Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2003, Síða 29
FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2003
29
Fulham ekki á Brúna
Ken Bates stjórnarfor-
maður Chelsea hefur end-
anlega tekið af skarið með
að Fulham muni ekki
leika heimaleiki sína á
heimavelli Chelsea, Stam-
ford Bridge, en AI Fayed,
eigandi Fulham, hefur
farið þess á leit að heima-
leikir Fulham fari fram
þar. Fulham hefur leikið
heimaleiki sina á Loftus
Road, heimavelli QPR, í
vetur en A1 Fayed er í
þann mund að selja lóðina
þar sem gamli heimavöll-
ur Fulham var og er liðið
því heimilislaust og sér
ekki fyrir endann á því.
-PS
Rafpostur: dvsport&dv.is
Newcastle á fullri ferð í meistaradeildinni en liðið lagið Leverkusen að velli, 3-1, í annað sinn á einni viku:
Shearer með þrennu
- Barcelona tapar sínum fyrstu stigum í meistaradeildinni í vetur með jafntefli við Inter
Það ríkir mikil spenna í A og B
riðlum meistaradeildarinnar og
enn er allt opið. Það er aðeins eitt
lið sem er úr leik en sigrar Roma og
Valencia eru búnir að opna báða
riðlana upp á gátt. Barcelona er þó
orðið nokkuð öruggt áfram í átta
liða úrslitin.
Shearer á kostum
Það gekk mikið á á heimavelli
Newcastle þar sem heimamenn
tóku á móti Bayer Leverkusen í A-
riðli en heimamenn fóru með sigur
af hólmi, 3-1, og þar með er
Leverkusen endanlega úr leik í
meistaradeildinni. Þetta er í annað
sinn á einni viku sem Newcastle
vinnur Leverkusen 3-1. Maður
þessa leiks hlýtur að teljast Alan
Shearer en hann gerði þrennu, öll í
sama hálfleiknum. Hann skoraði
fyrsta mark Newcastle strax á 5.
mínútu og á ll. mínútu bætti hann
öðru marki við. Sjö mínútum síðar
fengu leikmenn Leverkusen víti
sem Shay Given varði frá Oliver
Neuville. Leikmenn Newcastle
fengu skömmu síðar víti eftir að Ki-
eron Dyer var rifinn niður í víta-
teignum og úr henni skoraði Alan
Shearer og fullkomnaði þrennu
sína.
í skýjunum
Stjama kvöldsins, Alan Shearer,
er sannfærður um að liðið geti gert
enn betur 1 meistaradeildinni og
eigi raunverulega möguleika á að
komast upp úr riðlinu. „Við gerð-
um okkur erfitt fyrir með því að
tapa fyrsta leiknum og enn erfiðara
með því að tapa aftur en við eram
að rétta úr kútnum. Við þurftum
sigur hér í kvöld og unnum hann
verðskuldað. Við voram ákveðnir
að koma því þannig fyrir að leikur-
inn gegn Inter í næstu umferð
skipti okkur máli og það er það sem
við höfum gert nú. Ég sagði í gær
að ég yrði hamingjusamur maður ef
ég næði að skora en sérlega ham-
ingjusamur ef við ynnum líka.
Þetta gekk eftir og ég er í skýjun-
um,“ sagði Alan Shearer.
Barátta Inter og Newcastle
í sama riðli áttust Inter og
Barcelona við á heimavelli Inter.
Þetta eru fyrstu stigin sem
Barcelona tapar í meistaradeildinni
í vetur og ellefu leikja sigurganga í
deildinni á enda en jafnteflið hjálp-
ar hins vegar Inter Milan ekki mik-
ið í baráttunni. Leikurinn þótti
ekki tilþrifamikill og það var helst
að það væra leikmenn Inter sem
gerðu alvarlega tilraun til að ná í
stigin þrjú. Það stefnir því allt í
mikla baráttu á milli Inter og
Newcastle um annað sæti í riðlin-
um.
Fyrirliði Inter Milan, Javier Za-
netti, sagði að þetta hefði verið
erfitt kvöld hjá leikmönnum liðs-
ins. „Þetta var gríðarlega erfiður
leikur og leikmenn liðsins gerðu
allt sem þeir gátu tfl að vinna sigur
á Barcelona. Leikmenn þeirra
gerðu allt til að loka öllum svæðum
sem gerði okkur erfitt fyrir að
sækja. Þetta þýðir hins vegar að
það er allt undir í heimaleik okkar
gegn Newcastle.
Hann ásamt Christian Vieri varð
fyrir einhverjum meiðslum í leikn-
um en Zanetti gerði lítið úr því.
„Það er allt í lagi með Vieri. Hann
skorar mörk þegar þau eru hvað
mikilvægust," sagði hann og hló.
Þaö er allt opiö
Það er mikfl spenna i B-riðlinum
þar sem öll liðin eiga nú orðið
möguleika á að komast upp úr riðl-
inum. Arsenal sótti Ajax heim og
var leikurinn í rólegri kantinum og
virtist sem jafntefli væri ásættan-
legur kostur fyrir bæði liðin. Þau
áttu hins vegar bæði færi tfl að
koma knettinum í netið og meðal
annars bjargaði Ashley Cole á
marklínu eftir aukaspymu frá leik-
manni Ajax.
