Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2003, Side 27
FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2003
27
ÞÓP - Kfl 23-32
0-1, ZA, 5-8, 8-11, 11-13, (12-14). 13-15, 13-17,
15-20,16-23,18-25,19-28, 20-30, 23-32
Þór
Mörk/viti (skot/víti): Ámi Þór Sigtryggsson 9
(18), Aigars Larzdins 4 (9), Páll Gíslason 4/3
(6/4), Geir Kr. Aöalsteinsson 2 (2), Siguröur B.
Sigurðsson 1 (1), Halldór Oddsson 1 (2), Hörður
Sigþórsson 1 (3), Goran Gusic 1 (9), Bjami G.
Bjamason (1).
Mörk úr hraöaupphl.: 2 (Siguröur, Ámi).
Vítanýting: Skoraö úr 3 af 4.
Fiskuö viti: Páll, Þorvaldur, Siguröur, Ámi.
Varin skot/viti (skot á sig): Hörður Flóki
Ólafsson 6/1 (19/4, hélt 5,31,5%), Hafþór Einars-
son 8 (27/4, hélt 5, 26%).
Brottvisanir: 14 mínútur, 3 brottvísanir, úti-
lokun á Hörð á 33. mínútu.
Dómarar (1-10):
Gisli Jóhannsson
og Hafsteinn
Ingibergsson (5)
Gœði leiks (1-10):
6.
Áhorfendur: 1500.
Maöur leiksins:
Egidijus Petkevicius, KA.
KA
Mörk/víti (skot/víti): Amór Atlason 9/4 (12/5),
Baldvin Þorsteinsson 7/3 (9/3), Andreas
Stelmokas 5 (5), Einar Logi Friöjónsson 4 (7),
Jónatan Magnússon 4 (8), Hilmar Stefánsson 2
(3), Þorvaldur Þorvaldsson 1 (1), Ingólfur Axels-
son (1).
Mörk úr hraöaupphlaupum: 8 (Baldvin 3,
Amór 2, Þorvaldur, Hilmar, Stelmokas).
Vitanýting: Skorað úr 7 af 8.
Fiskuó víti: Baldvin 2, Stelmokas 2, Hilmar,
Einar Logi, Jónatan.
Varin skot/víti (skot á sig): Egidijus Pet-
kevicius 22 (42/2, hélt 16,52%), Hans Hreinsson
3/1 (6/2, hélt 2, 50%).
Brottvísanir: 14 mínútur.
Sport
- gegn Þór í Akureyrarslagnum sem var aldrei spennandi
KA menn unnu stórsigur á Þórs-
urum, 23-32, er liðin mættust í
Essódeild karla í handknattleik í
íþróttahöllinni á Akureyri í gær.
Fjöldamargir áhorfendur fylltu
höllina og bjuggust við hörku-
spennandi leik þar sem leikmenn
beggja liða myndu berjast til síð-
asta blóðdropa. Enda miklu meira
í húfi en stigin sem myndu fást
með sigri. Á Akureyri er enginn
sigur sætari en sigur á nágranna-
liðinu og hefur í gegnum tíðina
engu máli skipt hvemig staða lið-
anna í deildinni hefur verið, ávallt
hefur Akureyrarslagurinn boðiö
upp á frábæra skemmtun og oftast
ráðast úrslitin á lokasekúndunum.
En svo var ekki i gær.
KA-liðið mætti mun einbeittara
til leiks og náði strax forystu i
leiknum, vörnin spilaöi fast og
gengu leikmenn langt út á móti
skyttum Þórsara, sérstaklega þeim
Páli Gíslasyni og Aigars Larzdins.
Með þessu móti náðu Þórsarar
aldrei góðum takti í sóknarleik
sínum, neyddust oft til að skjóta úr
erfiðum færum sem annaðhvort
vöm eöa markvörður KA varði.
Hjá Þór var það eingöngu Ámi
Þór Sigtryggsson sem reyndi að
sýna dug og kjark framan af leik en
Ijóst var að einstaklingsframtak
hans dugði ekki gegn flmasterku
KA-liði sem keyrði sóknarleik sinn
upp á 6 leikmönnum sem allir skil-
uðu sínu.
í hálíleik var staðan 12-14 fyrir
KA og bjuggust menn viö að Þórs-
arar myndu mæta ákveðnir til
leiks í seinni hálfleikinn eftir tiltöl-
ur þjálfarans í búningsherberginu í
hálfleik. En svo fór ekki. KA-menn
héldu áfram baráttu sinni og
hleyptu Þórsurum aldrei inn í leik-
inn. Boltinn fékk að fljóta vel i
sóknarleik liðsins og skyttur liðs-
ins, þeir Arnór, Einar og Jónatan,
náðu oft á tíðum að tæta vörn Þórs
í sundur og með því losnaði oft um
þá Andreas Stelmokas á línunni og
Baldvin Þorsteinsson í hominu og
nýttu þeir færin sín vel.
