Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2003, Qupperneq 28
28
FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2003
Stjarnan - Fylkin/ÍR 2B-20
Sport
i>v
Formúla 1 kappaksturinn hefst þann 9. mars næstkomandi og verður fyrsta keppnin haldin í Melbourne í Ástralíu. Liðin æfa nú af kappi fyrir tímabilið og er
Michael Schumacher engin undantekning. Pessi mynd er tekin á æfingu í gær en hann náði að snúa bílnum á brautinni og endasentist út í dekkjavegg við
brautina. Honum varð þó ekki meint af en hér situr hann á bilnum og bíður eftir að verða sóttur. Reuters
Adrfano
upp í Giggs
Enskir fjölmiðlar greina frá því í
gær að Massimo Moratti, stjórnar-
formaður Inter Milan, hyggist gera
tilboð í Ryan Giggs. Ekki kemur
fram hversu hátt tilboðið muni
verða en ætlunin er að bjóða Brasil-
íumanninn Adriano, sem leikið hef-
ur með Parma að undanförnu en er
að hluta til í eigu Inter.
Moratti hyggst ganga endanlega
frá kaupunum á Adriano fyrir um 8
milljónir punda fyrir lok tímabils.
Stjómarformaður Man. Utd hefur
lýst því yfir að Giggs sé hugsanlega
til sölu ef rétt verð fæst fyrir hann
en eins og er séu forsvarsmenn liðs-
ins að einbeita sér að yfírstandandi
timabili. -PS
17
í)BB0HE) ’ ;i
21 18 2 1 592-425 38
22 17 1 4 59(M9135
22 15 4 3 502-419 34
22 12 3 7 487—417 27
22 13 1 8 473-461 27
21 10 2 9 512-481 22
iBV
Haukar
Stjaman
Víkingur
Valur
FH
Grótta/KR 23 10 1 12 487-510 21
Fylkir/ÍR 23 4 0 19 445-596 8
KA/Þór
Fram
Fylkir/ÍR
Mörk/vtti (skot/viti); Hekla Daðadóttir 5
(17/2), Sigurbirna Guöjónsdóttir 4 (6,4 stoðs.),
Valgerður Árnadóttir 3 (4), Tinna Jökulsdótt-
ir 3 (4), Hulda Karen Guðmunsdóttir 2 (2),
Lára Hannesdóttir 2 (4), Bjamey Ólafsdóttir 1
(3).
Mörk úr hraöaupplilaupum: 3 (Valgerður 2,
Sigurbima).
Vítanýting: Skorað flr 0 af 2.
Fiskuö vitú Sigurbirna, Tinna.
Varin skot/viti (skot á sig): Ema María Ei-
ríksdóttir 14/1 (40/2, hélt 7, 35%, 1 víti í
stöng).
Brottvisanir: 8 mínútur.
Best á vellinum:
Elísabet Gunnarsdóttir, Stjörn.
0-2, 1-2, 1-5, 2-5, 2-6, 5-8, 7-8, 7-109-12, 11-12,
12-13, (12-14). 12-15, 13-16, 16-16, lfr-18, 22-18,
22-19, 26-19, 26-20
Stjarnan
Mörk/viti (skot/viti): Elísabet Gunnarsdótt-
ir 11 (11), Jóna Margrét 4/1 (10/2), Margrét
Vilhjálmsdóttir 2 (3), Anna Einarsdóttir 2 (3),
Amela Hegic 2 (4), Rakel Dögg Bragadóttir 2
(4/1, 6 stoðs.), Elísa Þórðardóttir 1 (1), Kristín
Jóhanna Clausen 1 (2, 6 stoðs.), Hind Hannes-
dóttir 1 (3), Svanhildur Þengilsdóttir (2).
Mörk úr hradaupphlaupum: 8 (Elísabet 5,
Margrét, Kristín Jóhanna, Rakel, Dögg).
Vitanýting: Skorað úr 1 af 3.
Fiskuö viti: Kristín Jóhanna 2, Elísabet.
Varin skot/viti (skot á sig): Helga Dóra
Magnúsdóttir 5 (21, hélt 2, 24%, eitt víti í
stöng), Jelena Jovanovic 9/1 (13/1, hélt 3,
69%)
Brottvisanir: 4 mínútur.
Dómarar (1-10):
Arnar Sigurjóns-
son og Svavar
Ólafúr Pétursson
(6).
GϚi leiks
(1-10): 7.
Áhorfendur: 153.
