Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2003, Síða 25
LAUGARDAGUR 22. MARS 2003
He I c) ct rb lci ö JOV
25
DV-mynd GVA
Þegar Sigurður
undirbýr fram-
reiðslu á
lambaþrenn-
unni sprautar
hann grænertu-
og kartöflu-
maukinu fyrst á
diskinn og
stingur svo £
það blönduðu
smjörsteiktu
grænmeti af
ýmsum gerðurn.
Humarinn er girnilegur nýkominn undan logheitu grillinu í ofnin-
uni en áður var hann penslaður með hvítlaukssmjöri og að grillun
lokinni má skreyta hann með þurrkaðri steinselju eða öðru lítið af-
gerandi kryddi.
Hér tyllir Sigurður humrinum ofan á eina lambakjötssneiðina af
þremur en á hinum tveimur er hörpufiskur.
TOMMASi
Viticoltori
Rafael
1997
_ VaLPOLICELLA
'-ASsico SuPEftlOBÉ
Tommasi á ljúfum nótum
og Gampo Viejo frá Rioja
- er val Sigurðar Bjarkasonar hjá Allied Domeq
Það er ekki alltaf hlaupið að því að velja vín með
mat, sérstaklega ef réttimir eru samsettir á sama
máta og hér til hliðar eða þegar kryddblandan er
flókin. Krydd geta haft ólík áhrif á vín, bókstaflega
breytt þeim. Gott er að hafa í hug að matur með
súru bragði getur mildað súr vín svo þau verða
ljúffengari. Aftur á mót getur sætur matur aukið á
sýru og beiskju í víni þannig að það virðist þurr-
ara og ekki eins ávaxtaríkt. Ef mikið salt er í mat
verður vínið bragðminna. Þá getur pipar einnig
mildað kröftug vín. En þegar upp er staðið snýst
þetta auðvitað um smekk. Það er enginn stóri
sannleikur í þessum efnum þó gott sé að hafa eitt
og annað í huga til að forðast megi óþægilegar upp-
ákomiu-.
Ef við beinum sjónum okkar að réttunum hér til
hliðar og vínum sem gætu gengið með er ljóst að
gesti okkar er svolítill vandi á höndum. Sigurður
Bjarkason, viðskiptastjóri léttra vína hjá Allied
Domeq, sagði réttinn nefnilega töluvert snúinn þar
sem lamb, hörpuskel og humar væru á sama diski.
En þar sem lambið virðist allsráðandi í réttinum
endaði valið á að mildu og þægilegu rauðvíni,
Tommasi Rafael 1999. Tommasi-vínin koma frá
Valpolicella-svæðinu á Ítalíu og óhætt að segja að
þau hafi hitt landsmenn margar í hjartastað og
runnið ljúflega ofan í þá. Þannig þekkja fjölmargir
vín eins og Tommasi Soave hvítvín og Tommasi
Amarone sem fær 91 stig af 100 mögulegum í
nýjasta hefti hins virta tímarits Wine Spectator.
Tommasi Rafael er flauelsmjúkt vín en undir-
tónninn er nokkuð kryddaður. Og ef vel er að gáð
og bragðlaukamir „spenntir" svolítið má jafnvel
greina rósapipar.
Þetta ítalska gæðavín, Tommasi Rafael
1999, fæst í öllum verslunum ÁTVR og
kostar flaskan 1350 krónur.
Annað vln ætti að ganga með þessari
lambapiparþrennu er spænska vínið |
Campo Viejo Reserva 1997. Þetta ágæta
vín á rætur að rekja til Rioja á Spáni. Það
hentar ákaflega vel með lambakjöti, um það
vitna fjölmargir. Hins vegar er spennandi að
prófa hvemig humarinn og þá sérstaklega
hörpuskelin fara með víninu þegar piparinn
er kominn í málið. Það er um að gera að
prófa þar sem vín em annars vegar og vera
þá alls óhræddur.
Campo Viejo Reserva fæst einnig í öllum
verslunum ÁTVR og kostar þar 1350 krónur.
Umsjón
Haukur Lárus
Hauksson