Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2003, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 22. MARS 2003
Helgarblcið JOV
33
Meistaradeildin:
Man.Utd
mætir
meistur-
um Real
Viöureignin sem flestir knatt-
spyrnuáhugamenn óskuðu sér
er orðin að veruleika; Manchest-
er United mætir núverandi Evr-
ópumeisturum Real Madrid í 8-
liða úrslitum meistaradeildar-
innar en dregið var um hádegis-
bilið í gær í höfuðstöðvum Evr-
ópska knattspymusambandsins
í Sviss. Liðin áttust einnig við í
8-liða úrslitum keppninnar árið
2000 en þá var það Real sem
hafði betur; sigraði 3-2 á Old
Trafford eftir að fyrri leikurinn
hafði endað með markalausu
jafntefli. United á því harma að
hefna og mun væntanlega leggja
allt í sölurnar til að ná fram
hefndum.
Hinar viðureignirnar í 8-liða
úrslitunum eru þó ekki síður
magnaðar. Inter Milan tekur á
móti Valencia, spútniklið Ajax
mun þurfa á öllum sínum kröft-
um að halda til að hafa betur
gegn AC Milan og Ítalíumeistar-
arnir í Juventus munu mæta
spænska stórliðinu Barcelona.
„Ég sagði fyrir dráttinn að ég
vildi mæta Barcelona og því er
ég mjög ánægður," sagði
Marcelo Lippi, þjálfari Juvent-
us, eftir dráttinn í gær. „Við
vildum ekki mæta ítölsku liði
en Barcelona er frábært lið meö
frábæra stuðningsmenn og enn
betri heimavöll. Þetta verður
stórkostlegt einvígi fyrir evr-
ópska knattspyrnu," bætti Lippi
síðan við.
Einnig hafa verið lögð drög að
því hvaða lið mætast í undanúr-
slitum. Sigurvegararnir úr
viðureign Real og United munu
mæta sigurvegunmum í einvígi
Ajax og AC Milan. Þá er einnig
ákveðið að annaðhvort Inter
Milan eða Valencia munu mæta
því liði sem ber sigur úr býtum
í viðureign Juventus og
Barcelona.
Þá var einnig dregið í undan-
úrslit í Evrópukeppni félagsliða.
Skoska liðið Celtic, sem hafði
betur gegn Liverpool í barátt-
unni um Bretland, dróst gegn
sínum óskamótherjum, en liðið
tekur á móti Boavista frá Portú-
gal. Hin viðureignin verður án
nokkurs vafa mjög spennandi en
þar eigast við Lazio og Porto.
-vig
Staöan:
Arsenal 30 19 6 5 64-32 63
Man. Utd 30 18 7 5 48-27 61
Newcastle 30 18 4 8 49-34 58
Chelsea 30 14 9 7 52-31 51
Everton 30 14 8 8 38-34 50
Liverpool 30 13 10 7 44-30 49
Blackbum 30 12 10 8 37-32 46
Charlton 30 13 6 11 39-38 45
Southampt. 30 11 10 9 32-30 43
Tottenham 30 12 7 11 43-43 43
Middlesbr. 30 11 8 11 38-34. 41
Man. City 30 12 5 13 4044 41
Fulham 30 10 8 12 35-37 38
Aston Villa 30 10 5 15 31-35 35
Leeds 30 10 4 16 37-42 34
Birmingh. 30 8 8 14 27-42 32
Bolton 30 6 11 13 33-47 29
West Ham 30 6 9 15 32-53 27
West Brom 30 5 6 19 21-46 21
Sunderland 30 4 7 19 19-48 19
Venables sparkað
- og Peter Reid ráðinn í stað hans
Terry Venables var í gær rekinn
úr starfi sínu sem framkvæmdastjóri
Leeds United og mun Peter Reid, sem
fyrr í vetur varð að víkja fyrir
Howard Wilkinson hjá Sunderland,
stjórna liðinu það sem eftir lifir leik-
tíðar. Fljótlega eftir að brottför
Venables var tilkynnt staðhæfði Pet-
er Ridsdale, stjórnarformaður Leeds,
að ekki yrði ráðinn eftirmaður fyrr
en á næsta tímabili og að Eddie
Gray, sem er þjálfari hjá liðinu,
myndi taka við stjórnartaumum í
siðustu átta leikjum timabilsins.
Nokkrum klukkustundum seinna
var síðan greint frá ráðningu Reids
og mun hann hafa skrifað undir
samning til loka tímabilsins.
Venables hefur átt undir högg að
sækja nær allan sinn tíma hjá Leeds
og hefur kappinn mátt þola harða
gagnrýni frá stuðningsmönnum fé-
lagsins. Leeds hefur nú tapað fjórum
síðustu leikjum sínum í deildinni og
er talið að það hafi verið kornið sem
fyllti mælinn.
Peters Reids biður verðugt verk-
efni strax í fyrsta leik sínum við
stjómvölinn hjá Leeds, en liðið sæk-
ir Liverpool heim á morgun. -vig
Það hefur verið á brattann að sækja fyrir Terry Venables allt frá þvíað hann var
ráðinn til Leeds síðasta sumar. Nú, þeqar lokaspretturinn íúrvalsdeildinni er að
hefjast, er hann loksins látinn fara.
SKEIFUNNI 11 • SIMI 520 8000 SMIÐJUVEGI 68 • SÍMI 544 8800
BÍLDSHÖFÐA16 ■ SÍMI 577 1300 EYRARVEGI 29 • SÍMI 483 1800
DALSHRAUN113 - SÍMI 555 1019 WWW.Stilling.iS
er vegirm
er augljóst
UismnPlus
+50%
Fyrir ökumenn sem leggja mikla áherslu á
öryggisþáttinn í umferóinni og sækjast eftir
mikilli lýsingu.
InnnRrlifR
rnmmmm mm j m mmmrn mm
Tvöföld ending
LongerLife perurnar höfóa alveg sértaklega
til atvinnubílstjóra, t.d. leigubílstjóra og
annarra sem aka mikió. Slíkir ökumenn aka
gífurlegar vegalengdir á hverju ári. LongerLife
perurnar eiga reyndar alveg sérstakt erindi
til íslenskra bíleigenda því hér á landi er ekið
meó Ijósum allan daginn.
PHILIPS
UjósÍMttskm!
jPHIUPS