Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2003, Blaðsíða 26
/7 e / C) a rb / cj ö I>'Vr
LAUGARDAGUR 31. IVIAf 2003
—
ífjögur ár hefur útvarpsmaðurinn Kalli Lú
sankað að sér pikköpplínum. Nú er partur
afsafninu kominn á bók sem fólk ímaka-
leit getur flett upp í, viti það ekki hvað skuli
segja sjái það álitlegan kost. Þá getur góð
pikköpplína komið að góðum notum til að
opna samtalið.
„Pikköpplína er setning sem þú skýtur á einstakling
sem þér lýst vel á að eiga holdlegt samræði við,“ segir
Karl Lúðvíkson, útvarpsmaður á Fm 957, aðspurður hvað
pikköpplína eiginlega sé. Karl, eða Kalli Lú eins og hann
er venjulega kallaður, ætti að geta útskýrt þetta orð
„pikköpplína" enda hefur hann í nokkur ár sankað að
sér pikköpplínum í tengslum við þátt sinn „Heitt og
sætt“ og er nú að gefa 187 þeirra út á bók. Bók þessi, sem
kallast „187 heitar og sætar pikköpplínur", er í vasabrots-
formi og þvi hentug til að taka með á djammið því aftast
í henni er að flnna auðar síður fyrir símanúmer sem og
myndir af ýmsum hugsanlegum kynlífsstellingum.
Heitar, sætar og vænmar pikköpplínur
„Ætli fyrsta pikköpplínan hafi ekki bara verið „Hellir-
inn minn er stærri en hans,“ segir Kalli Lú hlæjandi þeg-
ar hann er spurður út í sögu pikköpplínanna. Eitt er víst
að þær eru til í öllum löndum og ferðast oft sama línan
einnig landanna á milli. „Ég hef verið að skoða pikköpp-
línur á Netinu og þar hef ég séð að sama línan er til á
mörgum tungumálum. Það er til alveg ótrúlega mikið af
pikköpplínum en í bókinni hef ég valið að skipta þeim
niður í flokkana: heitar, sætar, væmnar og þessi eina...,“
segir Kalli Lú og upplýsir að persónulega sé hann hrifn-
astur af fyndnum og hnyttnum pikköpplínum eins og:
„hæ, ég heiti kaffi og ætla að halda þér vakandi í alla
nótt!“. „Það er annars svo mismundandi hvað virkar á
fólk. Það sem einni stelpu flnnst ferlega væmið kann
annarri að þykja voða sætt. Það sem fólk verður líka að
átta sig á er að pikköpplínur virka ekkert einar og sér.
Það er ekki nóg að henda góðri pikköpplínu framan í ein-
hverja stelpu og þá er hún þín. Pikköpplínan er einung-
is opnunin á hugsanlegu samtali og getur sem sé virkað
sem fyrsta skref að nánari kynnum," segir Kalli. Eftir að
hafa í þrjú ár séð um þáttinn Heitt og sætt á Fm957, sem
fjallar aðallega um samskipti kynjanna, á Kalli í fórum
sínum óteljandi ráð um það hvemig nálgast megi hitt
kynið, enda eru hlustendur hans duglegir við að senda til
hans reynslusögur sínar. Kalli nefnir sem dæmi að það
geti t.d. verið sniðugt að skella ísmola á borðið hjá döm-
Karl Lúðvíksson er mikill áhugamaður um samskipti kynjanna og vonar hann að pikköpplínubók
hans geti komið mörgum að góðum notum.
DV-mynd E.Ól.
Nokkrar pikköpplínur
úr bók Kalla Lú:
„Hvað ersvona glataður staður
að gera íkringum svona
flotta stelpu eins og þig?“
„Var vont þegar þú
dast niður af himnum?"
„Getur þú vísað mér
veginn að hjarta þínu?“
„Trúir þú á ást við fgrstu sgn eða
þarf ég að labba fram hjá aftur?"
