Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2003, Blaðsíða 32
—
FRETTASKOTIÐ
SIMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þu ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá T síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö T DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
T hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
www.gulalinariL.is
FIMMTUDAGUR 27. FEBRUAR 2003
Fyrsta flugvel
lágfargjaldaflugfélagsins lceland
Express fór til Kaupmannahafnar
í morgun, fullsetin farþegum.
^ Fkmmennirnir voru glaöir í
bragði undir stjórn yfirflugstjóra
félagsins; John-Mahon. Stefnt er
að því að ráða fimm íslenska
flugmenn til félagsins.
- f
1
Vél lceland Express farin í loftiö:
Fyrsta ferðin til Kaup-
mannahaf nar í morgun
Rannsoknanlogreglumaður akærður
fyrir meint kynferöisafbrot gegn þremur stúlkum
- búið að ráða 15 íslenska flugþjóna og rætt við nokkra flugmenn
Fyrsta vél lágfar-
gjaldafélagsins
Iceland Express fór
fullsetin til Kaup-
mannahafnar klukk-
an háifniu í morgun.
Að sögn Ólafs Hauks-
sonar, talsmanns fé-
lagsins, hefur verið
mikil spenna i loftinu
meðal starfsfólksins
við að gera allt klárt.
Þegar er búið að selja
yfir 60% af þeim lág-
marks sætafjölda sem
fyrirhugað var að
selja allan marsmán-
uð. Sextán íslenskir flugmenn
sóttu um að fljúga á vegum fyrir-
tækisins með vélum breska flugfé-
lagsins Astraeus, en til stóð að
ráða um fimm íslenska flugmenn.
Yfirflugstjóri Astraeus, John Ma-
hon, kom hingað til lands fyrir
hálfum mánuði til að ræða við
umsækjendur. Var hann ánægður
með bakgrunn þeirra og reynslu
og hefur boðið nokkrum þeirra að
Áhöfnin boðin velkomin til Keflavíkurflugvallar.
koma til frekari viðræðna um
mögulegar ráðningar í höfuð-
stöðvum Astraeus á Gatwick-flug-
velli í marsmánuði.
Yfirflugstjórinn var sjálfur við
stýrið á þotu Iceland Express þeg-
ar hún kom í fyrsta sinn til Kefla-
víkur eftir að hafa flogið lágflug
yfir Reykjavík síðdegis gær.
í tilefhi af jómfrúrflugi Iceland
Express var efnt til tilboðs í fyrra-
dag á flugi til London og
Kaupmannahafnar rnn
helgina fyrir félaga í til-
boðsklúbbunum. Verðið
var 9.800 kr. báðar leiðir
með sköttum. Nokkrir
tugir sæta voru 1 boði á
hvorri leið og seldust upp
svo að segja samstundis.
Eins og fyrr segir ligg-
ur ekki fyrir hversu
margir íslenskir flug-
menn verða ráðnir, en
búið er að ráða 15 ís-
lenska flugliða, þar af 14
konur. Ólafur segir að
flugliðamir hafi farið til
þjálfunar hjá Astraeus þar sem
gerðar eru miklar kröfur. „Það er
skemmst frá þvi að segja að yfir-
menn félagsins eru yfir sig ánægð-
ir með íslendingana sem ráðnir
hafa verið.“
Þá má geta þess að á fostudag
koma hingað til lands á vegum fé-
lagsins 33 breskir blaða- og frétta-
menn til að kynnast landi og þjóð.
-HKr.
Reykvískur karlmaður, liðlega fer-
tugur að aldri, sem starfar sem rann-
sóknarlögreglumaður í Kópavogi, hefur
verið ákærður fyrir kynferðislega mis-
notkun gegn þremur ungum stúikum.
Málið hefur verið þingfest í Héraðs-
dómi Reykjavíkur og verður tekið þar
til meðferðar í byrjun apríl.
Það var í ágúst síðastliðnum sem
fram komu kærur er leiddu til þess að
málið var tekið tii rannsóknar. Teknar
voru skýrslur í Barnahúsi og maðurinn
yfirheyrður. Samkvæmt heimildum
blaðsins eru nokkur hinna meintu
brota talin hafa átt sér stað í íþrótta-
húsi Ármanns. Um áramótin sl. var
maðurinn svo ákærður. Brotin um-
ræddu eru talin hafa átt sér stað á árun-
um 1995-2000.
Samkvæmt upplýsingum blaðsins
varðar málið þrjár stúlkur sem allar
tengjast fjölskyldu mannsins. Þær voru
allar á barns- og unglingsaldri þegar
brotin eru talin hafa verið framin.
Meint kynferðisleg misnotkun er talin
hafa staðið yfir um skeið, þó mismun-
andi lengi eftir því um hverja stúlkn-
anna var að ræða.
Manninum hefur verið vikið tíma-
bundið úr starfi á meðan meðferð máls-
ins stendur yfir.
-JSS/ótt
boufique
Fyrir
flottar
konur
Bankastræti I 1 • sími 551 3930
Ertu á leið til útlanda?
Afnemum 24,5% vsk.
við kaup ó gleraugum
gegn framvísun á farseðli
Glerau
588-9988 i
Kringlunni
»jcn
, ‘Bónstöðín
IS-TEFLON
Bryngijái - lakkvörn
Hyrjarhöföi 7 • Simi 567 8730
EINN EINN TVEIR
NEYÐARLÍNAN
LÖGREGLA SLÖKKVILIÐ SJÚKRALIÐ
4