Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2003, Page 6
6
LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2003
DV
Suzuki Vitara JLX, 5 d., bsk.
Skr. 6/00, ek. 74 þús
Verð kr. 1290 þús.
Suzuki Sidekfck JX, 5 d., bsk.
Daewoo Lanos SX bsk.
Skr. 10/98, ek. 78 þús.
Verð kr.
Baleno GLX, 4 d.,
Skr. 7/97, ek. 46 þús.
Verð kr. 690 þús.
Suzuki Baleno GLX, 4 d., bsk.
Skr. 8/99, ek. 39 þús.
Verð kr. 990 þús.
Suzuki Swift GLX, 5 d., bsk.
Skr. 11/96, ek. 67 þús.
Verð kr. 450 þús.
Hyundai Accent GLS, bsk.
Skr. 7/98, ek. 45 þús.
Verð kr. 550 þús.
Hyundai Accent 1,5, bsk.
Skr. 12/99, ek. 27 þús.
Verð kr. 690 þús.
Hyundai Accent1,5, bsk.
Skr. 9/98, ek. 67 þús.
Verð kr. 490 þús.
Sjáðu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
---////----V;.;; .
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17, símí 568-5100
Fréttir
Árborg kaupir flugvallarlandiö á Selfossi:
Framtíð vallarins er tryggð
Bæjarráö Árborgar hefur
ákveöið að nýta sér forkaupsrétt
að því landi í nágrenni Selfoss þar
sem flugvöllur bæjarins er. Sem
kunnugt er keyptu Ræktunarsam-
band Flóa og Skeiða og Fossmenn
landið sl. vetur af bændum í
Sandvíkurhverfi og hafa haft uppi
áætlanir um að nýta það undir
byggingarlóðir. Af því verður þó
ekki, miðað við afstöðu bæjar-
ráðs.
Eflum starfsemina
„Ég er afskaplega ánægður með
þessa ákvörðun og tel að með
þessu sé framtíð flugvallarins
tryggð," segir Sigurður Karlsson,
en hann er meðal þeirra liðs-
manna Flugklúbbs Selfoss sem
harðast hafa barist í þessu máli.
Hann segist raunar trúa því að
með vandaðri skipulagsvinnu
megi tryggja ágætt sambýli við
byggðina á Selfossi sem hefur ver-
ið að teygja sig lengra til suðurs,
það er í átt að flugvellinum.
„Jafnframt sé ég fyrir mér að
við getum eflt starfsemina á flug-
vellinum, en þar hafa ýmsar hug-
myndir verið uppi,“ segir Sigurð-
ur.
Tryggja forræði
Flugvallarlandið sem Sveitarfé-
UV-IVIIINU
Rugvöllur og fögnuður
Bærinn kaupir flugvallarlandiö og tryggir framtiö vallarins. „Ég er afskaplega ánægður, “ segir Sigurður Karlsson,
lagið Árborg kaupir er alls 40
hektarar að stærð og fyrir það
greiðir bærinn um 40 milljónir
króna skv. heimildum DV. Á
fundi bæjarráðs í síðustu viku,
þar sem kaupin voru samþykkt,
kom fram að ekki hefði verið
ákveðið á hvern hátt umrætt
landsvæði yrði nýtt. Hins vegar
sé nauðsynlegt að tryggja forræöi
og ákvörðunarvald á spUdum sem
þessari, þar sem hún sé í jaðri
vaxandi byggðar og því viðbúið
að þar verði skipulagt til frekari
nýtingar í næstu framtíð. -sbs
Mlðlar afhenda Umhyggju fé
Miðlarnir Þórhallur og Valgeröur héldu fyrir skemmstu skyggnilýsingar fyrir
bíósýningu í Sambíóunum. Ágóðinn, sem safnaöist, var síðan afhentur Um-
hyggju, félagi til stuðnings langveikum börnum, viö sérstaka athöfn í gær.
Þetta er í þriðja skipti sem Sambíóin taka höndum saman með miðlunum til
þess að styrkja gott málefni. Alls safnaðist ein milljón króna á sýningunum
tveimur sem haldnar voru á Akureyri og í Reykjavík.
Hagræðing í kjölfar sameiningar Mjallar og Friggjar:
Uppsagnir hjá Mjöll-Frigg
Um 15 til 20 starfsmönnum hjá
MjöU-Frigg verður sagt upp í fram-
haldi af sameiningu fyrirtækjanna
MjaUar og Friggjar um miðjan
mánuðinn. Tæplega 50 manns
starfa hjá hinu sameinaða fyrir-
tæki en ætlunin er að þeir verði
um 30 að hagræðingu lokinni.
Starfsstöðvar fyrirtækjanna
voru áður fjórar, tvær á höfuð-
borgarsvæðinu og tvær á Akur-
eyri, en ætlunin er að þeim verði
fækkaö um eina á hvorum stað.
MjöU-Frigg framleiðir aUs kyns
hreinlætisvörur. Dótturfyrirtæki
þess, sem eru nokkur talsins, fást
við hreinlætisþjónustu og munu
starfa óbreytt áfram.
Bæjarstjórinn á Húsavík:
Launin hækka um 20%
Bæjarstjórn Húsavíkur hefur
endumýjað ráðningarsamning við
Reinhard Reynisson bæjarstjóra
og gildir nýr samningur út núver-
andi kjörtímabil bæjarstjórnar.
