Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2003, Side 25
25
FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2003_______________________
DV Tilvera
lífiö
Blús á Vídalín
Áhugamannafélag um blús verður
með blúskvöld á Vídalín í kvöld. Þar
munu þeir Halldór Bragason (Dóri úr
Vinum Dóra) og Guðmundur Péturs-
son stilla saman strengi sína í trega-
fullum blús. Blúsinn byijar kl. 22.
Bíófrumsýningar:
Grímuklæddur
brettastelpur
Kvikmyndagagnrýni
ofurhugi og brim-
Blue Crush
Stelpurnar í Blue Crush
lifa fyrir brimbretta-
íþróttina.
Fimmtudagur í Hinu húsinu
Hljómsveitimar sem koma ffam á
Fimmtudagsforleik í Hinu húsinu í
kvöld eru Innvortis, Molesting mr.
Bob, Nögl, Lunchbox og Prank. Tón-
leikarnir byrja kl. 20 og það er
ókeypis inn og 16 ára aldurstakmark.
Hálendisganga frá Hlemmi
Kl. 17 verður gengið frá Hlemmi
niður Laugaveginn að Austurvelli
þar sem myndaður verður hringur
utan um Alþingishúsið til að
mótmæla virkjunarframkvæmdum.
Umhverfismál á
alþjöðlegum vettvangi
Landvarðafélag íslands stendur
íyrir fundi um umhverfismál á al-
þjóðlegum vettvangi kl. 20 í Háskóla-
byggingunni VR n - stofu 157.
Konur og tæknifrjógvun
Milli kl. 12 og 13 rabbar Svanborg
Sigmarsdóttir stjómmálafræðingur
um tæknifrjóvganir í stofu 101 í Lög-
bergi, Háskóla íslands. Erindi henn-
ar ber yfirskriftina „Hvem er verið
að lækna? Konur og tæknifrjóvgun".
Bardukha í Kaffileikhúsinu
Balzamersveitin Bardukha heldur
tónleika í Kaffileikhúsinu í kvöld.
Tónleikarnir hefjast kl 21.
Tónleikar á Grandrokk
Apparat Organ Quartet leikur á
tónleikum á Grandrokk í kvöld
ásamt Skurken/Prince Valium. Tón-
leikarnir hefjast klukkan 23 og það
kostar 700 kr. inn.
samstundis var við að hann gæðist of-
urmannlegum kröftum og snerpu því
önnur skilningarvit hafa tekið stökk-
breytingum fram á við. Upp frá þessu
lifir Murdoch tvöfóldu lífi. Á daginn
sinnir hann málum þeirra sem minna
mega sín en á nóttinni gerist hann
Daredevil - grímuklæddur, kattliðug-
ur vökumaður sem fylgist grannt með
glæpalýð stórborgarinnar.
Það er Ben Afileck sem leikur ofur-
hugann. Jennifer Gamer, þekkt úr
sjónvarpsseríunni Alias, leikur El-
ektru, sem kann einnig ýmislegt fyrir
sér þegar kemur að hættum nætur-
innar. Colin Farrell og Michael Clarke
Duncan leika giæpamenn. Leikstjóri
er Mark Steven Johnson og er
Daredevil önnur kvikmyndin sem
hann leikstýrir. Áður hafði hann gert
hina hugljúfú Simon Birch.
Blue Crush
Hingað til hafa það aðal-
lega verið strákar sem í
kvikmyndum sýna listir sín-
ar á brimbrettum. Nú er
komið að stelpunum. Blue
Crush fjallar um þijár stelp-
ur sem allar stefna að því að
verða meistarar í brimbrettaíþrótt-
inni. Myndin gerist á Hawaii, þar sem
öldurnar em mestar og hæstar. Stutt
er í stórmót og vinkonumar þrjár,
Anne Marie, Eden og Lena, æfa af
miklum krafti og ekkert annað á at-
hygli þeirra - þaö er að segja þar til
ruðningslið kemur á hótelið þar sem
þær búa. Þá er ekki laust við að horm-
ónamir taki við af adrenalíninu um
stundar sakir og mglast allt æfrnga-
kerfið hjá þeim.
í hlutverkum stúlknanna em Kate
Bosworth, Michelle Rodriguez og
Sanoe Lake. Leikstjóri og annar hand-
ritshöfúnda er John Stockwell, fyrr-
verandi leikari sem hefur snúið við
blaðinu og leikstýrði síðast Cr-
azy/Beautifúl.
