Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2003, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2003, Síða 32
32 Helqarblad DV LAUGARDAGUR 22. MARS 2003 Skjótt skipast... Vindarnir blása úr ýmsum áttum í veröld knattspyrnunnar. Ekki er langt síöan Arsenal átti greiða leið í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu, jafn- aði enskt met með því að ná í 8-liða úrslit bikarkeppn- innar í 23. skipti í sögunni auk þess sem liðið var með átta stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. En nú, aðeins tveimur vikum síðar, er staðan önnur. Liðið er meiðslum hrjáö og hafa stuðningsmenn félagsins upplifað vonbrigði á vonbrigði ofan, hvort sem litiö er til Evrópu eða Englands. Meistarabaráttan í Englandi er nú galopin og allt get- ur gerst. Forysta Arsenal er ekki nema tvö stig þegar átta umferðir eru eftir og bæði Manchester United og Newcastle hafa verið á fljúgandi siglingu upp á síðkast- ið. Það er því ekki úr vegi að spá í leiki helgarinnar en á dagskránni eru viðureignir sem vel má hugsa sér að gætu skipt sköpum að endingu í maí þegar langri og strangri keppninni lýkur. Nær Arsenal fram hefndum? Leikmenn Arsenal eiga sennilega enga ósk heitari en að ná fram hefndum gegn Everton í dag, en magnað mark undrabarnsins Wayne Ronney, sem batt enda á 30 leikja sigurgöngu Arsenal fyrr í vetur, er sennilega enn mörgum í fersku minni. Hann varð með því yngsti leik- maðurinn til að skora í ensku úrvalsdeildinni frá upp- hafi. Arsenal er fjarri því að geta stillt upp sínu sterkasta liði. Fyrirliðinn Patrick Viera og varnarmennirnir Martin Keown, Sol Campbell og Ashley Cole hafa allir þegar verið útilokaðir frá þátttöku vegna meiðsla og fátt bendir til þess að markvörðurinn David Seaman geti leikið sinn 1000. leik á ferlinum. Liöið á auk þess erfið- an útileik fyrir höndum á þriðjudag gegn Chelsea í 8- liða úrslitum FA-bikarkeppninnar. En það fer ekki á milli mála að David Moyes, knatt- spyrnustjóri Everton, hefur unnið kraftaverk með lið sitt. Leikmennirnir vilja ólmir halda áfram að koma á óvart, eins og þeir hafa reyndar verið að gera allt tíma- bilið, en áður en keppnistímabilið hófst hafa ábyggilega fáir spekúlantar veðjað á að Everton væri í bullandi meistaradeildarbaráttu á þessum tímapunkti. Nær United toppsætinu? Fyrst leikur Arsenal og Everton fer ekki fram fyrr en á sunnudaginn á Manchester United góða möguleika á að ná toppsætinu, í að minnsta kosti einn sólarhring eða svo. Ef það tekst verður það í fyrsta skipti síðan 24. mars á síðasta ári sem United trónir á toppnum. Liðið hefur ekki enn tapað deildarleik á árinu en það var Middlesbrough sem síðast bar sigurorð af United annan í jólum. David Beckham og Ruud Van Nistelroy koma að nýju inn í lið United en fyrirliðinn Roy Keane og Juan Sebastian Veron eru enn meiddir. Fulham verður án hægri bakvarðar síns, Steve Finnan, en hann er að öll- um líkindum með brákað rifbein. Þá mun Mike Taylor standa á milli stanganna að nýju eftir að hafa tekið út eins leiks bann um síðustu helgi. Skemmtun á St. James’ Park Eftir aö hafa unnið Arsenal sannfærandi um síðustu helgi í sínum fjórða sigurleik i röð mæta leikmenn Blackburn vafalaust kokhraustir til leiks í Newcastle í dag. En það sem af er keppnistímabilinu hafa félög ekki uppskorið mikið úr heimsóknum sínum á St. James’ Park. Frá því 11. september sl., þegar Leeds gerði góða ferð og sigraði 0-2, hefur Newcastle unnið 13 leiki og gert eitt jafntefli á heimavelli sínum, og þess má geta að jafnteflið gegn Arsenal kom fyrir ekki löngu siðan. Spænsku risarnir í Barcelona bundu enda á ævintýri Bobby Robson og félaga í Meistaradeildinni á miðviku- daginn var og geta leikmenn Newcastle nú einbeitt sér að fullu í deildinni. Félagið á enn möguleika á titlinum en til þess að sá möguleiki gangi því ekki úr greipum má liðið helst ekki við því að tapa stigum. Leikmenn liðanna áttu ekki erfitt með að finna leið- ina að netmöskvunum í fyrri leik liðanna í haust. Þá sigraði Blackburn í frábærum knattspyrnuleik, 5-2. Þarna mætast tvö af allra skemmtilegustu