Um miðjan seinni hálfleikinn
var staðan orðin 1&-23 fyrir KA og
ljóst var að sigur brekkuliðsins var
innan seilingar. Hjá Þór var Ámi
Þór manna bestur, lykilmenn eins
og Páll og Aigars sáust nánast ekk-
ert. En þaö gengur ekki í leik sem
þessum þegar allh- þurfa að skila
sinu og þá helst lykilmenn og
reynsluboltar liðsins. í jöfnu liði
KA-manna stóð Egidijus Petgevisi-
ous sig frábærlega í markinu og
varði 22 skot. Arnór Atlason var að
vonum ánægður i leikslok og sigur
upp á 9 mörk kom honum ekkert á
óvart.
Mættum einbeittir tii leiks
„Við vissum að ef við myndum
mæta einbeittir tO leiks og með sig-
urvilja þá myndum við vinna leik-
inn. Við ætluðum okkur ekki að
tapa 2 leikjum á móti þeim á tima-
bilinu.“ -ÆD
Andreas Stelmokas skorar hér eitt
fimma marka sinna í leiknum.
Sveiflukenndur
leikup í Garðabænum
Valur sigraði Stjörnuna í
Essódeild karla í handknattleik í
Ásgarði í gærkvöldi. Lokatölur
urðu 24-27 I sveiflukenndum leik
þar sem heimamenn voru mun
sterkari í fyrri hálfleik. Þeir voru
eiginlega í botni allan hálfleikinn og
náðu mest fimm marka forskoti
rétt fyrir leikhlé.
Valsmenn eyddu miklu púðri í
dómaratuð í hálfleiknum og undan-
úrslitaleikurinn við Aftureldingu
virtist eitthvað sitja i þeim hvað
dómarana snertir því sömu dómar-
ar og dæmdu þann leik dæmdu
þennan. Til að mynda fékk Freyr
Brynjarsson þrjár brottvísanir og
þar með rauða spjaldið í fyrri hálf-
leik. Hann fiskaði víti rétt fyrir leik-
hléið en í einhverju óskiljanlegu
bræðiskasti grýtti hann boltanum
frá sér og reif þar að auki kjaft við
dómarana. Þessi hegðun var nokk-
uð lýsandi fyrir Valsmenn í fyrri
hálfleik en sem betur fer fyrir þá
breyttist hún til batnaðar í síðari
hálfleik.
Stjömustrákar eyddu líklega of
mikilli orku í fyrri hálfleiknum þvi
þeim hélst ekki á forskotinu nema
í rétt rúmar tólf mínútur í seinni
hálfleik. Þá skoruðu Valsmenn sjö
mörk í röð og heimamönnum tókst
ekki að skora í rétt um þrettán
mínútur. Lokakaflinn varð því ekki
spennandi.
Á þessum góða kafla léku Vals-
menn af yfirvegun og einbeitingu,
beindu orkunni í réttan farveg og
viti menn, þetta fór allt að ganga
upp hjá þeim og liöið situr sem fast-
ast í toppsæti deildarinnar.
Snorri Steinn Guðjónsson lék
mjög vel allan tímann og hefði hans
ekki notið við í fyrri hálfleik hefði
faiáð illa fyrir Valsmönnum. Roland
Eradze var stirður í fyrri hálfleik
en funheitur í þeim seinni.
Hjá Stjörnunni lék Ámi Þorvarð-
arson frábærlega framan af og sýndi
nokkur mögnuð tilþrif en hann dal-
aði líkt og liðið eftir því sem á leið.
Vilhjálmur Halldórsson sýndi
nokkrum sinnum að hann er að
nálgast sitt besta form.
-SMS
Stjörnumaðurinn Vilhjálmur Halldórsson reynir markskot en Snorri Steinn Guðjónsson kemur út á móti til varnar.
DV-mynd JAK
Stórsiqur Essen
gegn Göppingen
Essen vann stórsigur á Göpp-
ingen, 32-20, í þýsku úrvalsdeild-
inni í handknattleik í gærkvöld.
Guðjón Valur Sigurðsson skor-
aði sex mörk fyrir Essen í leikn-
um en Patrekur Jóhannesson
komst ekki á blað. Magdeburg
sigraði Minden, 33-29, og gerði
Ólafur Stefánsson þrjú mörk fyr-
ir Magdeburg en hann hvíldi
töluvert í leiknum. Þá skoraði
Sigfús Sigurðsson tvö mörk af
lfnunni.
