Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2003, Blaðsíða 8
8
LAUGARDAGUR 22. MARS 2003
Útlönd
DV
Stríðið í írak
Atburðarásin
Föstudagur 21. mars
00:37 Bandarísk CH-46 herþyrla
ferst í Kúveit og með henni íjögurra
manna bandarísk áhöfn og átta
breskir hermenn. Enginn komst lífs
af.
01:05 Tilkynnt um griðarlega
sprengingu í nágrenni olíuborgar-
innar Basra, í suðurhluta Iraks.
04:45 Þrjár öflugar sprengingar
verða 1 nágrenni olíuborgarinnar
Mosul, í norðurhluta íraks.
05:20 Fréttir berast af öflugri mót-
spymu liðssveitar íraska hersins
rétt handan við landamæri Kúveits.
05:30 Fyrstu írösku hermennimir,
sem vitað er um, gefast upp fyrir
breskum hermönnum í suðurhluta
Iraks, nálægt landamærum Kúveits.
07:39 Fréttir berast af hörðum bar-
dögum bandarískra sérsveita og liðs-
manna Irakshers í nágrenni olíu-
borgarinnar Kirkuk, í norðurhluta
íraks.
07:55 Breskar hersveitir ná öllum
Faw-skaga, í suðurhluta íraks, á sitt
vald en mæta mikilli mótspymu við
hafnarborgina Umm Qasr.
08:20 Breski herinn upplýsir að
írakar hafi kveikt í allt að þrjátíu ol-
íulindum í suðurhluta íraks.
09:30 Tilkynnt að deilur milli banda-
rískra og tyrkneskra embættis-
manna hafi seinkað opnun tyrk-
neskrar lofthelgi fyrir flugi banda-
riskra herflugvéla.
10:00 Tilkynnt að íraski herinn veiti
bandarískum hersveitum enn mót-
spymu í hafnarborginni Umm Qasr.
10:05 Stórar B-52 sprengjuflugvélar
hefja sig til flugs frá breskum flug-
völlum til loftárása á írak.
10:13 Talsmaður iraska hersins til-
kynnir að Saddam Hussein sé
ómeiddur og í fullu fjöri. Hann neit-
ar því einnig að íraskir hermenn
hafi gefist upp fyrir innrásarliði
bandamanna.
10:30 Kúveiska vamarmálaráðuneyt-
ið tilkynnir að írösk stýriflaug hafi
verið skotin niður yfir Kúveit.
10:45 Einn leiðtogi stjómarandstæð-
inga í írak segir að hersveitir þeirra
hafi handtekið fjölda hermanna hlið-
hollan Saddam í nágrenni olíuborg-
arinnar Kikuk í Norður-Irak.
11:00 Talsmaður bandaríska hersins
segir að hafnarborgin Umm Qasr
verði fljótlega á valdi bandamanna.
11:15 írösk fréttastofa tilkynnir að
Saddam íraksforseti hafi heitið
hverjum þeim hermanni sem hand-
tekur liðsmann innrásarhersins eða
grandar óvinaflugvél veglegu verð-
launafé.
11:45 Bandarísk stjómvöld staðfesta
aö bandarískur sjóliði hafi fallið í
dag og er hann fyrsti hermaður
bandamanna sem fellur í beinum
átökum.
14:45 Bandarískir hermenn upp-
götva tvo vöruflutningapramma
fullhlaðna sprengiefni sem ætlað
er til þess að sökkva skipum.
Pramminn var stöðvaður rétt áður
en hann hélt úr höfn Umm Qasr.
15:00 Bandarískar hersveitir ná til
lykilborgarinnar Nasariya á bökk-
um Efrat og mæta þar harðri
mótspymu.
15:30 Tilkynnt að bandarískar her-
sveitir hafa náð tveimur mikil-
vægum flugvöllum á sitt vald í
vesturhluta íraks.
15:30 Bush Bandaríkjaforseti segir
að stríðið sé að skila árangri.
16:10 Chirac Frakklandsforseti
segir að Frakkar muni ekki viður-
kenna bandarísk/breska stjóm í
írak eftir stríð.
16:30 Breski herinn tilkynnir að
olíuborgin Basra verði fljótlega
hertekin og að hafnarborgin Umm
Qasr sé nú á valdi bandamanna.
16:45 Fréttamönnum fyrirskipað að
yfirgefa Bagdad.
17:05 Kröftugar loftárásir hefjast á
Bagdad með gífurlegu sprengjuregni.
