Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2003, Side 23
LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2003
23
HelQarblaö 3DV
... eitthvað fyrír þig?
Lancóme - líka meS
hárvörur
Eftir aö hafa hannaö hú&snyrtivörur
og förðunarvörur fyrir konur í ára-
[ tugi hefur Lancöme hafið framleiðslu
á hárvörum enda ákvarðast fegurð
kvenna ekki síst af vel hirtu hári og
geislandi húð. „Hair Sensation" er
nafn á hárlínu þeirra sem sögð er
, vera jafn vönduð og aðrar vörur
sem Lancöme leggur nafn sitt við.
i línunni er að finna sjampó, nær-
ingu og sérstakar meðferðir til að
mæta þörfum mismunandi hár-
gerða. Línan er hönnuð á rann-
sóknarstofum sem eru leiðandi i
heiminum hvað varðar rannsókn-
ir og hönnun hárvara. Vörurnar í
línunni hafa einstaka áferð sem
er sérlega finleg til þess að
þyngja ekki hárið, kremaða og
mjólkurkennda fyrir þurrt eða
skemmt hár og fljótandi og mýkj-
andi gel fyrir tiða hárþvotta.
Barnabé, þekktur hársnyrtir i
tískuheiminum, hefur gengið til liðs
við Lancöme sem sérlegur ráðunautur fyrirtækisins á þessu
sviði og hönnuður nýrra vara.
'Svitis«ms ,
ættarmót • garðveislur - afmæli - brúðkaupsveislur • útisamkomur - skemmtanir - tónleikar - sýningar - kynningar o.fl. o.fl. o.fl.
...og ýmsir fylgihlutir
• Ekki treysta á veðrið þegar skipuleggja á eftírminnilegan
viðburð. Tryggið ykkur og leigið stórt tjald á staðinn
- það marg borgar sig.
• Tjöld af öllum stærðum frá 50-400 m2.
• Leigjum einnig borð og stóla í tjöldin.
JaSdaSæfga skáta
...mei skitum á heimavelli
WWW.skatar.is ||ft550 9800 - fax 550 »801 - bis@skatar.is
Konunglegir hattar
100 höttum i eigu Elisabetar Englandsdrottningar hefur verið
stillt út i Kensingtonhöll i London. Hattarnir eru partur af sýn-
ingu sem er i gangi í höllinni á ýmsum fylgihlutum úr fataskáp
drottningarinnar en Elísabet hefur löngum þótt vera klassa-
kona með flottan stíl. Ferðalangar á leið til London, sem hafa
áhuga á hönnun og tisku, ættu að koma við i höllinni og lita
á gersemarnar.
Kvennagagnabanki opnaður
Hefur þú aflað þér sérfræðiþekkingar á einhverju sviði og vilt
miðla henni til samfélagsins? Ert þú tilbúin til að tjá þig i fjölmiðl-
um eða halda fyrirlestra um sérsvið þitt? Langar þig að sitja i
stjórnum fyrirtækja, nefndum eða ráðum og nýta þannig þekk-
ingu þína og reynslu til þess að hafa áhrif á stjórnun og stefnu-
mótun i samfélaginu? Ef svo er áttu heima i gagnagrunninum
Kvennaslóðir sem verður opnaður á Netinu 19. júní 2003. Mark-
mið kvennaslóða er að gera þekkingu og hæfni kvenna sýnilega
og aðgengilega. Kvennaslóðir er vettvangur fjölmiðla, fyrirtækja
og stjórnvalda til þess að finna hæfar konur til margvislegra
starfa með skjótvirkum hætti. Kvennaslóðir er mikilvægt tæki til
þess að vinna að jöfnum áhrifum kvenna og karla i samfélaginu.
Þú getur skráð þig núna á slóðinni www.kvennaslodir.is. A
vefnum eru leiðbeiningar um skráningu. Allar skráningar verða
yfirfarnar áður en þær eru settar inn í gagnagrunninn. Allar kon-
ur sem hafa áhuga, hæfni og metnað til að taka að sér ábyrgð-
arstörf, vera álitsgjafar í fjölmiðlum, ráðgjafar um sérsvið sitt eða vilja koma rannsóknarefnum sinum á framfæri eru hvattar til að
skrá sig. Að gerð kvennaslóða standa Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Islands, jafnréttisnefnd Háskóla ís-
lands, Kvennasögusafn Islands og Jafnréttisstofa fyrir tilstyrk ráðuneyta, stofnana og fyrirtækja.
Meiköpp fyrir
apa
Snyrtivörur eru ekki bara eitt-
hvað sem konur eiga einkarétt á.
i Tailandi eru slikar vörur einnig
notaðar af öpum eins og sést á
meðfylgjandi myndum. Apinn,
sem er hér vel málaður i framan
með augnskugga og varalit, er
17 ára gamall og heitir
Kanchana. Hann starfar i
skemmtanabransanum og treður
upp með söng og dansi fyrir
ferðamenn i héraðinu Lophuri
sem er frægt fyrir þann mikla
fjölda apa sem þar búa í sátt og
samlyndi við mannfólkið.
YMIN GARSA
Verslunin flytur
20-50% AFSLÁTTUR
Föstudag og laugardag
Sissa tískuhús
BvafltgUu 52, thnl 56* %U0.
Á horni Laugavegar og Klapparstígs
Skoðið heimastðuna
okkar og ktkið á tilboðin
Gullfalleg handmáluð
veggskilrúm, kistlar,
kommóður og
blómapottar.
Á MJÖG GÓÐU VERÐI!
Eftirfarandi verslanir bjóða þessar vörur:
Blómabúðin Dögg, Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði
Blómahafið við Gullinbrú, Stórhöfða 17, Rvk
A hortti Laugavegar og Klapparstigs
Heildsöludreifing