Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2003, Qupperneq 50
54
Helqart>lacf 3Z>"Vr
LAUGARDAGUR 22. MARS 2003
Óskarsverðlaunahátíðin:
Stærsta ársliátíð
Í4
í heimi haldin í |
skugga stríðs
í skugga stríðs Bandaríkjanna og stuðningsaðila
þeirra gegn írak verður 75. óskarsverðlaunahátíðin
haldin í Kodak-leikhúsinu í Hollywood aðfaranótt
mánudags að íslenskum tíma. Stríðið hefur áhrif á há-
tíðina og það sem margir munu sakna er þegar
stjörnuskarinn gengur eftir rauða dreglinum inn í
hina glæsilegu byggingu en sú ganga verður í styttra
lagi að þessu sinni og alveg tekin af í partíunum eftir
á. Tískusérfræðingar, sem hafa oröið meira og meira
áberandi í sjónvarpsútsendingum, verða að notfæra
sér aðrar leiðir til að komast að því hvaða tískuhönn-
uður klæðir hverja.
Kodak-leikhúsið var sérstaklega byggt með ósk-
arsverðlaunahátíðina í huga. í leikhúsinu eru sæti fyr-
ir 3400 manns á þrennum svölum. Á svæðinu er hótel
sem er ætlað 1500 fjölmiðlamönnum meðan á hátíðinni
stendur og danssalurinn þar sem allir safnast saman
eftir hátíðina er 12000 fermetrar. Þá er í Kodak-leik-
húsinu sérhönnuð aðstaða fyrir fjölmiðla og sviðið og
aðstaða fyrir hljómsveitina og inngangar á sviðið allt
gert með það í huga aö það sjáist vel í sjónvarpinu
enda miklu til kostað í þeim efnum. Er þetta stærsta
beina útsending í heiminum ár hvert. Aðeins einstaka
útsendingar frá Ólympíuleikunum ná óskarsverð-
launahátíðinni að stærð.
Það rikir ávallt mikil spenna í kringum óskarsverð-
launin og mörgum milljónum dollara er eytt í auglýs-
ingar og markaðssetningu og hefur baráttan verið
mjög óvægin að þessu sinni. Martin Scorsese hefur lát-
ið sér um munn fara að baktjaldamakkið sé ógeðfellt.
Sá sem fer ekki varhluta af því er Roman Polanski, en
andstæðingar hans hafa komiö á framfæri ýmsum
Kodak-leikhúsið i Hollywood
Mikil undirbúningsvinna hefur farið frain á síðustu
vikum.
óhróðri svo ekki sé hætta á að hann fái náðun, en komi
hann til Bandaríkjanna fer hann beint í steininn út af
gömlu máli sem hann stakk af frá.
Þá er nokkur hræðsla í gangi hjá stjómvöldum gagn-
vart sumum sem tilnefndir era, en margir eru á móti
stríðinu við írak og munu láta skoðun sína í ljós.
Michael Moore, sem er mikill andstæðingur stríðsins og
er talinn næstum öruggur um að fá óskarinn fyrir heim-
ildarmynd sína, Bowling for Columbine, segir að síð-
ustu daga hafl hann fundið fyrir mikiili andúð og feng-
ið hótanir. Hann segist þó halda sínu striki. Þá er jafn-
vel talið aö Richard Gere og Susan Sarandon, sem hafa
mótmælt stríðinu opinberlega, láti skoðun sína í ljós en
þau eru meðal þeirra sem munu afhenda verðlaunin.
Framleiðandi sjónvarpsútsendingarinnar, Gil Gates,
og fleiri aðstandendur hátíðarinnar segja að ekkert
verði reynt til að koma í veg fyrir að fólk fái að tjá sig,
en benda á að hátíðin sé stórhátíð kvikmyndanna, ekki
mótmælahátíð. -HK
demöntum
hverjum það ekki við hæfi að skarta demöntum -
látleysið verði í fyrirrúmi.
Það er ekki aðeins um hálsinn og á höndum sem
flnna má demanta á leikkonum. í fyrra mætti
Laura Elena Harring í kjól sem var sniðinn þannig
að mikið bar á skónum sem hún var í en þeir voru
1 milljónar dollara virði, að sjálfsögðu skreyttir
demöntum. Sá sem hannaði skóna, Stuart Weitzm-
an, þorði ekki annað en senda tvo öryggisverði
með henni að rauða dreglinum og þeir tóku á móti
henni að lokinni afhendingu. „Ég var hræddastur
við að einhver þættist missa eitthvað og myndi
þrífa í demantana um leið og hann beygði sig.“
Elizabeth Taylor er ein fárra kvikmyndastjarna
sem á frægan og verðmætan demant. Demantur
hennar, sem Richard Burton gaf henni, er 69 karöt
og talinn einn sá fallegasti í heiminum. Árið 1970
bað hún fatahönnuðinn Edith Head að hanna kjól
út frá því hvernig demanturinn væri á henni.
Endirinn var að hún var í mjög einföldum kjól með
V-hálsmáli og tóku allir fyrst eftir demantinum.
Þegar Gwyneth Paltrow fékk óskarsverðlaunin
árið 1998 skartaði hún mjög fallegri demantaháls-
festi sem hún hafði fengið lánaða. Hún þurfti ekki
að skila henni. Faðir hennar keypti hana og gaf
henni.
