Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2003, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2003, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 22. MARS 2003 HeIqqrblað DV 23 ... eitthvað fyrir þig? Loksins, loksins segja líklega margar konur vegna þeirra fregna a& MAC-förðunarvör- urnar munu nú fljótlega fást á Islandi. Vörurnar munu frá og með maí verða fáanlegar í snyrtivörudeild Debenhams í Smáralind og samkvæmt upplýsingum DV munu þær fá gott pláss. Merki þetta, sem verið hefur á markaðn- um siðan 1985, hefur lengi verið í miklu uppáhaldi hjá förðunarfræðingum og nota förðunarfræðingar sjónvarpsþáttanna „Sex and the city", „Friends" og „Will and Grace" t.d. MAC-vörur við förðun leikaranna. MAC er nú fáanlegt i meira en 44 löndum en fyrirtækið markaðssetur förðunarvörur sín- ar sem vörur fyrir alla kyn- þætti, allan aldur og fyrir bæði kynin. Fyrirtækið hefur einnig látið að sér kveða í góðgerðarmálum og hefurt.d. siðan 1994 verið með sérstak- an „Aids-fund", sjóð sem styð- ur eyðnisjúka. MAC-vörurnar hafa hlotið góða dóma víða um heim og hafa margoft hlot- ið verðlaun glanstimaritanna þegar verið er að velja bestu förðunarvörurnar. MAC væntanlegt til íslands 30 ára gömul getnaöarvörn: Reiknivél fyrir tíðahringinn Blaðamanni DV barst upp i hend- urnar þetta undratæki sem gengur undir nafninu „C.D. Indicator". Ekki er vitað með vissu hversu gamalt þetta tæki er en það er þó allavega 30 ára. Tæki þetta er svokölluð tímareiknivél og þjónar hún þeim til- gangi að reikna út örugga daga tíðahringsins. Eigandi tiðareiknivél- arinnar getur með einu handtaki stillt tækið á dagsetninguna þegar tiðir byrja og samstundis sjást þeir dagar sem frjóvgun er möguleg. All- ar konur með tímalengd milli 21og 38 daga á tíðahringnum geta notað þetta tæki sem er frá Sviss. Ekki veit blaðamaður til þess að þessi gerð af tíðareiknivél sé seld í verslunum en ekki er ólíklegt að tæki sem þetta leynist í skúffum víða um landið. Ryðf ríar skrúfur og festingar ArmúU 17, ÍOB HeiMnA sIml, 533 1534 fax. 5EB 0499 ..það sem fagmaðurinn notar! w w w. i S 0 Kjóladagar hjá Sissu tískuhúsi Ný sending af kjólum 20% afsláttur 21. og 22. mars (st.36-52) issa tískuhús Hvesfisgötu 52, sfmi 562 5110. MSSÍS'MJJL litAfC ÞJÁLFUNAR OG ÆFINGARPUNKTAR Margir íþróttamenn hafa greint frá þráhyggju sinni í mat og ofsahræðslu við að fitna og öfgakenndri neyslu hægðalyfja til að hafa stjórn á þyngd sinni. Dæmi um íþróttamenn sem eru í mikilli áhættu á að verða fórnarlöm átröskunar og ofþjálfunar eru ballettdansarar, fimleikafólk, sundfólk og langhlauparar. íþróttamenn sem missa vöðvamassa standa verr að vígi því vöðvatap hefur neikvæð áhrif á líkamlega getu. Breytingar sem verða á hormónaflæði og tap á næringarefnum úr líkamanum hafa meðal annars þau áhrif að bein veikjast og rýrna og brot verða algeng. Þynning beina er sérstaklega áberandi hjá íþróttakonum sem hafa misst úr blæðingar vegna ofþjálfunar. Staðreyndin er sú að vannæring, tap á beinmassa og stopular blæðingar eru þrjú helstu sameiginlegu vandamálin sem hrjá ofþjálfaðar íþróttakonur. Reglubundin hófleg þjálfun gerir okkur gott en ofþjálfun, ekki síst ef hún helst í hendur við orkusnautt mataræði, brýtur líkamann niður og flýtir fyrir öldrun hans. Vörumst allt offors! MATSEÐILL DAGSINS Dagur 36 Morgunverður: Weetabix 2 stk Ávaxtasúrmjólk 2,5 dl Kíví 1 stk. Hádegisverður: Púrrulaukssúpa (t.d. Toro) 3 dl Brauð 1 sneið Lifrarkæfa 1 msk. Miðdegisverður: Mjólkurkex 2 stk. Fjörmjólk 1 glas Mandarínur 2 stk. Kvöldverður: Svínakótelettur, steiktar 150 g Kartöflur 3 ''eggstórar Salat, blandað 100 g + Piparsósa *dl "Bluss" 2 dl Kvöldhressing: Karamellubúðingur 2 dl Rjómi, þeyttur 2 msk. Lystarstol (anorexia nervosa) og lotugræðgi (bulimia nervosa) eru eflaust ýktustu form átröskunarsjúkdóma og eiga sér ekki langa sögu innan læknisfræðinnar. í dag eru rúm 300 ár sfðan lystarstol var fyrst skilgreint en rétt um 120 ár síðan sjúkdómnum var gefið nafn, en það var ekki fyrr en árið 1979 að lotugræðgi var fyrst greind sem sérstakur læknisfræðilegur kvilli. Svo virðist sem tíðni þessara sjúkdóma haldist í hendur við þjóðfélagslega velmegun - því meiri sem velmegunin er þeim mun fleiri verða þeim að bráð. Nú til dags er grannt holdarfar dásamað (sérstaklega þegar um kvenfólk er að ræða) og grannholda stúlkur settar á stall sem tákn fyrir hina fullkomnu fmynd kvenlegs i yndisþokka eins og sjá má f tísku- og líkamsræktarblöðum og í fegurðarsamkeppnum. Margir muna eftir unglingastjörnunni Twiggy sem á sjöunda áratugnum var fyrirmynd margra stúlkna um vestrænan heim. Twiggy, sem var mjög horuð, er talin hafa þjáðst af lystarstoli en vaxtarlag hennar varð fyrirmynd margra ungra stúlkna sem neyttu allra ráða til að líkjast átrúnaðargoði sínu sem mest. Á sama hátt og offita getur haft neikvæð áhrif á líkamsstarfsemi og | heilbrigði getur mjög magurt holdarfar leitt til ýmissa kvilla, eins og vannæringar og röskunar á eðlilegum tíðum kvenna. Hér sannast hið fornkveðna: Hinn gullni meðalvegur er vandrataður! Kveðja, Ólafur G. Sæmundsson næringarfræðingur HReyrmG
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.