Óbærilegur veruleiki
Daredevll
Ben Affleck leikur Matt Murdock sem er lögfræðingur á daginn og ridd-
ari götunnar á nóttunni. Á innfelldu myndinni er Jennifer
Garner í hlutverki Elektru Natchios.
■MMMHMOn
Háskólabíó - Nói albinói ★★★f
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Gítarleikari með burtfararpróf
í kvöld kl. 20 verða burtfarartón-
leikar Ómars Guðjónssonar gítarleik-
ara af djass- og rokkbraut Tónlistar-
skóla FIH. Tónleikamir eru haldnir í
sal skólans að Rauðagerði 27. Að-
gangur er ókeypis og öllum heimill.
Helsti viðburður vikunnar í kvik-
myndum er sýning á íslensku kvik-
myndinni Nóa albínóa eftir Dag Kára
Pétursson, en frumsýningin var í gær-
kvöld. Tvær kvikmyndir verða frum-
sýndar á morgun.
Ber þar fyrst að
telja fyrstu
„stór-
mynd“
ársins í
Banda-
ríkjun-
um,
Daredevil,
sem hefúr
náð miklum
vinsældum.
Kemur hún
glæný hing-
að en tæpar
tvær vik-
em síðan hún var frumsýnd vestan-
hafs.
Þá verður einnig frumsýnd á morg-
un unglingamyndin Blue Cmsh sem
fiallar um stúlkur sem hafa gaman af
brimbrettum.
Daredevil
Það má með sanni segja að
Daredevil komi í kjölfar Spider
Man. Um er að ræða ævintýra-
mynd sem byggð er á teikni-
myndahetju sem Marvel-fyr-
irtækið gefúr út, en Spider Man
er einnig á vegum þess.
Daredevil verður til við
slys þegar lögfræðingurinn
Matt Murdoch lendir í geisla-
virkum úrgangi með þeim af-
leiðingum að hann missir sjón-
ina. Eitrið hefur
einnig já-
kvæð
áhrifþví
Mur-
doch
verð-
„Það er ekkert nema feigð í boll-
anum,“ segir slökkviliðsmaður og
spámaður í ónefndu sjávarplássi úti
á landi við Nóa sem búið er að reka
úr skóla og er orðinn aðkrepptur af
fiötrum þeim sem binda hann við
bæinn þar sem rætur hans liggja.
Þessi setning kemur beint í fram-
hpldi af því að Nói og vinkona hans
íris hafa verið að gantast með þann
siö að spá í bolla. Með þessari setn-
ingu kemur upp á yfirborðið sá
grunur, sem frá upphafi hefur læðst
að manni, að grundvailarhugmynd-
in að baki gerð Nóa albinóa er ekki
að gera skemmtilega og lúmska
gamanmynd um bráðgáfaðan ung-
ling, sem er á skjön við lífið í pláss-
inu þar sem hann býr, dreng sem
ætlar sér aö verða lögfræðingur án
þess að ganga í skóla, heldur er sag-
an dramatísk örlagasaga sem fær þó
ekki þá meiningu fyrr en í lokin.
Svo er aftur einn stór kostur við
Nóa albinóa hvað hún er skemmti-
leg, hvað vel tekst að láta vita um
sálarástand Nóa á þann hátt að
húmorinn tapast aldrei. Þessi sterki
undirtónn í sögunni kemur til dæm-
is vel fram í atriðinu þegar faðir
hans, frábærlega leikinn af Þresti
Leó Gunnarssyni, segist vera búinn
að bjarga Nóa um vinnu í kirkju-
garði, „gegnum bullandi klíku“.
Þar er fyrsta verk Nóa að grafa
gröf. Eftir að leiðbeiningar prestsins
í gegnum kalltæki um það hvar
gröfin eigi að vera mistakast kemur
hann á vélsleða á vettvang og segir
Nóa að grafa gröf sem sé þriggja
metra djúp. Presturinn og grafarinn
byija að þrefa um dýptina og eins og
samningamönnum sæmir mætast
þeir á miðri leið. Viö vitum að Nói
er hundóánægöur og ráðvilltur.
