Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2003, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2003, Qupperneq 16
16 Útlönd FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2003 DV REUTERSMYND Mikið aö gera Colin Powell, utanríkisráöherra Bandaríkjanna, veröur önnum kafinn maöur í Brussel í dag. Powell situr 21 fund um Irak í Brussel í dag Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, situr hvorki meira né minna en 21 fund með ráðamönnum Evrópusambands- ins og NATO í Brussel í dag þar sem framtíðarskipan í írak að stríði loknu verður aðalumræðu- efnið. Bandaríkjamenn leggja þunga áherslu á að þeir fái að ráða mestu um stjórn íraks eftir stríð en Evrópuþjóðir eru ekki hrifnar af þeim hugmyndum. Meira að segja Bretar, dyggustu banda- menn Bandaríkjanna í stríðs- rekstrinum, ítrekuðu í gær að írakar sjálfir ættu að taka við stjórninni eftir að búið verður að steypa Saddam Hussein. Búist er við hörðum samninga- viðræðum um hver eigi að stjórna og hver eigi að borga fyr- ir endurreisnina og hve mikið. Israelar drápu sex á Gaza og Vesturbakka ísraelskir hermenn réðust með skriðdrekum og þyrlum á flótta- mannabúðir á Gaza í morgun og drápu þar fjóra Palestínumenn. ísraelar sögðu að ráðist hefði verið til atiögu gegn byggingum þar sem byssumenn og vopna- smyglarar héldu til. í Vesturbakkaborginni Nablus skutu ísraelskar sérsveitir einn palestínskan harðlínumann og í Qalqilya skutu hermenn fjórtán ára gamlan dreng til bana þar sem hann stóð fyrir utan heimili sitt. Sagt er að sést hafi til piltsins á flótta og að hann hafi ekki sinnt kalli dátanna um að stansa. Smithætta í Hong Kong. Skólalokun í HK fram- lengd um tvær vikur Yfirvöld í Hong Kong tilkynntu í gær að ákveðið hefði verið að framlengja lokun flestra skóla í borginni til 21. apríl vegna ótta við frekari útbreiðslu lungnabólguvírussins, sem dregið hefur sextán manns í borginni til dauða og nærri áttatíu manns i öllum heiminum. Yflrvöld höfðu áður ákveðiö að skólarnir yrðu lokaðir til 6. apríl og nær lokunin til allra grunn- og miðskóla í borginni. Tvæp bandapískar hepflug- velap skotnap niöun i |pak - aö minnsta kosti sjö fórust og fjórir slösuðust írakar skutu í gær og nótt niður tvær herflugvélar bandamanna í nágrenni borgarinnar Karbala með þeim afleiðingum að að minnsta kosti sjö manns fórust. Fyrri vélin sem var þyrla af gerðinni Biack Hawk varð fyrir skotárás liðsmanna íraska hersins, sem beitti léttvopnum og endaði árásin með því að þyrlan steyptist til jarðar með þeim afleiðingum að sjö manns fórust. Fjórir særðust og var þeim bjargað. Þyrlan var skotin niður á svæði þar sem bardagar hafa staðið milli bandarískra her- sveita og sveita úr íraska hernum og Lýðsveldisverði Saddams Husseins. Þetta er önnur þyrla Bandaríkjamanna sem skotin er niður síðan hernaðaraðgerðir hófust þann 20. mars en sú fyrri, sem var af gerðinni Apache, var skotin F/A Hornet herþota niður á fjórða degi aðgerðanna. Hornet-þotan sem írakar skutu niöur I nótt er sú fyrsta Báðir flugmenn hennar voru sem Bandaríkjamenn missa síöan stríöið hófst í írak. handteknir af Irökum. Seinni vélin, sem skotin var niður í nótt, var orrustuþota af gerðinni F/A Hornet og var hún skotin niður á svipuðum slóðum en hún mun hafa orðið fyrir íraskri stýriílaug. Ekki var í morgun vitað um örlög flugmannsins og var hans leitað að sögn talsmanna bandaríska hersins. Þotan er sú fyrsta sem Bandaríkjamenn missa síðan stríðið hófst í írak. Borgin Karbala er í annarri af tveimur sóknarlínum bandamanna til Bagdad og streyma framvarðarsveitir þeirra þar í gegn í átt til höfuð- borgarinnar á meðan aðrar sjá um að verja aðkomuleiðina fyrir árásum íraka, sem beita skæruhernaði. Að sögn talsmanns bandaríska varnarmálráðuneytisins í Pentagon hafa alls 53 Bandaríkjamenn fallið í stríðinu í írak til þessa auk þess sem ellefu er saknað. REUTERSMYND Vatnssopinn er góöur íraskur maöur