Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2003, Blaðsíða 14
14
LAUGARDAGUR 22. MARS 2003
Fréttir
DV
Hægri hönd Saddams Husseins og aðstoðarforsætisráðherra íraks:
Fastur fyrir og snjall
sSórnmálamaðiir
Diplómatískur málsvarl íransstjórnar
Tariq Aziz lagöi stund á enskar bókmenntir og starfaöi sem blaöamaöur á árum áöur - var ritstjóri tveggia stærstu dagblaöanna í írak.
Tariq Aziz, aðstoðarforsætisráð-
herra íraks, þykir nokkuð sérkenni-
legur fugl í stjórn Saddams
Husseins. Aziz er kristinnar trúar
og ekki á neinn hátt tengdur inn í
Tikriti sem er ættbálkur Saddams.
Aziz fæddist árið 1936 inn í efna-
litla fjölskyldu og ólst upp í borg-
inni Mosul sem er í norðurhluta
íraks. Hann var skírður Michael
Yuhanna en breytti nafni sínu í
Tariq Aziz til að eiga greiðari að-
gang inn í heim múslíma. Merking
nafnsins er „glæsileg fortíð".
Studdi Saddam frá upphafi
Aziz lagði stund á enskar bók-
menntir við Listaháskólann í
Bagdad en hóf störf sem blaðamað-
ur árið 1958 og sem slíkur starfaði
hann fyrir öll helstu dagblöð í írak
og var ritstjóri á tveimur þeirra, al-
Jamaheer og al-Thawra en það síð-
arnefnda er málgagn stjórnmála-
flokks Saddams Husseins. Yfirlýst-
ur tilgangur flokksins var að steypa
þáverandi stjóm af stóli og var
flokkurinn bannaður. Sagan segir
að Aziz og Saddam hafi kynnst á
fundi hjá flokknum sem heitir
Ba’ath.
Aziz sagði einu sinni í viðtali að
hann hefði laðast að hugmynda-
fræði Ba’ath likt og aðrir ungir
menn í landinu. „Við vorum
óánægðir með ástandið og töldum
að keisarafjölskyldan yrði að fara
frá til þess að hægt væri að bæta
lífskjör í landinu."
Skjótur frami
Frami Aziz í stjómmálum var
mjög hraður eftir að Saddam
Hussein komst til valda árið 1968,
enda studdi hann Saddam í einu og
öllu í baráttu siimi til að ná völdum.
Aziz hefur setið í óteljandi nefndum
og ráðum á vegum flokksins. Árið
1970 var hann gerður að upplýsinga-
málaráðherra og hann sat í æðsta
ráði flokksins frá 1975 til 1977, en þá
tók hann sæti í byltingarráði íraks.
Árið 1979 var Tariq Aziz gerður
að aðstoðarforsætisráðherra og hef-
ur starf hans aðaUega falist í því að
vera diplómatískur málsvari stjóm-
arinnar og útskýra ákvarðanir
hennar fyrir umheiminum.
Skömmu eftir að Aziz tók við stöðu
aðstoðarforsætisráðherra íraks var
gerð tUraun tU að myrða hann en
tUræðismaðurinn komst naumlega
undan.
Aziz er fljúgandi mælskur, á auð-
velt með að skýra málstað sinn og
snúa mönnum á sitt band. Það var
hann sem fékk Bandaríkjamenn tU
að styðja írak í stríðinu við íran og
tryggði ríkulegan fjárstuðning frá
fyrrverandi Sovétríkjum á sínum
tima. Árið 1984 hitti hann Ronald
Reagan, þáverandi forseta Banda-
ríkjanna, í Hvita húsinu tU skrafs
og ráðagerða.
Neitaði að taka við bréfi frá
Bush
Þegar írak gerði innrásina í
Kúveit árið 1991 kom það í hlut Aziz
að verja aðgerðir stjómarinnar fyr-
ir alþjóðasamfélaginu. Hann heim-
sótti fjölda landa í þeim tUgangi að
afla innrásinni fylgis og átti meðal
annars fund með James Baker, ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna.
Helstu rök hans voru að aukin
framleiðsla olíu í Kúveit væri skað-
leg fyrir efnahaginn í írak.
Aziz komst í sviðsljós fjölmiðl-
anna skömmu áður en kalinn mUli
íraks og Bandaríkjanna varð um-
heiminum ljós þegar hann neitaði
að taka við bréfí úr höndum Bakers.
Bréfið var frá George Bush eldri
Bandaríkjaforseta og ætlað Saddam
Hussein.
Aziz hefur fordæmt arabaríkin
harðlega fyrir undirlægjuhátt
þeirra gagnvart Bandaríkjunum og
sagt að það sæmdi ekki virðingu
þeirra. Hann hefur einnig gagnrýnt
Bandaríkin margoft fyrir viðskipta-
bannið á frak sem fylgdi í kjölfar
Persaflóastríðsins. Að hans sögn er
viðskiptabannið rannið undan rifj-
um utanríkisstefnu stjómarinnar í
Washington en ekki frá Sameinuðu
þjóðunum.
í febrúar 2003 átti Aziz fund með
Jóhannesi Páli páfa þar sem hann
fuUyrti að írakar ættu ekkert af
þeim vopnum sem Bandaríkjamenn
segðu þá búa yfír. Hann neitaði
einnig öflum tengslum stjómarinn-
ar í írak við hryðjuverkasamtök bin
Ladens og líkti fuUyrðingum um
slíkt við söguþráðinn í lélegum am-
erískum vestra.
Orðrómur um flótta
Gleraugun og vindUlinn em ein-
kennismerki Aziz og hefur útlit
hans þótt minna á skemmtikraftinn
Groucho Marx. Tariq Aziz er fastur
fyrir og snjall stjómmálamaður.
Enda þykir mörgum merkUegt
hversu lengi hann hefur starfað við
hlið Saddams Husseins án þess að
vera vikið úr sæti.
Nokkrum klukkustundum áður
en innrás Bandaríkjamanna í írak
hófst bárust fregnir frá Bagdad um
að Aziz hefði yfirgefið sökkvandi
skip og flúið land. Hann kom fram í
sjónvarpi skömmu síðar og dró
orðróminn tU baka. Hann sagði að
sögusagnimar væru liður í áróðurs-
herferð Bandaríkjanna tU að grafa
undan samheldni þjóðarinnar og að
það mætti búast við fleiri slíkum
gróusögum á næstu dögum. „Þetta
er ódýrt hernaðarbragð.“
I sjónvarpsræðu sinni sagði Aziz
að greinUega væri öU von úti um að
ná pólitísku samkomulagi í íraks-
deUunni. Hann endurtók að írak
væri tUbúið í stríð og að innrás
Bandaríkjahers i landið væri ekkert
annað liður i heimsvaldastefnu
Bandaríkjanna og ætti ekkert skylt
við frið. „Bandaríkjamenn hafa völd
en þeir eru heUalausir."
Azis í Páfagarði
Azis hitti páfa fyrir mánuöi og á þeim fundi fullyrti hann aö írakar ættu ekkert af þeim vopnum sem Bandaríkja-
menn segja þá búa yfir. Hann neitaöi einnig öllum tengslum stjórnarinnar í írak viö hryöjuverkasamtök bin
Ladens og líkti fullyröingum um slíkt viö söguþráöinn í lélegum amerískum vestra.