Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2003, Side 69
LAUGARDAGUR 22. MARS 2003
Helqarbtað OV
73
V.
Jósef Hermann Vernharðsson
rafvirkjameistari í Hnífsdal verður 60 ára á mánudaginn
Jósef Hermann Vernharðsson rafvirkjameistari,
Hlégerði 1, Hnífsdal, verður sextugur á mánudaginn.
StarfsferiU
Jósef fæddist í Tungu í Fljótavík í Sléttuhreppi en
flutti til Hnifsdals með íjölskyldu sinni 1946. Hann
lærði rafvirkjun hjá Júlíusi Helgasyni í Neista og
starfaði þar um skeið, en síðar hjá Straumi hf. á
ísafirði. Einnig var hann nokkur ár skipverji á
skuttogaranum Páli Pálssyni.
Jósef var með sjálfstæðan atvinnurekstur í nokkur
ár en hóf eftir það störf hjá Pólstækni og ísveri hf. á
ísafirði. Einnig starfaði hann hjá Auðuni
Guðmundssyni húsasmíðameistara á ísafirði. Hann er
nú rafvirki á Heilbrigðisstofnun ísafjarðarbæjar.
Jósef átti sæti í hafnarnefnd á ísafirði og hefur frá
1978 verið eftirlitsmaður neyðarskýla fyrir
Slysavarnafélag íslands, síðar Slysavarnafélagið
Landsbjörg á norðanverðum Vestfjörðum. Hann hefur
lengi starfað að slysavarnamálum á Vestfjörðum, er
stjórnarmaður í Slysavarnadeildinni í Hnífsdal,
varaformaður FOS-Vest., félagi í Sunnukórnum og í
Frímúrarastúkunni Njálu á ísafirði.
Fjölskylda
Jósef kvæntist 4.9. 1965 Hrafnhildi Samúelsdóttur, f.
25.6. 1947 á Hrafnabjörgum, fulltrúa hjá íslandspósti.
Hún er dóttir Samúels Guðmundar Guðmundssonar,
bónda á Hrafnabjörgum, og k.h., Hildar Hjaltadóttur
ljósmóður. Hrafnhildur ólst upp hjá móðursystur
sinni, Guðrúnu Sigríði, og m.h., Ingimundi Guðmunds-
syni, vélsmið á ísafirði.
Börn Jósefs og Hrafnhildar eru Guðrún Sigríður, f.
9.5. 1964, flugfjarskiptamaður í Reykjavík og er sonur
hennar, með Albert Haraldssyni, Jósef Hermann, f.
21.8. 1990, en maður hennar er Ómar Sveinsson,
bókasafns- og upplýsingafræðingur, og er sonur þeirra
Stefán Mar, f. 22.4. 2002; Hermann Vernharður, f. 1.6.
1971, vélfræðingur á Suðureyri, en kona hans er Svava
Rán Valgeirsdóttir leikskólastjóri, B.Ed. í sérkennslu á
leikskólastigi og eru börn þeirra Valgeir Skorri, f.
29.6. 1994, Hrafnkell Hugi, f. 3.3. 1996, og Katla Vigdís,
f. 17.6. 2002; Ingibjörg, f. 28.2. 1976, nemi í Reykjavík,
en maður hennar er Bjarki Björgúlfsson nemi.
Systkini Jósefs: Helga, f. 4.9. 1925, húsfreyja á
ísafirði; Ragnar Bjarni, f. 8.8. 1928, d. 1.6. 1934;
Margrét, f. 18.8. 1929, d. 21.10. 1929; Þórunn Friðrika, f.
25.1. 1931; Herborg, f. 29.1. 1932; Bára Freyja Ragna, f.
2.9. 1934; Sigrún, f. 29.6. 1940; Steinunn Selma, f. 22.8.
1945, d. 5.1. 1948.
Foreldrar Jósefs voru: Hermann Vernharð Jósep
Jósepsson, f. 12.8. 1906 á Atlastöðum i Fljótavík, d. 9.5.
1982, bóndi í Tungu og á Atlastöðum í Fljótavík og
síðar í Hnífsdal, og k.h., Þórunn María Friðriksdóttir,
f. 4.6. 1905 í Efri-Miðvík í Aðalvík, d. 18.11. 1996,
húsfreyja.
. Ætt
Hálfsystir Vernharðs var Brynhildur Snædal, móð-
ir Guðmundar Páls rithöfundar og Þrastar fram-
kvæmdastjóra Ólafssona. Vernharð var sonur Jóseps,
b. á Atlastöðum, Hermannssonar, b. í Neðri-Miðvík,
Guðmundssonar, b. á Steinólfsstöðum, Sigurðssonar.
Móðir Jóseps var Kristín, systir Dósótheusar, langafa
Rannveigar Guðmundsdóttur alþm. Kristín var dóttir
Hermanns, b. á Sléttu, Sigurðssonar og Veroniku
Oddsdóttur. Móðir Vernharðs var Júdit Jónsdóttir.
