Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2003, Qupperneq 13
FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2003
ÐV
Innkaup
13
' |
DV-MYNDIR HARI
Blómarós á brúökaupssýningu
Jóhanna Margrét Hilmarsdóttir, deildarstjóri í blómasöiudeildar, segir að
þetta sé þriðja áriö í röð sem Garðheimar standi fyrir sýningu af þessu tagi.
„Sýningin í ár er sú allra glæsilegasta til þessa. “
með rósasýningu þar
sem áhugamenn geta skoðað milli
þrjátíu og fjörutíu mismunandi af-
brigði af íslenskum rósum og
fjöldann allan af glænýjum erlend-
um tegundum sem verða til sölu
eftir ár. „Við fáum rósirnar frá
framleiðendum í Hollandi sem eru
að byrja að rækta þær.“ -Kip
stjóri í blómasöludeild-
ar, segir að þetta sé
þriðja árið í röð sem
Garðheimar standa fyr-
ir sýningu af þessu
tagi. „Sýningin í ár er
sú allra glæsilegasta til
þessa og fleiri fyrir-
tæki en áður sem taka
þátt. Brúðarsýningin
hefst formlega klukkan
eitt á laugardaginn og
stendur til klukkan
sex. Hápunkturinn er
tískusýning þar sem
fólk getur séð nýja og
spennandi hönnun á
brúðarkjólum. Að sögn
Jóhönnu verður tísku-
sýningin endurtekin á
sunnudag.
„Versiunin verður
hreinlega lögð undir
brúðkaupsstemningu
og mjög tignarlegt að
sjá þegar módelin
koma gangandi niður
stiga við undirspil
brúðarmarsins."
Jóhanna segir að
innan skamms ætli
Garðheimar að vera
Bruðarvondur
Meðal þess sem hægt er að skoða á sýningunni
eru mismunandi útfærslur af þrúðarvöndum
HEREFORD STEIKHUS
Vantar
yfirmatreiðslumann
°g
vana þjóna
í sal
H E R E F O R D
Upplýsingar í síma S T E 1 K H 0 S
511-3351 eÖa 862-3304 Uugavegur 5Sh i 101 Rcykjavít
Hannes. s: 511-3350 i hcrcfoul.ts
miij
Þjálfunar og æfingarpunktar
Láttu engan segja þér að þú sért of
gömul eða gamall til að byrja að æfa.
Nýjustu rannsóknir sýna að fullorðið fólk
á aldrinum 65-79 ára getur bæði bætt
styrk og frammistöðu með því að gera
styrktaræfingar aðeins einu sinni til tvisvar
í viku. Aukinn styrkur þýðir aukin geta til
að takast á við daglegt amstur eins og
að ganga upp og niður stiga, halda á
innkaupapokum eða leika við barnabörnin.
Aukinn styrkur þýðir líka bætt jafnvægi
og þar með minni hættu á að fólk detti
og brjóti sig eins og algengt er á þessum
aldri. Fyrir konur er ekki síður mikilvægt að regluleg þjálfun bætir beinþéttni
og getur komið í veg fyrir beinþynningu. Það er aldrei of seint að byrja en
hver verður að sníða sér stakk eftir vexti og haga þjálfuninni eftir eigin getu.
Hreyfing er nauðsynleg.
Matseðill dagsins
Dagur 16
Morgunverður: ABT-mjólk Brauðsneið Hnetusmjör 1 dós 1 sneið 1/2 msk.
Hádegisverður: Subway langloka 1/2 stk.
Miðdegisverður: Matarkex Undanrenna Mandarínur 2 stk. 1 glas 2 stk.
Kvöldverður: Subway langloka Ávaxtasafi 1/2 stk. 1 glas
Kvöldhressing: Epli 1 stk.
Eftir því sem við eldumst aukast líkur á að við verðum fyrir barðinu á
næringarvandamálum. Ástæðurnar geta verið margar, eins og minni matarlyst sem
aftur leiðir til ónógrar orku- og næringarefnaneyslu. Margvísleg lyfjaneysla og ofneysla
alkóhóls getur einnig haft afgerandi áhrif á næringarbúskap líkamans. Þegar talað er
um aldrað fólk í "næringarlegu" tilliti er öldruðum skipt í tvo aldurshópa. Fyrri hópnum
tilheyra þeir sem eru á aldursbilinu 50-70 ára og þeim seinni fólk sem er eldra en sjötíu
ára. Það segir sig sjálft að almennt séð getur verið mikill munur á neysluvenjum fimmtugs
einstaklings og þess sem er áttræður. Sem dæmi má nefna að um fimmtugt er algengt
að næringarvandamálið tengist ofneyslu sem leiðir til offitu á meðan algengara er að
áttræður einstaklingur þjáist af lystarleysi sem ýtir undir of mikið þyngdartap og
afleiðingin verður vannæring. Samkvæmt erlendum könnunum er talið að allt að 50%
þeirra sem dvelja á elliheimilum líði næringar- og orkuskort.
Reglubundin neysla á fjölbreyttu fæði ásamt nægilegri vatnsdrykkju er að sjálfsögðu
lykillinn að næringarlegu jafnvægi hjá öldruðum sem og öllum öðrum.
Þar að auki gæti þeim gagnast að neyta reglubundið eins og einnar
fjölvítamínstöflu með steinefnum og teskeið af lýsi. Stundum er þörf
á markvissari bætiefnaneyslu en slík neysla ætti ekki að fara fram fyrr
en sérfræðiálit liggur fyrir. Ástæðan er sú að óhófleg fæðubótarneysla
getur leitt til eiturástands í líkama. Þeim sem eiga í erfiðleikum með
að nærast á eðliiegan máta getur gagnast að neyta næringarduftdrykkja
á milli mála. Dæmi um slíka blöndu er Build-up.
Kveðja, Ólafur G. Sæmundsson næringarfræðingur
HReynnc • átí
FRÍTT í 3 DAGA
HReyrmc
Ef þú hefur ekki æft í Hreyfingu áður en langar til að prófa bjóðum við þér
að koma og æfa frítt í þrjá daga til reynslu gegn framvísun þessa miða.
Hringdu í síma 568-9915 og pantaðu tíma hjá ráðgjafa. Gildir tit 1. apríl 2003