Fyrirliði Arsenal, Patrick Viera,
viðurkennir að það sé aflt opið í
riðlinum. „Það era sex stig í boði
fyrir liðin i riðlinum og framhaldið
verður erfitt en við verðum tflbún-
ir fyrir leikinn gegn Roma. Það var
dálítið pirrandi að fá ekki meira út
úr leiknum í kvöld en þetta var
mjög erfiður leikur og jafntefli góð-
ur kostur fyrir bæði lið, úr því sem
komið var. Við fengum tækifæri tO
að skora en þeir settu líka pressu á
okkur,“ sagði Viera. Hann fékk tvö
færi tO að skora en tókst ekki. „Ég
hefði átt að gera betur,“ sagði
Viera.
Of varnarsinnaðir
Arsene Wenger, framkvæmda-
stjóri Arsenal, var ekki sáttur viö
spilamennsku Ajax. Honum fannst
þeir vera fullvamarlega sinnaðir
en liðið er þekkt fyrir að vera létt-
leikandi og sókndjarft. „Siðari hálf-
leikurinn var líkamlega erfiðari
fyrir okkur og varð leikurinn
bragðlítill. En við reyndum hvað
við gátum en þeir lágu svo rosalega
tO baka. Svona er knattspyrna,
stundum skorar maður tvö tfl þrjú
mörk í leik og stundum ekkert,“
sagði Wenger.
Óvæntur sigur Roma
ítölsku meistaramir í Roma
neita að játa sig sigraða í meistara-
deOdinni en í gær héldu þeir tO
Valencia með þrjú töp í þremur
leikjum á bakinu. Með sigrinum
heldur Roma enn í vonina um að
komast í átta liða úrslit keppninnar
þó líkumar séu ekki þeim megin.
Það var fyrst og fremst fyrir frá-
bæran leik Fransescos Tottis sem
sigurinn vannst á heimavelli Val-
encia en hann gerði fyrstu tvö
mörkin og lagði upp það þriðja.
Eins og tölumar segja tO um
voru Rómverjar mun sterkari aðil-
inn í fyrri hálfleik og ætluðu greini-
lega að selja sig dýrt. Eftir að Totti
skoraði fyrsta markið á 24. mínútu
ætluðu leikmenn Valencia að sækja
stíft og freista þess að svara strax
en við það veiktust vamir liðsins
og fékk það á sig tvö mörk i viðbót
á næstu 12 mínútunum.
Heimamenn gerðu tilraun til að
minnka muninn í síðari hálfleik og
fengu tO þess færi en eftir því sem
á hálfleikinn leið varð erfiðara fyr-
ir sóknarmenn Valencia að komast
inn fyrir vöm Roma.
-PS
E V R 6 P A J
IV! E! STARA'DEI LD
A-riðill
Úrslit
Inter-Barcelona.............0-0
Newcastle-Leverkusen........3-1
1-0 Shearer (5.), 2-0 Shearer (11.),
Shearer (36. v.), 3-1 Babic (73.),
Barcelona 4 Staöan 3 1 0 8-2 10
Inter Milan 4 2 1 1 7-6 7
Newcastle 4 2 0 2 8-9 6
Leverkusen 4 0 0 4 4-8 0
B-riðill
úrslit
Ajax-Arsenal . 0-0
Valencia Roma . 0-3
0-1 Totti (24.), 0-2 Totti (29.), Emerson
(36.), Staðan
Arsenal 4 13 0 4-2 6
Ajax 4 13 0 4-3 6
Valencia 4 12 0 1-1 5
Roma 4 10 3 3-4 3
Alan Shearer átti sannkallaðan
stórleik með Newcastle, sem lagði
Leverkusen að velli í annað sinn á
einni viku, en hann gerði þrennu í
góðum sigri liðsins. Hér fagnar
Ameobi einu marka Shearers í
leiknum. Reuters
Enski bikarinn:
Fulham
úrleik
Fulham er úr leik í ensku bik-
arkeppninni eftir tap gegn
Bumley, 3-0, á heimavelli
Burnley. Liðin þurftu að eigast
við að nýju því þau gerðu jafntefli
á heimavelli Fulham, Loftus
Road. Þetta er í fyrsta sinn sem
Burnley kemst í átta liða úrslit
bikarkeppninnar i 20 ár.
Fulham vora einum færri allan
síðari hálfleikinn eftir aö Davis
var rekinn af velli. Þetta er ekki
tO að bæta ástandið á Fulham-
heimflinu því þar er hálfgert
stríðsástand. Liöið á engan
heimavöll og Tigana, stjóri
liðsins, hefur hótað að hætta ef
framtíðin verði ekki tryggð. -PS
Stoke-sigur
áWalsal
Stoke náði sér í þrjú mikilvæg
stig í botnbaráttu ensku 1. defldar-
liðanna en Stoke bar sigur út býtum
á heimavelli sínum, 1-0. Það var
Lee Mills sem gerði sigurmarkið í
leiknum á 19. mínútu leiksins.
Þeir Brynjar Bjöm Gunnarsson,
sem búinn er að taka út eins leiks
bann, og Bjami Guðjónsson léku
allan leikinn með Stoke en Pétur
Marteinsson var ekki í leikmanna-
hópi liösins. Pétur á yfir höfði sér
leikbann vegna rauðs spjalds sem
hann fékk um helgina en Stoke
hyggst þó áfrýja þessu spjaldi. Með
sigrinum lyfti Stoke sér úr botnsæt-
inu og er komið með 28 stig en
Sheffield Wednesday er á botninum
með 26 stig. -PS