Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2003, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2003, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 22. MARS 2003 Fréttir DV Ekki um neina stefnu- breytingu að næða - segir meirihluti utanríkismálanefndar um afstööu ríkisstjórnarinnar til stríösins í írak Utanríkismálanefnd Alþingis fundaöi í gær vegna stríðsins í írak. Fulltrúar stjómarandstöðunnar í nefndinni lögðu fram bókun þar sem megnri óánægju var lýst yfir því að ríkisstjómin hefði vanrækt að sinna lögboðinni samráðsskyldu við nefndina um mikilsverð utan- ríkismál. Sagði að stuðningur stjórnarinnar við framgöngu Banda- ríkjanna í stríðinu hefði komið á óvart og að um stefnubreytingu hefði verið að ræða miðað við fyrri yfirlýsingar utanríkisráðherra. Meirihluti nefndarinnar lagði einnig fram bókun og taldi að engin stefnubreyting hefði orðið af hálfu íslenskra stjómvalda í afstöðu til hættunnar sem stafaði af ógnar- stjórninni í írak enda væri sú hætta almennt viðurkennd í samfélagi þjóðanna og undirstrikuð í fjölmörg- um ályktunum Sameinuðu þjóð- anna. íslensk stjórnvöld hefðu aldrei útilokað að styðja afvopnun íraks með valdi sem síðasta úrræði og að nægilegt samráð hefði verið haft við utanríkismálanefnd varð- andi málið. Halldór Ásgrímsson utanríkisráö- herra sagði eftir fundinn að í sjálfu sér hefði hann ekki breytt neinu. Hann benti á að ekki væri verið að skuldbinda Alþingi í þessu máli þar sem ísland væri ekki beinn aðili að átökunum eins og t.d. Danmörk en að hins vegar styddi íslenska ríkið þær aðgerðir sem nú stæðu yfir til þess að afvopna Saddam Hussein og fylgja þannig eftir ályktunum Sam- einuðu þjóðanna. Hann hefði þó alltaf vonast eftir því að Öryggisráð- ið kæmist að niðustöðu á nýjan leik og að mikil vonbrigði hefðu verið þegar Frakkar útilokuðu það. Steingrímur J. Sigfússon sagði að engin málsvörn hefði verið uppi af hálfu utanríkisráöherra gagnvart því hvernig þessi sinnaskipti hefðu átt sér stað. Utanríkismálanefnd og Alþingi heföu enga ástæðu haft til að ætla að ísland kúventi í afstöðu sinni og tæki upp þennan fyrirvara- lausa stuðning við Bandaríkin þar sem í umfjöllun á þingi í síðasta mánuði hefði ráðherra gefið í skyn hið gagnstæða, að afstaða íslands væri sú að nauðsynlegt væri að gefa vopnaeftirlitinu meiri tíma og að Öryggisráðið fjallaði á nýjan leik um málið. -EKÁ Akureyranbær stypkir fpumkvöðla Forsvarsmenn Akureyrarbæjar kynntu í gær reglur sem bæjarráðið samþykkti 4. mars síðastliðinn og varða stuðning bæjaryfirvalda við frumkvöðla og fyrirtæki í bænum, bæöi fyrirtæki með starfsemi í bæn- um og fyrirtæki sem hyggjast flytja starfsemi sína til bæjarins. í hinum nýju reglum kemur fram að Akureyr- arbær býður fram tímabundna að- stoð, að hámarki 3 ár, með samning- um við bæjarsjóð um greiðslu lóðar-, orku- og fasteignagjalda í samræmi við umsvif starfseminnar. Megináhersla verður lögð á stuðn- ing við verkefni sem lúta að nýsköp- un og fjölgun atvinnutækifæra í tengslum við sjávarútveg, iðnað, landbúnaö, hátækniiðnað og upplýs- ingatækni. Einnig verður lögð áhersla á samstarfsverkefni atvinnu- lífsins við Háskólann á Akureyri. „í reglunum kemur fram hvemig við sjáum Akureyrarbæ koma að uppbyggingu atvinnulífsins í bæn- um,“ segir Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, en áætlað er að upphæöir hvers styrks verði á bil- inu 1 til 4 milljónir, allt eftir eðli starfseminnar. Ekki veröur stutt við verkefni sem raska samkeppnisstöðu fyrirtækja á svæðinu og einungis fær eitt sambærilegt verkefni stuðning á hverjum tíma. Ef fyrirtæki flytur burt á meðan á stuðningi stendur þarf það að endurgreiða þann stuðn- ing sem það fékk á fyrsta ári. -ÆD Stuöningur Akureyrarbæjar kynntur á fundl í gær. Kristján Þór Júiíusson, bæjarstjóri á Akureyri, og Jakob Björnsson, for- maöur bæjarráós. Fjölmenni var á fundi um byggðamál á Akureyri í gær. Dregið verði úr mismun á lífskjörum - segir í skýrslu iönaöarráöuneytisins um byggðamál Um 80 manns, m.a. