurlöndum
- sagöi George W. Bush Bandaríkjaforseti í sjónvarpsávarpi í gær
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti geröi í gær grein fyrir framtið-
arsýn sinni til „íraks eftir Saddam"
og sagði m.a. að það yrði mikilvægt
og hvetjandi skref fyrir Mið-Austur-
lönd að frelsa írak úr höndum Sadd-
ams.
„Það myndi skapa möguleika á
friði í Mið-Austurlöndum og veikja
mátt öfgafullra andstæðinga ísraels-
ríkis við að skapa sundrungu á
svæðinu. Þannig opnum við leiðina
til friðar og stöðugleika sem er lyk-
illinn að stofnun „alvöru lýðræðis-
rikis“ Palestínumanna," sagði Bush
í sjónvarpsávarpi í gær.
„Hvers konar framtíð sem íraska
þjóðin velur sér hlýtur að verða
betri en sú sem hún lifir við í
martröðinni undir stjóm Saddams,“
sagði Bush og lagði alla áherslu á að
Bandaríkjamenn myndu tryggja
lýðræðið á svæðinu í kjölfar fyrir-
hugaðra hernaðaraðgerða.
„Eftir hvers konar hemaðarað-
gerðir, sem miða að því að frelsa
írak úr greipum Saddams, munum
við tryggja það að einn einræðis-
herrann taki ekki við af öðrum. Það
verður í höndum þjóðarinnar að
ákveða framtíð sina og það munum
við tryggja.
Enduruppbygging íraks mun
krefjast öflugs stuðnings fleiri þjóða
en Bandaríkjanna og við munum
ekki dvelja þar deginum lengur en
þörf krefur," sagði Bush og bætti
við að það yrði alls ekki létt verk að
koma á stöðugleika og byggja upp
einingu meðal írösku þjóðarinnar.
„En það er fyrir öllu að afvopna
íraka strax og koma Saddam frá
völdum. í dag eru írakar stöðug og
aukin ógn við öryggi Bandaríkj-
Bush Bandaríkjaforseti
„Frelsun íraks myndi skapa mögu-
leika á friöi í Miö-Austurlöndum og
veikja mátt öfgafullra andstæöinga
Ísraelsríkis viö að skapa sundrungu
á svæðinu, “ segir Bush.
anna. Tengsl þeirra við hryðju-
verkahópa eru augljós og stóraukin
hætta á að þeir komi efna- eða
sýklavopnum og jafnvel kjarna-
vopnum í hendumar á þeim,“ sagði
Bush.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, mátti í gær þola aukna
andstöðu eigin flokksmanna þegar
allt að 120 þeirra greiddu breyting-
artUlögu gegn stefnu hans í Iraks-
málinu atkvæði sitt en í umræddri
breytingartillögu sagði að rökin fyr-
ir hemaði gegn írökum væru ófull-
nægjandi.
Tillaga um stuðning við stefnu
Blairs var þó samþykkt með mikl-
um meirihluta í neðri deild þings-
ins í gær og hlaut hún stuðning 434
þingmanna á meðan 124 vom á móti
og þar af voru 59 úr röðum Verka-
mannaflokksins.
REUTERS-MYND
Bjartsýnn á Kýpurlausn
Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ,
er bjartsýnn á aö hægt verði aö ná
samkomulagi um sameiningu Kýpur.
Annan vill sættir á
Kýpur innan viku
Koft Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, lagði nýja
friðaráætlun fyrir grísku og tyrk-
nesku þjóðarbrotin á Kýpur í
gær, í lokatilraun sinni til að
sameina eyjuna, eftir nærri þrjá-
tíu ára sundrungu. Annan vili fá
svar innan einnar viku.
Annan var bjartsýnn viö kom-
una til Kýpur í gær, þótt líkur á
samkomulagi hafi minnkað.
REUTERS-MYND
Baráttubóndinn í steininn
Franski baráttubóndinn og hnattvæöingarfjandinn José Bové tilkynnti fjölmiölamönnum á árlegri landbúnaöarsýningu í
París í gær aö hann heföi veriö dæmdur til tíu mánaöa fangelsisvistar og fjögurra mánaöa skilorðsbundinnar refsing-
ar fyrir aö eyöileggja uppskeru af erföabreyttu korni fyrir nokkrum árum. Bové hefur óskaö eftir náöun.
Norður-Kóreumenn gangsetja umdeildan kjarnaofn:
Boginn spenntur enn hærra í
kjarnorkudeiluiHii viO BNA
Norður-Kóreumenn hafa spennt
bogann enn hærra í deUu sinni
við Bandaríkin með því að gang-
setja umdeildan lítinn kjarnaofn í
Yongbyon-kjarnorkuverinu.
„Ég tel þetta vera enn eitt dæmi
um hvemig stjómvöld í Norður-
Kóreu grípa tU aðgerða tU að
magna deUuna tU að fá tilslakanir
síðar," sagði Sean McCormack,
talsmaður þjóðaröryggisráðs
Hvíta hússins. „Við vUjum komast
að friðsamlegri lausn en engar
leiðir eru útUokaðar.“
Bandariskir embættismenn
sögðu engin merki um að Norður-
Kóreumenn hefðu endurræst
kj arnorkueldsneytisendurvinnslu
sína. Slíkt myndi valda enn meiri
áhyggjum þar sem með því hefðu
REUTERSMYND
Við öllu búnir
Bandarískir hermenn í Suöur-Kóreu
eru viö öllu búnir í kjarnorkudeilunni
viö Noröur-Kóreu. Hér er veriö aö
æfa varnir viö efnavopnum og
geislavirkum vopnum.
ráðamenn í Pyongyang færst
skrefi nær því að bæta við kjam-
orkuvopnabúr sitt þar sem talið er
að tvær sprengjur séu fyrir.
Annar bandarískur embættis-
maður sagði að með þessu væm
Norður-Kóreumenn að sýna um-
heiminum að þeir vildu halda
kjamorkuáætlun sinni tU streitu.
Á sama tíma væru þeir að beita
Bandaríkjamenn þrýstingi.
Stjórnmálaskýrendur í Seoul,
höfuðborg Suður-Kóreu, litu á
gjörðir norðanmanna sem enn
eina tilraun þeirra til að skjóta
nýjum forseta sunnanmanna, Roh
Moo-hyung, skelk í bringu.
Ágreiningur er með Roh og stjórn-
völdum í Washington um hvemig
leysa megi deUuna.
Gullkúnst á 10 ára afmæli
9 ^O/n afsláttur
Gullsmiðja Helgu
Laugavegi 45 • sími 561 6660
B0NUSVIDE0
ÞARFASTI
ÞJÓNNINN!