Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2003, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2003, Qupperneq 30
4 30 Islendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 8Q gra_____________________________ lm- Hlíf Guðjónsdóttir, Lýsubergi 13, Þorlákshöfn. Jón Jakobsson, Sporöagrunni 11, Reykjavík. 75 ára_____________________________ Erla Jónsdóttir, Birkihæð 4, Garðabæ. Guðni Albert Guðnason, Eyrarvegi 7, Flateyri. Hallgerður Sigurgeirsdóttir, Kaplaskjólsvegi 67, Reykjavík. Valgeir Slghvatsson, Norðurgarði 3, Keflavík. t 70 ára______________________________ Richard James Phillips, Fljótsdal 1, 861 Hvolsvelli. 60 ára_____________________________ Geir Friðbjörnsson, Hamrahlíð 38, Vopnafirði. Ingibjörg Þóroddsdóttir, Esjubraut 37, Akranesi. Lúðvík Magnússon, Tjarnarlundi le, Akureyri. Margrét Björgvinsdóttir, Hraunbæ 43, Reykjavík. Rósa Björg Sveinsdóttir, Sæbóli 16, Grundarfirði. 50 ára_____________________________ Arnfríður Jóhannsdóttir, Keilusíöu lla, Akureyri. A 40 ára_____________________________ Arna Björg Kristmannsdóttir, Hófgerði 3, Kópavogi. Birgir Elíasson, Brekkustíg 35c, Njarðvík. Daði Bragason, Engjahlíð 5, Hafnarfirði. Einar Steinsson, Kópavogsbraut 49, Kópavogi. Guðmundur Kristján Sigurðsson, Sunnuflöt 43, Garöabæ. Gunnar Kr. Jónsson, Seljalandsvegi 72, Isafirði. Júlíus Guðni Antonsson, Auðunnarstöðum 1, Hvammstanga. Karl Guðmundsson, Bárugötu 12, Reykjavík. Kristján V. Kristjánsson, Selsstöðum, Seyðisfirði. Sveinbjörn Guðjón Jónsson, Smáratúni 4, Keflavík. * 5SVINKIAR Allar gerðir testinga fyrir palla og grindverk á lager § Ármúll 17, 1BB Reykjai/ik Slml: 533 1334 fax: 55B 0499 FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2003 DV mmmt, Gylti Þórðarson framkvæmdastjóri Sementsverksmiöjunnar Gylfi Þórðarson, framkvæmda- stjóri Sementsverksmiðjunnar hf„ telur að verksmiðjuna hefði átt að selja fyrir flmm til sex árum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ítarlegri úttekt á stöðu verksmiðjunnar í fréttaljósi DV í gær. Starfsferill Gylfi fæddist á Akranesi og ólst þar upp. Hann var í Barnaskóla Akraness, Gagnfræðaskóla Akra- ness, lauk stúdentsprófi frá MA 1965, prófi í viðskiptafræði við HÍ 1969 og stundaði framhaldsnám í hagfræði við University of York í Englandi 1969-70. Gylfi stundaði skrifstofustörf í fjármálaráðuneytinu og í Fjár- mála- og hagsýslunefnd öðru hverju 1968-70, var fulltrúi í sjáv- arútvegsráðuneytinu frá 1970, deildarstjóri þar 1971-77, fjármála- stjóri Rafmagnsveitna rikisins í Reykjavík 1977-78, fjármála- og viðskiptalegur framkvæmdastjóri Sementsverksmiðju ríkisins á Akranesi 1978-1994 og hefur verið framkvæmdastjóri Sementsverk- smiðjunnar hf. frá ársbyrjun 1994. Gylfi átti sæti í ýmsum nefnd- um á vegum sjávarútvegsráðu- neytisins 1971-77, einkum í tengsl- um við skuttogarasmíðar og rekst- ur einstakra greina í sjávarútvegi, sat í stjórn Starfsmannafélags stjórnarráðsins 1971-75 og var for- maður þess 1974-75, var formaður Loðnunefndar frá stofnun 1973-77, sat í stjórn Flutningsjöfnunarsjóðs fyrir sement 1978-2000, sat í fram- kvæmdastjórn Knattspyrnusam- bands íslands 1975-89, var varafor- maður hennar 1984-89, formaður Knattspyrnuráðs Akraness 1979, formaður Knattspyrnufélags ÍA 1997 og 1998, formaður Lions- klúbbs Akraness 1983-84, sat í stjórn Lífeyrissjóðs Vesturlands 1989-2002, í stjórn Spalar ehf., fé- lags um gerð reksturs vegtenging- ar um utanverðan Hvaifjörð, frá stofnun 1991 og formaður þar 1991-96. Fjölskylda Gylfi kvæntist 28.2. 