Innkoma Bísabetar sterk
Stjömustelpur sigmðu stöllur sínar
úr Fylki/ÍR, 26-20, i Essódeild kvenna í
handknattleik í Ásgarði í gær. Gestim-
ir mætti geysiákveðnir til leiks,
komust í 1-5 og Stjömustelpur virk-
uðu hálfvankaðar. Þegar rétt tæpar níu
mínútur vom liðnar af leiknum var
staðan. Gestimir náðu að hanga á
frumkvæðinu út allan fyrri hálfleikinn
og höfðu tveggja marka forskot í hálf-
leik. Þeim hélst svo á þessu forskoti
framan af síðari hálfleiknum en Stjöm-
unni tókst að jafna i fyrsta sinn í leikn-
um þegar rúmar flmm mínútur vom
liðnar af hálfleiknum, 16-16. Þær tóku
i framhaldinu fmmkvæðið, juku mun-
inn jafnt og þétt og það má að miklu
leyti þakka Elísabetu og svo bættum
vamarleik en honum var breytt og
færður framar. Gestimir léku afar vel
i fyrri háifleik og framan af þeim
seinni en héldu ekki nógu lengi út og
liðið réð illa við framliggjandi vöm
Stjömurmar í síðari hálfleik. Hekla
Daðadóttir lék vel framan af, Sigur-
bima Guðjónsdóttir var traust, Tinna
Jökulsdóttir var afar áræðin i fyrri
háifleik og Ema María Eiríksdóttir lék
ágætlega í markinu. Hjá Stjömunni
var áðumefnd Elísabet frábær og gerði
einfaldlega gæfumuninn að þessu
sinni. Jóna Margrét Ragnarsdóttir lék
vel í byrjun en síðan fór lítið fyrir
henni. Jelena Jovanovic átti góða inn-
komu i seinni hálfleik sem og Rakel D.
Bragadóttir en sérstaka athygli vöktu
frábærar línusendingar hennar sem
minntu á engan annan en Magic John-
son. -SMS
Framkvæmd stórleikja í handbolta og körfu mikið lýti á þessum íþróttagreinum:
Enga áhonfendun inn á völlinn
- fagnaðarlæti áhorfenda eiga ekkert erindi inn á leikvöllinn á meðal leikmanna og dómara
Framkvæmd stórleikja í hand-
knattleik og körfuknattleik hefur
mörg undanfarin ár vakið athygli
mína og eftirtekt og þá í raun fyrir
framkvæmdaleysið. Um helgina
tók steininn úr þegar upp komu
slagsmál á úrslitaleik í bikar-
keppni karla í handknattleik, sem
ekki aðeins voru í stúkunni, held-
ur bárust inn á leikvöllinn sjálfan
þar sem leikmenn og forráðamenn
sigurliðsins voru að halda upp á
nýfenginn titil. Munaði litlu að illa
færi þar.
Það hefur tíðkast í leikslok að
stuðningsmenn liðanna fjölmenni
inn á leikvöllinn þar sem þeir ráð-
ast í fögnuði sínum að leikmönn-
um liða sinna. Það er ekki spurn-
ing um hvort heldur hvenær þetta
kemur til með að valda slysum, því
einn daginn kemur að því að óá-
nægður stuðningsmaður ræðst á
leikmann, þjálfara eða dómara í
öllum látunum og veldur ekki bara
viðkomandi skaða heldur íþrótt-
inni í heild sinni. Kemur upp í
hugann atvik í úrslitakeppninni í
handknattleik í Hafnarfirði fyrir
nokkru þar sem áhorfendúr fjöl-
menntu inn á leikvöllinn þar sem
fyrir voru leikmenn og dómarar og
einhverjir óprúttnir náðu að koma
höndum á dómarapar leiksins.
Það er alveg ljóst að auka verður
gæslu í kringum leikina, bæði úr-
slitaleiki í bikarkeppni og i úrslita-
keppninni i handknattleik og
koma því þannig fyrir að áhorfend-
ur fari ekki inn á leikvöllinn í
leikslok. Ef hlutirnir eru skoðaðir
þá hefur knattspymunni tekist að
að koma í veg fyrir þetta. Eftir úr-
slitaleik bikarkeppninnar í knatt-
spyrnu á Laugardalsvelli fagna
áhorfendur liðum sínum í
stúkunni og leikmenn á knatt-
spyrnuvellinu. Eftir úrslitaleik
Evrópukeppninnar í handknatt-
leik, sem fram fór í Svíþjóð í fyrra,
voru engir áhorfendur á gólfinu,
þrátt fyrir að Svíar væru að
tryggja sér Evrópumeistaratitilinn
á heimavelli sínum í Globen.