Móðir Vernharðs var Margrét Katrín Guðnadóttir,
b. á Atlastöðum Jósteinssonar, b. I Tungu, og Hildar
Ólafsdóttur. Móðir Katrínar var Matthildur, systir
Kristínar, ömmu rithöfundanna Jakobínu og Fríðu
Sigurðardætra. Matthildur var dóttir Arnórs, b. í
Rekavík bak Höfn, hálfbróður Jóns, langafa Árna
Gunnarssonar, framkvæmdastjóra HNLFÍ í
Hveragerði. Arnór var sonur Ebenezers og Bjargeyjar
Einarsdóttur.
Bróðir Maríu var Finnbogi afi tónlistarmannanna
Magnúsar og Finnboga, og Kjartans, bæjarfulltrúa í
Reykjanesbæ Kjartanssona. Systir Mariu var
Aðalheiður móðir Engilberts Jensen, tónlistarmanns
Guðjón Daníelsson
bóndi á Kolmúla
Guðjón Daníelsson, bóndi á Kolmúla við Reyðarfjörð,
varð níræður á þriðjudaginn var.
Starfsferill
Guðjón Danielsson fæddist á Kolmúla við Reyðarijörð
og ólst þar upp. Hann fór fyrst á vertíð til Vestmanna-
eyja sem beitingamaður og afleysingamaður á sjó er
hann var fimmtán ára, var hann á togaranum Arinbimi
Hersi 1934 og 1935, var á vertíð í Vestmannaeyjum
1936-38 en á sumrin var hann við bústörf á Kolmúla.
Guðjón tók við búi af foreldrum sínum 1943. Þá stund-
aði Guðjón lengi útgerð á eigin bátum og vann að miklu
leyti afla sinn til útflutnings til 1982. Þá stundaði hann
einnig veiði og verkum á hákarli.
Guðjón gegndi ýmsum trúnaðarstörfum og sat m.a. í
stjórn Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga í mörg ár. í dag rek-
ur Guðjón blandað bú á Kolmúla.
IFjölskylda
Guðjón kvæntist 25.12. 1940 Jónu Björgu Guðmunds-
dóttur, f. í Sjólyst á Fáskrúðsfirði 4.12. 1920, d. 8.7. 2002,
húsfreyju. Foreldrar hennar voru Guðmundur Jónsson,
f. 28.1. 1881, d. 28.10. 1951, og k.h., Þuríður Kristin Ind-
riðadóttir, f. 14.1. 1884, d. 10.5. 1949.
Böm Guðjóns og Jónu Bjargar eru Guðmundur Krist-
inn, f. 6.10. 1940, en kona hans er Stefanía Óskarsdóttir,
f- 6.9. 1949, og eru böm þeirra Jóna Björg, f. 16.7. 1966,
Bjarki, f. 19.11. 1968, Óskar Þór, f. 19.10. 1969, og Helga
Snædal, f. 1.5.1974; Halla, f. 11.7.1943, en dætur hennar eru
ÍAðalheiður Sigurbjörnsdóttir, f. 28.4. 1961, Valdís Amar-
dóttir, f. 17.3. 1974; Borgþór, f. 29.4. 1948, en kona hans er
Kristín Gréta Óskarsdóttir, f. 30.6.1949, og eru böm þeirra
Andrea, f. 14.11.1968, Daníel, f. 8.3.1975, auk þess sem Borg-
þór á tvær aðrar dætur, Hrefnu Lind, f. 24.4.1969, og Ömu,
f. 18.9. 1969; Dagný, f.
27.1. 1950, en maður
hennar er Sigurður
Jakob Jónsson, f. 4.1.
1949, og eru börn
þeirra Rakel, f. 13.5.
1973, Andri, f. 30.9.
1980, og Signý, f. 27.7.
1985; Elísa, f. 30.5. 1951,
en maður hennar er
Stefán Þór Jónsson, f.
13.11. 1948, og em dæt-
ur þeirra Brynhildur
Björg, f. 25.4. 1969,
Borghildur Hlíf, f. 14.6.
1971, og Þórhildur Elfa,
f. 6.8. 1977; Bryndís, f.
5.2.1953, en maður hennar er Gunnar Jósep Jónsson, f. 6.5.
1951, og eru böm þeirra Guðjón, f. 9.5. 1975, d. 10.4. 1993,
Jósep Freyr, f. 14.1.1977, og Selma Ósk, f. 5.8.1986; Guðjón,
f. 5.12. 1956, en kona hans er Hafdís Bára Bjamadóttir, f.
26.8.1962, og eru böm þeirra Guðbjörg Rós, f. 30.10.1981, og
Birkir Snær, f. 27.1. 1986.
