Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2003, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2003
Helgarblaö 3Z>"V"
25
DV-rayndir E. Ól.
Dóra sker jarðarberin í
sneiðar sem hún raðar nett
ofan á bökuna sem búin er til
úr smjördeigi og fyllt með
vanillukremi.
Hér hellir Dóra jarðarberja-
dressingu yfir volgt léttsoðið
grænmeti skömmu fyrir fram-
reiðslu.
Hér er grænmetið komið á
disk og jarðarberjuin komið
fyrir á toppnum. Fínn léttur
réttur á sólríkum degi eða
sem meðlæti með þungri mál-
tíð.
.' , !. Freyðivín og kampavín
\ eru vín gleðinnar
^ - segir Sigurður Bjarkason hjá Allied Domeq
Vorið og sumarið eru sannarlega tímabil
hinna freyðandi vína. Kampavín eða freyðivín
er annars haft um hönd við gleðileg tækifæri
allan ársins hring enda með afbrigðum gleði-
legt vín. Eru þessi vín þá drukkin ein, sem for-
drykkur eða notuð sem matarvín allt borðhald-
ið og jafnvel áfram eftir matinn ef stemningin
býður upp á það.
Sigurður Bjarkason hjá Allied Domeq tók
létt i að velja vín að þessu sinni enda sagði
hann að fátt færi betur saman en jarðarber og
freyðivín. Mörgum finnst jarðarberin best
ómatreidd, „beint af skepnunni“ eins og stund-
um er sagt, en oft má gera frábæra rétti úr
jarðarberjum sem passa frábærlega með freyð-
andi vínum. Hægt er að fá freyðandi vín í nær
öllum víngerðarlöndum heims en Sigurður
mælir hér með fjórum vínum frá þremur lönd-
um sem öll eru þekkt fyrir framleiðslu freyð-
andi vína.
Frá Asti á Ítalíu kemur mikið og gott úrval
freyðivína. Það vín sem hefur verið einna
lengst í sölu hér á landi er Asti Martini. Mart-
ini er eitt af stærstu vörumerkjum frá Ítalíu og
hér er á ferðinni freyðivín sem hefur töluverða
sætu og mikinn ávöxt. Asti Martini passar
mjög vel méð sætum réttum og þykir glimr-
andi eitt og sér. Flaskan af Asti Martini kostar
850 krónur og fæst í öllum verslunum ÁTVR. Á
Spáni er freyðivínsrisinn Codorniu. Codorniu
Semi Seco er hálfsætt freyðivín sem hentar
með fjölbreyttum mat, allt frá léttum brauð-
réttum til matarmikiUa sjávarrétta. Einnig er
Codorniu Semi Seco gott eitt og sér. Þetta vin
kostar 990 krónur og fæst í öllum verslunum
ÁTVR.
Frakkland er mekka freyðandi vína og
Champagne er svæði sem allir leita til þegar
góða veislu gjöra skal. Frá Champagne kemur
úrval vína frá G.H.Mumm. Mumm Cordon
Rouge Brut er þurrt kampavín sem þykir frá-
bært með smáréttum, sjávarréttum, ljósu kjöti
og eitt og sér. Mumm Demi Sec er hins vegar
með töluverðri sætu og smellpassar með eftir-
réttum og er í sætari kantinum. Þá þykir það
frábært með brúðartertunni. Bæði vínin frá
Mumm kosta 2.590 krónur og fást í öllum versl-
unum ÁTVR.
Sigurður leggur áherslu á að freyðandi vín
eru vín gleðinnar og að fátt sé betra en að
dreypa á vel kældu freyðivíni í góðra vina
hópi. Og ekki saki að hafa jarðarber að narta í.
Umsjón
Ilaukur Lárus
Hauksson
t-