Ástæðan er sú að þetta er einfald-
lega bannað og þeir sem reyna að
brjóta þessar reglur eru einfald-
lega teknir úr umferð. Ef tekst að
framkvæma þetta á þessum vett-
vangi ætti það einnig að vera hægt
á öðrum vettvangi.
Þetta verða bæði Handknatt-
leikssamband íslands og
Körfuknattleiksambandið að taka
til athugunar því það verður skil-
yrðislaust að koma þessum málum
í skikkanlegt horf áður en slys
hlýst af. Þetta er mikið lýti á ann-
ars stórskemmtilegum íþróttavið-
burðum sem úrslitaleikir sem
þessir eru. Pjetur Sigurðsson
íþróttafréttamaður
Gerard Houllier, framkvæmdastjóri Liverpool, bjartsýnn á framhaldiö:
Tímabil þar sem við
verðum betri on betri
Gerard Houllier, framkvæmda-
stjóri Liverpool, er bjartsýnn á að
liðið nái að rífa sig upp úr öldu-
dalnum og að það sé nú að sigla inn
í tímabil þar sem það verði betra og
betra. Saga undanfarinna ára sanni
það. Liðið mætir Man. Utd í
úrslitaleik deildarbikarkeppninnar
á sunnudag og þar hyggst Houllier
snúa þessari þróun við. „Við ætlum
að klára þetta tímabil eins og við
byrjuðum það. Liverpool leikur í
kvöld gegn Auxerre en þetta er síð-
ari leikur liðanna í Evrópukeppni
félagsliða. Fyrri leikinn vann Liver-
pool, 1-0.
Það er nú ljóst aö franski lands-
liðsmaðurinn Djibril Cisse verður
með en hann gat ekki leikið fyrri
leikinn vegna meiðsla. Houllier
hræðist ekki þennan snjalla fram-
herja. „Við þekkjum vel til hans og
vitum allt um hraöa hans og hversu
öflugur leikmaður þama er á ferð-
inni. Þetta er markaskorari og
ávallt hættulegur," sagði hinn
franski Gerard Houllier. -PS
DiCanío
til CelOc?
Paulo Di Canio, leikmaður
West Ham, hefur lýst því yfir að
hann muni yfirgefa félagið eftir
tímabilið en þá rennur samning-
ur hans út. Þessi yfirlýsing kem-
ur eftir að hann var tekinn nauð-
ugur af leikvelli gegn WBA á
sunnudag. West Ham hefur gefið
það út að öðrum félögum sé
heimilt að hefja viðræður við
leikmanninn en það sé einungis
til að uppfylla reglur UEFA þar
sem svo stutt sé eftir af samn-
ingnum. Það sé enn áhugi hjá fé-
laginu að halda í leikmanninn.
Nokkur félög hafa lýst áhuga
sínum á að fá Di Canio til sín en
sá galli er á að þrátt fyrir að
hann fari í frjálsri sölu eru
launakröfur hans slíkar að hann
þykir ekki fýsilegur kostur, enda
oröinn 35 ára gamall. Harry Red-
knapp, knattspymustjóri Ports-
mouth, segist hafa áhuga en lík-
legast þykir þó að hann gangi til
liðs við sitt gamla félag, Glasgow
Celtic. -PS
Meistaradeildin:
Stærsta tap
Juventus
á heimavelli
Tap Juventus gegn Man. Utd í
fyrrakvöld var stærsta tap liðs-
ins á heimavelli í Evrópukeppn-
inni í knattspymu frá upphafi og
er þá ekki verið að tala aðeins
um Meistaradeildina heldur öll
félagsliðamót Evrópukeppninn-
ar. Stærsta tap liðsins áður var
1-3 ósigur gegn Hamborg í októ-
ber 2001.
Þetta var einnig stærsta tap i
Meistaradeildinni og Evrópu-
keppni meistaraliða sem er fyrir-
rennari Meistaradeildarinnar
frá því að Juventus tapaði 4-1
gegn CSKA Sofia í Búlgaríu árið
1961.
Juventus er á toppi itölsku
deildarinnar með jafnmörg stig
og Inter Milan en liðið hefur
aðeins tapað einum leik á
heimavelli í vetur, gegn Lazio í
desember. -PS