Laun bæjarstjóra hækka úr 495
þúsund krónum í 595 þúsund krón-
ur, eða um 20%, og eru eftir þá
breytingu, sem gUdir frá 1. janúar
2003, talin sambærUeg því sem ger-
ist hjá sveitarfélögum af þessari
stærð. Á ráðningartímanum taka
iaunin breytingum samkvæmt
launavísitölu sem gefm er út af
Hagstofu íslands en í eldri samn-
ingi tóku þau breytingum sam-
kvæmt launatöflu Starfsmannafé-
lags Húsavíkurbæjar. -GG
Kópavogsbær gagnrýnir afskipti af lóöaúthlutun í Vatnsendalandi:
Atyrðir félagsmalaráðuneytiö
Vegna úr-
skurðar félags-
málaráðuneytis-
ins nýverið,
varðandi úthlut-
anir byggingar-
lóða í Vatnsenda-
landi í Kópavogi,
telur Kópavogs-
bær að meðferð
kærumálsins
hafi frá byrjun
verið afar ómarkviss á vettvangi
ráðuneytisins. Þannig rugli ráðu-
neytið í byrjun saman heimildum
sínum til almenns eftirlits með
sveitarstjómum og heimildum til
að taka til meðferðar stjómsýslu-
kærar í einstökum málum. Þurft
hafi ábendingar frá Kópavogskaup-
stað til að laga þennan annmarka á
málsmeðferð ráðuneytisins.
í samþykkt Kópavogsbæjar segir
m.a.: „Ráðuneytið hafði aldrei í
þessu máli heimild til að taka
kæruna til meðferðar af þeirri ein-
foldu ástæðu, að aldrei kom til
greina að svipta þá sem úthlutað
fengu byggingarrétti þeim rétti,
eins og kröfur kæranda gerðu ráð
fyrir. Kemur þetta í ijós í niður-
stöðu úrskurðarins, því þar er ekki
talið unnt að taka kröfur kærand-
ans til greina þrátt fyrir að ráöu-
neytið telji að réttur hafi verið á
honum brotinn. Er réttur þessara
lóðarhafa talinn standa í vegi fyrir
því. Er svo að sjá sem ráðuneytið
telji sér heimilt að beita úrskurðar-
valdi í því skyni að láta mönnum í
té lögfræðiálit sem enga þýðingu
hefur í lögskiptum þeirra við hinn
kærða. Þessi málsmeðferð fær ekki
staðist. Vilji félagsmálaráðuneytið
koma frám athugasemdum við
stjómsýslu á vegum sveitarfélags
verður það að gerast á grundvelli
almenns eftirlitsvalds en ekki í
kærumálum einstakra aðila.
Á umsóknareyðublöðum bæjar-
ins kom skýrt fram, aö hver um-
sækjandi skyldi bara sækja um
eina tiltekna lóð en mátti tiltaka
tvær lóðir til vara. Kærandinn í
kærumálinu fór ekki eftir þessu.
Reyndi hann þannig að gera sinn
hlut betri en annarra umsækjenda,
eins og reyndar er viðurkennt í úr-
skurði ráðuneytisins. Leiðbeining-
ar bæjarins um þetta komu fram
með skýrum hætti á sjálfu eyðu-
blaðinu. Það er hreinasta fjarstæða
sem segir í úrskurði ráðuneytisins
að þetta hafi ekki verið skýrt þar.
Stjórnarskráin gerir ráð fyrir
því, að sveitarfélög skuli sjálf ráða
málefnum sínum eftir því sem lög
ákveða. Á þessi meginregla meðal
annars stoð sína í því, að sveitar-
stjórnir sækja umboð sitt beint til
kjósenda ekki síður en handhafar
frámkvæmdarvalds ríkisins. Þaö er
mikill misskilningur sem virðist
vera ráðandi í félagsmálaráðuneyt-
inu, að ráðuneytið hafi heimild til
afskipta af stjómsýslu sveitarfélag-
anna á þann hátt sem fram kemur
í forsendum úrskurðar ráðuneytis-
ins. Kópavogskaupstaður óskar eft-
ir góðri samvinnu við ráöuneytið.
Bærinn mun hins vegar ekki sætta
sig við afskipti ráðuneytisins af
stjórnsýslu sinni umfram þær
heimildir sem ráðuneytið hefur
samkvæmt lögum. Er látin í ljósi
ósk um að þessi samskipti geti far-
ið fram í framtíðinni án þess að
leita þurfi til almennra dómstóla
vegna þeirra."
Sigurður Geirdal bæjarstjóri seg-
ir að viðkomandi umsækjandi hafi
ekki fylgt reglum um umsóknir þar
sem segir að sækja eigi um eina lóð
sem fyrsta valkost en síðan tvær
lóðir til vara. Hann hafi sótt um 36
lóðir og því verið erfitt að átta sig á
hans vilja. Hann hafl ekki fengið
neina úthlutun, en sér detti helst í
hug að maðurinn hafi haldið að
dregið yrði um lóðimar og því hafi
umsóknimar verið svo margar sem
raun beri vitni. Viðkomandi maður
hafi einnig sótt um lóðir í Mosfells-
bæ og Garðabæ og notað sömu að-
ferðir þar, en enga úthlutun fengið.
Hann kæri einnig úthlutunina í
þeim byggðarlögum. -GG