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra, sóttu málþing um byggðamál sem haldið var í Háskólanum á Akur- eyri í gær í tilefni útgáfu skýrslu iðnaöarráðuneytisins sem nefnist Fólk og fyrirtæki - um búsetu og starfsskilyrði á landsbyggðinni. í þingsályktun um stefnu hins opin- bera í byggðamálum fyrir árin 2002-2005, sem samþykkt voru á Alþingi vorið 2002, var lögð áhersla á að draga úr mismun á lífskjörum og afkomumöguleikum fólks milli byggðarlaga í landinu og skapa íbúum á landsbyggðinni sem hagstæðust búsetuskilyrði. Á grundvelli ályktunarinnar fól iðnaðarráöherra Hagfræðistofnun og Byggðarannsóknarstofnun að Valgerður Sverrisdóttir. kanna þann mun sem er á búsetu- CRraH skilyrðum íslend- Hf inga og aðstöðu fyrirtækja eftir landsvæðum og leggja fram tillög- | ur til úrbóta. Helstu niöur- stöður skýrslunn- ar eru þær að íslensk byggða- stefna miðar að stærstum hluta að því að jafna aðstöðu einstaklinga á landsbyggðinni og höfuðborgar- svæðinu. Þessi jöfnun birtist m.a. í beinum tilfærslum á milli sveit- arfélaga, jöfnun námskostnaðar og niðurgreiðslu á raforkuverði. Samtals er áætlað að kostnaður vegna þessara liða árið 2002 hafi verið um 8,5 til 8,7 milljarðar króna. Kemur fram í skýrslunni að íslensk byggðastefna, er lýtur að rekstri fyrirtækja, er í nokkrum veigamiklum atriðum ólík þeirri stefnu sem fylgt er eft- ir í næstu nágrannalöndum okk- ar. Helstu tillögur skýrsluhöfunda til úrbóta miða að því að efla þrjá stóra byggðakjarna utan höfuð- borgarsvæðisins: Norðurland með Akureyri sem miðpunkt, Vestfirði með ísafjörð sem miðpunkt og Mið-Austurland með Egilsstaði sem miðpunkt, með því að ein- beita sér að fjórum eftirtöldum þáttum: flutningskostnaði, mennt- un, samgöngubótum og bættum fjarskiptum. -ÆD Sala loönuverksmiðjunnar í Grindavík ekki á dagskrá Vilhelm Þopsteinsson landar kolmunna Loðnuverksmiðjur Síldarvinnsl- unnar á Reyðarfirði og Sandgerði hætta starfsemi vegna hagræðingar og á Raufarhöfn rekur fyrirtækið verksmiðju sem heimamenn óttast að verði lögð niður vegna þess að þar er ekki framleitt hágæðamjöl vegna þess að hráefnið er eldþurrkað. Flogið hafði fyrir að rekstri verk- smiðju Samherja í Grindavík yrði hætt eða hún seld. Óskar Ævarsson, verksmiðjustjóri í Grindavík, segir að verksmiðjan hafi verið í mikilli uppbyggingu, bæði meðan hún hét Fiskimjöl & lýsi og eins eftir að Sam- herji keypti hana, og hann hafi ekki hejrt neinar vangaveltur um sölu á verksmiðjunni. Björgólfur Jóhanns- son, forstjóri Síldarvinnslunnar, segir Síldarvinnsluna ekki vera að kaupa verksmiðjuna í Grindavík og telur reyndar mjög ólíklegt að Samherji selji þann „gullmola". Björgólfur seg- ir enn fremur engar áætlanir uppi um að leggja verksmiðjuna á Raufar- höfn niður. Á loðnuvertíðinni hefur verksmiðjan í Grindavík tekið á móti nær 55 þúsund tonnum og er sú fjórða hæsta. Mest magn hefur borist til Neskaupstaðar, 88 þúsund tonn, 59 þúsund tO Seyðisfjarðar og 56 þúsund tonn til Eskifjarðar. „Það eru sögusagnir í gangi um að verksmiðjan sé að hætta en starfsem- in er í fúllum gangi. Vilhelm Þor- steinsson EA var að landa 2.400 tonn- um af kolmunna í gær. Hann byrjaði í honum eftir að loðnuvertíðinni lauk. Hann fer einn eða tvo túra í viðbót á kolmunnann en síðan fer hann að veiða i frystingu, liklega karfa eða grálúðu. Okkar loðnukvóti er búinn og það er aðeins bátur á loðnuveiðum, Grænlendingurinn Siku GR, sem er nú á miðjum Faxa- flóa. Ég held að menn séu alveg bún- ir að gefa það frá sér að sjávarútvegs- ráðherra bæti viö loðnukvótann en auðvitað vorum við að vona það í lengstu lög,“ segir Óskar Ævarsson verksmiðjustjóri. -GG Úlpu og AL-007 stolið Lögreglunni á Akureyri var til- kynnt um þjófnað á úlpu í vikunni og Musso-jeppabifreið, blárri að lit. Var hún með því skemmtilega skrásetningamúmeri AL-007. Mað- urinn hafði farið á veitingastað og hengt úlpu sína með billyklunum í fatahengið. Þegar hann hugðist fara kom í ljós að úlpan var horfin. Þeg- ar maðurinn fór svo að athuga um jeppann var hann líka horfinn. Var jeppans enn leitað þegar síðast fréttist. -HKr. Féll af vinnupalli Maður féll af tveggja metra háum vinnupalli við Salaskóla í Kópavogi í gærmorgun. Maðurinn brotnaði á báðum ulnliðum og hlaut sprungu í höfuðkúpu. Hann var fluttur á slysa- deild og síðan lagöur inn til frekari athugunar. _eKÁ Brotist inn í bíla í höfuðborginni Þrjú mnbrot voru tilkynnt til lög- reglunnar í Reykjavik í gær. Brotist var inn í bíla í Grafarvogi og aust- urbænum og stolið þaðan m.a. far- tölvu, magnara og dvd-spilara. Ekki er enn vitað hveijir voru þar að verki og er málið í rannsókn. -EKÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.