Systkini Guðjóns eru Sigrún Daníelsdóttir, f. 16.12.1911,
d. 23.11. 2001; Guðbjörg Daníelsdóttir, f. 16.2. 1915, d. 1.1.
2000; Elís Daníelsson, f. 11.2. 1917, d. 30.9. 1995; Anna Dag-
mar Daníelsdóttir, f. 4.12.1925.
Foreldrar Guðjóns voru Daníel Sigurðssyni, f. á Stöð í
Stöðvarfirði 11.2. 1882, d. 13.3. 1960, bóndi á Kolmúla við
Reyöarfjörð, og k.h., Guðný Jónsdóttir, f. á Viðborði á Mýr-
um í Austur-Skaftafellssýslu 8.6. 1886, d. 27.5. 1964, hús-
freyja.
Guðjón tekur á móti gestum á Hótel Bjargi, Fáskrúðs-
firði, laugard. 22.3. á milli kl. 15.00 og 20.00.
og fluguhnýtara. María var dóttir Katarínusar
Friðriks, b. á Látrum, Finnbogasonar, b. í Efri-Miðvík,
Árnasonar, b. í Neðri-Miðvík, Jónssonar. Móðir
Katarínusar var Herborg Kjartansdóttir, b. á Læk,
Sigurðssonar, og Maríu Jónsdóttur. Móðir Maríu var
Steinunn Jóhannesdóttur.
Móðir Maríu var Þórunn María Þorbergsdóttir, b. í
Efri-Miðvík, Jónssonar, b. i Rekavík bak Látur,
Björnssonar. Móðir Þorbergs var Silfá Jónsdóttir,
systir Jóhannesar, afa Matthildar, ömmu Guðjóns
Arnars, alþm. og skipstjóra, og Jónu Valgerðar, fyrrv.
alþm. og sveitarstjóra, Kristjánsbarna. Björn
Guðmundsson, langafi Þórunnar Þorbergsdóttur, var
hálfbróðir Svanhildar, langömmu Kristjönu,
langömmu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar.
Móðir Þórunnar Þorbergsdóttur var Margrét
Þorsteinsdóttir, fyrri kona Þorbergs. Margrét var
dóttir Þorsteins, b. í Efri-Miðvík, Bjarnasonar, bróður
Guðríðar, ömmu Guðrúnar Guðleifsdóttur, ömmu
Kristjáns Pálssonar alþm. Bróðir Þórunnar var Óli,
afi Óla Þ. Guðbjartssonar, fyrrv. dómsmálaráðherra.
Hálfsystir Þórunnar var Sigríður, amma Ólafs Helga
Kjartanssonar, sýslumanns á Selfossi, og Árna
Ragnars Árnasonar alþm.
Jósef tekur á móti gestum i sal Frímúrara á ísafirði,
laugardaginn 22. mars frá kl. 18.
Höfuðstafir nr. 71
Maður er nefndur Johannes Gjerdáker. Hann er
Norðmaður og hefur undanfarin ár fengist við að
þýöa íslenskar vísur yfir á norsku. Það væri ef til
vill ekki í frásögur færandi nema fyrir þá sök að Jo-
hannes fer í þýðingum sínum nákvæmlega eftir hin-
um fornu, samnorrænu bragreglum. Hér á eftir birt-
ist sýnishorn af vísunum. Ég ætla að gamni mínu að
hafa þann hátt á að láta vísurnar standa án heitis
eða höfundar og leyfa lesendum að spreyta sig á að
þekkja þær:
Vitnemál i mot meg skein,
midt i det andre grjotet,
at Gud eig mang ein glimestein
som gloder i manneskrotet.
No er eg for stol til stev
og stilsvend fell or handi;
lite svevn kvar langnatt gjev,
Ijos i myrkret knapt eg hev,
kald eg hutnar, knytt i giktarbandi.
Snart skal jordi ha mitt hold,
her eg seint má bida.
Gaper mot meg grav i mold,
grev eg i mi von, mitt skjold,
runer som fár svar pá andre sida.
Syng du, venen min, syng du stilt
syng du til mjuke strengje;
sá eg droymer, droymer mildt,
droymer i freden lengje.
Eg ville helst eg fekk vera strá
og visna i lestane dine,
for du vil tro lint og lettast pá
leide brestane mine.
Laksen strid mot straumen renn
og sting mot harde grjote’;
ilt er á leggja elsk til den
som ingen vil gje i mote.
Hovet skal du gripa, gut,
gleda slik du skaper;
heite jarnet hamra ut,
han som drygjer, taper.
Lyder du, nár deg vert sagt
diktet folket laga,
fár du opp i loven lagt
land og folk og saga.
Over klaka aydesand
einsam eg stig pá ferdi;
no er kvorve Norderland,
no er eg heimlaus i verdi.
Auga mitt og auga ditt,
á dei fagre steinar!
Mitt er ditt, og ditt er mitt,
du veit, kva eg meinar!
Umsjón
+ %
sr