Öfugt við tískuhönnuði þá gera demantshönnuð-
ir og kaupmenn sér litlar vonir um aukna sölu eft-
ir óskarsverðlaunahátíðina. Vegna verðsins gera
þeir sér vonir um að athyglin beinist að þeim.
Því fylgir nokkur áhætta að lána demanta. Kate
Hudson fékk lánaðan demantshring fyrir Golden
Globe-verðlaunahátíðina 1 janúar. í partíi á eftir
missti hún hringinn á gólfið. Hún tók ekki eftir því
í fyrstu og segir að þegar hún hafði uppgötvað það
hafi eina hugsun hennar verið að hún yrði alla ævi
að borga hringinn. Hringurinn fannst sem betur
fer fyrir hina ungu leikkonu. -HK
Elizabet Taylor og
Richard Burton
Myndin er tekin í
veislu eftir af-
hendingu ósk-
arsverölaunanna
1978, þegar hún
skartaði frægu
demantshálsmeni
sem Burton gaf
henni.
Það eru ekki aðeins tískuhönnuðir sem klæða
stjörnurnar i finustu fötin á óskarsverðlaunahátíð-
inni. Demantskaupmenn og hönnuðir lána afurðir
sínar og það glittir í marga verðmæta demanta á
hálsum og höndum leikkvenna. Metið í demanta-
skarti á Whoopi Goldberg sem var með 71 milljón-
ar dollara virði af demöntum á sér þegar hún var
kynnir árið 1999. Hún fékk demantana lánaða eins
og algengast er.
Það fylgir yfirleitt vali á klæðnaði að velja dem-
anta og ef benda skal á einhverjar leikkonur sem
koma til með að skarta dýrum demöntum á sunnu-
dagskvöld þá eru það Nicole Kidman, Renee
Zellweger og Catherine Zeta-Jones, en þær eru all-
ar mikið fyrir demanta. Stríðið gæti sett strik í
reikninginn í þessum flokki og sjálfsagt finnst ein-
Tískan stendur jafnfætis heiðrinum
Það er ekki aðeins að óskarsverðlaunahátíöin hafi ver-
ið að stækka með hverju árinu heldur hefúr á undanfóm-
um árum orðið áherslubreyting. Nú er þetta ekki aðeins
hátíð þeirra sem heiðurinn hljóta heldur er hátíðin ein
mesta árlega tískusýning í sjónvarpi. Það er ekkert lítið
sem stærstu tískuhönnuðir í heimi reyna til að fá stjöm-
umar til að nota klæðnað sem er merktur þeim. Áhrifm
eru svo tvíþætt. Gagnrýnin er mikil þegar tískulöggun-
um sem em á hátíðinni mislíkar. Lofsyrðin era einnig
stór þegar kjóllinn er flottur.
Áður fyrr, þegar kvikmyndastjömumar vora yfirleitt
á samningi hjá stóra kvikmyndafyrirtækjunum, þá
fengu þær ekki að ráöa í hveiju þær vora. Tískuhönnuð-
ir á vegum kvikmyndafyrirtækjanna réðu. í dag era fæst-
ar kvikmyndastjömur með fasta samninga og geta því
klæðst því sem þær langar tiL Hin 92 ára gamla Gloria
Stuart, sem tilnefnd var fyrir leik í Titanic, segist muna
eftir að hafa veriö við afhendingu óskarsverðlaunanna
1932: „Þá vora allir karlmenn í smóking og konur í síð-
um kjólum sem vora að mestu eins, nema þeir voru í
ýmsum litum. í dag er þetta allt annað, sérstaklega hjá
konum,“ segir sú gamla sem man tímana tvenna í kvik-
myndaheiminum.
Það var í byrjun níunda áratugarins sem tískan gerði
innrás á óskarsverðlaunahátíðina með skrautklæðum.
Allt í einu fóra ljósmyndarar að taka myndir af stjömum
í líkamsstærö; ekki aðeins niður að mitti eins og tíðkað-
ist áður. Cher fullkomnaði siðan innrásina þegar hún
stal hátíðinni með klæðnaði sínum árið 1986. Síðan hef-
ur þetta verið óopinber keppni tískuhönnuða.
Er allur þessi íjáraustur sem tískan lætur í óskarinn
þess virði? „Engin spuming," segir Merle Ginberg, rit-
stjóri Womens Wear Daily. „Ef Nicole Kidman klæðist
dressi frá Chanel þá á það eftir að auka sölu á Chanel-fót-
um og snyrtivörum. Þá hefur liturinn einnig mikið að
segja. Kidman var í fólbleiku dressi í fyrra og allt í einu
var þessi litur kominn í tísku.
Hvað varðar karlmenn þá er smókingurinn enn efstur
á vinsældalistanum, en ekki þó svarta slaufan. Hún hefur
vikið undan tískunni. Breiddin er einnig orðin meiri í
heildina. Sá sem rauf hefðina var Sammy Davis jr. þegar
hann mætti árið 1967 í Nehru-jakka. Daniel Day-Lewis tók
á móti sínum verðlaunum í frakka sem minnti á tísku um
aldamótin 1800 og Robin Williams var í fótum sem hann
kallaði Armani Amish þegar hann tók á móti óskamum.