Samt hefur þetta atriði mikinn
húmor sem er grafalvarlegur í orðs-
ins fyllstu merkingu. Þannig er nán-
ast allur húmorinn í Nóa albinóa,
alvarlegur en fyndinn. Vil ég í því
sambandi nefna ömmu Nóa, sem
Anna Friðriksdóttir túlkar
skemmtilega. Húmorinn hjá henni
er ekki sagður með bros á vör held-
ur kemur út frá því einfalda lífs-
munstri sem hún hefur alla tíð lifað.
Nói albinói er einnig falleg kvik-
mynd. Draumur Nóa og írisar um
aö hverfa á brott tengist fiarlægum
slóðum. Sá draumur er ekki aðeins
í orðum og huga þeirra. Hann er
sýnilegur þegar Nói horfir á myndir
í gamaldags myndvarpa og sér
strendur Hawaii. Stillimyndin sem
Nói horfir hvað mest á verður síðan
að einstaklega fallegu lokaatriði.
Þannig er Nói albinói gefandi
hvað varðar efnistök. Húmorinn er
einstaklega vel heppnaður, frumleg-
ur og sérstæður. Um leið fáum við
djúpa innsýn í persónumar sem
ekki er hægt að segja að séu ham-
ingjusamar. Þær eru bundnar átt-
hagafiötrum, flestar viljandi. Sá eini
sem reynir að bijótast frá átthögum
sínum er Nói og það að hann skuli
hafa búið sér til lítið athvarf, þar
sem hann hefur getað horfið frá
raunveruleikanum, gerir það að
verkum að hann heldur lífi og verð-
ur um leið laus úr þeim fiötrum sem
hafa bundið hann rígfastan.
Nói albinói er ekki flókin kvik-
mynd, kvikmyndalega séð, en verð-
ur að listrænu sjónarspili í einfald-
leika sínum. Nói er þungamiöja
myndarinnar. Hann er einnig al-
binói, sem í raun skiptir engu máli
fyrir atburðarásina en gerir persón-
una öðmvísi útlits, þannig að Nói
sker sig frá öömm bæði andlega og
líkamlega. Tómas Lemarques túlkar
Nóa af mikilli innlifun og er ein-
staklega næmur á hversu Nói er við-
kvæmur. Áður hefur verið minnst á
Þröst Leó Gunnarsson og Önnu
Friðriksdóttur sem bæði eru eftir-
minnileg. Til viöbótar má nefna
frammistöðu Hjalta Rögnvaldssonar
sem enn einu sinni sýnir okkur
hver afburðaleikari hann er.
Reynsluleysi háir að nokkru leik
Emu Hansdóttur en hún geldur fyr-
ir það að íris er sú persóna sem er
hvað óljósust.
Það er oft sagt að þegar vænting-
ar eru miklar sé stutt í vonbrigðin.
Það er búið aö flytja frægðarsögur
af Nóa albinóa á erlendum kvik-
myndahátíðum á síðustu vikum þar
sem hún hefur hirt sex eftirsótt
verðlaun og í framhaldi er búið að
selja hana til fiölda landa. Fyrirfram
hræðsla um að of mikið hafi verið
gert úr gæðum myndarinnar í ís-
lenskum fiölmiðlum var óþörf. Nói
albinói stóð undir væntingunum
sem ég gerði til hennar og vel það.
Vil ég meina að hún sé eitthvert
merkasta innleggið í íslenska kvik-
myndagerð. Dagur Kári Pétursson,
sem strax með útskriftarverkefni
sínu, Lost Weekend, sýndi að þar
var mikið efni á ferðinni, stekkur
nú fram sem fullskapaður kvik-
myndaleikstjóri og handritshöfund-
ur sem hefur næmt auga fyrir marg-
breytileika mannlífsins.
Leikstjóri og handritshöfundur: Dagur
Kári Pétursson. Kvikmyndataka: Rasmus
Videbæk. Tónlist: Slowblow. Klipplng:
Daniel Dencik. Leikmynd: Jón Steinar
Ragnarsson. Búningar: Linda B. Arnar-
dóttir og Tanja Dehmel. Hljóö: Pétur Ein-
arsson. Lelkarar: Thomas Lemarques,
Þröstur Leó Gunnarsson, Elín Hansdóttir,
Anna Friöriksdóttir, Hjalti Rögnvaldsson,
Þorsteinn Gunnarsson og Pétur Einars-
son.