Lemgo heldur áfram sínu
striki og vann enn einn leikinn,
nú Norhom á heimavelli, 35-33,
en leikurinn var jafn og spenn-
andi allan tímann.
Lemgo trónir á toppnum með
44 stig, Flensburg er í öðru sæti
með 36 stig, Magdeburg er í
þriðja sæti með 35 stig og Essen
er í fjórða sæti með 30 stig.
Flensburg tryggði sér sæti í
undanúrslitum þýsku bikar-
keppninnar í gærkvöld þegar lið-
ið sigraði Kiel, 28-24. Áður höfðu
Wallau Massenheim og Göpp-
ingen tryggt sér þátttöku i und-
anúrslitunum. Fjórða liðið verð-
ur annað hvort Essen eða 2.
deildar liðið Búrgdorf en þau
eigast við á sunnudaginn kemur.
Úrslitakeppnin verður síðan
háð í Hamborg 12. apríl nk.
-JKS
Stjarnan - Valup 24-27
0-1, 4-3, 9-6, 14-19, (15-11), 15-12, 17-14,
20-18, 20-25, 23-26, 24-27
Stjaman
Mörk/vtíi (skot/vtíi): Vilhjálmur
Halldórsson 6/1 (15/2), Zoltan Belenay 4/1
(4/1), Þórólfur Nielsen 4/3 (5/4), Amar
Agnarsson 4 (11), Björn Friðriksson 2 (3),
David Kekelia 2 (4), Gunnar Ingi
Jóhannsson 1 (1), Bjami Gunnarsson 1 (3),
Sigtryggur Kolbeinsson (1).
Mörk úr hraðaupphlaupum: 4
(Vilhjálmur 2, Gunnar, Þórólfur).
Vitanýting: Skorað úr 5 af 7.
Fiskuð vtíi: Kekelia 4, Bjöm 2, Bjami.
Varin skot/viti (skot á sig): Árni
Þorvarðarson 16/1 (40/3, hélt 4, 40%),
Guömundur K. Geirsson 2 (5/1, hélt 0,40%).
Brottvisanir: 10 mínútur.
Valur
Dámarar (1-10):
Guðjðn h. Sig-
urðsson Ólafur
Haraldsson (8).
Gœði leiks
(1-10): 7.
Áhorfenáur: 233.
Maður leiksins:
Snorri Steinn Guöjónsson, Val
Mörk/vtíi (skot/víti): Snorri Steinn
Guðjónsson 10/3 (13/4), Markús Máni
Mikaelsson 6 (13), Hjalti Gylfason 4 (6),
Þröstur Helgason 3 (6), Brendan
Þorvaldsson 2 (3), Sigurður Eggertsson 1 (2),
Ragnar Ægisson 1 (5), Hjalti Pálmason (1).
Mörk ár hraðaupphlaupunu 9 (Snorri
Steinn 4, Hjalti 2, Brendan 2, Markús Máni).
Vitanýting: Skorað úr 3 af 4.
Fiskuð vtíi: Brendan, Hjalti G„ Freyr,
Hjalti P.)
Varin skot/vtíi (skot á sig): Roland
Erdaze 19/1 (41/4, héit 5, 48%), Pálmar
Pétursson 2/1 (4/3, hélt 1, 50%).
Brottvisanir: 18 mínútur, Freyr rautt.
ÁrniGautur
íaðgerfi
Árni Gautur Arason, landsliðs-
markvörður í knattspyrnu, gengst
undir aðgerð á olnboga í Noregi eft-
ir helgina og missir því að öllum
líkindum af leiknum við Skota í
undankeppni Evrópumótsins í Glas-
gow 29. mars.
Ámi Gautur sagði við DV í gær-
kvöld að þessi meiðsli i olnboga
hefðu lengi verið að angra sig og því
óhjákvæmilegt að fara í aðgerð.
Hann hefur ekki getað rétt almenni-
lega úr olnboganum en hreinsa þarf
beinflísar til að koma honum í lag á
nýjan leik.
„Þessi meiðsli hafa ágerst og því
ekkert annað að gera en að fara í að-
gerð. Mér sýnist því leikurinn við
Skota í meira lagi tæpur fyrir mig
en mér er sagt að ég verði frá í 4-6
vikur," sagði Árni Gautur en hann
er staddur á La Manga á Spáni með
Rosenborg þessa daga á æfmgamóti.
Rosenborg leikur til úrslita viö Odd
Grenland á fóstudag og bjóst Ámi
Gautur við því að standa í markinu
í þeim leik.
Rosenborg hefur boðið Árna Gaut
þriggja ára samning og þykir hon-
um líklegast að hann skrifl undir
nýjan samning.
-JKS