1981 Mörtu Kristínu Ásgeirsdóttur, f. 18.8. 1956, húsmóður. Hún er dóttir Ás- geirs Kristins Ásgeirssonar, f. 6.5. 1931, verslunarmanns á Akranesi, og k.h., Aðalbjargar Jónu Guð- mundsdóttur, f. 4.5. 1933, húsmóð- ur. Börn Gylfa og Mörtu Kristínar eru Ása Björg, f. 13.5. 1982, nemi við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi; Þórður Már, f. 7.9. 1985, framreiðslunemi; Birkir Örn, f. 14.1. 1987, grunnskólanemi; Harpa Lind, f. 29.5. 1991, grunnskóla- nemi. Bróðir Gylfa er Guðni Þórðar- son, f. 6.9.1939, framkvæmdastjóri Borgarplasts á Seltjarnarnesi, kvæntur Sjöfn Guðmundsdóttur og eiga þau þrjár dætur. Foreldrar Gylfa: Þórður Níels Egilsson, f. 14.9. 1916, d. 4.12. 1988, sjómaður og pípulagningameistari á Akranesi, í Kópavogi og á Sel- tjarnarnesi, og k.h., Jóna Valdi- marsdóttir, f. 21.4.1919, húsmóðir. Ætt Þórður var sonur Egils, verka- manns í Súðavík, bróður Jóns Guðjóns, b. á Mýri í Álftafirði, föð- ur Höskuldar, forstjóra ÁTVR. Egill var auk þess bróðir Helgu Maríu er varð hundrað ára 1998. Egill var sonur Jóns, b. að Skarði á Snæfjallaströnd, Egilssonar, b. þar, Þorgrímssonar, b. að Hvammi í Borgarfirði, Guðmundssonar. Móðir Egils var Kristín Matthías- dóttir, b. á Sandeyri í Djúpi, Jóns- sonar og Guðrúnar Magnúsdóttur, frá Kleifarkoti í ísafirði. Móðir Þórðar var Guðrún Ingi- björg Þórðardóttir. Jóna er dóttir Valdimars, for- manns og vegaverkstjóra á Akra- nesi, Eyjólfssonar, sjómanns og vegaverkstjóra í Bræðratungu á Akranesi, Sigurðssonar, sjómanns á Mel í Reykjavík, Bjarnasonar, snikkara í Melshúsum Sigurðs- sonar. Móðir Eyjólfs var Guðríð- ur, dóttir Eyjólfs Eyleifssonar og Guðríðar Ingimundardóttur. Móð- ir Valdimars var Hallbera Guðný Magnúsdóttir, b. á Kolbeinsstöð- um (Mófellsstaðakoti) í Skorradal, Sigurðssonar og Ingunnar Magn- úsdóttur. Móðir Jónu var Rannveig, syst- ir Þórðar Þ„ bifreiðaflutningafor- stjóra á Akranesi, föður Þórðar knattspyrnukappa, föður knatt- spyrnukappanna og þjálfaranna Ólafs og Teits. Rannveig var dótt- ir Þórðar, b. á Leiru, Þórðarsonar, og Guðnýjar, dóttur Stefáns Bjarnasonar, b. í Hvítanesi í Skil- mannahreppi, og Kristjönu Teits- dóttur. Andlát tmMm ■ J,;; flpni Krlstjánsson píanóleikari Árni Kristjánsson píanóleik- ari lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 19.3. sl. Útfór hans fór fram frá Dómkirkjunni á föstu- daginn var. Starfsferill Árni fæddist á Grund í Eyja- firði 17.12. 