Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2003, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2003, Page 38
38 HelQarblað I>V LAUGARDAGUR 22. MARS 2003 Saddam Hussein hefur verið giftur söniu konunni í 40 ár og hún hefur fœtt honuni fimm börn. Elsti sonurinn Uday, sem öll íraska þjóðin óttast, er fyrir miðju í aftari röð á myndinni. Sagt er að Saddain sæki mjög í óspjallaðar meyjar og hafi átt fjölda hjákvenna og barn með einni þeirra. órans Khidhir Hamza er íraskur kjarneðlisfræð- ingursem menntaði sig íAmeríku en sneri heim til Iraks 1972 og fram til ársins 1994 vann hann að þvíað smíða kjarnorku- sprengju fgrir Saddam Hussein. Verkefninu var ekki lokið þegar hann flgði til Vestur- landa og fékk hæli íAmeríku 1994 en hann hefur skrifað bók um lífsitt íIrak sem varp- ar Ijósi á þær aðferðir sem Saddam notar til að stjórna írösku þjóðinni. Það er sennilega sanngjarnt að segja að Saddam Hussein sé eftirsóttasti maður heimsins í þeim skiiningi að gervallt herveldi Bandaríkjanna og Bretlands er á hæl- unum á honum og fyrsta árás yfirstandandi átaka hafði það markmið eitt að ganga milli bols og höfuðs á honum. Þaö er margt sagt um Saddam Hussein og sumt af því er án efa ýktur áróður þeirra sem ekki eru hlynntir stríös- rekstrinum gegn honum. Það mælir samt enginn á móti því að Saddam er haröstjóri og einvaldur í landi sínu og í írak hefur rikt ógnarstjóm megnið af valdatima hans. Það gefast ekki mörg tækifæri til þess að hlýða á frá- sagnir manna sem raunverulega hafa kynnst þessum hataða harðstjóra en árið 1994 flýði maður að nafni Khid- hir Hamza frá írak og komst eftir nokkra hrakninga afla leið til Bandaríkjanna. Þetta var ekki heinlinis venjulegur íraki því þetta var hámenntaður kjarneðlisfræðingur sem hafði allt frá árinu 1972 starfaö að því verkefni að smíða nothæfa kjarnorkusprengju fyrir Saddam Hussein. Að hjálpa óvini sínum Hamza hefur skrifað bók um starfsferil sinn í írak í rúmlega 20 ár og hún heitir Saddam’s Bombmaker og er býsna ffóðleg lesning. Hann segir frá því hvemig írakar eyddu gildum sjóðum í þetta erfiða og flókna verkefni. Það var ekki beinlínis gert án vitundar Vesturlanda því tækja- búnaður og þekking var sótt bæði til Frakklands, Þýska- lands og Bandaríkjanna. Frakkar seldu írökum nauðsyn- legan búnað til að framleiða plútóníum og Þjóðverjar gerðu það einnig og þýskir tæknimenn störfuðu þar árum saman. Bandaríska kjarnorkustofnunin gaf írökum allar skýrslur Manhattan-verkefnisins sem smíðaði fyrstu kjamorkusprengjuna og Hamza segir að þær hafi reynst ómetanlegar. Hamza segir að þrátt fyrir endurtekin skemmdarverk hryðjuverkamanna frá ísrael, sem óttuðust mjög að Saddam tækist ætlunarverk sitt, hafi verkefnið þokast áfram og eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna hafi aldrei séð nema brot af búnaði sem var falinn hingað og þangað í landinu. Hann segir að þegar írak réðst inn í Kúveit fyr- ir 12 árum hafi nothæf sprengja verið í augsýn og nokk- urra mánaöa vinna eftir. Hann segir einnig að Saddam sé staðráðinn í því að varpa slíkri sprengju á ísrael án þess að hafa prófað virkni hennar ef honum finnist að tilvist hans sé ógnað. Saddam svndir En það em lýsingamar á manninum sjálfum, harðstjór- anum bak við hallardymar sem em áhugaverðastar. Saddam á tuttugu hallir víðs vegar um írak. Við hveija þeirra er sundlaug og Saddam syndir á hverjum morgni eftir 4-5 stunda nætursvefn. Vatn er tákn um styrk og ríki- dæmi í eyðimerkurlandi og auk þess þjáist hann af bak- verkjum sem sundið linar. Saddam er sextíu og fimm ára gamall og mikið í mun að halda sér í formi því hann vill ekki að þjóðin sjái leiðtoga sinn eldast og veikjast. Hann er hávaxnari en almennt