sóknarliðum deildarinnar svo ekki er von á neinu öðru en frábærri skemmtun. Zola í nýju hlutverki Á Stamford Brigde í London fá Eiður Smári Guðjohn- sen og félagar hans í Chelsea lið Manchester City í heimsókn. Chelsea er sem stendur í 4. sæti deildarinn- ar og vilja leikmennirnir væntanlega ekki sleppa takinu á því sæti þar sem það er það síðasta sem gefur þátt- tökurétt í Meistaradeild Evrópu að ári. Manchester City siglir hins vegar lygnan sjó um miðja deild og hefur í raun að engu að keppa. Claudio Ranieri, þjálfari Chelsea, kom mikið á óvart með liðsuppstillingu sinni um síðustu helgi en þá lék hann 3-5-2 leikkerfi í stað hins hefðbundna 4^4-2. Þá lét hann ítalann knáa Gianfranco Zola leika í frjálsri stöðu rétt fyrir aftan þá Eið Smára og Jimmy Floyd Hassel- bank sem voru í fremstu víglínu. Þessi breyting kom vel út og spilaði Chelsea einkar vel gegn Birmingham. Eng- inn lék þó betur en Zola, sem líkaði greinilega vel að leika lausum hala. Líklegt er talið að einhverjir fasta- menn verði hvíldir um helgina þar sem fram undan er seinni leikurinn við Arsenal í undanúrslitum enska bikarsins á þriðjudaginn. Hjá Manchester City eru vonir bundnar við að Robbie Fowler haldi uppteknum hætti frá því um síðustu helgi, en þá náði kappinn loks að opna markareikning sinn hjá félaginu eftir að hafa komið frá Leeds fyrir nokkrum vikum. En City hefur ekki enn sigrað á úti- velli á þessu ári og í síðustu ferðalögunum hefur liðið aðeins hlotið tvö stig af tólf mögulegum. Stjama Juninho skín skært Brasilíski landsliðsmaðurinn Juninho hefur hleypt nýju blóði í sóknarleik Middlesbrough síðan hann steig upp úr erfiðuð hnémeiðslum ekki fyrir löngu. Liöið hef- ur ekki tapað i fimm leikjum í röð og virka leikmenn liðsins gífurlega samstilltir um þessar mundir, hvort sem um er að ræða í sókn eða vörn. Þetta góða gengi gerir það að verkum að hátt settir menn innan félagsins eygja nú vonir um að liðið nái hugsanlega að næla sér í Evrópusæti. Það er Charlton sem kemur í heimsókn á Riverside um helgina með tap í síðustu tveimur leikjum á bakinu. Um síðustu helgi tapaði liðið heima gegn Newcastle en í vikunni þar á undan laut liðið í lægra haldi fyrir meisturum Arsenal. En fimm sigurleikir í röð þar á undan sýna það og sanna að Charlton er á fljúgandi sigl- ingu og á liðið enn góða möguleika á Evrópusæti. Það verður því væntanlega barist til allra síðasta blóðdropa í viðureign þessara liða um helgina. Erfiður fyrsti leikur hjá Reid Peter Reid ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur í sínum fyrsta leik með Leeds. Lið hans ferðast til Anfield Road í Liverpool og vonast Reid ábyggilega til þess að Gerard Hollier og hans menn veröi ekki bún- ir að ná sér eftir tapið gegn Celtic á fimmtudaginn. Nokkuð víst er að Senegalinn El-Hadji Diouf kemur inn i lið Liverpool á ný en hann lék ekki í seinni leiknum gegn Celtic. Eftirmaður hans á fimmtudaginn, Vladimir Smicer, lék hörmulega og nokkuð ljóst þykir að hann verður ekki í byrjunarliðinu gegn Leeds. Skýrast málin á botninum? Ekki má gleyma liðunum í neðri hluta deildarinnar en þar verða nokkrir lykilleikir háðir um helgina. Það verður án efa hart barist þegar Birmingham og West Brom eigast við. Það er að duga eða drepast fyrir West Brom en nú, þegar átta leikir eru til loka leiktíðarinn- ar í Englandi, er liðið í næstneðsta sæti, átta stigum frá því að komast úr fallsæti. Tap í síðustu fjórum leikjum í röð getur hins vegar ekki verið gott fyrir sjálfstraust- ið og verður Birmingham að teljast líklegra til sigurs eftir ágætisgengi undanfarnar vikur. Ekki síður mikilvægur slagur verður á Upton Park þegar Sunderland freistar þess að ná í stig gegn Hömr- unum í West Ham. Fari svo að Bolton, með Guðna Bergsson í broddi fylkingar, tapi gegn Tottenham á sunnudaginn mun West Ham komast úr fallsæti í fyrsta skipti í langan tíma, svo framarlega sem sigur næst gegn botnliði Sunderland. Bolton er hins vegar á góðu róli og hefur aðeins tapað einum af síðustu fimm leikj- um. -vig

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.