Ógnarsóknin hófst með
grfurlegu sprengjuregni
Bandarískar sprengjuflugvélar af
gerðinni B-52 hófu síðdegis í gær
öfluga sprengjuárás á Bagdad eftir
langt flug frá herflugvöllum í Bret-
landi, en fyrstu vélarnar hófu sig
þaðan til flugs upp úr klukkan tíu í
gærmorgun.
Sprengjuregnið var gífurlegt og
var öll áhersla lögð á að veikja
vamarlínur íraka í útjaðri borgar-
innar.
írakar svöruðu árásinni með öfl-
ugri loftvarnaskothríð en máttu sín
lítils gegn háfleygum stálfuglunum.
Eftir gifurlegt sprengjuregn frá B-
52 vélunum tók við öflug eldflauga-
árás frá sjó, landi og lofti og var um
þrjátíu sprengjuflaugum skotið á
miðborg Bagdad með skelfilegum af-
leiðingum.
Eldar kviknuðu víða í borginni
en árásin, sem Donald Rumsfeld,
varnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna, kallar „ógnarsóknina" og boð-
uð var í upphafi aðgerða, stóð
Donald Rumsfeld
Donald Rumsfeld, varnarmála-
ráöherra Bandaríkjanna, segir aö
íraska stjórnin sé aö liöast í sundur
stanslaust í meira en eina og hálfa
klukkustund.
Einnig vom gerðar loftárásir á
borgirnar Kirkuk og Mosel, í norð-
urhluta Iraks.
Á sama tíma halda aðgerðir
áfram á landi og var olíuborgin
Basra við það að falla í hendur
bandamanna eftir að bandarískum
hersveitum hafði tekist að brjótast í
gegnum vamir íraka í hafnarborg-
inni Umm Qasr í suðausturhluta
íraks.
Önnur aðgerð var í gangi í ná-
grenni borgarinnar Nashriya á
bökkum Efrat en taka hennar er
lykilatriði í aðgeröunum þar sem
leiðin til Bagdad liggur tun borgina
yfir borgarbrúna á Efrat.
„Við höfum brotið niður alla mót-
spymu í Umm Qasr og borgin er al-
gjörlega á okkar valdi,“ sagði einn
talsmanna bandariska hersins rétt
áður en loftárásirnar hófust á
Bagdad.
Donald Rumsfeld sagði í ávarpi
fljótlega eftir loftárásimar að svo
virtist sem íraska stjórnin væri að
missa tökin í landinu og að fljótlega
mætti búast við breyttum viðhorf-
um hjá nánustu samstarfsmönnum
Saddams.
REUTERSMYND
Bandamönnum fagnaö.
Opnun lofthelgi
Tyrklands fnestað
Háttsettur Hamas-foringi handtekinn:
Hvetja íraka til að beita
sjálfsmorðsárásum
Tyrknesk stjómvöld frestuðu því í
gær að opna lofthelgi sína fyrir flugi
bandarískra herflugvéla eftir að deila
kom upp í viðræðum þeirra við
bandaríska embættismenn. Tyrk-
neska þingið hafði áður samþykkt í
atkvæðagreiðslu að opna Bandaríkja-
mönnum flugleiðina yfir Tyrkland til
íraks.
„Við gerðum hlé á viðræðunum eft-
ir aö upp komu deilur, bæði varðandi
lofthelgina og flutning tyrkneskra
hermanna yfir landamærin til íraks,“
sagði talsmaður tyrkneska utanríkis-
ráðuneytisins í viðtali í gær og bætti
við að hann vonaðist til þess að við-
ræður gætu haldið áfram í gærkvöld.
Deilan snýst um það að Bandaríkja-
menn vilja ekki gefa Tyrkjum leyfi til
þess að fara með hersveitir inn í írak
af ótta við að til átaka komi milli
þeirra og Kúrda. Bandaríkjamenn
eiga á móti erfitt með að kyngja því að
fá ekki leyfi til þess að fylla vélar
sínar eldsneyti á herstöðvum sínum í
Tyrklandi.
ísraelskum hermönnum tókst í gær
að hafa hendur í hári Hamas-foringj-
ans Raeds Hutris sem sakaður erum
að hafa skipulagt fjölda sjálfsmorðs-
árása á síðustu mánuðum og árum og
þar á meðal árásina á næturklúbbinn
í Tel Aviv í júní árið 2001 þar sem
meira en tuttugu manns létu lífið.