„Fgrirgefðu, ertu til í að færa þig
frá barnum. Þú ert að bræða all-
an ísinn?“
„Þú ert ísvo Ijótum buxum, má ég
hjálpa þér úr þeim?“
„Afsakið, ég tgndi símanúmerinu
mínu, má ég fá þitt?“
„Hvenær þarftu að vera
komin aftur til himna?“
unni sem verið er að reyna við og bijóta hann og segja:
„Ég var bara að brjóta ísinn á milli okkar“. Einnig má
kíkja á merkimiðann á bol viðkomandi og lesa af honum:
„Made in heaven“. „Mín reynsla er sú aö ef þú getur kail-
að fram bros hjá viðkomandi þá ertu á réttri leið,“ segir
Kalli og brosir.
Áhugi á samskiptum kynjanna
Sjálfur er Kalli, sem er þrítugur, genginn út en ekki
getur hann munað hvort hann náði í unnustu sína út
á einhverja ákveðna pikköpplínu eða ekki. „Ég hef
hins vegar oft skotið mig í kaf með röngum pikköpp-
línum. En þá hefur maður bara labbað í burtu og það
hefur hvatt mann til að gera bara betur næst,“ segir
Kalli og bendir á að miðað við upphringingamar sem
hann fær í þáttinn sinn þá virðast margir eiga í vand-
ræðum með að stíga í vænginn við hitt kynið.
„Síðan sms-ið kom þá þorir enginn lengur að tala
saman. Þó sms-ið sé gott á sinn hátt þá hefur það orð-
ið til þess að fólk er hætt að horfast í augu og sendir
bara sms. Fólk er líka alveg hætt aö kunna að taka
höfnun, þetta fer allt fram í gegnum símann nú orð-
ið,“ segir Kalli. Hann segist vera með aðra viðameiri
bók í vinnslu sem fjallar um samskipti kynjanna en
hvenær hún verði tffbúin er hann ekki viss um. „Ég
myndi segja að áhugi minn á þessu efni hafi kviknað
fyrir fjórum árum, bæði vegna eigin reynslu og upp-
lifunar minnar á aðferðum annarra bæði á djamminu
og í daglega lífinu. Við íslendingar mættum alveg taka
erlendar þjóðir okkur til fyrirmyndar hvað deitmenn-
inguna varðar. Við þurfum kannski ekki að hafa þetta
eins formlegt og í Bandaríkjunum en við mættum
samt vanda okkur betur,“ segir Kalli og likir leitinni
að lífsfórunauti við það að máta skó. Maður hættir
ekki fyrr en maður finnur einn sem passar. „Það eru
til fullt af bókum um samskipti kynjanna sem eru stíl-
aðar meira inn á kvenkynið. Það vantar bók sem tek-
ur líka mið af strákunum, bók sem er ekki akkúrat
skrifuð fyrir núið heldur tekur mið af lengri tíma.“
Hvað pikköpplínumar varðar þá segir hann að þær
séu vanmetnar. „Það er endalaust verið að gera grín
að lélegum pikköpplínum og fólk er oft spurt í viðtöl-
um: „Hver er lélegasta pikköpplínan sem þú hefur
heyrt“. Af hveiju er fólk aldrei spurt um bestu
pikköpplínuna?“ segir Kalli og dæsir.
- Hver er besta pikköpplína sem þú hefur heyrt?
„Úff, þær eru svo margar. Ég á einar 500 línur í fór-
um mínum,“ segir Kalli og á erfitt að gera upp á milli
þeirra. Akkúrat núna segir hann að grófar, agressífar
pikköpplínur séu hvað mest í tísku og hafa þær tekið
við af væmnum línum eins og. „ Var ekki vont þegar
þú dast af himnum?“. „Ætli pikköpplínan „Flottir
skór - viltu koma heim að ríða?“ sé ekki sú sem ég
held hvað mest upp á af þessum nýjustu,“ segir Kalli
að lokum.
-snæ