1906. Hann lærði á harmóníum hjá Sigurgeir Jóns- syni, söngmeistara á Akureyri, hélt til Berlínar 1923 og stundaði þar nám hjá Isolde, dóttur Xa- vers Scharwenka, og síðan nám í Kaupmannahöfn. Árni kom til íslands 1932, kvæntist hér konu sinni en hélt með henni til Þýskalands sama ár og þaðan til Kaupmannahafn- ar þar sem þau bjuggu til 1933. Þá komu þau heim og Árni tók við stöðu kennara við Tónlistar- skólann í Reykjavík. Hann var kennari þar 1933-59, yfirkennari og varaskólastjóri Tónlistarskól- ans í Reykjavík 1936-56 og skóla- stjóri þar 1956-59. Þá var hann tónlistarstjóri Ríkisútvarpsins 1959-75. Árni hélt fjölda tónleika sem einleikari, hérlendis og erlendis, og kom fram með öðrum tónlist- armönnum. Hann hljóðritaði mikið af píanóleik sínum fyrir útvarp og lék inn á eina hljóm- plötu. Ámi sat í stjórn Sinfóníu- hljómsveitar íslands, í stjórn Bandalags íslenskra listamanna, var meðal stofnenda Félags ís- lenskra tónlistarmanna og for- maður þess um skeið og formað- ur tónlistarnefndar NOMUS. Árni skrifaði ýmislegt um tónlist, m.a. ritgerðarsafnið Hvað er tónlist?, útg. 1986. Þá samdi hann og þýddi bókarhluta og kafla um Mozart, Carl Niel- sen, Bach, Chopin og Beethoven. Hann hlaut margvíslegar viður- kenningar fyrir störf sín, var m.a. heiðursborgari Fort Worth, heiðursfélagi Félags íslenskra tónlistarmanna og Tónlistarfé- lags Akureyrar og var sæmdur hinni íslensku fálkaorðu þríveg- is. Fjölskylda Árni kvæntist 18.11. 1932 Önnu Guðrúnu Steingrímsdótt- ur, f. 16.7. 1910, húsmóður. For- eldrar hennar voru Steingrímur Matthíasson, f. 31.3. 1876, d. 27.7. 1948, héraðslæknir á Akureyri, og Kristtn Katrín Thoroddsen, f. 8.9. 1885, d. 7.10. 1959, húsmóðir. Böm Áma og Önnu Guðrún- ar: Ingvi Matthías, f. 3.9. 1933, d. 28.9. 1996; Kristján, f. 26.9. 1934; Kristín Anna, f. 14.3. 1943. Barnabörn Árna og Önnu voru ellefu en tvö þeirra eru lát- in. Barnabarnabörnin eru fjórt- án og barnabarnabarnabörn eru fimm. Foreldrar Áma voru Kristján Árnason, f. 4.6. 1880, d. 20.11. 1970, kaupmaður á Akureyri, og k.h„ Hólmfríður Gunnarsdóttir, f. 5.6. 1885, d. 12.8. 1960, húsmóð- ir. Merkir íslendingar Pórhaliur Porgiísson Þórhallur Þorgilsson, bókavörður og magister í rómönskum tungumálum, fæddist á Knarrarhöfn í Dölum fyrir hundrað árum, sonur hjónanna Halldóru I. Sigmundsdóttur húsfreyju og Þorgils Friðrikssonar, bónda og kennara. Þórhallur varð stúdent frá MR 1922 og las rómönsk tungumál og bók- menntir við háskólana í Grenoble, Madrid og lengst við Sorbonne i París. Auk þess dvaldi hann á Ítalíu 1923-1929 og við nám við háskólann í Salamanca á Spáni 1951 og 1957. Þórhallur var löggiltur skjalaþýðandi í spænsku og frönsku, kenndi rómönsk mál, starfaði við ítalska konsúlatið í Reykjavík og var bókavörður á Landsbókasafninu frá 1943. Hann samdi kennslubækur í spænsku, ítölsku og frönsku, þýddi úr rómönskum málum og skrifaði greinar um rómanskar þjóðir og bókmenntir. Eiginkona Þórhalls var Bergþóra Ein- arsdóttir frá Garðhúsum í Grindavík en böm þeirra eru Ólafur Gaukur hljómlistarmaður, Dóra Gígja húsmóð- ir, Ólafla Guðlaug húsmóðir og Einar Garðar gullsmiður. Þórhallur lést 23. júlí 1958. „Hann felldi snemma djúpa ást til rómanskrar menningar sem entist honum allt lífið. Einkum var hann heillaöur af spænskri tungu og menningu," sagði dr. Símon Jó- hann Ágústssson, skólabróðir frá París, réttilega í minningargrein. Allt til alls ►I550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.