gerist og vegur um það bil 105 kíló. Sjón hans er talsvert farin að daprast en hann vill helst ekki láta sjá sig með gleraugu á almannafæri. Hann vill helst ekki sjást í sjónvarpi fótgangandi því bakmeiðsl- in valda því að hann stingur við. Slíkt er veikleikamerki. Matur og lín Allur matur sem Saddam borðar er fluttur inn frá Evr- ópu og vandlega rannsakaður áður en hann leggur sér nokkuð til munns. Allar hallirnar 20 eru fullmannaðar og í hverri þeirra er eldað fyrir forsetann á hverjum degi því LAUGARDAGUR 22. MARS 2003 Helgarblað DV 43 enginn veit hvar hann muni borða þann dag. Sérstakir starfsmenn bragða allan mat áður en hann kemur inn fyr- ir varir forsetans. Þegar Saddam borðar á veitingahúsum tekur starfslið hans eldhúsið yfir þann daginn. Hamza lýsir í bók sinni heimsóknum í Veiðiklúbbinn í Bagdad sem var eftirlætisskemmtistaður Saddams á ní- unda áratugnum. Þar ríkti undarlegt andrúmsloft tor- tryggni og undirferli. Enginn mátti líta á Saddam eða menn hans og enginn mátti láta sjá á sér vín. Þeir sem urðu of háværir voru strikaðir út af gestalistanum. Þegar Saddam þótti stemningin vera orðin heldur þurr fóru menn hans um salinn með litla miða sem var dreift á borð nokkurra valinna manna. Á miöanum stóð: Dansið. Áfengisneysla Saddams er sérstakur kafli í lífsstíl hans. Múslimum er ekki leyft að drekka en Saddam er alkó- hóhsti að sögn Hamza. Hann tekur tryllta drykkjutúra sem geta staðið dögum saman og læknar hans eru ávallt reiðubúnir að sprauta hann niður í eftirköstunum. Hann vill helst drekka rósavín með mat en Johnny Walker viskí þegar hann drekkur sig fullan. Látnir inyrða félaga sína Margt hefur verið skrifað um miskunnarlausar hreins- anir Saddams þar sem hann lætur myrða alla þá sem ekki eru honum fullkomlega undirgefnir. í bók sinni lýsir Hamza myndbandi sem hann sá af slíkum aðfórum þar sem samstarfsmenn forsetans og undirmenn voru leiddir út einn af öðrum og aðrir starfsmenn látnir skjóta þá en það var um leið nokkurs konar próf því allir sem Saddam kemst í tæri við eru grunaðir um græsku og hann treyst- ir engum. Pyntingum er beitt með kerfisbundnum hætti og sér- stök herbergi í höllunum notuð undir þær athafnir. Hamza horfði upp á nokkra samstarfsmenn sína sem voru ekki taldir nógu leiðitamir og hurfu þá um hríð og komu til baka niðurbrotnir menn og örum hlaönir á sál og lík- ama. Oft varö hann vitni að því að þeir sem lifðu pynting- amar af nutu ýmissa fríðinda á eftir og voru gefnir glæsi- vagnar og hús. Þannig var það sama höndin sem kvaldi og verðlaunaöi en þetta er hluti af sálfræðihemaði. Hamza lýsir því hvemig þeir sem störfuðu hjá Kjarn- orkustofnun íraks nutu hárra launa, stórkostlegra fríð- inda í húsnæði, borðuðu góðan mat, ferðuðust stundum til útlanda og gátu átt von á Mercedes sportbíl að gjöf ef Saddam var í góðu skapi og ánægður með árangurinn. Þetta leiddi hins vegar til þess að stundum freistuðust menn til að ljúga upp betri árangri en efni stóðu til. Þannig varð það stjóm Saddams áfall í upphafi stríðsins við Kúveit að eiga ekki nothæfa kjarnorkusprengju en skýrslur starfsmanna sem vom að reyna að kaupa sér vel- vild harðstjórans höfðu gefið slíkt til kynna. Hamza segir reyndar að peningar Saddams hafi getað keypt allt nema þá tæknikunnáttu sem til þurfti en hann telur líklegt að írak ráði yfir frumstæðum litlum kjarn- orkusprengjum. Stjómað með skanunbyssu Hamza segir undarlega sögu af því sem kalla mætti stjómunarstíl Saddams þegar rætt vár um yfirvofandi hernaöarátök við íran og Saddam var að brýna sína menn til dáða á herráðsfundi. Einn hinna yngri herforingja orð- aði efasemdir um aðferðina og Saddam hlýddi á mótbárur hans góða stund. Síðan dró hann upp skammbyssu