Hutri Vcir handtekinn við húsleit í
bænum Qalqilya á Vesturbakkanum
eftir að Hamas-samtökin höfðu hvatt
íraka til þess að beita sjálfsmorðsárás-
um gegn innrásarliði bandamanna.
„frakar ættu að nota okkar aðferðir
og gyrða sig sprengjubeltum. Það hef-
ur reynst okkur vel í baráttunni gegn
innrásarliði síonista," sagði Abdel
Aziz-al-Rantisi, einn helsti leiðtogi
Hamas-samtakanna á Vesturbakkan-
um i viðtali við Reuters-fréttastofuna
í gær.
Hamas-liöar sýna Saddam stuðning
Hamas-samtökin hvetja íraka til
þess aö beita sjálfsmorösárásum
gegn innrásarliöi bandamanna.
Blair vottaði þeim látnu virðingu
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, vottaði í gær bresku her-
mönnunum átta, sem fórust í
þyrluslysinu í Kúveit í fyrrinótt,
virðingu sína og sagði að þeir verð-
skulduðu þakklæti og virðingu
þjóðarinnar. Blair, sem ávarpaði
þjóð sín frá Brussel, þar sem hann
var staddur á leiðtogafundi ESB,
sagði að atvikið sannaði hættuna
sem breskir hermenn stæðu
frammi fyrir. „Þetta voru
hugrakkir menn sem voru tilbúnir
til þess að fórna lífi sínu til heilla
fyrir þjóð sína og alla
heimsbyggðina,“ sagði Blair.
Tveggja iierþyrlna saknað
Tveggja smærri herþyrlna í eigu
rússneska hersins er saknað í
Tsjetsjeníu eftir bardaga við tsje-
tsjenska uppreisnarmenn.
Aö sögn rússneska vamarmála-
ráðuneytisins rofnaði allt samband
við þyrlumar í miðjum átökum í
fyrradag og höfðu þær ekki fundist
i gær þrátt fyrir mikla leit.
Mótmælavepkfall
f ..^ ' afboðað
r Boðað mótmæla-
verkfall fimm mús-
límskra stjóm-
arandstöðuflokka í Pakistan, sem
boðað var til vegna stríðsins í írak,
var afturkallað í gær vegna lítils
áhuga. Umræddir flokkar eru þó
ekki af baki dottnir og hafa boðað
til „milljón manna“ mótmælagöngu
á sunnudag, á þjóðhátíðardegi
Pakistana.
Verðhpun á olíu
Verð á olíu hélt áfrarn að falla á
mörkuðum í gær þrátt fyrir að
fréttir hefðu borist af því að írakar
hefðu kveikt í þrjátíu af 1685 olíu-
lindum sínum og er verðfalliö orðið
25% á einni viku. Ástæðan er sögð
sú að Sádi-Arabar hafi síðustu daga
dælt mun meiri olíu út á markað-
inn vegna yfirvofandi stríðs í írak.
Átján saknað eftip Tígna-árás
Að minnsta kosti átján manns er
saknað eftir að árás var gerð á kín-
verskan smátogara úti fyrir austur-
strönd Sri Lanka í gær. Talið er að
liðsmenn tamílsku Tígranna hafi
staðið að árásinni á hraðskreiðum
byssubátum sínum.
Alls 27 manns voru í áhöfn tog-
arans og sagði einn þeirra sem af
lifðu að meintir Tígrar hefðu um-
kringt togarann á hraðbátum sín-
um og síðan skotið hann í kaf með
sprengjuvörpum.
Ráðist á þpjáp hepstöðvap
Bandarískar sérsveitir leituðu í
gær, annan daginn í röð, að liðs-
mönnum al-Qaeda-samtakanna í
fjafllendi Suður-Afganistans, í stór-
aðgerð sem kölluð er „Valiant-
áhlaupið". Á sama tíma og aðgerð-
in stóð sem hæst í nágrenni borg-
arinnar Kandahar urðu þrjár
bandarískar herstöðvar austur af
Kandahar fyrir hörðum eldflauga-
árásum, þeim öflugustu í langan
tíma að sögn talsmanns hersins.
Um þúsund hermenn taka þátt í
umræddri aðgerð, sem hefur lítinn
árangur borið, en þó hafa að
minnsta kosti tólf grunaðir liðs-
menn al-Qaeda verið handteknir
auk nokkurra liðsmanna stríðs-
herrans Gulbuddins Hekmatyars.