gefur syni sínum vatn aö drekka eftir að vatnsdælustööin í borginni al-Zubayr var gangsett á nýjan leik. Mikill vatnsskortur hefur veriö í sunnanveröu írak frá því átökin hófust fyrir hálfum mánuði en breskum hermönnum hefur tekist aö koma vatnsveitum aftur í gang, aö hluta tii aö minnsta kosti, síöustu daga. Særöir bandarískir hermenn segja frá reynslu sinni af átökunum: Víssu varla hver var óvinuriin Þrír særðir bandarískir land- gönguliðar sögðu frá því í gær að þeir hefðu verið „hálfráðvilltir yf- ir því hver óvinurinn væri“ eftir að þeir höfðu lent í átökum við íraska hermenn sem þóttust vera óbreyttir borgarar. Landgönguliðamir lentu í átök- um við borgina Nassiriya, ein- hverjum þeim hörðustu til þessa í stríðinu í írak. Þeir þurftu að berj- ast sólarhringum saman án þess að sofa neitt að ráði og voru að- framkomnir af þreytu. „Þessi bardagi átti ekki að standa yfir í nema sex klukku- stundir. Við börðumst linnulaust í fimm sólarhringa," sagði lið- þjálfmn Bill Hale sem lenti í fyrir- sát íraka við Nassiriya. Hann er í REUTERSMYND Óskemmtileg reynsla Bandaríski landgönguliöinn Bill Hale sagöi fréttamönnum frá/eynslu sinni af átökunum í írak. hjólastól vegna meiösla sinna. Hermennirnir sögðust ekki hafa getað sofið nema tvo til þrjá tíma í senn á rúmlega þriggja sólar- hringa tímabili vegna stöðugrar skothríðarinnar. Landgönguliðarnir sögðu að sérstaklega erfitt hefði verið að greina hermennina frá óbreyttum borgurum. Sumir íraskir her- menn voru i borgaralegum klæð- um og konur og börn voru notuð sem mannlegir skildir. „Við vorum hálfráðvilltir um það hver óvinurinn væri,“ sagði Bill Hale. Þremenningarnir vísuðu á bug gagnrýni um að ekki væru nógu margir bandarískir hermenn komnir til átakasvæðanna. írak verði ekki skipt upp Gerhard Schröder Þýska- landskanslari sagði í morgun að ekki mætti skipta írak upp að stríð- inu loknu og að íraska þjóðin ætti sjálf að ráða yfir olíulindum sínum og öðrum nátt- úruauðæfum. Þá sagði hann að Sameinuðu þjóðirnar ættu aö gegna mikilvægu hlutverki. Ákvörðun um aðstoð í dag Sendimenn SÞ sögðu í gær eftir að hafa kynnt sér öryggismál í írösku hafnarborginni Umm Qasr að ákvörðun um hvenær neyðar- aöstoð hæfist þar yrði í fyrsta lagi tekin í dag. Ástandið var metið nokkuð gott. Bush minnist fallinna George W. Bush Bandaríkjafor- seti heimsækir stærstu bækistöð landgönguliða hersins í dag og hittir í fyrsta sinn ættingja her- manna sem hafa fallið í írak. Tyrkir heimila birgðaflutnínga Tyrknesk stjórnvöld féllust á það eftir fund með Powell, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, í gær að heimila flutning vista til bandarískra hermanna í norðan- verðu írak um Tyrkland. Saddam skrilar bréf Saddam Hussein íraksforseti segir í bréfi sem hann hefur skrifað að íraskar hersveitir muni stöðva sókn bandaríska hers- ins í átt að Bagdad og þær muni reka þá burt úr írak. íraska ríkissjónvarpið sagði frá þessu. Jarðsprengjur í mosku írakar hafa brotið alþjóðalög með því að geyma jarðsprengjur í mosku í Kadir Karam í norðan- verðu írak, að sögn mannrétt- indasamtakanna Human Rights Watch í gær. Sama dag lést myndatökumaður BBC þegar hann steig á jarðsprengju. Lula heillar fjárfesta Luiz Inacio Lula da Silva, forseti Brasilíu, hefur ekki setið nema tæpa hundrað daga í embætti en hefur þegar áunn- ið sér traust flár- festa sem dæla peningum inn í brasilíska hag- kerfið. Þá nýtur hann mikillar hylli kjósenda, að því er fram’ kemur í nýrri könnun. Ferjuræningjar vilja til BNA Vopnaðir menn sem rændu ferju á Kúbu í gær hafa krafist þess að fá eldsneyti svo þeir geti siglt til Bandaríkjanna. Harði kjarninn vísi veginn Joschka Fischer, utanríkisráð- herra Þýskalands, segir aö innsti kjami ríkja ESB þurfi ef til vill að móta sameiginlega varnar-, ör yggis- og utanríkisstefnu ef ekki tekst aö fá öll aðildarríkin með í upphafi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.