og skaut hann í höfuðið á staðnum. Eftir það bámst ekki fleiri athugasemdir. í tíð Saddams komust opinberar aftökur á í írak. í stríð- inu milli íraks og írans, sem stóð í átta ár, vom liðhlaup- ar skotnir á götum úti og borgarar hvattir til aö horfa á og fagna. Eitt sinn var sextán ára unglingur skotinn fyrir að krota slagorð gegn Saddam á vegg. í bókinni era ekki staðfestar þrálátar sögur um að Saddam eigi sér fjölda tvífara en því er lýst hvernig hann fór huldu höfði meðal almennings í Bagdad meðan á loft- árásum Bandamanna stóð í ormstunni um Kúveit. Þá gisti hann á heimilum almennings og birt er frásögn manns sem var svæfður meðan á slíkri heimsókn stóð og vaknaði með 50 dollara á borðinu. Hamza sjálfur taldi sig sjá Saddam á götu í Bagdad á þessum tíma klæddan eins og almúgamann. Hann hafði áöur gaman af gönguferðum meðal almenn- ings og fór þá um götur Bagdad í hópi öryggisvarða sem mddu götumar og börðu til óbóta þá sem reyndu að nálg- ast Saddam. Þessu hefur hann hætt síðan fór að bera á heltinni vegna bakmeiðslanna en tekur oft langar göngu- ferðir í nágrenni halla sinna og er þá oft að skjóta kanín- ur og smádýr sér tU skemmtunar eða í mark því hann er afbragðsskytta. Saddain var bam Saddam fæddist 28. aprft 1937 í moldarkofa í þorpinu Ouja við ána Tígris skammt frá borginni Tikrit um það bU 150 kUómetra fyrir norðan Bagdad. Hann þekkti aldrei fóð- ur sinn en ólst upp í skjóli móður shmar og frænda sem sumir segja að hafi misþyrmt honum sem barni. Hann byijaði ungur að bera vopn og sagt er að skólagöngu hans hafi lokið þegar hann var eUefu ára með því að hann skaut kennarann. Hann komst fljótlega inn í raðir Baath-flokks- ins sem hefur fleytt honum tU valda í írak. Sagt er að Saddam hafi setið í fangelsi á ámnum 1963 tU 1965 og sætt þá pyntingum og Sajidu eiginkonu hans hafi verið nauðgað og hún hafi eignast barn með einum fanga- varðanna. Þegar Baatistar komust tU valda 1968 er sagt að Saddam hafi gert það að sínu fyrsta verki að myrða fanga- vörðinn. Saddam er með húðflúr á hægri hendi sem em þrjár bláar doppur. Slík merki em sett á þorpsbörnin þegar þau era 5-6 ára göm- ul og em pUtar merktir á úlnlið en stúlkur á kinn eða höku. Flestir sem flytjast tU borganna láta má slík flúr af en Saddam hefur aUtaf verið stoltur af upp- runa sínum. Saddam ætlast tU skUyrðislausrar hlýðni og undirgefni af þeim sem em í kringum hann en dæmi eru um að hann hafi rekið hers- höfðingja nokkurn með skömm úr hern- um þegar hann dott- aði á fundi í stríðinu mUli íraks og íran. Ritliöfundurinn Saddam Saddam er sagður prýðUega vel gefinn og les mikið bæði skáldskap og bækur um tæknUeg efni. Hann hefur mikið dá- læti á því að sýna þekkingu sína þegar Saddam byrjaði ungur að bera vopn og sagt er að liann liafi skotið kennara sinn þegar liann var ellefu ára gamall. Hann er mjög góð skytta og þegar liann gengur úti sér til heilsubótar skýtur liann oft að kanínum og öðrum smádýrum sér til skemmtunar og hittir oftast. mál Saddams en sagt er að hann hafi átt fjölda hjákvenna og eignast bam með einni þeirra. Sagt er að hann sé sjúk- lega sótthræddur, eins og sést reyndar vel á matarvenjum hans, og það hafi aukist með aldrinum. Þess vegna vUl hann helst eiga mök við hreinar meyjar tU að tryggja heU- brigöi þeirra og sitt um leið. í bók Hamza er vitnað tU frá- sagnar konu einnar sem vUdi ná tali af Saddam vegna þess að hún var öreigi eftir stríðið mUli íraks og írans og sótti rétt sinn. Hún fékk áheym en tveimur vikum síðar var hún boðuð í höUu Saddams af óljósu tUefni. Þegar þangað kom tóku tvær konur á móti henni og sögðu að útlit hennar væri ekki sæmandi fyrir forsetavið- tal og hún yrði að leyfa þeim að hressa upp á útlit sitt. Hún lét tU leiðast og fékk fullkomna fórðun, þröngan kjól og nýja hárgreiðslu. Síðan var henni ekið í fylgd vopnaðra varða tU annarrar hallar og leidd inn í svefnherbergi sem minnti helst á hótelherbergi og skipað að afklæðast. Verð- imir biðu uns hún lá nakin á rúminu en þá hurfu þeir og læstu hurðinni. Eftir nokkrar mínútur kom Saddam nak- inn inn um hliðardyr og virtist vera í eins konar leiðslu, sviplaus með dofin augu. Hann mælti ekki orð frá vöram heldur lagðist ofan á stúlkuna og kom fram vUja sínum viö hana. Hann hvarf síðan á braut eftir fáeinar mínútur en hún lá grátandi eftir en hún hafði verið óspjöUuð fyrir þetta atvik. Fljótlega kom vörður inn með umslag sem innihélt andvirði fimmtán þúsund doUara og skipaði henni að fara. Hún sagði höfúndi bókarinnar að það sem hún myndi aldrei gleyma frá þessum sérstæða ástarfundi væm gul og liflaus augu Saddams. Hamza segir í bók shmi að um írak hafi lengi gengið sögur um að Saddam myrði stundum konur eftir slíkar af- meyjanir, sérstaklega þegar hann er undir áhrifum áfeng- is og deyfilyfja, en með tímanum hefur hann orðið háður deyfilyfjum sem læknar sprauta hann með í lok drykkju- túra. íraskur læknir, sem var treyst tU að starfa nálægt Saddam en flýði seinna land og komst tU Bretlands, hitti Hamza og lýsti fyrir honum einu sliku atviki. Læknirinn var kvaddur í höUina semt um nótt þar sem Saddam æddi um í drykkju og lyfjarúsi í alblóðugri náttskyrtu einni fata. Með aðstoð lifvarða tókst að leggja hann á rúmið svo læknirinn gat sprautað hann með róandi lyfi. Þegar lækn- irinn fór fram á baðherbergi tU að þvo sér um hendurnar fann hann lík ungrar konu liggjandi í baðkerinu. Hún hafði verið skorin á háls. -PÁÁ hann kaUar menn á Saddam stjórnar Irak ineð harðri gjnn fund hendi og á yfirborðinu er liann dáður ffaun jgs og elskaður leiðtogi. mikið um hernað og ævisögur mikilmenna og hefur sérstakt dálæti á Winston ChurchUl. Hann hefur sjálfur metnað sem rithöfundur og hefur gefið út tvær bækur sem heita Zabibah og konung- urinn og Rammgerði kastalinn. Þessar bækur hafa hlotið góðar viðtökur meðal þjóðarinnar enda væri það beinlín- is lífshættulegt athæfi að gagnrýna þær. StUl þeirra er sagður vera framstæður og barnalegur með þungum und- irtón fræðslu og forsjár. Saddam hefur fjölda manna sér tU aðstoðar við skriftir og gaf reyndar þessar bækur báðar út undir dulnefni en það vissu aUir hver höfundurinn var. Hann sendir bækur sínar ýmsum menntamönnum og pró- fessorum tU umsagnar sem þora ekki annað en að ljúka lofsorði á afurðimar. UppáhaldsmvTidiniar Saddam hefur gaman af því að horfa á sjónvarpið og fylgist með fiölda sjónvarpsstöðva. Hann hefur gaman af kvikmyndum sérstaklega þeim sem fiaUa um launráð, launvíg og samsæri. Meðal uppáhaldsmynda hans era The Jackal, The Conversion og Enemy of the State. Sagt er að kvikmyndir móti hugarheim hans og hugmyndir um ver- öldina en hann hefur ferðast mjög lítið. Hann hefur einnig gaman af kvikmyndum eins og The Godfather og The Old Man and the Sea. Þeir sem hafa lýst reynslu sinni af návígi við Saddam segja að meðan enginn mótmæli honum geti hann verið héiUandi í samræðum og geri jafnvel að gamni sínu og segi skemmtisögur. Sældr í hreinar mevjar Saddam hefur verið giftur Sajidu eiginkonu sinni í nærri 40 ár og hún hefur fætt honum tvo syni og þrjár dætur. í hópi bama þeirra er Uday sonur Saddams sem margar hryllingssögur em tU af en hann er jafnvel talinn grimmari en faðir hans. Uday gengur undir nafninu „Prinsinn" og orðspor hans er þjóðsagnakennt en markað af morðum, pyntingum og óvenjulegri grimmd. Bæði innan og utan íraks er mikið skrafaö um kvenna-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.